Morgunblaðið - 06.02.1988, Síða 58
,58
N.
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1988
TM R«g. U.S. Pat Otf.—all nghts reMrvsd
• 1987 Los Angales Times SyndKSts
HÖGNI HREKKVÍSI
Þessir hringdu . . .
Mengunin er vegna
óhóflegrar notkunar
einkabíla
Gunnar I. Sveinsson hringdi:
„Fyrir skömmu var um það
skrifað í Velvakanda að mengunin
væri mest frá stóru bílunum.
Þetta er rétt svo langt sem það
nær. En mest mengun stafar þó
frá óhóflega mikilli notkun einka-
bfla. Notkun þeirra er komin út í
öfgar."
Með allt á þurru
- ekki nógu sönn mynd
Ólöf Berglind Halldórsdótt-
ir -
hringdi:
„Mig langar til að segja nokkur
orð vegna myndarinnar Með allt
á þurru. Mér fannst þetta engan
veginn nógu góð mynd ef reyna
átti að sýna hvemig alkóhólismi
er í raun og veru. Hvar var allur
óhugnaðurinn sem fylgir þessum
sjúkdómi t.d. öll lygin, svikin,
kvíðinn, óttinn, hræðslan, vonin,
vonleysið og niðurlægingin, eyði-
legingin. Aðstandendur alkóhó-
lista, til dæmis maki og böm
sýkjast ekki síður en alkóhólistinn
sjálfur, þannig að þessi sjúkdómur
legst á alla fjölskylduna og er
hrein hörmung. Mér fannst vanta
allar tilfinningar í þessa mynd.
Að lokum langar mig að minnast
á stjómendur þessa þáttar. Mér
fínnst það fyrir neðan allar hellur
að hafa stjómanda sem greinilega
veit ekki hvað alkóhólismi er til
að stjóma umræðum um þetta
málefni. Umræðumar tóku hálf
hlægilega stefnu en að mínu mati
er alkóhólismi ekkert gamanmái
því er oftast er uppá líf og dauða
að tefla."
Of lítíð þungarokk
G.S. hringdi:
„Mér fínnst allt of lítið spilað
af þungarokki á þeim
útvarpsstöðvum sem í gangi eru
og mætti bæta úr því að mínu
mati. Stór hluti þjóðarinnar kann
að meta þessa tónlist. Það mætti
fá eitthvað í staðinn fyrir þá súk-
ulaðitónlist sem glymur alla daga,
heilaþvoandi og slævandi."
Dux - fyrirmyndar
viðskiptahættír
Margrét Guðmundsdóttir -
hringdi:
„Mig langar til að lýsa ánægju
minni með viðskipti mín við versl-
unina Dux í Aðalstræti. Við
keyptum þar dýnu fyrir nokkram
áram en fyrir skömmu varð vart
við galla í henni. Við létum versl-
unina vita af þessu og bragðust
þeir strax vel við og létu okkar
hafa nýja dýnu. Þetta era við-
skiptahættir til fyrirmyndar."
Armband
Armband með rauðum semilíu-
steinum tapaðist í Casablanca eða
þar fyrir utan á gamlárskvöld.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 31756 eftir kl.
18. Fundarlaun.
Leikrit Solzhenítsyn
Ellilífeyrísþegi hringdi:
„Ætli menningarmafían fari
ekíri að létta banninu á Solzhenít-
syn og við fáum að sjá leikrit
hans sem gerist í fangabúðum."
Hvað hafa
verkalýðsforingjar í kaup?
Herborg Antoníusdóttir -
hringdi:
„Hvað era verkalýðsforingjam-
ir með í kaup á mánuði? Þeir era
að -semja um smánarlaun fyrir
félagsmenn sína, hvað hafa þeir
í kaup sjálfír?"
Hárvöxtur
Táningur hringdi:
„Hvað getur maður gert til að
fá hárið til að vaxa betur? Er ein-
hver sérstök aðferð til?“
Hanski
Rauðbrúnn loðfóðraður hanski
fannst við Bergstaðastræti fyrir
nokkra. Eigandi hans getur hringt
í síma 27214.
Stórkostlegir tónleikar
Operuunnandi hringdi:
„Ég vil þakka fyrir stórkostlega
Vínartónleika sem sýndir vora í
Ríkissjónvarpinu sl. sunnudag,
það mætti vel endurtaka þessa
tónleika. Þá vil ég þakka fyrir góð
lög á Stjömunni milli klukkan 6
og 7.“
Víkverji skrifar
Nú má lesa í blöðum að brátt
eigi að fara að verðlauna at-
hyglisverðustu auglýsingamar, sem
birtst hafa á síðasta ári í blöðum
og tímaritum, útvarpi og sjónvarpi,
fyrir óvenjulegustu auglýsingunar
í einhveijum af þessum miðlum og
fyrir athyglisverðustu veggspjöldin
og dreifíritin.
Auglýsingaþjónusta er orðin tals-
verð atvinnugrein hér á landi og
áreiðanlegt að fagmennska fer vax-
andi í greininni. A síðustu misseram
hefur einnig mátt sjá merki um
ýmsar breytingar í auglýsingaboð-
skapnum og þær flestar í takt við
alþjóðlega strauma. Auglýsingar
eiga það núorðið til á vera áreitnar
og oft stefnt gegn keppinautinum.
Dæmi um slíkt voru blaðaauglýs-
ingar Stöðvar 2 á fimmtudögum
meðan Ríkissjónvarpið var ekki far-
ið að senda út á fimmtudögum.
Nýjast dæmið er svo blaðaauglýsing
frá Sláturfélagi Suðurlands, sem
birtist í vikunni. Það fyrirtæki fór
ekkert alltof vel út úr síðustu verð-
lagskönnun á kjörvöram og ver sig
nú með því að vísa til þess að það
bjóði nýrra og betra kjöt heldur en
keppinautamir.
I sjónvarpsauglýsingum sigla
auglýsendur yfírleitt lygnari sjó.
Þar má þó iðulega sjá ótrúlega
íburðarmiklar og tæknilega vel unn-
ar auglýsingar miðað við smæð
íslenska markaðarins. En boðskap-
ur þessara auglýsinga er ekki alltaf
jafn markviss. Þekktur markaðs-
maður hér á landi sem Víkveiji átti
tal við, velti t.d. mikið fyrir sér
auglýsingu frá einum sælgætis-
framleiðandnum sem selur háls- eða
hressitöflur. í auglýsingu þessari
sést fjölskylda fyrir framan sjón-
varpið fá sér þessar hressitöflur og
fyrr en varir leikur allt á reiði-
skjálfí í stofunni, sprengingar í
sjónvarpsviðtækinu og húsgögn
færast úr stað. Það er engu líkara
en ærsladraugur hafí verið leystur
úr læðingi. — En hver er boðskapur
þessarar auglýsingar? spurði mark-
aðsmaðurinn — sagði hún okkur
neytendunum eitthvað um það
hvers vegna við ættum að kaupa
fremur þessar töflur en einhveijar
aðrar?
Von að spurt sé og þettai er alls
ekki eina dæmið um glæstar um-
búðir en þar sem boðskapurinn er
á reiki.
xxx
Kunningi Víkveija kom að máli
við hann og kvartaði yfír hve
erfitt hefur verið undanfama daga
að fóta sig á gangstéttum víða í
borginni vegna klaka. Vegfarendur
yrðu að fara með mikill gát til að
renna ekki og detta, og hljóta við
það marbletti eða jafnvel beinbrot.
Þessu væri þó ekki allsstaðar til
að dreifa, þar sem gangstéttir væra
á r.okkram stöðum hitaðar upp með
frárennslisvatni Hitaveitunnar og
væra auðar og greiðfærar. Kvað
hann þó furðu sæta að slíkt skyldi
ekki vera víðar og undranarefni við
þau hús þar sem gangstéttir hafa
nýlega verið rifnar upp og lagfærð-
ar. Sá aukakostnaður sem húseig-
endur þyrftu að greiða fyrir slíka
hitalögn væri hverfandi.
Viðmælandi Víkveija sagðist
vilja vekja athygli á þessu svo að
enginn sem ætti þess kost, léti und-
ir höfuð leggjast að láta hita upp
gangstéttina við húsið sitt. Heita
vatnið sem í þetta fer hefur þegar
þjónað því hlutverki að hit'a upp
íbúðina og þannig má nýta það enn
frekar áður en það rennur til sjávar.
XXX
Bakarar vilja nú fá að hefja inn-
flutning á eggjum eins og fleiri
vegna þess að útlensku egginn séu
margfalt ódýrari en þau íslensku.
Talsmaður bakarar segir í viðtali
við Alþýðublaðið í vikunni: „Við
eram örugglega stærsti neytenda-
hópurinn á markaðinum."
Víkveiji hélt satt að segja að það
værum við öll hin sem borðuðum
mest af brauðunum.