Morgunblaðið - 26.01.1988, Síða 2
2 B
IWwrflttnMaMfr /IÞROTTtR ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1988
HANDBOLTI
Sigurður Sveinsson
til liðs við Valsmenn
„Spennandi að mæta aftur í 1. deildarslaginn heima,“ segir Sigurður
SIGURÐUR Sveinsson, lands-
liðsmaður í handknattleik,
hefur ákveðið að ganga til liðs
við Valsmenn. Sigurður er
þriðji íslendingurinn, sem
leikið hefur í Þýskalandi, sem
ákveður á skömmum tfma að
snúa heim. Alfreð Gfslason
og Páll Ólafsson hafa þegar
ákveðið að koma heim og
leika með KR næsta vetur.
Sigurður kemur heim í vor
eftir að keppnistímabilinu
lýkur í Þýskalandi. Hann hefur
leikið 6 ár í Bundesligunni, fyrst
með Nettelstaedt í eitt ár og síðan
í fimm ár með Lemgo.
„Þetta hefur verið góður og lær-
dómsríkur tfmi hér í Þýskalandi,
en þetta er mjög einhæft líf. Ég
er orðinn langþreyttur og vil fara
að komast heim. Undirbúningur
landsliðsins fyrir Ólympíuleikana
skiptir einnig máli í þessu sam-
bandi. Það er ljóst að ef ég yrði
hér áfram myndi ég missa af 7
deildarleikjum næsta haust vegna
Ólympfuleikanna," sagði Sigurð-
ur.
„Það leggst mjög vel í mig að
íeika með Val. Liðið hefur góðum
leikmönnum á að skipa og það
verður spennandi að mæta aftur
í 1. deildarslaginn heima.“
Sigurður sagði að það hafi aðeins
tvö 1. deildarlið komið til greina
að leika með, Valur og Fram.
„Það sem réði úrslitum var að
Valsmenn vantar vinstrihandar
skyttu, en Framarar hafa ungan
og efnilegan leikmann, Júlíus
Gunnarsson, í þeirri stöðu.“
SigurAur Sveinsson.
FRJALSAR IÞROTTIR
Stefni að því
aðfara yfir
2,22 metra
áárinu
- sagði Gunnlaugur
Grettisson, sem stökk
2,15míBretlandi.
Morgunblaðiö/Hafsteinn Óskarsson
Gunnlaugur Qrettlsson. Myndin var tekin á skoska
meistaramótinu innanhúss sem fram fór um fyrri helgi.
GUNNLAUGUR Grettisson,
ÍR, setti nýtt íslandsmet í
hástökki á breska meistara-
mótinu innanhúss í Cosford á
laugardaginn. Hann stökk
2,15 metra og bætti metið
sem hann setti skömmu fyrir
jól um 3 sentímetra.
Ahorfendur hjálpuðu mér við
að setja metið," sagði Gunn-
laugur í samtali við tíðindamann
Morgunblaðsins eftir að íslands-
■HIBI met hans var orðið
Bill staðreynd, en hús-
Melville fyUir var í flug-
skýlinu fræga, þar
sem mótið fór
fram. Cosford er mjög þekktur
frjálsíþróttastaður. Staðurinn er
skrifarfrá
Bretlandi
skammt fyrir utan Wolverhamp-
ton á mið Englandi.
Sigurvegari í hástökkinu varð
Geoff Parson, Bretlandi,. sem
stökk 2,27 m og annar Dalton
Grant, sem stökk 2,25 m. Þrír
keppenda fóru svo yfir 2,15 m,
en Gunnlaugur náði einungis
fimmta sæti, þar sem hinir tveir
notuðu færri tilraunir en hann.
Þórdís varð í öðru sæti í hástökk-
skeppni kvennanna, sem fram fór
á föstudagskvöldið. Stökk 1,85
metra og hlaut silfur, en sigurveg-
ari varð norður-írska stúlkan
Debbie McDowell, sem einnig
sigraði á mótinu sem Þórdís tók
þátt í í Skotlandi um fyrri helgi.
Þriðja varð Janet Boyle, sem varð
önnur í Skotlandi. Þess má geta
að besti kvenhástökkvari Breta
utanhúss, Diane Royal, varð að
sætta sig við fimmta sætið.
Gunnlaugur og Þórdís sögðust
bæði stefna að því að keppa á
móti í Finnlandi eftir þijár vikur.
Þórdís sagðist vonast til að jafna
sinn besta árangur þar, stökka
1,88 m, og ef það tækist vonast
hún til að verða valin á Evrópu-
meistaramótið innanhúss í
Búdapest í mars. Sömu sögu er
að segja um Gunnlaug. Hann von-
aðist til að komast til Búdapest,
og síðan sagðist hann hafa sett
stefnuna á Seoul: „Ég stefni að
því að stökkva yfír 2,22 metra
utanhúss í sumar og komast á
Ólympíuleikana í Seoul," sagði
hann.
HANDKNATTLEIKUR / ÞÝSKALAND
„Fáránlegt og
kemur mér
mjög á óvart“
- segir Alfreð Gíslason um fram-
komu forseta Essen við Jóhann Inga
„ÞETTA er fáránlegt og kemur
mér mjög á óvart. Jóhann Ingi
er frábær þjálfari og það er
ekki honum að kenna að við
erum ekki í toppbaráttunni
heldur fyrst og f remst stjórn
félagsins. Tveir lykilmenn fóru
frá okkur í fyrra og ekkert var
gert í að fá nýja menn í þeirra
stað. Auk þess höfum við átt
við mikil meiðsli að stríða, að-
eins leikið einn leik með
sterkasta liðið og ég er sá eini
í upphaflega byrjunarliðinu,
sem hef leikið alla leikina,"
sagði Alfreð Gíslason, lands-
liðsmaður hjá Tusem Essen,
við Morgunblaðið í gær, þegar
Ijóst var að Jóhann Ingi Gunn-
arsson hætti sem þjálfari
liðsins.
lfreð sagði að velgengni und-
anfarin ár hefði greinilega villt
forseta Tusem Essen sýn á yfir-
standandi keppnistímabili. „Við
erum ekki með eins sterkt lið og
áður, en samt í 6. sæti, sem er
gott miðað við aðstæður. Forsetinn
sættir sig hins vegar ekki við annað
en toppinn og skellir skuldinni á
þjálfarann. Ég styð Jóhann Inga
heilshugar, hann hefur staðið sig
mjög vel, en enginn þjálfari nær
árangri, nema mannskapur sé fyrir
hendi,“ sagði Alfreð.
Alfreð sagðist hafa heyrt að Hade
Schmith, sem nú þjálfaði lið í 3.
deild, en hefði áður verið með Dort-
mund og Essen á undan Ivanescu,
tæki við liðinu. „Það er ágætis ná-
ungi, en hann er þekktur sem
úthaldsþjálfari og ég veit ekki hvort
aðferðir hans henti okkur,“ bætti
Alfreð við.
SPURT ER /
Finnst þér að breyta þurfi
reglum um innanhússknattspyrnu?
Ásgeir
Elíasson
„Ég held að það sé nauð-
synlegt, enda flestir leik-
imir hundleiðinlegir, þó að
inn á milli komi ágætir leik-
ir. Það þarf að minnsta
kosti að setja einhveijar
reglur til dæmis að boltinn
megi ekki fara aftur fyrir
miðju eða tímatakmörk á
hveija sókn.“
Ellert B.
Schram
„Það er verið að gera til-
raun á vegum FIFA með
að að setja alþjóðareglur
þar sem notaður er mark-
maður. Þá verður hver
leikur lengri og lið leika
ekki heilar umferðir heldur
einn og einn leik. Þetta
hefur verið leiðinlegt, en
þó betra en í fyrra."
Andri
Marteinss
„Það er ekki spuming. Það
þarf að fá markmann og
stærri velli. Sumir leikir
taka 20 mínútur, en samt
eru ekki skomð nema þijú
mörk. Þetta er þó aðeins
skárra en í fyrra, en þó er
leiðinlegt að spila svona og
Iíka að horfa á þessa leiki."
Árni
Njálsson
„Ég hef lengi verið á þeirri
skoðun að reglunum þurfi
að breyta. Það má stækka
völlinn og markið og bæta
við markmanni. Svo verður
að lengja leikinn. Það er
einnig mikilvægt að knatt-
spyrnan fái að vera sem
eðlilegust og líkust því sem
hún er utanhúss."
Gudmundur
Steinsson
„Það mætti breyta reglun-
um þó ekki væri til annars
en að fá fjör í leikinn. Mér
finnst nauðsynlegt að fá
markmann og stækka völl-
inn. Mér finnst þó '.sárra
að horfa á þetta núna held-
ur en í fyrra og það er
greinilega meira um að lið
pressi á andstæðinginn."
Sedov
„Það er ekki mitt að ákveða
hvemig reglumar eiga að
vera. Það er algjörlega í
höndum KSÍ. En í Sovét-
ríkjunum leikum við mjög
svipað, nema með mark-
mann og fimm útileik-
menn, á sama svæði. Það
er allt öðruvísi knattspyma
og ég held skemmtilegri."