Morgunblaðið - 26.01.1988, Síða 7
PtBimMaMt /ÍÞRÓTTIR ÞRTÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1988
B 7
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR II HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD
ENGLAND
TENNIS / OPNA ASTRALSKA MEISTARAMOTIÐ
Graf og Wilander
sigruðu örugg-
lega í einliðaleik
Reuter
náði að komast yfir 6:5. Það dugði
þó ekki til því Graf setti þá í
hæsta gír og vann örugglega.
Þetta var fyrsta mótið af þeim
„fjóru stóru“ (Grand-Slam) á ár-
inu og var mikið rætt um það að
að Graf yrði nú fyrsta konan síðan
1970 til að vinna þau öll.á sama
árinu. Margaret Court náði þeim
árangri 1970 og var meðal áhorf-
enda á laugardaginn. Þau „fjögur
stóru“ eru opna ástralska, opna
franska, Wimbledon, og opna
bandáríska mótið. Graf neitaði að
ræða þennan möguleika frekar —
„í dag hef ég aðeins sigrað á einu
mótinu. Ég veit svo sem að ég
er eina konan sem gæti náð því
að vinna þau Öll fjögur, en það
er langt í land enn,“ sagði hún
og var varkár í tali.
Metkast
Vésteins
ógilt?
GisliFelix
lokaði markinu
Trewor Steven skoraði fyrir Ever-
ton í gær.
Enn jafnt
hjá Everton
EVERTON og Sheffield Wed-
nesday skildu jöfn, 1:1, í þriðja
sinn í 3. umferð ensku bikar-
keppninnar í gærkvöldi. Liðin
verða því að mætast aftur á
Hillsborough á miðvikud.
Trevor Steven skoraði fyrst fyrir
Everton á 58. mínútu. Lee
Chapman janfnaði síðan á 86.
mínútu. Leikurinn var síðan fram-
lengdur, en hvorugu
Frá ' liðinu tókst að
Bob Hennessy skora. 37 þúsund
ÍEnglandi áhorfendur mættu á
Goodison Park, þar
af voru 15 þúsund á bandi Sheffi-
eld og fögnuðu þeir vel í leikslok.
Leikurinn á miðvikudag fer fram á
heimavelli Sheffíled, Hillsborough.
Það lið sem sigrar leikur gegn Midd-
lesbrough í 4. umferð á laugardag.
Manchester City sigraði Hudders-
field 3:0 á útivelli og mætir því
Balckbum í 4. umferð á laugardag-
inn. Andy Hinchcliffe, David Whide
og Imre Varadi skoruðu fyrir City.
SVÍINN Mats Wilander fagn-
aði sigri í þriðja skipti um
helgina á opna ástralska
meistaramótinu ítennis.
Hann sigraði heimamanninn
Pat Cash í úrslitaleik á sunnu-
daginn, 6:3,6:7 (7:3), 3:6,6:1,
8:6. Vestur-þýska stúlkan
Steffi Graf bar sigurorð af
Chris Evert frá Bandaríkjun-
um í úrslitaleiknum í einliða-
leik kvenna á laugardag —
6:1,7:6.
Urslitaleikurinn í karlaflokki
tók hvorki meira né minna
en fjóra og hálfa klukkustund og
þótti frábærlega leikinn. Sólin
skein og veður var gott er kapp-
amir hófu baráttuna en rigning
tafði viðureign þeirra um 20
mínútur í öðru settinu. Sömu sögu
var að segja frá úrslitaleik kven-
fólksins á laugardaginn. Rigning
tafði þann leik einnig.
Frábærlelkur
Eins og áður sagði var úrslitaleik-
ur Wilander og Cash frábær og
mikil skemmtun fyrir hina 15.000
áhorfendur sem með honum
fylgdust. Wilander byijaði vel,
vann fyrsta settið, en tapaði síðan
tveimur næstu. Síðan vann hann
6:1 og síðasta settið 8:6. Þegar
staðan var 6:6 varðist hann frá-
bærlega, Cash smassaði hvað eftir
annað en Wilander náði alltaf að
koma boltanum til baka yfír netið
og það var svo heimamaðurinn
sem gerði loks mistök. Wilander
náði því uppgjöfinni — og nældi
í síðasta í síðasta stigið og
105.000 dollara. Það er jafnvirði
rúmlega 3,8 milljónir króna.
„Þessi sigur er mér gífurlega mik-
SVO gæti farið að íslandsmet
Vésteins Hafsteinssonar í
kringlukasti, sem hann setti í
sumar í Svíþjóð (67,20 m), verði
dæmt ógilt.
Fijálsíþróttasambandi íslands
barst fyrir nokkru bréf frá
tækninefnd (laganefnd) sænska
frjálsíþróttasambandsins þar sem
skýrt er frá því að kastsvæðið í
Klagshamn, þar sem Vésteinn setti
metið, hafí verið tekið út og athug-
að hvort aðstæður væru löglegar.
í fréttatilkynningu, sem FRI sendi
frá sér í gær, segir: „Það kemur
fram í bréfínu að þeir þrír kast-
hringir sem eru á svæðinu eru allir
löglegir en hins vegar sé kastsvæð-
ið sjálft að hluta ólögiegt, það fari
eftir því hvaða kasthringur er not-
aður. Samkvæmt reglum má
kastsvæðið ekki halla frá kasthring
meira en sem nemur 1:1000, þ.e.
svæðið má ekki vera meira en 6-7,5
cm lægra en kasthringurinn 60-75
m frá hringnum.
Kastsvæði framan við einn hringinn
er fullkomnlega löglegt, framan við
annan hringinn að mestu löglegt
en að hluta til ólögiegt, og framan
við þriðja hringinn að mestu leiti
ólöglegt.
ils virði því það et langt síðan
allir þeir bestu hafa barist jafn
mikið til þess að sigra á stórmóti
og nú,“ sagði Wilander eftir sigur-
inn.
Graf sterk
Steffi Graf vann öruggan sigur á
hinni reyndu Chris Evert. Fyrra
settið vann hún 6:1 og hafði síðan
yfír 5:1 í því síðara, en Evert
Mats Wilander fagnar inni-
lega eftir að hafa slegið
síðasta högg sitt í úrslita-
leiknum á sunnudaginn.
Þetta var hans þriðji sigur
í einliðaleik á mótinu. Steffi
Graf sést svo hér að neðan
með hinn glæsilega bikar
sém fylgir sigri í kvenna-
flokki.
Fögnuður
Vésteinn Hafstelnsson.
Vésteinn kastaði úr öðrum hringn-
um, þar sem kastsvæðið er að mestu
löglegt en að hluta hallar of mikið
frá hringnum. í bréfí tækninefndar
sænska frjálsíþróttasambandsins er
sagt að árangur þeirra sem kastað
hafa úr þriðja hringnum sé örugg-
lega ólöglegur en árangur Vésteins
og fleiri sem köstuðu úr öðrum
hringnum „ætti" (ought to be) að
vera skráður ólöglegur.
Stjóm FRÍ þykir sem hér sé ekki
kveðið nægilega sterkt að orði
þannig að hægt sé að taka met
Vésteins af skrá. Var því ákveðið
að fara þess á leit við Svíana að
þeir skæru úr um það óaðyggjandi
hvort hér væri um ólöglegan árang-
ur að ræða eða ekki. Fyrr mun
laganefnd FRÍ ekki taka afstöðu
til þess sem er utan hennar lög-
sögu.“
- varði þrjú vítaköst þegar KR sigraði Breiðblik 22:19
KR-INGAR unnu langþráðan
sigur í gær er þeir mættu
Breiðbiiki í Laugardalshöllinni.
KR-ingar með Gísla Felix
Bjarnason sem besta mann,
unnu sanngjarnan sigur, 22:19.
Gísli bókstaflega lokaði mark-
inu í síðari hálfleik og þrátt
fyrir fjölmörg mistök félaga hans
náðu Blikamir ekki að ógna for-
skoti KR-inga. Gísli
varði m.a. þrjú víta-
köst, með því að
standa á línu og á
þessum kafla náðu
KR-ingar fímm marka forskoti og
sigurinn öruggur, 22:19.
Leikurinn var jafn framan af, en
Breiðablik hafði þó undirtökin.
KR-ingar lifnuðu þó við undir lok
fyrri hálfleiks og leiddu í leikhléi,
12:11.
KR-ingar byijuðu vel í síðari hálf-
leik, en Blikamir vora þó ekki langt
undan. Um miðjan síðari hálfleiks
KR-UBK
22 : 19
Laugardalshöll, íslandsmótið - 1. deild,
mánudaginn 25. janúar 1988.
Gangnr leiksins: 2:2, 4:4, 4:6, 8:8, 9:10,
12:11, 14:12, 14:14, 17:16, 20:16, 22:17,
22:19.
Mörk KR: Stefán Kristjánssón 7/2, Þor-
steinn Guðjónsson 5, Konráð Olavsson 5,
Guðmundur Pálmason 3, Guðmundur AJ-
bertsson 1 og Sigurður Sveinsson 1.
Utan vallar: 12 minútur.
Varin skot: Gísli Felix Bjarnason 18/3.
Mörk UBK: Kristján Halldórsson 5, Hans
Guðmundsson 5/3, Aðalsteinn Jónsson 2,
Þórður Davíðsson 2, Jón Þórir Jónsson
2/1, Bjöm Jónsson 1, Andrés Magnússon
1 og Magnús Magnússon 1/1.
Utan vallar: 4 minútur.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 7/1,
Þórir Siggeirsson 2.
Áhorfendur: 300.
Dóm&rar*. Þorgeir Pálsson og Guðmundur
Kolbeinsson og dæmdu þokkalega.
var eins marks munur, 17:16 og
þá fór Gísli í gang. Hann varði tvö
vítaköst með mínútu millibili og það
þriðja skömmu síðar. Þá vora KR-
ingar komnir á bragðið. og náðu
fjögurra marka forsl^^
Þegar rúmar þijár numíur vora til
leikslok var munurinn fimm mörk,
22:17 og stefndi allt í öraggan
KR-sigur. En þá var sem taugamar
gæfu sig hjá leikmönnum KR og á
síðustu tveimur mínútunum fékk
Breiðblik sex dauðafæri. Blikunum
tókst þó aðeins að nýta tvö þeirra
og sigur KR 'höfn.
Gísli Felix var yfirburðamaður í liði
KR, varði mjög vel. Þeir Konráð
Olavsson og Þorsteinn Guðjónsson
léku einnig vel og Stefán Kristjáns-
son átti góða kafla.
Hjá Breiðbliki var það Kristján
Halldórsson sem stóð upp úr. Hans
Guðmundsson átti ágætan leik og
sama má segja um Þórð Davíðsson.
Þrátt fyrir tapið er ekki hægt að
segja annað en að Breiðblik hafí
fengið tækifæri. Liðið fékk 11 víta-
köst, en KR aðeins 3. Þá vora
KR-ingar utan vallar í 12 mínútur,
en Blikar aðeins í 4 mínútur.
■ Úrslit/B15
■ Staðan/B15
Logi
Eiðsson
skrifar