Morgunblaðið - 24.02.1988, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1988
*
AÐALFUNDUR
Hf. Eimskipafélags íslands verður haldinn
í Súlnasal Hótel Sögu
fimmtudaginn 24. mars 1988,
og hefst kl. 14.00.
--------— DAGSKRÁ-----------
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 14. gr.
samþykkta félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhluta-
bréfa.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram
á aðalfundi, skulu vera komnar skriflega
í hendur stjórnarinnar eigi síðar
en sjö dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa
á skrifstofu félagsins í Reykjavík frá 17. mars.
Reykjavík, 20. febrúar 1988
STJÓRNIN
Andreas Schmidt og Thomas Palm.
SCHUBERT-HÁTÍÐ
Tónllst
Jón Ásgeirsson
Baritonsöngvarinn Andreas
Schmidt og píanóleikarinn Thom-
as Palm hófu Schubert-hátíð í
íslensku óperunni með flutningi á
Die shöne Mullerin, lagaflokknum
fagra um ógæfusama malarann,
sem ber í hjarta sér óþreyju far-
andmannsins, kvöl vonlausrar ást-
ar og flnnur sér hvíldarstað í
læknum, ímynd óþreyjunnar er
vísaði honum leiðina til malara-
stúlkunnar fögru og knýr myll-
una.
Samt er þetta ekki sorgarsöng-
ur, því lækurinn kveður malaran-
um vögguvísu, breiðir yfír hann
kristalsbláa sæng sína og býður
honum góða nótt. Yflr þeim vakir
albjartur máninn og víðemi himin-
blámans.
Andreas Schmidt er stórkost-
legur söngvari, og flutti laga-
flokkinn svo þýðlega, að við fátt
verður jafnað, nema ef það væri
sem helst mætti muna M því er
Dietrich Fischer-Dieskau flutti
Schubert í Austurbæjarbíó fyrir
óralöngu sfðan. Þá lék Thomas
Palm stórkostlega vel, sérstaklega
þar sem Schubert leikur með
fínlegar tónhugmyndir sínar, eins
og t.d. í Die liebe Farbe.
Á næsstu tónleikum flytja þeir
félagar Vetrarferðina, sem er eitt
af mestu söngskáldverkum tón-
listarsögunnar og á þriðju tónieik-
unum úrval söngva og Svana-
söngvana, sem allir að einum und-
anteknum eru samdir í ágústmán-
uði 1828, en Schubert lést þremur
mánuðum seinna, eða 19. nóv-
ember.
Þessi Schubert-hátíð er meiri
háttar listaviðburður, því bæði er
hér um að ræða Mbæra flytjend-
ur og stórkostlega tónlist.
SJONVARPSBINGO Á STÖD 2
mánudagskvöldið 22. febrúar 1988.
Vinningar í fyrri umferð þegar spilað var
um eina lárétta línu.
Spilað var um 10 aukavinninga, hver að
verðmæti kr. 50.000,00., frá HUÓMBÆ,
TEGUNDXZ1:
8, 33, 12, 71,28, 56, 35, 14, 2, 88, 42,
38, 55, 89, 32, 5, 49.
SPJALDNR. 18172.
Þegar talan 49 kom upp var HÆTT að
spila á aukavinningana.
Þegar spilað var um BÍLINN komu eftirfar-
anditölurupp.
Spilað var um þrjár iáréttar línur,
(eitt spjald):
57, 27, 11,79, 51,4, 69, 1 O, 23, 78, 52,
65, 24, 3, 64, 76, 50, 25, 41,85, 20, 1,
60, 59, 43, 36, 16, 80, 53.
SPJALDNR. 15137.
ki
OGUR
STYRKTARFELAG
SÍMAR 673560 OG 673561
Kötturinn var sleginn úr tunnunni á öskudaginn i Hveragerði.
Morgunblaðið/Sigrún Sigfúsdóttir
Öskudagsgleði í Hveragerði
Hveragerði.
ÖSKUDAGURINN var haldinn
hér með meiri glæsibrag en ver-
ið hefur. Sá siður að „slá köttinn
úr tunnunni" var innleiddur hér
við góðar undirtektir og fögnuð
bamanna sem mættu til leiksins
i hinum furðulegustu búningum.
Siðan var haldið i Hótel Ljósbrá
þar sem Skólahljómsveit Hvera-
gerðis gekkst fyrir dansleik.
Starfsmenn Hveragerðisbæjar
höfðu komið tunnu fyrir austan við
íþróttahúsið og stjómuðu þeirri at-
höfn að slá í tunnuna svo að allir
kæmust að og enginn yrði útundan
eins og vera ber. Einnig miðluðu
þeir góðgæti til litlu keppendanna.
Þrátt fyrir snjókomuna og
bleytuelginn skemmtu bömin sér
konunglega.
Skólahljómsveit Hveragerðis hélt
síðan ball í Ljósbrá og var þar dans-
að af miklu fjöri. Þar voru þau einn-
ig með hlutaveltu og rennur ágóði
í ferðasjóð, en þau hyggja á Fær-
eyjaferð f sumar. Félagar hljóm-
sveitarinnar sáu um öll sín þjón-
ustustörf sjálflr, s.s. afgreiðslu,
umsjón og tónlist og tóku til eftir
sig að gleðskapnum loknum með
mesta sóma. En kennari þeirra,
Knstján Ólafsson, stjómar þeim
með samblandi af mildi og festu
sem er svo mikilvægt í uppeldi
ungra bama.
Trúi ég að þessi öskudagur hafí
veirð æskufólki Hveragerðis óvenju
ánægjulegur.
- Sigrún
Ferðaskrifstofan Útsýn:
Vinningar happdrætt-
is á ferðakaupstefnu
í HAPPDRÆTTI á ferðakaup-
stefnu Ferðaskrifstofunnar Út-
sýnar hf. í Broadway sunnudaginn
21. febrúar sl. komu upp eftirtalin
númer.
Leikföng komu á miða nr. 39633,
39757, 39809, 39824, 39852, 39878
og 39879.
Kynnisferð fyrir tvo í Portúgal
kom á miða nr. 38272, kynnisferð
fyrir tvo á Spáni á miða nr. 38249,
farseðill með Amarflugi á miða nr.
37433, farseðill með Flugleiðum á
miða nr. 38257 og sóiarlandaferð
með Útsýn á miða nr. 37116 og einn-
ig á miða nr. 37198.
Vinningshöfum er óskað til ham-
ingju og ósóttra vinninga má vitja
hjá símaverði á 2. hseð á skrifstofu
Utsýnar, Austurstræti 17.
(Fréttatilkynning)