Morgunblaðið - 26.01.1988, Blaðsíða 5
3tt«rflimMaM> /ÍÞRÓTTIR ÞRŒUUDAGUR 26. JANÚAR 1988
B 5
BREYTING
Allir leikir hverrar umférðar í 1. deild á sama tíma
Góð tillaga mótanefndar KSÍ, sem félögin hljóta að samþykkja
36,55% aukning áhorfenda á síðasta keppnistímabili
Ekkert aA óttast
Ef Framarar leika í sumar eins og í fyrra þurfa þeir ekki að óttast að
áhorfendum á leiki þeirra faekki, þó annar leikur í 1. deild verði í
Reykjavík á sama tíma.
2. deild hefst laugardaginn 21.
maí og lýkur 24. september.
Þrjár umferðir fara fram á
sunnudögum í júní, en allar hin-
ar á laugardögum. Þar verður
hálfs mánaðar hlé milli 10. og
11. umferðar, frá 23. júlí til 6.
ágúst, en annars er vika á milli
leikja.
Tillögu mót'anefndar ber að
fagna. Með því að leika alla leiki
hverrar umferðar á sama tíma
verður mótið aðgengilegra fyrir
alla, keppnin samþjappaðri,
staðan ljós á sama tíma hveiju
sinni. Meiri líkur eru á að heima-
vellimir standi undir nafni, meiri
heimavallarstejnmning skapist á
það er fámennur hópur. Frekar
er um menn að ræða, sem eru
með boðsmiða og þeir styrkja
ekki félögin fjárhagslega með
því að mæta á völlinn.
Á síðasta keppnistímabili voru
allir leikir í fyrstu umferð og f
fimm þeim síðustu á sama tíma
og gafst það vel. Spennan var
meiri og áhorfendaaukning frá
1986 var 36,55%. Því var rök-
rétt hjá mótanefnd að gera enn
betur á næsta tímabiii og von-
andi bera félögin gæfu til að
samþykkja uppkastið óbreytt.
Steinþór
Guðbjartsson
Eins og greint var frá í Morg-
unblaðinu á sunnudaginn,
var dregið í töfluröð 1. og 2.
deildar karia í knattspymu á
laugardaginn. Helgi Þorvalds-
son; formaður mótanefndar
KSI, lagði við það
tækifæri fram til-
lögu mótanefndar
um leikdaga og er
þar gert ráð fyrir að
allir leikir hverrar
umferðar fari fram
á sama tíma. Tillag-
an hiaut góðar
undirtektir flestra
viðstaddra fulltrúa
félaganna og hljóta
félögin að sam-
þykkja hana eins og
hún liggur fyrir.
Í 1. deild er lagt til
að fímm umferðir
fari fram á laugar-
dögum, fjórar á
sunnudögum, fjórar
á mánudögum, þrjár
á miðvikudögum og
tvær á föstudögum.
Hálfs mánaðar hlé
verður milli 11. og
12. umferðar, frá
24. júlí til 7. ágúst,
og lengist tímabilið,
sem því nemur.
Fyrsta umferð verður sunnu-
daginn 15. maí og 18. og síðasta
umferð laugardaginn 24. sept-
ember.-Tvær umferðir verða í
maí, sex í júní, þijár í júlí, jafn-
margar í ágúst og fjórar í
september. í mai verður leikið á
sunnudegi og laugardegi, tvö
mánudagskvöld, tvö miðviku-
dagskvöld og föstudagskvöld í
júní, á mánudegi, föstudegi og
sunnudegi í júlí, tvö sunnudags-
kvöld og eitt mánudagskvöld i
ágúst og alla laugardaga í sept-
ember.
hveijum stað. Tilkynntar verða
nýjustu tölur úr hinum leikjun-
um, áhorfendur tengjast mótinu
betur, umræðan verður meiri,
sem eflir félögin og ef liðin
standa sig, eykst aðsóknin von-
Af velll ð pallana
Ingi Björn Albertsson hætti að leika i 1. deild á
síðasta keppnistímabiii vegna anna, en hann
mætir örugglega á alla Valsleiki í sumar til að
hvetja slna menn, en lætur leiki annarra liða eiga
sig.
andi í réttu hlutfalli.
Það er helst að sumir í Reylcja-
víkurfélögunum séu mótfailnir
því að tveir eða fleiri ieikir fari
fram í Reykjavík á sama tíma
— segja að það dragi úr aðsókn.
Sjáifsagt er það rétt að ein-
hveiju leyti, en réttlætir samt
ekki að dreifa ieikjum sömu
umferðar á fleiri daga. Liðin
eiga sína föstu stuðningsmenn
og þau, sem skara fram úr
hveiju sinni, laða fleiri að. Að-
eins allra hörðustu áhugamenn
reyna að sjá fleiri en einn leik
í sömu umferð, ef kostur er, en
4i^h»
mm
FQLK
■ LÁRUS Guðmundsson og
félagar hans hjá Kaiserslautern
fóru í gærmorgun í tíu daga æfinga-
búðir til Portúgals. Lárus er mjög
ánægður með nýja þjálfarann hjá
félaginu og hefur hann leikið með
Kaisterslautem í innanhússknatt-
spymumótum að undanfömu.
■ BEN Johnson frá Kanada
hljóp 55 metra á 6.01 sekúndu á
alþjóðlegu ftjálsíþróttamóti innan-
húss í Ottawa í .Kanada um helgina.
Þetta er annar besti tími, sem náðst
hefur í 55 metra hlaupi innanhúss,
en Lee McRae hljóp á 6.0 sekúnd-
um 1986.
■ ARTURO Barrios frá Mexíkó
sigraði í Nara hálfmaraþonhlaupinu
í Japan á laugardaginn. Barrios,
sem er 25 ára, varð fjórði í 10 km
hlaupi á heimsleikunum í Róm og
steftiir á að taka þátt í maraþoninu
'aÓlympíuleikunum í Seoul. Barri-
os hljóp vegalengdina á einni
klukkustund, tveimur mínútum og
þremur sekúndum. John Tracy frá
Irlandi varð annar á 1:02.22 og
Japaninn Kozo Akutsu þriðji á
1:02.25. Bretinn Steve Jones, sem
á annan besta tíma í maraþoni
(2:07.13) varð fjórði á 1:02.28, en
Fernando Mamede frá Portúgal,
heimsmethafínn í 10 km hlaupi,
hafnaði í 16. sæti á 1:04.57.
■ VALERY Smetanin, lækni so-
véska skautalandsliðsins, var vikið
úr starfí um helgina fýrir að hafa
selt norska skautahlauparanum
Stein Krosby steróíð eða bola (ana-
bolic steroids). Málið hefur vakið
mikla athygli í Noregi og var því
haldið fram að sovéski skautahlaup-
arinn Nikolai Gulyayev hefði verið
sölumaðurinn. Rume Gerhardsen,
formaður norska skautasambands-
ins, sagði að Norðmenn myndu
færa ólympíunefndinni sannanir
þess efriis að Gulyayev hefði selt
efnið, yrði hann á meðal þáttakenda
á ÓL. Sovéska skautasambandið
sagði hins vegar að Gulyayev væri
saklaus. Hann hefði að vísu afhent
efnið, en ekki vitað hvað í pakkan-
um var. Krosby hefur verið
margsaga í málinu, en Sovétmenn
segja að hann hafí ekki enn sagt
sannleikann. Gulyayev, sem er tal-
inn mjög sigurstranglegur í 1.000
metra skautahlaupi á vetra-
Bjami Gunnar Svelnsson.
rólympíuieikunum í Calgary í
Kanada í næsta mánuði, sagðist
ekki vera viss um hvort hann tæki
þátt í leikunum vegna þessa máls,
en sovésk íþróttayfírvöld sögðu að
máiið breytti engu, hann yrði með.
UÓVENJULEGTvandamál blasir
við skipuleggjendum vetrarleikanna
í Calgary. Þeir gerðu ráð fyrir að
keppendur yrðu alls ekki fleiri en
tvö þúsund og miðuðu allan undir-
búning við þá tölu. Nú virðist sem
keppendur verði um 2.600, en við
setningarathöfnina verður aðeins
tvö þúsund manns hleypt inn á vöil-
inn. Ef fer sem horfír verða því
margir keppendur að fylgjast með
setningunni utan vallar og yrði það
í fyrsta sinn í sögunni.
■ KRISTÍN Berglind Kristj-
ánsdóttir, badmintonstúlka úr
TBR, var ranglega feðruð hjá okk-
ur á dögunum eftir meistaramót
félagsins. Var sögð Magnúsdóttir.
Beðist er velvirðingar á þessu.
■ BJARNI Gunnar Sveinsson,
körruknattleikskempa úr ÍS, gerði
leikmönnum KR lífið leitt þegar
hann lék með B-liði ÍS gegn KR í
bikarkeppninni. Bjarni Gunnar
skoraði 30 stig í fyrri leik liðanna.
Eftir þann leik sögðu leikmenn KR
að það væri ófært að láta hina
gömlu kempu vaða uppi. Þeir voru
ákveðnir að stöðva hann í seinni
leiknum. Bjarni Gunnar var ekki
á þeim buxunum að láta stöðva sig
og það þrátt fyrir að landsliðsmenn-
imir Símon Ólafsson og Birgir
Michaelsson væm látnir til höfuðs
honum. Þessi gamla landsliðskempa
bætti um betur í seinni leiknum og
skoraði 31 stig þrátt fyrir gæslu
landsliðsmannana. Bjarni Gunnar
þurfti oft að bregða sér á vara-
mannabekkinn, til að taka sér hvfld
á milli þess að hann fór inn á til
að hrella KR-inga.
MDUNDEE United hefur boðið
Botafoga í Brasilíu 400.000 pund
fyrir landsliðsmanninn Josemar,
og er félagið ánægt með tilboðið.
í samningnum er gert ráð fyrir
að hægri bakvörðurinn fái auk
launa sex ferðir til Brasilíu á ári
og verði ávallt laus í landsleiki.
Mikil leynd hefur hvílt yfir þessu
máli og sagði McLean, formaður
Dundee United að sér þætti leitt
að þetta hefði lekið út „og það kem-
ur sér illa fyrir okkur," bætti hann
við.
■ GRAHAM Benstead lék í
marki Norwich á laugardaginn og
stóð sig mjög vel. Þetta var fyrsti
leikur hans í 14 mánuði, en síðast
lék hann á Anfield í nóvember 1986
og þá tapaði Norwich 6:2 fyrir
Liverpool.
■ NICO Claesen er óánægður
hjá Tottenham og vill fara aftur
til Belgíu. Claesen var ekki einu
sinni í hópnum um helgina og er
ljóst að Paul Moran hefur tekið
sæti hans. Anderlecht og Meche-
len vilja fá kappann og verður
viðunandi boði ömgglega tekið.
■ IMRE Varadi vill fara frá
Manchester City og ganga til liðs
við Sunderland.
MÁ stjómarfundi KSÍ fyrir
skömmu var ákveðið að næsta árs-
þing verði á Selfossi. Að venju fer
það fram fyrstu helgina í desember.
Lárus QuAmundsson hefur ekki verið í náðinni hjá Kaiserslautern i vetur, en hann er nú með liðinu i æfíngabúðum
í Portúgal og sér fram á bjartari tíð.