Morgunblaðið - 26.01.1988, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 26.01.1988, Blaðsíða 4
4 B jBotflunÞIaÍib /IÞROTTIR ÞRŒUUDAGUR 26. JANÚAR 1988 Stjömuleik- urinn 1988 Verðurað þessu sinni í Chicago7.febrúar HINN árlegi stjörnuleikur verður að þessu sinni í Chicago 7. febrúar nk. Reyndar vœri nær að tala um stjörnuhelgi því á laugardeginum 6. febrúar er úrvalsleikur „gömlu mannanna", 3-stiga skot- keppni og hin stórkostlega troðkeppni. Eins og menn muna, þá sigraði KARFA Einar Bollason skrífar vesturstrandarúrvalið í fyrra eftir framlengdan og æsispennandi leik og Tom Chambers, Seattle, var valinn besti leik- maðurinn. Larry Bird sigraði í 3-stiga keppninni og Micha- el Jordan i troð- keppninni. Því miður er uppselt á leikinn í ár og svartamarkaðsbrask í fullum gangi. Við verðum því að bíða eftir því að sjá leikinn á Stöð 2, þótt óneitanlega hefði verið gam- an að vera á staðnum. Annars hefur það kvisast út að í bígerð sé hóp- ferð til Bandaríkjanna til að sjá nokkra leiki í NBA. Sannarlega það sem margir hafa beðið eftir og ekki skemmdi það ef tækifæri gæfist til þess að sjá Pétur Guðmundsson í leik. Hann er nú kominn á fulla ferð aftur með liði sínu og stendur sig frábærlega þessa dagana. Við skulum nú líta nánar á stjörnu- leikinn og þær reglur sem gilda um val á leikmönnum og þjálfurum. Þjálfarar liðanna eru frá þeim liðum sem bestum árangri hafa náð eftir leikina 24. janúar. Pat Riley, Lak- ers, stendur best að vígi í vestur- deildinni og sá eini sem gæti ógnað honum er John MacLeod, Dallas. Það er meiri spenna í austurdeild- inni þar sem þeir berjast Mike Fratello, Atlanta, Chuck Daly, Detroit og K.C. Jones, Boston. Ekki kæmi mér a'óvart þótt hinn ungi og skemmtilegi þjálfari Atl- anta, Mike Fratello (þjálfari ársins 1986), stjómaði austurdeildarliðinu að þessu sinni. Við val á liðinu gilda þær reglur að almenningur kýs byrjunarliðin en þjálfarar allra liðanna í viðkom- andi deild velja svo þá 7 sem eftir eru í hvoru liði. Hver þjálfari verður að velja 2 fram- herja, 2 miðherja, 2 bakverði og 1 leikmann að auki (úr hvaða stöðu sem er). Þeir mega ekki velja leik- menn úr liði sínu. í bytjun þessa mánaðar var staðan í atkvæðagreiðslunni sú að fyrir austurdeildina myndu bytja: Larry Bird, Boston; Dominique Wilkins, Atlanta; Moses Malone, Washing- ton; Michael Jordan, Chicago; Isiah Thomas, Detroit. Hjá vesturdeildinni yrði byrjunarlið- ið: Alex English, Denver; Calvin Natt, Denver; Akeem Oljavwon, Houston; Magic Jonson, Lakers; Úr körfu- hringnum KARFA Einar Bollason skrífar ■ MICHAEL Jordan er stiga- hæstur í deildinni með 32,5 stig að meðaltali í leik í vetur. hann hefur líka skorað flest stig í einum leik, 52 gegn Cleveland 17. desember s.i. Terry Porter, Portland, hefur leikið flestar mínút- ur í vetur og Charles Oakley tekið flest fráköst (14.0 pr. leik). Jack Sikma. Milwaukee, er efstur í vítahittni (96%) og Kelly Tripucka, Utah í 3-stiga skotum (58%). Magic Johnson er efstur í stoð- sendingum og Michael Jordan í „stolnum boltum". Þá er Mark Eaton, Utah, efstur í vörðum skot- um. ■ ATLANTA og Seattle eru með bestan árangur á heimavelli í vetur, þau hafa aðeins tapað einum leik. Lakers og Detroit eru með bestan árangur á útivelli, hafa tap- að fimm leikjum. ■ AÐSÓKN heldur áfram að aukast í NBA og nú stefnir í enn eitt metárið. Eftir fyrstu 250 leikina í vetur hefur aðsókn aukist um 6% og hefur aukningin orðið mest hjá Seattle (46%) og Detroit (41%). Aukningin er engin hjá Boston, Portland og Sacramento. Þar er allt uppselt eins og undanfarin ár!!H! ■ CHARLES Oakley, sem er efstur í fráköstum í deildinni í dag, er óánægður með laun sín hjá Chicago. Hann fær ekki „nema“ 375.000% á ári og til samanburðar má geta þess að Buck Williams, New Jersey, er með 1.500.000% á ári. Akeem Olajuwon, leikmaðurinn snjalli hjá Houston, verður í sviðsljósinu. Lafayette Lever, Denver. Auðvitað getur ýmislegt breyst fram að leiknum en athygli vekur með vesturstrandarliðið, að Lakers eiga aðeins 1 mann í liðinu á meðan Denver á 3 ... Við munum reyna að fylgjast með nýjum tölum jafnóðum og þær ber- ast en til gamans ætlum við að spá um þá leikmenn sem þjálfarar velja til viðbótar og þá miðað við þessar tölur, sem eiga þó örugglega eftir að breytast. Austurstrandarliðið: Kevin McHale, Boston;. Robert Parish, Boston; Patrick Ewing, New York; Charles Barkley, Philadelphia; Kevin Willis, Atlanta; Maurice Cheeks, Phila- delphia; Dennis Johnson, Boston. Vesturstrandarliðið: Kareem Abd- ul-Jabbar, Lakers; James Donald- son, Dallas; James Worthy, Utah; Clyde Drexler, Portland; Alvin Ro- bertsson, San Antonio; Mark Aquirre, Dallas. KÖRFUKNATTLEIKUR / STJÖRNULEIKUR Suðumesjaúrval gegn „Landinu“ Annað kvöld að Hlíðarenda. Troðkeppni og 3-stiga keppni. Bestu menn fá vegleg peningaverðlaun STJÖRNULEIKUR Körfuknatt- leikssambands íslands og Samtaka íþróttafróttamanna verður í íþróttahúsi Vals að Hlíðarenda annað kvöld, mið- vikudag 27. janúar. Þar verður mikið um að vera, troðkeppni hefst kl. 19.30,3-stiga skot- keppni hefst kl. 20.00 og kl. 20.30 hefst svo sjálfur stjörnu- leikurinn. Liðin sem mætast í stjömuleikn- um er annars vegar úrvalslið af Suðumesjum og hins vegar lið skipað leikmönnum annars staðar af landinu. Það eru íþróttafrétta- menn sem velja bæði liðin og þjálfara þeirra auk þess sem þeir velja dómara leiksins. Þjálfari suð- umesjaliðsins verður Gunnar Þorvarðarson, sem þjálfar lið ÍBK, en Einar Bollason, þjálfari ÍR, verð- ur við stjómvölinn hjá „Landinu". Liðin tvö verða þannig skipuð: LANDIÐ Jóhannes Kristbjömsson, KR, Pálmar Sigurðsson, Haukum, Tóm- as Holton, Val, Henning Hennings- son, Haukum, Birgir Mikaelsson, KR, Leifur Gústafsson, Val, Torfi Magnússon, Val, ívar Webster, Haukum, Símon ólafsson,' KR, Bjöm Steffensen, ÍR. SUÐURNES Guðjón Skúlason, ÍBK, ísak Tómas- son, UMFN, Jón Kr. Gíslason, ÍBK, Hreiðar Hreiðarsson, UMFN, Hreinn Þorkelsson, ÍBK, Teitur Örlygsson, UMFN, Valur Ingi- mundarson, UMFN, Guðmundur Bragason, UMFG, Helgi Rafnsson, UMFN og Magnús Guðfinsson, ÍBK. Dómarar leiksins verða Jón Otti Ólafsson og Sigurður Valgeirsson. Hátíðin hefst sem fyrr segir kl. 19.30, með undanrásum í þriggja stiga keppninni og troðkeppninni, en í leikhléi munu úrslitin fara fram. Sérstök dómnefnd mun velja besta mann leiksins jafnframt því sem hún mun dæma í troðkeppninni. Það er til allnokkurs að vinna því 15.000 krónur verða veittar þeim sem sigrar í troðslukeppninni og þriggja stiga keppninni, og besti maður leiksins fær 20.000 krónur. Eftirtaldir voru valdir í troðkeppn- ina: Teitur Örlygsson, Valur Ingimundarson og Helgi Rafnsson UMFN, Ólafur Gottskálksson, Jón Kr. Gíslason og Magnús Guðfinns- son ÍBK, Guðmundur Bragason UMFG, Birgir Mikaelsson KR, Tómas Holton Val og ívar Webster Haukum. í 3-stiga keppninni keppa eftirtald- ir: Karl Guðlaugsson ÍR, Valur Ingimundarson og Teitur Örlygsson UMFN, Pálmar Sigurðsson Hauk- um, Hreinn Þorkelsson, Jón Kr. Gíslason og Guðjón Skúlason ÍBK, Ástþór Ingason, Birgir Mikaelsson og Jóhannes Kristbjömsson KR. Morgunblaðið/Einar Falur Hrelnn Þorkelsson, leikmaður Keflavíkurliðsins, leikur með Suður- nesjaúrvalinu og tekur þátt í 3-stiga keppninni. Björn Björgvinsson formaður KKÍ: Bið félaga í UMFN afsökunar" ff MORGUNBLAÐIÐ haffti sam- band vift Björn Björgvinsson formann Körfuknattleikssam- bandslns vegna ákvörftunar stjórnar körfuknattleiksdeild- ar UMFN um aft heimila ekki leikmönnum liðsins aft taka þátt í „stjömuleiknum" sem framfórámorgun. Bjöm sagðist harma það mjög ef ummæli þau sem höfð voru eftir honum hér á íþróttasíð- unni á þriðjudaginn fyrir viku væru skilin sem svo að þau væru tilmæli til aganefndar KKÍ um að dæma Sturlu Örlygsson úr Njarðvíkum á þann veg sem fór. „I aganefnd KKÍ sitja þrír valin- kunnir menn, þekktir af háttvísi. Ég trúi því varla að ég hafi haft þau áhrif á þá að þeir breyti gegn betri vitund en ef svo hefur verið þá bið ég aganefndina og alla félaga í Ungmennafélagi Njarðvfkur afsökunar á þessum ummælum," sagði Bjöm Björg- vinsson formaður KKI. IMjarðvík- ingar ætluðu ekki að verameð Stjóm körfuknattleiksdeildar UMFN hafði hug á þvf um tíma að þeir 5 leikmenn sem valdir voru til að leika í úrvalsliði á „stjömu- kvöldinu" yrðu ekki með. Þeir voru ósáttir við ummæli Bjöms Björgvinssonar, formanns KKl, í Morgunblaðinu sama dag og aga- nefd KKÍ tók fyrir mál tveggja Njarðvíkinga — en eftir að Bjöm ákvað að biðjast afsökunar á þeim ummælum ákváðu Njarðvíkingar að gefa menn sína lausa og verða þeir því með á „stjömukvöldinu." Bjöm sagði í Morgunblaðinu á þriðjudag- inn:„ Ef Sturla sleppur með áflog en Valur er dæmdur fyrir munnsöfn- uð er eitthvað að.“ „Það eru engin fordæmi fyrir því að formaður sérsambands blandi sér í mál af þessu tagi og við erum ákaflega óhressir með ummæli Bjöms Björgvinssonar," sagði Hilm- ar Hafsteinsson formaður körfu- knattleiksdeildar UMFN f samtali við Morgunblaðið. Hilmar sagði að með ummælum sfnum sama dag og aganefnd tók mál tvípienninganna fyrir hefði Bjöm Björgvinsson form- áður KKÍ verið búinn að dæma í málinu persónulega. Sem kunnugt er dæmdi aganefnd þá Sturlu Orlygsson og Val Ingi- mundarson f eins leiks keppnisbann og léku þeir ekki með UMFN gegn ÍBK í bikarkeppninni á fóstudaginn f Njarðvfk. Hilmar sagði að -endur- skoða þyrfti reglumar sem aganefnd starfaði eftir og sér fyndist ekkert réttlæti í að dæma f máli eins og Sturlu þar sem aðeins er farið eftir umsögn þriðja aðila. „Ég tel eðlilegt að aðilar sem málið snýst um verði líka látnir gefa skýrslur um atvik af þessu tagi,“ sagði Hilmar enn- fremr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.