Morgunblaðið - 24.02.1988, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MTOVnCUDAGUR 24. FEBRÚAR 1988
Morgunblaðið/Júlíus
Þráinn Guðmundsson forseti Skáksambands íslands flytur rseðu
við upphaf Reykj avíkurskákmótsins í gær. í forgnmni eru Mar-
geir Pétursson og Guðmundur Gíslason en skák þeirra vakti
einna mesta athygli í fyrstu umferðinni.
Lítíð um óvænt úr-
slit í fyrstu umferð
XIII. Reykjavíkurskákmótið, sem hófst í gær á Hótel Loftleiðum,
var heldur fámennara en tvð fyrri opnu mótin. 52 keppendur
mættu til leiks en 66 voru skráðir á mótið. Allir sterkustu skákmenn-
irnir komu þó, nema Kevin Spraggett, en í hans stað kom banda-
ríski stórmeistarinn Larry Christiansen. Að vísu var ekki búist við
honum til landsins fyrr en í dag en hann birtist skyndilega á Hótel
Loftleiðum þegar klukkutími var liðinn af mótinu.
Mótið var sett klukkan 17 í sem minnst, og alls ekki þegar
gær. Þráinn Guðmundsson forseti
Skáksambands íslands flutti ávarp
og Sigurður Helgason forstjóri
Flugleiða setti mótið en Flugleiðir
styrkja mótið. Davíð Oddsson borg-
arstjóri lék síðan fyrsta leiknum
fyrir Jón G. Viðarsson í skák hans
við Míkhaíl Gúrevítsj en áður flutti
hann stutt ávarp þar sem hann gat
þess að Skáksambandið hefði sótt
um lóð undir skákhús til borgarinn-
ar og varla yrði um neinar deilur
að ræða varðandi það hús þar sem
ekkert vatn eða tjöm væri þar
nálægt. Þessi lóð er við Reykjaveg
í Laugardal.
Það Vakti nokkra athygli þegar
Guðmundur Amlaugsson yfirdóm-
ari kynnti leikreglur, að hann gat
þess að þótt mótshaldarar hefðu
ekki treyst sér að banna reykingar
í skáksalnum mæltust þeir til þess
við skákmenn að þeir reyktu þar
andstæðingar þeirra væm að hugsa
næsta leik. Svipaðar umgengnis-
reglur vom settar í St. John eftir
kvörtun íslendinga yfir Viktor
Kortsjnoj.
Lítið var um óvænt úrslit í fyrstu
umferð Reykjavíkurskákmótsins en
þá keppa stigahæstu keppendumir
við stigalága skákmenn. Gúrevítsj
á tvísýna skák gegn Jóni G. Viðars-
syni, Adoijan gerði jaftitefli við
Frakkann Lautier og Margeir Pét-
ursson var með verri stöðu gegn
ísfirðingnum Guðmundi Gfslasyni
þegar skákin fór í bið. Karl Þor-
steins, Þröstur Þórhallsson og
Hannes Hlífar Stefánsson unnu
sínar skákir. Sofia Polgar vann
Færeyinginn Luitjen, en Judit Polg-
ar tapaði fyrir Tómasi Hermanns-
syni. Magnús Sólmundarson gerði
jaftitefli við Zsuzsu Polgar.
Samningar við Japani á lokastigi:
Smærri loðna og aukin sam
keppni valda verðlækkun
Skákmótið í Linares:
Jóhann tapaði
fyrir Nunn
JÓHANN Hjartarson tapaði
fyrir Bretanum John Nunn í
fyrstu umferð skákmótsins i
Linares á Spáni í gær. Jóhann
hafði svart og beitti franskri
vöm og viðraði afbrigði sem
hann hafði undirbúið gegn Vikt-
ori Kortsjnoj. Að sögn Leifs
Jósteinssonar aðstoðarmanns
Jóhanns teygði Jóhann sig held-
ur of langt í sóknartilraunum
og varð að gefast upp eftir 30
leiki.
Jóhann og Leifur komu ekki á
skákstað fyrr en um kl. 2 á þriðju-
dagsnótt eftir erfitt ferðalag. Þá
höfðu staðið yfir talsverðar deilur
meðal skákmannanna um tíma-
mörk. Til stóð að Anatolíj Karpov
keppti á mótinu og gerði hann
m.a. þá kröfu að tímamörkunum
yrði breytt í 2Ví klukkustund á
40 leiki í stað 2 tíma á 40 leiki
og síðan klukkutíma á næstu 20
leiki eins og til stóð. Að þessari
kröfu var gengið en síðan hætti
Karpov við þátttöku á síðustu
stundu og vildu keppendur þá
breyta tímamörkunum aftur. En
þá hótaði Beljavskíj að fara heim
og var því hætt við allar breyting-
ar.
Ef marka má fyrstu umferðina
verður mótið skemmtilegt því
hrein úrslit fengust í öllum skák-
unum nema einni: Ljubojevic og
Portisch gerðu jafntefli. Beljavskíj
vann Tsjiburdanidze, Timman
vann Georgiev, Júsupov vann Nic-
olic og Illescas vann Chandler.
Síðustu úrslitin voru óvænt því
Illescas hefur aðeins 2495 skák-
stig en Chandler 2590.
í dag teflir Jóhann við Illescas
og hefur hvítt.
SAMNINGAR um sölu á frystri
loðnu og loðnuhrognum til Jap-
ans eru nú á lokasdgi og er
sumum jafnvel lokið, að sögn
Helga Þórhallssonar, sölustjóra
hjá Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna. Helgi sagðist ekki geta
sagt til um verð fyrr en allir
samningarnir lægju fyrir, en
ljóst er að um verðlækkun er
að ræða, bæði vegna þess að
loðnan er nú smærri en oftast
áður og Kanadamenn veita ís-
lendingum nú mjög aukna sam-
keppni. Söluverðmæti loðnu-
hrogna til Japans var í fyrra
um 450 miiyónir íslenskra króna
og frystrar loðnu rúmar 200
milljónir íslenskra króna. Heild-
armagn loðnuafurða til Japans
var um 11.000 tonn.
„Loðnan er enn með það mikla
átu í sér að hún er óhæf til fryst-
ingar," sagði Helgi. „Loðnan er
smá og það verður erfitt að fara
með svona kóð í verksmiðjuna, það
flokkast þá aldrei sú stærð sem
Japanimir vilja fá.“ Helgi sagði
að hrognaprósentan færi að verða
hæfilega há, 15%, en það væri
seint miðað við árstíma.
Helgi sagði að þrátt fyrir þetta
væru nokkrir samningar nú þegar
í höfn og aðeins væri áherslúmun-
ur í þeim samningum sem eftir
væru. Ljóst væri þó að mun minna
magn yrði selt en í fyrra. Sam-
keppni við Kanadamenn hefur auk-
ist mjög, að sögn Helga. Fram-
leiðslugeta þeirra er nálægt 40.000
tonnum en markaðurinn i Japan
tekur ekki við nema um 25.000
tonnum, að sögn Helga. Auk þess
væru Kanadamenn með stærri
loðnu semþeir gætu boðið á lægra
verði en Islendingar. Nú em til
12-14 mánaða birgðir af loðnu-
hrognum í Japan og verður líklega
ekki hægt að selja nema um Vs
af raunverulegri afkastagetu
frystihúsa SH til Japans. Auk þess
eiga loðnuhrognin nú í samkeppni
við síldarhrogn frá Kanada. Japan
er eini markaður íslendinga fyrir
fiysta loðnu og sá langstærsti fyr-
ir loðnuhrogn.
Sprengjusérfræðingar Lajidhelgisgæslunnar:
Sprengjur ungling-
anna mun hættulegri
en búist var við
Sérfræðingar
Landhelgisgæslunnar
segja sprengjur sem
lögreglan í Hafnar-
firði hefur lagt hald
á í fórum unglinga
undanfamar vikur
mun hættulegri en
þeir hafi upphaflega
búist við. Sprengju-
eyðingadeild Land-
helgisgæslunnar
skorar á foreldra og
þá unglinga sem hafa
undir höndum
sprengjur eða efni til
að búa til slíkar
sprengjur að koma
þeim til næstu lög-
reglustöðvar tafar-
laust.
Sérfræðingamir
segja að svokallaðar
rörasprengjur hafi ná-
kvæmlega sömu áhrif
og handsprengjur sem
notaðar eru í hemaði.
Þá sé umbúnaður í
mörgum tilfellum þann-
ig að telja verði líklegt
að sprengjumar hefðu
spmngið í höndum
þeirra sem ætluðu að
sprengja þær og loks
að flestir þeirra sem
slasist af völdum
heimatilbúinna
sprengja séu þeir sem
séu að búa þær til.
Morgunblaðið/Sverrir
Gunnar Bergsteinsson forstjóri Land-
helgisgæslunnar og Ingólfur Ingvarsson
yfirlögregluþjónn i Hafnarfirði halda á
olíufati sem heimatílbúin sprengja var
sprengd ofan I. Sést á myndinni hvernig
brúsinn tættist í sundur við sprengmg-
una. Á borðinu fremst á myndinni er
hluti sprengjanna sem sprengjusérfræð-
ingar Landhelgisgæslunnar hafa rann-
sakað undanfarið.
Rætt um að hefja viðræður
við Sovétmenn 29. febrúar
Viðskiptafulltrúi Sovétríkj-
anna á íslandi hefur nefnt fyrstu
vikuna i mars sem líklegan tima
til viðræðna um sölu á frystum
físki til Sovétríkjanna. Talsmenn
SH og Sambandsins sendu skeyti
í framhaldi af þvi þar sem þeir
lýstu sig reiðubúna að befja við-
ræður 29. febrúar, en sovésku
samningsaðilarnir í Moskvu hafa
ekki staðfest þá dagsetningu.
Aðspurður sagði Benedikt
Sveinsson, sölustjóri hjá sjávaraf-
urðadeild Sambandsins, að hann
teldi ólíklegt að umræður um þessa
dagsetningu á fisksoluviðræðum
tengdust bóði Sovétmanna um
heimsókn forseta íslands til Sov-
étríkjanna um næstu mánaðamót.
Steingrímur Hermannsson, ut-
anríkisráðherra, sagði í samtali við
Morgunblaðið að þetta mál hefði
ekkert komið upp í viðræðum hans
við Sovétmenn um forsetaheim-
sóknina, en hins vegar teldi hann
ólíklegt að Sovétmenn létu slík
vandamál óleyst þegar á heimsókn
forsetans stæði.
Samkvæmt upplýsingum frá
Benedikt Sveinssyni og Gylfa Þór
Magnússyni hjá SH, þá spurði við-
skiptafulltrúi Sovétríkjanna á ís-
landi samningamenn SH og Sam-
bandsins nú nýlega að því hvemig
fyrsta vikan í mars hentaði þeim
til viðraaðna. Þetta var stuttu áður
en boð Sovétmanna um heimsókn
forseta íslands til Sovétríkjanna var
gert heyrinkunnugt. Fulltrúinn tók
það fram að ekki væri um formlegt
boð frá Sovétmönnum að ræða,
heldur væri um hans eigið mat á
hentugum samningstíma að ræða.
íslensku samningamennimir sendu
skeyti um hæl til Soviybflot, samn-
ingsaðilans í Moskvu, um að
íslenska sendinefndin væri reiðubú-
in að koma til Moskvu síðustu helg-
ina í febrúar og heija viðræður
mánudaginn 29. febrúar.
Ekki hefur boríst formleg stað-
festing frá Sovétmönnum um að
þeir séu tilbúnir að he§a viðræður
á þessum tíma, en að sögn tals-
manna SH og Sambandsins er búist'
við svari nú á hverri stundu.
Benedikt Sveinsson sagði að við-
ræðumar nú væru óvenju seint á
ferðinni, en ýmsar skýringar gætu
verið á því. Til dæmis væru aðal-
samningamenn Sovrybflot í fisk-
kaupum mjög fáir og væri mikið
vinnuálag hjá þeim. „Ég held að
það geti enginn svarað því í sjálfu
sér hvort það sé samhengi á milli
þessa boðs og þessara viðræðna um
freðfisksölu, að minnsta kosti getur
maður ekki séð ljóst samhengi
þaraa á milli," sagði Benedikt.
í dag
blaoB