Morgunblaðið - 24.02.1988, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1988
53
Vetrarólympíuleikarnir
í C a I g a r y
íHémR
FOLX
■ EDDIE Edwards, breski
skíðastökkvarinn, er gífurlega vin-
sæll meðal áhorfenda og blaða-
manna á Ólympíuleikunum í
Calgary. í gær hélt hann blaða-
mannaftmd og það voru rúmlega
200 blaðamenn sem mættu. Á fund-
inum sagði Edwards að hann væri
ekki hræddur við 90 metra pallinn.
„Ég hef stokkið um 1.000 sinnum
af 90 metra palli og aðeins tvisvar
sinnum dottið. í fyrra skiptið togn-
aði ég og í það síðara fékk ég bara
nokkra marbletti á bakhlutann."
Hann sagðist ekki vera hræddur
um að vera bannað að keppa, til
að koma í veg fyrir slys. „Takmark-
ið er að slá breska metið sem er
68 metrar og verða ekki í neðsta
sæti.“ Edwards stefnir að því að
stökkva lengra en Bernat Zola
Ptýol sem er eini keppandi Spán-
verja í skíðastökki.
■ EDDIE Edwards er ekki eini
breski keppandinn í Calgary. Tveir
landar hans, fæddir í Bretlandi en
keppa undir fána Jomfrúareyja,
höfnuðu í neðsta sæti í tveggja
manna sleðakeppni. Það voru John
Reeves og John Foster sem eru
báðir rúmlega fimmtugir kaup-
sýslumenn. Þeir komu í mark 17
sekúndum á eftir sigurvegurunum,
sem þykir nokkuð mikið í sleða-
keppni.
■ ALBERT Grimaldi frá Món-
akó hafnaði í 25. sæti í tveggja
manna sleðakeppni. Hann er reynd-
ar þekktari sem prins af Mónakó
en sleðakappi. Hann var nokkuð
ánægður með árangur sinn, enda
stefndi hann að því að ná í 25.-30.
sæti. Meðal áhorfenda voru systir
hans Karolina og faðir þeirra Rain-
er fursti af Mónakó.
Reuter
Eddle Edwards
V-Þýskaland
Uerdingen
áfram
Uerdingen, án Atla Eðvalds-
sonar, vann Dortmund 2:1
í Dortmund í gærkvöldi f vest-
ur-þýsku bikarkeppninni í knatt-
jgggggam spymu. Þetta
Fré var önnur viður-
Jóhanni Inga eign iiðanna þar
Gunnarssyn sem fyppj lejkn.
iV-Þýskaland, um ,^k með
jafntefli, 3:3. Leikurinn fór fram
við hinar verstu aðstæður, en
engu að síður voru áhorfendur
12 þúsund.
öll mörkin komu eftir horn-
spyrnur. Wolfgang Funkel kom
gestunum yfír á 21. mínútu, en
Dickel, sem kom inná sem vara-
maður fyrir Mill, jafnaði í byijun
seinni hálfleiks. Kúnts innsiglaði
síðan sigur Uerdingen á 62.
mfnútu.
Mattl Nykaenen, Finninn fljúgandi“ hafði ótrúlega yfírburði í stökki af 90 metra palli í gærkvöldi og sigraði glæsilega.
Matti Nykaenen:
„Finninn fljúgandi"
öruggur sigurvegari
af 90 metra palli
MATTI Nykaenen sigraði með
yfirburðum í stökki af 90 metra
palli á vetrarólympíuleikunum
í Calgary í Kanada í gærkvöldi.
„Finninn fljúgandi" eins og
hann er nefndur hafði ótrúlega
yfirburði, stökk 118,5 metra í
fyrri umferð, stökk 107 metra
af öryggi í þeirri seinni og fékk
224 stig.
Nykaenen stökk fjórum metrum
lengra en næsti maður í fyrri
umferð og var afslappaður í þeirri
seinni. „Eg vissi að ég myndi sigra
og var því ekkert að æsa mig,“
sagði sigurvegarinn. Nykaenen
setti þijú met. Hann er fyrsti skíða-
stökkvarinn, sem sigrar bæði í
stökki af 70 metra og 90 metra
palli á sömu Ólympíuleikum, hann
er sá fyrsti, sem ver titilinn í stökki
af 90 metra palli, og hann.er sá
fyrsti, sem fær þijú gullverðlaun í
stökki á Ólympíuleikum.
Nykaenen var þriðji keppandinn á
leikunum til að fá tvenn gullverð-
laun og í kvöld á hann möguleika
á að setja enn eitt metið.
Sveitakeppni í
norrœnnl tvfkeppni
70 m stökk
1. Vestur-Þýskaland............629.8
2. Austurriki..................626.6
3. Noregur.....................596.6
4. Tékkoslóvakía...............573.5
5. Austur-Þýskaland............671.6
6. Sviss.......................571.4
7. Finnland....................561.3
8. Frakkland................. 541.0
9. Bandaríkin..................516.9
10. Japan......................515.3
11. Sovétríkin.................282.5
Eftir fyrstu umferð var ekki spum-
ing um sigurvegarann, heldur hver
væri bestur af hinum. Érik Johnsen,
Norðmaðurinn sem tók skíðastökk
fram yfír knattspymu, hafnaði í
öðru sæti 16,1 stigi á eftir Nykaen-
en, og Matjaz Debelak frá Júgó-
slavíu varð þriðji.
52.000 áhorfendur fylgdust með
keppninni, sem fór fram við mjög
góðar aðstæður í blíðskapar veðri,
en sem kunnugt er þurfti að fresta
henni aftur og aftur vegna roks.
Nykaenen var vel fagnað, en áhorf-
endur fögnuðu samt meira, er Eddie
Edwards lauk keppni. Hann hafn-
aði í 55. og neðsta sæti eins og flest-
ir reyndar gerðu ráð fyrir, en bætti
breska met sitt um þrjá metra.
„Hver veit. Ef. til vill verð ég sá
besti eftir fjögur ár,“ sagði Bretinn
vinsæli.
Rötsch lékk annað gull
Fyrsti sigurvegari í 10 km og 20 km skíðaskotfimi á sömu leikum
„ÞAÐ var ekkert álag á mér.
Eg hafði fullnægt skyldunni,
fengiö ein gullverðlaun og var
því afslappaður,1' sagði Aust-
ur-Þjóðverjinn Frank-Peter
Rötsch, sem sigraði í 10 km
skíðaskotfimi (gærkvöldi, en
hann fékk gullverðlaun f 20 km
skíðaskotfimi á laugardaginn.
Rötsch vann eins og á laugar-
daginn á hraðanum, en var
ekki eins öruggur í að hitta í mark
— varð að ganga 150 metra hring
aukalega vegna þess að hann missti
marks úr standandi stöðu, en það
kom ekki að sök. Rötsch setti
ólympíumet, gekk 10 km á 25:8,1
mínútum og var rúmlega 15 sek-
úndum á undan Sovétmanninum
Valeri Medvedtsev, sem hitti ávallt
í mark, en varð að láta sér nægja
silfrið öðru sinni. Sergei Tchepikov,
Sovétríkjunum, fékk bronsverð-
Iaunin, en Austur-Þjóðveijinn Birk
Anders hafnaði í fjórða sæti.
10 km skíðaskotfimi hefur verið
keppnisgrein á ÓL síðan 1980, en
Rötsch, sem er 23 ára, er fyrsti
keppandinn, sem sigrar í 10 km og
20 km skíðaskotfimi á söniu leikum.
Brautin var hörð og fengu 62 af
72 keppendum, sem luku keppni,
betri tíma en fyrra ólympfumet.
Vestur-Þjóðveijum gekk ekki eins
vel og gert hafði verið ráð fyrir —
Peter Angerer var með þeirra besta
tíma og hafnaði í 10. sæti eins og
á laugardaginn.
19 8 8
Sovét-
menn
sigruðu í
tveggja
manna _
sleða- "
keppni
JANIS Kipurs sá til þess að
Sovétmenn fengu sín fyrstu
gullverðlaun ítveggja manna
sleðakeppni. Hann stjórnaði
sleðanum af öryggi með Vlad-
imir Kozlov á bremsunum og
>eir fengu tímann 3:53,48
mínútur.
Erfíðlega gekk að ljúka keppn^
inni vegna veðurs og var 24
tíma seinkun á síðustu umferðinni.
Mikil óánægja var með aðstæður
og alla seinkunina og sögðu sumir
að þetta hefði verið til mikillar
skammar. „Ég reyndi að gleyma
frestununum og einbeitti mér að
keppninni. Ég sigraði ekki vegna
vandamálanna, en það er ótrúlegt
að ég hafí sigrað Hoppe,“ sagði
Kipurs. Wolfgang Hoppe frá Aust-
ur-þýskalandi er almennt viður-
kenndur sem sá besti í greininni,
en bremsumaður hans var BogdaflS’”
Musiol. Þeir náðu besta tíma í þrem-
ur ferðum af fjórum, fóru saman-
lagt á 3:54,19 mfnútum og urðu
að láta sér nægja silfrið. „Við sýnd-
um hvað við getum og verðum að
sætta okkur við úrslitin," sagði
Hoppe.
Reuter
Janis Klpurs fagnar sigri f tveggja
manna sleðakeppni.
ENGLAND
Watford
áfram
Watford vann Port Vale 2:0
á Vicarage Road í gær-
kvöldi og er því í átta liða úrslit-
um ensku bikarkeppninnar í
PHMMMM knattspyrnu
FráBob þriðja árið í röð
Hennessy — leikur gegn
iEngiandi Wimbledon. Tre-
vor Senior skor-
aði strax á fimmtu mínútu, en
Gary Porter innsiglaði sigurinn
seint í leiknum eftir að Port
Vale hafði sótt stöðugt án ár-
angurs.
í 1. deild gerðu Tottenham og
Manchester United 1:1 jafntefli.
Clive Allen skoraði fyrir heima-
menn, en Brian McClair fyrir
gestina. Þá vann Stoke Leeds
2:1 í 2. deild.