Morgunblaðið - 26.01.1988, Síða 11

Morgunblaðið - 26.01.1988, Síða 11
itUrgnnÞIaíiið /ÍÞRÓTTIR ÞRIBJUDAGUR 26. JANÚAR 1988 B 11 KNATTSPYRNA / ENGLAND Liverpool nálgast met Leeds Hefur leikið 24 leiki í röð án taps. Leeds lék 27 leiki án taps 1968-1969 Paul Oasco- igne, hinn ungi og efnilegi leik- maður Newcastle, sem margir telja að verði næsti milljón punda knattspymumað- ur Englands. FYRSTI „vetrardagurinn" á Englandi hrellti knattspyrnu- menn heldur betur á laugar- daginn. Aðeins tólf leikir voru þá leiknir, en 36 frestað vegna snjókomu. Margir knattspyrnu- vellir voru ísilagðir eða sem forarpyttur. Leikmenn Liver- pool létu kuldann ekki á sig fá. Þeir héldu sínu striki og lögðu Charlton að velli, 2:0, á Sel- hurst Park í London. Liverpool hefur leikið 24 leiki í röð án þess að tapa og nálgast félagið nú met Leedsfrá 1968-1969. Þá lék Leedsliðið 27 leiki í röð án þessaðtapa. Liverpool-liðið lék mjög vel og var liðsheildin geysilega sterk. Sagt er að leikur liðsins bjóði upp á sömu gæði og þeyttur ijómi ofan á tertu. Peter Be- FráBob ardsley opnaði leik- Hennessyí inn 4 30 mín. — Englandi skoraði sitt fimmta mark í fimm leikj- um, eftir að besti leikmaður vallar- ins, John Bames, hafði leikið eins og Brasilíumaður á tvo vamarmenn Charlton og sent knöttinn til Be- ardsley. John Bames skoraði svo annað mark Liverpool með góðu skoti eftir mikinn sprett og einleik Ray Houghton, sem sendi knöttinn til Bames. Bob Bolder, fyrrum vara- markvörður Liverpool, réði ekkert við skot Bames. Heppnin með United Á sunnudaginn léku Arsenal og Manchester United á Highbury í London, þar sem Arsenal, sem átti miklu meira í leiknum, mátti sætta sig við tap, 1:2. 29.392 áhorfendur sáu Bryan Robson leika sem aft- asta vamarleikmann hjá United,' sem lék vamarleik - geystust fram í sókn þess á milli. Gordon Strachan skoraði fyrst fyrir United á 12. mín. Niall Quinn náði að jafna fyr- ir Arsenal á 37. mín., en sigurmark United kom á 67. mínútu eftir mik- il mistök enska landsliðsmannsins Tony Adams. Brian McClair náði knettinum og skoraði sitt 18. mark fyrir United Eftir leikinn, sem var sjónvarpað beint um Bretlandseyjar, sagði Ge- orge Graham, framkvæmdastjóri Arsenal, að hann hafí ekkert séð athugavert við tvö mörk sem Niall Quinn skoraði - mörk sem dómari leiksins dæmdi af vegna mðnings. „Bæði mörkin voru góð.“ Gascoigne skoraöi tvö Miðvallarspilarinn efnilegi Paul Gascoigne, 21 árs, tryggði New- castle sigur, 2:0, yfir Tottenham. Hann skoraði fyrst af sex m færi á 29. mín., eftir sendingu frá Darr- II en Jackson og síðan sendi hann knöttinn aftur fram hjá Tony Parks á 56 mín. Fyrirsagnir í ensku blöðunum á laugardagsmorguninn voru að stutt væri í að John Hollins yrði rekinn frá Chelsea. Ekki batnaði staða Hollins eftir að Chelsea hafði mátt sætta sig við jafntefli, 0:0, á Stam- ford Bridge í London. Fréttamaður BBC, sem lýsti frá leik Watford og Nottingham For- Morgunblaðiö/Skapti Hallgrímsson Bryan Robson, fyrirliði United og enska landsliðsins, lék sem „sweeper" - aftasti maður í vöm, gegn Arsenal. est, sagði að leikmenn félaganna ættu að fá viðurkenningu fyrir að leika knattspymu í svaðinu á Vic- arage Road-vellinum, þar sem jafntefli varð, 0:0. Ékkl frestað lelk á Maine Road f tíu ár Völlur Manchester City á Maine Road var betri heldur en heimavöll- ur Watford. Völlurinn er upphitaður og hefur ekki þurft að fresta leik þar í tíu ár. Aston Villa kom í heim- sókn til City og fögnuðu leikmenn Villa sigri, 2:0. Þeir byrjuðu leikinn með látum - voru snöggir og léku vel útfærðar sóknarlotur. Tony Daley, sem lék sinn fyrsta leik í fjóra mánuði, skoraði fyrst á 13 mín. og síðan bætti Gary Thomp- son, sem var frábær í loftinu, öðru marki við. Leikmenn City sóttu grimmt í seinm hálfleik og sendu þeir knöttinn nær stöðugt inn í víta- teig Aston Villa. Það var eins og borðtennisvél væri í gangi fyrir utan vítateiginn. Nigel Spink, markvörð- ur Aston Villa, hafði mikið að gera og varði vel. 12.597 áhorfendur sáu Middles- borugh leggja Cryatal Palace að velli, 2:1. Tony Mówbray og Brian Laws, vítaspymua, skoruðu fyrir „Boro“, en Ian Wright skoraði mark Palace. Leikmenn Reading, sem komu beint úr vetrafríi á Marbella á Spáni, unnu sætan sigur, 1:0, yfir Shrews- bury. Stewart Evans skoraði mark þeirra, sem var fyrsta mark Read- ing á heimavelli frá þvi í lok október. Vamarmaðurinn Richard Green, hjá Shrewsbury, var rekinn af leikvelli. Wigan vann góðan sigur, 1:0, yfir Gillingham á útivelli í 3. deild. David Hamilton skoraði mark liðsins. Andy Ainscow, sóknarleikmaður- Wigan, var borinn fótbrotinn af leikvelli. Sunderiand er efst í 3. deild, með 58 stig. Notts County hefur 54, Wigan 52 og Walsall 51. Aðeins 1.699 áhorfendur mættu til að sjá Carlisle, sem er í 21. sæti í 4. deild og Exeter, sem er í 20. sæti. Hvað fengu þessir áhorfendur fyrir peningana sína? Jú, marka- laust jafntefli. Bob Collins skoraði fyrir Stockport, en Ian Juryeff náði að jafna, 1:1, fyrir Leyton Orient. Wayne Állison skoraði fyrir Halifax gegn Swansea á 19 mín. Aðeins 60 sek. seinna skoraði Colin Pascoe fyrir heimamenn, 1:1. Wolves er efst í 4. deild með 51 stig. Leyton Orient er með 48 og Colchester er með 47 stig. íp/émR FOLK M HINIR óstöðvandi er sagt, þegar Liverpool ber á góma. Lið- ið er í sérflokki og varamennim- ir einnig. „Ég hugsa aðeins um næsta leik og læt FráBob ykkur vita, ef við Hennessy sigrum í deild- iEnglandi inni,“ segir Kenny Dalglish gjarnan við fréttamenn eftir leiki, en hann fékk áminningu á laugar- daginn, þar sem hann sat á bekknum og mótmælti dómi. 28.095 áhorfendur vora á Sel- hurst Park á laugardaginn, sem er mesti fjöldi á vellinum í sjö ár og svo margir hafa ekki fyrr komið til að sjá Charlton spila á heima- velli. ■ ARSENAL keypti Lee Dixon, varnarmann hjá Stoke, fyrir 400.000 pund á laugardaginn. Mörg félög höfðu áhuga, en Arse- nal tryggði sér leikmanninn í kyrrþey. ■ ALEX Ferguson, stjóri Manchester United, hefur sagt að stokka þurfi upp spilin hjá liðinu, en hann kaupi enga menn fyrr en að loknu tímabilinu. í News of the World um helgina er hins vegar greint frá því að Ferguson vilji fá Norðmanninn Claus Eftvaag, sem leikur með Start í 2. deild í Nor- egi. Sá er 17 ára og er í norska U-18 liðinu, en sagt er að Fergu- son sé tilbúinn að greiða 150.000 pund fyrir strák, sem er ekki mikið í Englandi, en met í Noregi. En fleiri hafa tekið eftir hæfileikum pilts. Um 30 lið hafa sýnt áhuga og má þar nefna Liverpool, Bay- era MUnchen, HSV, Eindhoven og PSG. mPAUL Gascoigneer nýi kóngur- inn á St James’ Park og telja margir að hann verði næsti milljón punda leikmaðurinn. Gascoigne skorar grimmt og hefur tekið við af Kevin Keegan og Chris Waddle sem hetja Newcastle. Gascoigne burstaði einmitt skóna fyrir fyrmefnda leikmenn, þegar hann var yngri. ■ CHELSEA lék sinn 12 deild- arleik í röð án sigurs og í fimm þessara leikja hefur liðið ekki skor- að. ■ PORTSMOUTH hefur ekki tapað síðustu sex deildarleikjum og er Alan Ball ánægður með sína menn. „Ég held að við björgum okkur frá falli,“ sagði hann eftir leikinn á laugardaginn. HOLLAND Ajax sigradi S njókoma var í Hollandi í gær 1 og varð að fresta ljórum leilq'- um í 1. deildarkeppninni þar. Ajax vann sigur, 4:0, yfír Sparta frá Rotterdam, með mörkum frá John Bosman 2, Denis Bergkamp og Amold Scholten. ÚrslH B/14 Staöan B/14 Urslit B/14 Staöan B/14 orugqur stuðninqur við íbróttamenn DONJOY varmahlífar eru léttar og liprar og hindra ekki eðlilegarhreyfingar. Þærveita góðan stuðning jafnframt því að halda hita á liðamótum. Þannig geta DONJOY varma- hlífardregið úr hættu á meiðslum. n SlMI: 91-621460

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.