Morgunblaðið - 26.01.1988, Blaðsíða 1
i
í
fRttSmiMafrife
1987
ÞRItUUDAGUR 26. JANUAR
BLAÐ
FRJALSAR / HASTOKK
Gunnlaugur
stökk 2,15 m
Gunnlaugur Grettisson, hástökkvari úr ÍR,
setti íslandsmet á breska meistaramótinu
innanhúss, sem haldið var í Cosford um helg-
ina. Gunnlaugur gerði sér lítið fyrir og stökk
yfír 2,15 metra — bætti því sitt gamla met,
sem hann setti fyrir rúmum mánuði, um þrjá
sentímetra. Eftir mótið sagðist Gunnlaugur
hafa sett stefnuna á ólympíuleikana í Seoul í
haust — ég ætla mér að stökkva yfír 2,22
metra á þessu ári, sagði hann í samtali við
fréttamann Morgunblaðsins á mótinu. Þórdís
Gísladóttir keppti einnig á mótinu, stökk 1,85
m og varð í öðru sæti — hlaut silfurverðlaun.
■ Um mótlð/B2.
HANDKNATTLEIKUR / VESTUR-ÞYSKALAND
Jóhann Ingi Gunnarsson
hættur hjá Tusem Essen
Lét af störfum í gær og kemur heim til íslands ívor. Þjálfar íslenskt lið næsta vetur
JÓHANNI Inga Gunnarssyni
var í gær sagt upp þjálfara-
starfi sínu hjá vestur-þýsku
meisturunum f handknattleik,
Tusem Essen. Liðiðtapaði
um helgina með tveggja
marka mun gegn Nurnberg á
útivelli og er í sjötta sæti
deildarinnar.
yrir leik Essen gegn Niirn-
berg um helgina bað forseti
félagsins, Shom, um að fá að tala
við leikmenn liðsins í búningsklef-
anum að Jóhanni Inga Qarver-
andi. „Þar hellti hann sér yfir þá
— svívirti hvem leikmann. Hann
vonaðist til að þetta hefði þau
áhrif að liðið sigraði en það gekk
ekki upp og þá er ráðist á sama
hlekk og venjulega — þjálfarann,"
sagði Jóhann Ingi í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Forsetinn
var svo með svívirðingar bæði í
minn garð og leikmannanna í
blöðunum í morgun [í gær] þann-
ig að þetta gat ekki endað nema
á einn veg. Eg var svekktur fyrst,
en eftir að hafa hugsað málið sá
ég að gat ekki gert neitt til að
koma í veg fyrir þetta. Svona er
þetta einfaldlega hér í Þýska-
landi."
Jóhann Ingi sagði ennfremur:
„Liðið varð meistari með glæsi-
brag undir minni stjóm í fyrra
og þá komst iiðið lengra í Evr-
ópukeppninni en nokkum tíma
áður — við fórum í undanúrslit í
keppni meistaraliða. Liðið er nú í
átta liða úrslitum í Evrópukeppn-
inni. Láðið er í sjötta sæti deildar-
innar en ef það sigrar í heimaleik
næsta sunnudag þá fer það aftur
upp í 4. sæti. En forsetinn er
ekki ánægður. En ég tel að með
þessu sé hann að hylma yfír sín
eigin mistök. í haust gat hann
ekki komið í veg fyrir að tveir af
bestu leikmönnum liðsins færu í
burtu, til Wanne Eickel sem leikur
í 2. deild. Þar fyrir utan hafa
margir leikmanna okkar verið
meiddir í vetur, þannig að það var
vitað mál að gengi okkar yrði
ekki betra en raun ber vitni. Ég
var búinn að spá því að við yrðum
um það bil í 5. sæti, og í vetur
höfum við verið á bilinu 4. til 6.
sæti," sagði Jóhann Ingi. Hann
bætti því við að forsetinn vildi
ekki viðurkenna hvað væri að
gerast hjá félaginu. „Það hefði
verið mikið áfall að Alfreð ákvað
að fara heim, og það eru iíkur á
að fleiri leikmenn fari frá félaginu
eftir þetta tfmabil.“
Nýr þjátfari
Skv. upplýsingum sem Jóhann
Ingi fékk hjá félögum sínum í
blaðamannastétt hefur forsetinn
þegar fundið nýjan þjálfara. Sá
heitir Hade Schmidt, er fyrrver-
andi leikmaður með félaginu og
þjálfaði það reyndar fyrir fimm
árum. Eftir að hann tók við liðinu
tapaði það fyrstu sjö leikjum
keppnistímabilsins og þá var hann
rekinn!
En hvað segir Jóhann Ingi um
Þýskalandsdvölina? „Éggerði mér
grein fyrir því þegar ég kom út
að ef til vill yrði ég hér í viku, ef
til vill í mánuð eða jafnvel í ár.
Nú hef ég verið hér í sex ár, náð
mjög góðum árangri með tvö ólík
lið, þannig að ég er ánægður."
Jóhann flyst heim til íslands í vor
og þjálfar örugglega íslenskt lið
næsta vetur. Nokkur félög hafa
sett sig í samband við hann, en
það kemur ekki í ljós strax hvað
verður úr.
■ Vlðbrögð Al
freðs Gíslason
ar/B2.
Jóhann Ingl á bekknum hjá Essen. Það getur verið einmannalegt starf
að vera þjálfari.
KNATTSPYRNA
Ómarí
Fram?
Omar Torfason, landsliðsmaður
í knattspyrnu sem leikur með
Olten í 2. deild í Sviss, segist ganga
í raðir Framara ef hann komi heim
í sumar.
„Eins og staðan er í dag þá er al-
veg eins líklegt að ég komi heim.
Samningur mjnn rennur út í vor
og verð ég ekki áfram nema að
félagið geri við mig tveggja ára
samning. Það spilar einnig inn í að
dóttir mín fer í skóla næsta haust,“
sagði Ómar.
„Ef ég kem heim þá klæðist ég
bláu peysunni það er engin spurn-
Ómar Torfason.
ing. Mér leið mjög vel hjá Fram og
átti þar mitt besta tímbil."
Ef Omar kemur heim yrði hann
löglegur með Fram í endaðan júní.
SKÍÐI
Júgóslavneskur
þgálfari til Akureyrar
Hefur verið einn landsliðsþjálfara Júgóslava
Skíðaráð Akureyrar hefur ráð-
ið júgóslavneskan þjálfara
og kemur hann til starfa 4. febrú-
ar næstkomandi. Nafn þjálfarans
er Cveto Jagodic
Frá og er hann vel
Reyni þekktur, og hefur
Einksssyni ham) verjð 0Ínn af
a ureyri landsliðsþjálfurum
Júgóslava upp á síðkastið.
Gengið var frá ráðningu Jagodic
á sunnudaginn, en þá gaf stjórn
júgóslavneska skíðasambandsins
grænt ljós á að hann kæmi hingað
til lands. Það var fyrir atbeina
skíðakappans kunna, Bojan
Krizaj, að SRA réð Jagodic til
starfa. Krizaj er frægasti skíða-
maður Júgóslava, og hafa for-
ráðamenn SRA verið í sambandi
við hann annað veifið allt frá því
að hann kom tii Akureyrar á
síðastliðnu sumri í einkaerindum.
Honum hefur verið boðið að koma
og keppa sem gestur á Landsmót-
inu, sem haldið verður á Akureyri,
í vetur, en ekki er enn ljóst hvort
hann getur þegið boðið.
BÍLAR: HYUIMDAITEKUR LAIMD Á ÍSLAIMDI/B 12.