Morgunblaðið - 24.02.1988, Side 1

Morgunblaðið - 24.02.1988, Side 1
64 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 45. tbl. 76. árg. MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Bandaríkjaforseti um afvopnarviðræður: Takmarkið er Evr- ópa án styrjalda RONALD Reagan, Bandaríkjaforseti, fullvissaði Evrópubúa um það í gær, að afvopnunarviðræður risaveldanna yrðu ekki til þess að Banda- ríkin myndu minnka hlut sinn í vörnum Evrópu. „Takmark okkar er ekki Evrópa án kjarnorkuvopna, Evrópa án skriðdreka eða Evrópa án hers, heldur Evrópa án styrjalda," sagði forsetinn í sjónvarpsá- varpi, sem sent var um gervihnött til Evrópu af sjónvarpsstöðinni Worldnet. „Evrópa án styijalda er það sem við höfum nú og það er Evrópa án styijalda sem við viljum varðveita." í ræðunni vék Reagan að hug- myndafræðilegum ágreiningi austurs og vesturs og sagði að hann væri ásteytingarsteinn- inn í sambúð hins fijálsa heims og kommúnistarílq- anna; deilur þeirra kæmu vopnabún- aði ekkert við. „Við vantreystum ekki hvorum öðrum vegna vígbúnað- arins — Við vígbúumst vegna hins gagnkvæma vantrausts." Minnti hann á að þrátt fyrir „glasnost", breytingar í átt að opn- ari umræðu, væri Gúlageyjaklasinn enn á sínum stað og ítrekaði fyrri áskoranir sínar um niðurrif Berlín- armúrsins. Rakti hann hugmyndir um að Berlín gæti aftur orðið ein heild með samstarfi hemámsveldanna fjögurra og að hún hefði alla burði til þess að ávinna sér fyrri sess sem ein stór- borga Evrópu. Gaf hann ennfremur í skyn að Ólympíuleikar kynnu jafn- vel að vera haldnir þar að nýju. Tilgangur ræðunnar var sá að eyða þeim ótta Evrópubúa, að vegna afvopnunarviðræðna risaveldanna og samnings þeirra um upprætingu Sovétríkin: Þjóðemis- ólga í Armeníu Moskvu, Reuter. KAREN Demírtsjyan, kommún- istaleiðtogi Armeniu, hvatti Arm- ena í gær til þess að sýna stillingu eftir fjögurra daga mótmæli vegna þjóðemisólgu. Að sögn armenskra andófsmanna tóku þúsundir manna þátt í mótmælun- um, gengu um götur höfuðborg- arinnar Jerevan og bám borða, sem á stóð: „Ein þjóð, eitt lýð- veldi.“ Mótmælendur hafa krafist þess að sjálfstjómarhéraðið Nagomo- Karabashkaja í Azerbajdzhan verði sameinað Armeníu á ný, eins og var fyrir byltingu 1917. f umræddu hér- aði eru um 95% íbúanna armenskir. Samskipti þjóðanna hafa frá önd- verðu verið stirð, enda Arnaenar kristnir, en Azerbajdzhanar shítar. í Ízvestíju málgagni Sovétstjóm- arinnar sagði að í Nagomo- Karabashkaja hefði einnig komið til mótmæla og að nemendur hefðu skrópað í skólum að undanfömu. Fram kom einnig í blaðinu að hátt- settir embættismenn í kommúnista- fiokknum hefðu verið sendir á vett- vang til þess að lægja öldumar. skamm- og meðaldrægra kjamorku- vopna í desember síðastliðnum kynni vamarsamstarf Atlantshafsbanda- lagsins að vera í hættu. Sagði forsetinn öryggi og frelsi Bandaríkjanna svo samofið öryggi og frelsi Vestur-Evrópu að þar væri ekki hægt að skilja á milli. „Árás á Miinchen jafngildir því árás á Chicago,“ sagði forsteinn. Ræða Reagans sigldi í kjölfarið á viðræðum Georges Shultz, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, við ráða- menn í Moskvu, en báðir aðilar sögðu að að vel hefði miðað í átt til sam- komulags um fækkun langdrægra kjamorkuvopna. Reagan mun í næstu viku hitta aðra leiðtoga ríkja Atlantshafsbandalagsins í Brussel. Sjá frétt um för Shultz á síðu 24. I nr n 1 t-. * ISLAND DODAR DB SISTA VALARWA KÖPIN7£. iSLANDSK FfSK Hvalamótmæli í Gautaborg Bild Service/GautaBorg GRÆNFRIÐUNGAR höfðu sig nokkuð í frammi við opnun íslandskynningar í Sheraton-hótelinu í Gautaborg í gær en létu af frekari aðgerðum er líða tók á daginn. Um morguninn, þegar sér- stök sýning á íslenskum útflutningsvörum var opnuð, höfðu þeir komið fyrir uppblásnum hval fyrir utan hótelið með áletrun þar sem staðhæft var að íslendingar væru að drepa síðustu hvalina og var skorað á fólk að kaupa ekki íslenskar sjávarafurðir. Um hádegi höfðu þeir hins vegar tek- ið niður hvalinn og hætt frekari aðgerðum. Líbanon: Amal-sveitirnar koninar á slóð mannræningjanna Hafa haft hendur í hári þriggja, en leita leiðtogans enn Tyre í Líbanon, Reuter. AMAL-sveitir shíta í Líbanon til- kynntu á þriðjudag að þær hefðu haft hendur í hári þriggja manna, sem viðriðnir væru mannrán bandaríska landgönguliðans Will- iams Higgins, og að nú væri gerð gangskör að því að hremma leið- toga mannræningjanna. „Við höf- um handtekið þijá pilta, sem áttu aðild að mannráninu á bandaríska undir-ofurstanum, og þeir hafa játað hlutdeild sína,“ sagði Daoud Daoud, yfirmaður Amal-sveit- anna í Tyre, í viðtali við Visnews- sjónvarpsfréttastofuna, en Daoud stjórnar leit Amal-sveitanna að Higgins. „Fram að þessu höfum við misst af foringja mannræn- ingjanna, sem hefur allar upplýs- ingar. Við leitum hans nú.“ Higgins, sem er undirofursti í bandaríska landgönguliðinu en fór með stjórn Libanonsdeildar Friðar- gæslustofnunar Sameinuðu þjóð- anna (UNTSO), var rænt fyrir viku af þremur mönnum í nágrenni Tyre. Daoud sagði að menn sínir leituðu Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn: Hótar Dönum hörðu vegna viðskiptahalla Kaupmannahöfn, Reuter. EF DANIR geta ekki sjálfir kom- ið skikkan á sin mál og dregið verulega úr viðskiptahallanum á næstu fimm árum verður Al- þjóðagjaldeyrissjóðurinn að gripa i taumana og gera það fyrir þá. Ulrik Haxthausen, full- trúi Norðurlanda i stjórn Al- þjóðabankans, lýsti þessu yfir i fyrrakvöld i viðtali við danska sjónvarpið. 1 Haxthausen sagði, að danska þjóðin hefði ekki um annað að velja en færa lífskjörin aftur um tíu ár og rétta af hallann á greiðslujöfn- uðinum. Að öðrum kosti yrðu full- trúar frá Alþjóðagaldeyrissjóðnum látnir hafa hönd I bagga með stjóm efnahagsmálanna. „Danir verða annaðhvort að taka sér tak eða þeim verða skipaðir fjárhalds- rnenn," sagði Haxthausen. Poul Schluter forsætisráðherra sagði í gær vegna yfírlýsinga Haxt- hausens, að ekki væri í bígerð að grípa til nýrra efnahagsráðstafana. „Við eigum í alvarlegum erfiðleik- um en við ætlum ekki reyna að draga úr neyslunni með nýjum sköttum. Við búumst heldur alls ekki við, að neyslan muni aukast," sagði Schluter en á þremur árum hefur stjómin gripið flórum sinnum til sérstakra spamaðarráðstafana. Erlendar skuldir Dana eru með hinum hæstu í heimi miðað við þjóðarframleiðslu. nú á felustöðum, sem hinir hand- teknu hefðu nefnt sem hugsanlega dvalarstaði Higgins. Þá sagði hann sig hafa öruggar heimildir fyrir því að Higgins væri enn í Suður-Líbanon og taldi mjög líklegt að sveitum sínum tækist að finna Bandaríkja- manninn. Daoud sagði að sér væri nú kunn- ugt um nafn þess, sem lagt hefði á ráðin um mannránið og bæri ábyrgð á því, en vildi ekki gefa það upp. Tveir þeirra, sem handteknir hafa verið, eru sagðir hafa tekið þátt í sjálfu mannráninu, en sá þriðji var handsamaður með skilaboð til mann- ræningjanna frá Beirút þess efnis að flytja ætti Higgins norður til höfuðborgarinnar. Daoud sagði að til greina kæmi að skipta á föngun- um þremur og Higgins. „Samtök kúgaðra í heiminum" hafa lýst ábyrgðinni á mannráninu á hendur sér og segja starf Higgins fyrir SÞ hafa verið skálkaskjól eitt; í raun sé hann njósnari bandarísku leyniþjónustunnar, CLA. Orðfærið í yfírlýsingu samtakanna þykir mjög svipa til þess, sem heittrúaðir músl- imir hollir íransstjóm beita. Þá hef- ur Hizbollah (Flokkur Guðs) lýst yfir stuðningi sínum við mannræn- ingjana, en Hizbollah er í nánum tengslum við klerkastjómina í íran. I gær sagði Ali Akbar Velayati, utanríkisráðherra írans, að írans- stjóm myndi beita sér fyrir mannúð- legri lausn málsins, ef hún ætti þess nokkum kost. Hann sagði að sijóm sinni væri að vísu ekki kunnir allir málavextir, upplýsingar hennar væru frá fjölmiðlum komnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.