Morgunblaðið - 26.01.1988, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 26.01.1988, Blaðsíða 8
 8 B fflorgtmfrlaftib /ÍÞRÓTTIR ÞRJÐJUDAGUR 26. JANUAR 1988 HANDKNATTLEiKUR / 1. DEILD KARLA Morgunblaðið/Einar Falur Hvart ert þú aA fara? Erlingur Kristjánsson sést hér stöðva Gylfa Birgis- son, stórskyttu Stjömunnar. Sigmar Þröstur hetja Stjörnunnar gegn KA tök á því að sigra eða halda jöfnu í lokin. En það var markvarslan og vamarleikurinn hjá Stjömunni sem réði úrslitum í leiknum. Sigmar Þröstur bar höfuð og herðar yfir aðra leikmenn í leiknum, en annars var Stjörnuliði jafnt í leikn- um. Hinn nýi fyrirliði Skúli Gunnsteinsson var ógnandi að vanda á línunni og einnig átti Sig- urður Bjamason ágæta leik. Hjá KA bar mest á þeim Erlingi Kristjánssyni og Pétri Bjamasyni í sókninni. Guðmundur Guðmunds- son kom síðan sterkur út í seinni hálfleik og skoraði falleg mörk af iínunni. Brynjar þjálfari var daufur í markinu framan af, varði síðan eins og meistari í lokin. Því miður dugði það ekki til sigurs og verða þeir KA menn að taka sig saman í andlitinu til að koma sér úr botn- baráttunni. ■ Úrsllt B/14 Staðan B/14 Sigmar Þröstur Oskarsson markvörður var hetja Stjörn- unnar í leiknum gegn KA í Digranesi á sunnudagskvöldið. Hann varði yfir tuttugu skot í leiknum og hreinlega lokaði markinu. Axel Björnssn KA maður komst inn úr horninu nokkrum sekúndum fyrir leiks- lok en Sigmar varði þá meist- aralega og tryggði félaginu sínu bœði stigin. etta hafðist með hörkunni og smá heppni,“sagði Sigmar Þröstur eftir leikinn.„það var góð tilfiningin að verja lokaskotið frá Axeli og tryggja okkur sigurinn. Eg sá að hann fékk boltann þama óvænt í hominu en ég ætlaði ekki að leyfa honum að skora. Og það tókst." Leikur Stjömunnar og KA þróaðist annars dálítið einkennilega. Stjam- an var mun betri í fyrri hálfleik og leiddi með fjögurra marka mun í halfleik. KA skoraði síðan sex mörk í röð í seinni hálfleik og hafði öll Stjaman - KA 23:22 íslandsmótið í handknattleik, 1. deild, íþróttahúsið Digranes, sunnudaginn 24. janúar 1988. Gangur leiksins: 1:1, 5:5, 9:6, 12:8, 14:10, 15:10, 17:13, 17:18, 20:20, 22:22, 23:22, Mörk Stjöraunnar: Gylfí Birgisson 6, Sigurður Bjamason 5, Skúli Gunn- steinsson 5, Hermundur Sigmundsson 2, Einar Einarsson 2, Siguijón Guð- mundsson 2, Hafsteinn Bragason 1. Varin skot: Sigmar Þröstur Oskarsson 20, Höskuldur Ragnarsson 1/1. Utan vallar: Samtals 6 mínútur. Mörk KA: Erlingur Kristjánsson 7/3, Guðmundur Guðmundsson 5, Eggert Tryggvason 3, Pétur Bjamason 3, Frið- jón Jónsson 2, Axel Bjömsson 2. Varin skot: Brynjar Kvaran 6. Utan vallar: Samtals 2 mínútur. Áhorfendur: 63. Dómarar: Guðmundur Kolbeinsson og Rögnvaldur Erlingsson stóðu sig með ágætum. Brynjar Kvaranp markvörður KA, sést hér verja í leiknum gegn Stjömunni. Morgunbiaöið/Einar Faiur J6n Krlstjánsaon sést hér sækja að marki Fram. Atli Hilmarsson, Egill Jóhannessr Þeir réðu ekkert við Jón, sem jafnar fyrir Val, 7:7. Vöm nýliða ÍF ekki við hraða' Islandsmeistararnirtil alls líklegir í meistarabaráttunni I t Víkingar sýndu það á sunnu- dagskvöldið að þeir eru til alis líklegir í síðari umferð íslands- mótsins. Liðiö vann þá örugg- an sigur á nýliðum ÍR í „Ljónagryfju" Breiðhyltinga, Seljaskólanum. Víkingar léku allan tímann hrað- an og skemmtilegan hand- knattleik sem vöm ÍR réði lítið við. Siggeir Magnússon og Sigurður Gunnarsson voru í Frosti stærstu hlutverkun- Eiðsson um, báðir illstöðv- skrifsr andj Þá munaði mikið um það að markverðir ÍR náðu sér aldrei á strik í leiknum. Slök dómgæsla setti mjög svip sinn á leikinn í fyrri hálfleik og voru dómaramir fremur hliðhollir heima- mönnum. Undir lok hálfleiksins var fyrirliða Vikings, Guðmundi Guð- mundssyni sýnt rauða spjaldið fyrir aðfinnslur eftir að hafa verið vísað af velli í tvær mínútur. Í leikhléi ÍR - Víkingur 22:30 íslandsmótið í handknattleik, 1. deild, íþróttahús Seljaskóla, sunnudaginn 24. janúar 1988. Gangur leik8Íns:2:3, 6:12, 10:14, 10:17, 13:21, 18:23, 19:26, 22:30. Mörk ÍR: Ólafur Gylfason 7/3, Matthías Matthíasson 5, Finnur Jóhannsson 4, Guðmundur Þórðarsson, Bjarni Bessa- son og Frosti Guðlaugsson 2 hver. Varin skot:Hrafn Margeirsson og Hallgrímur Jónasson eitt hvor. Utan vallan Samtals 2 mínútur. Mörk Víkings: Sigurður Gunnarsson 9, Siggeir Magnússon og Bjarki Sigurðs- son 5 hvor, Hilmar Sigurgíslason 3, Guðmundur Guðmundsson, Einar Jó- hannesson og Karl Þráinsson 2 hver, Árni Friðleifsson og Ingólfur Stein- grímsson 1 hvor. Varin Skot: Kristján Sigmundsson 13, Sigurður Jensson 1/1. Utan Vallar: Samtals 12 mínútur. Áhorfendur: Dómarar: Sigurður Baldursson og Bjöm Jóhannsson vom mjög slakir, sérs- taklega í fyrri hálfleiknum. var flögurra marka munur á liðun- um, 14:10. Víkingar gerðu síðan út um leikinn með því að skora þijú fyrstu mörk síðari hálfleiksins og ÍR-ingar sem þekktir eru fyrir að vinna upp markamun í Seljaskólanum náðu aldrei að minnka það forskot. Eins og áður sagði áttu þeir Sig- geir og Sigurður stórleik en homamaðurinn Bjarki Sigurðsson gaf þeim lítið eftir. Matthías Matthíasson átti sinn besta leik með ÍR í vetur, efnilegur homamaður sem á eftir að láta meira að sér kveða. Sama er hægt að segja um Finn Jóhannsson sem gerði góða hluti í síðari hálfleiknum. Morgunblaðið/Einar F, SlgurAur Gunnarsson lék mjög vel Víkingum og skoraði níu mörk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.