Morgunblaðið - 26.01.1988, Page 13

Morgunblaðið - 26.01.1988, Page 13
HtoqpmMaMb /IÞROTTIR ÞRWJUDAGUR 26. JANÚAR 1988 B 13 SKIÐI / HEIMSBIKARINN I ALPAGREINUM Óþekktur Kanada- maður sigraði írisa- stórsvigi KANDAMAÐURINN Felix Belczyk kom sá og sigraði í risastórsvigi í Leukerbad í Sviss í gær. Þetta var jafnframt fyrsti sigur Kandamanna í heimsbikarnum íþessari grein skíðaíþrótta. Belczyk, sem startaði númer 32, var 49/100 hlutum úr sekúndu á undan Pirmin Zurbriggen sem varð annar. Heinz Holzer frá Ítalíu varð þriðji, en hann hafði rásnúmer 19 og Markus Wasmeier þriðji. Mjög slæmt veður og skyggni var á mótstað og varð að fresta keppni í klukkustund. Skyggnið lagaðist er líða tók á keppni og kom það sér vel fyrir Belczyk, sem aldrei hafði sigrað í heimsbikamum. „Ég vonaðist til að verða einn af þremur efstu í bruni, en ég er ekki óánægur með að það hafi tekist í risastórsvigi. Þessi sigur færir mér mikilvæg stig og mun ég því starta mun framar á Ólympíuleikunum í Calgapr," sagði Belczyk. „Veðrið réði úrslitum hér í dag það er engin spuming. Keppendur sem störtuðu síðar fengu mun betra skyggni og gátu því tekið meiri áhættu," sagði Zurbriggen. ítalinn Alberto Tomba, sem enn hefur forystu í heismbikamum sam- anlagt, var dæmdur úr leik þar sem hann hafði sleppt hliði. Tomba hef- ur 206 stig og hefur nú 20 stiga forskot á Zurbriggen. Urslit/B15 ■ Vreni Schnelder frá Sviss sigraði í svigi kvenna í Badgastein í Austurríki á sunnudaginn. Svissnesku stúlkumar héldu sigurförinni áfram SIGURFOR svissneskra kvenna í heimsbikarkeppni í alpagrein- um hélt áfram um helgina. Vreni Schneider vann í svig- keppni í Badgastein í Austurríki á sunnudag mefi samanlagðan tíma 1:19,11 mín. og Beatrice Gafnervann íbruni íBadga- stein á laugardag á 1 mín. 43,80 sek. Christa Kinshofer frá Vestur- Þýskalandi varð önnur í svigkeppninni og Corinne Schmid- hauser, Sviss, þriðja. Þetta var 13. Anna Bjamadóttir skrifar frá Sviss sigur Schneiders í heimsbikarkeppni en hinn fyrsti á þessu ári. „Loksins tókst mér það,“ sagði hún himinlifandi í sjónvarps- viðtali að keppninni lokinni. Hún varð önnur í Saas Fee fyrir viku en var fyrst í báðum umferðum keppninnar að þessu sinni. „Sigur- inn er sérstaklega mikilvægur af því að nú fer óðum að styttast í Ólympíuleikana," sagði hún. Gafner hefur einu sinni áður unnið í brunkeppni. Það var í Mellau fyr- ir rúmu ári við svipaðar aðstæður og voru í Badgastein. Brautin var stutt og „þungfær". Gafner rennur vel við slíkar kringumstæður og útbúnaður hefur mikið að segja. Hún notaði sömu Kastle-skíðin á laugardag og í Mellau. Brigitte Oertli frá Sviss varð önnur í Badga- stein og Veronika Wallinger frá Austurriki þriðja. Michela Figini og Maria Walliser lentu í 4. og 6. sæti. Skíðakonumar skömmuðust út í aðstandendur keppninnar að henni lokinni og sögðu að aðbúnaður hefði verið fyrir neðan allar hellur. Gafn- er fékk til dæmis ekki að vita að hún hefði sigrað fyrr en seint og um síðir af því að hvorki upplýs- ingatafla né hátalarakerfi voru í markinu. En þær gleymdu sinni keppni fljótt eftir að bein sjón- varpsútsending á bráðskemmtilegri brunkeppni karla í Leukerbad hófst og röð venjulegra sigurvegara fór fullkomlega úr skorðum. Urslit/B15 SKIÐI / ALPAGREINAR KARLA Leyniáburður færði ítölum þrefldan sigur Margir óþekktir skíðamenn ífremstu röð ÞRÍR ítalir, Michael Mair, Giorgio Piantanida og Werner Perathoner, fetuðu í fótspor Albertos Tomba á laugardag og sigruðu í brunkeppni karla íheimsbikarnum íalpagreinum í Leukerbad í Sviss. Nýfallinn snjór þakti brautina svo afi hún var „seinfarin" í upphafi keppni en varð æ sleipari þegar á leið. Keppendur með há rásnúmer höffiu því heppnina með sér. Úrslit í brunkeppni á sömu braut á sunnudag voru venju- legri. Þá voru tveir Svisslend- ingar og ítali í þremur efstu sætunum. Oþekktir skíðakappar, eins og Fahner frá Sviss (4.), Plé frá Frakklandi (6.), Eriksson frá Svíþjóð (8.) og Skaardal frá Noregi (13.), gátu fagnað góðum árangri á laugardag en menn á við Marc Girar- delli, Peter Miiller og Pirmin Zurbriggen urðu að sætta sig við 30., 35. og 39. sæti. Þeir hristu höfuðið yfir úrslitunum og Anna Bjamadóttir skrifar frá Sviss Reuter Mlchael Malr frá Ítalíu sigraði nokkuð óvænt í bruni karla á laugar- daginn. Hér er hann á fullri ferð í brautinni. sögðu keppnina best gleymda. Brautin var hálli og harðari á sunnudag. Daniel Mahrer og Franz Heinzer lentu í fyrsta og öðru sæti en ítalinn Igor Cigolia varð þriðji. Eriksson stóð sig aftur mjög vel og varð 6. en Mair varð 8., Zur- briggen 13. og Girardelli 18. Hann datt illa rétt fyrir innan markið og skarst á olnboga. Austurríkismönnum gekk illa báða dagana. Wimsberger stóð sig best á laugardag og lenti í 68. sæti en Huber varð 22. á sunnudag. Óvenjuleg úrslit í keppninni á laug- ardag beindu athygli að skíðabún- aði keppendanna. ítalimir þrír vom allir á Rossignol-skíðum með nýjum leyniáburði sem aðstoðarmenn þeirra hafa blandað. Aðrir keppend- ur sem nota frönsku skíðin stóðu sig yfirleitt vel. En líkamsbygging Mairs og tækni höfðu einnig sitt að segja. Hann er 94 kg, oft kallað- ur „risabamið", og rennur tiltölu- lega léttar brautir mjög vel. Hann fór brautina í Leukerbad, sem var 3.810 metrar, á 2 mfn. 19,08 sek. á laugardag en Mahrer fór hana á 2:17,53 á sunnudag. SKIÐASTOKK Weissflog sigraði Jens Weissflog, Austur-Þýskalandi, sigraði í stökki af 90 metra palli í Engelberg í Sviss á sunnudaginn. Hann stökk 114,5 m og 115,5 metra og hlaut 215 stig. Finninn fljúgandi, Matti Nykaenen, varð annar er hann stökk 112,5 m og 118 metr sem reyndist lengsta stökk keppninnar. Hann fékk samtals 214,5 stig og gat munurinn varla orðið minni. Nykanen hefur ömgga forystu í heimsbikamum samanlagt með 220 stig. Pavel Ploc frá Tékkóslóvakíu er annar með 163 stig og Weiss- flog þriðja með 111 stig. SVIGHANSKAR fyrir keppendur, sérstaklega hannaðir fyrir gorma- stangir. Svighjálmar- Skíðagleraugu. Ursllt/B15 Hverfisgötu 105. Sími 23444

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.