Morgunblaðið - 24.02.1988, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 24.02.1988, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1988 AKUREYRI *FYRSTA alþjóðlega skákmót Skákfélags Akureyrar verður haldið í Alþýðuhúsinu á Akyreyri dagana 9.- 21. mars og komast færri að en vilja. Mótið er tólf manna, en mun fleiri hafa sýnt því áhuga. Stjórn SA hefur tekið ákvðrðun um níu þátttakendur og er þessa dagana að velja þijá í viðbót úr hópi sex annarra kunnra skákmanna. Ekki reynist unnt að fjölga keppendum þar sem New York Open-mótið hefst strax að loknu Akureyrarmótinu og nokkr- ir þátttakendanna á förum þang- að. Ákveðið er að þrír Sovétmenn taki _Jjátt í mótinu, þeir Mikhail Gurevich stórmeistari, Lev Polugaevski stór- meistari og Sergey Dolmatov stór- meistari. Þá koma íslensku stór- meistaramir, þeir Jóhann Hjartar- son, Margeir Pétursson, Helgi Ólafs- son og Jón L. Amason til keppni auk tveggja Akureyringa, þeirra Jóns Garðars Viðarssonar og Ólafs Kristj- ánssonar, sem tefla nú f fyrsta sinn á alþjóðlegu móti. Aðrir þeir er til greina koma eru: Karl Þorsteins al- þjóðlegur meistari, Tisdall alþjóðleg- ur meistari frá Noregi, Adorjan stór- *meistari frá Ungveijalandi, Sprag- gett stórmeistari frá Kanada, So- kolov frá Júgóslavíu sem jafnframt er yngsti stórmeistari heims og Brown stórmeistari frá Bandaríkjun- um. , Gylfi Þórhallsson formaður SA sagði í samtali við Morgunblaðið að hægt hefði verið að hafa þetta stór- meistaramót eingöngu, en frá því hefði verið horfíð. „Við vildum hafa a.m.k. tvo Akureyringa með þar sem þetta er okkar fyrsta stórmót. Við emm að vonast til að meðaltal styrk- leikans verður í kringum 2.500 ELO-stig. Sovétmaðurinn Gurevich er sterkastur með 2.625 ELO-stig og ellefti sterkasti skákmaður heims. Honum næstur kemur Jóhann með *yfir 2.600 stig nú eftir einvígið við Kortsjnoj." Gylfí sagði að ætlunin væri að halda slík alþjóðleg mót reglulega ef vel tækist til með þetta. Mótin yrðu þá haldin á tveggja ára fresti í beinu framhaldi af Reykjavíkurmót- unum. Þó þetta fyrsta mót yrði lok- að, yrðu önnur mót að öllum líkindum opin þar sem þau yrðu ódýrari í fram- kvæmd. Morgunblaðið/GSV Ahugi er fyrir kaupum á tveimur hæðiun í húsi þessu við Glerárgötu 26, annarri og þriðju hæð, þar ________________ sem stúdentaíbúðir verða væntanlega innréttaðar fyrir haustið. Stúdentagarðar komnir fyrir haustið Hugmyndir eru uppi á Akur- eyri um stúdentagarða þar í bæ, sem menn gera sér vonir um að hægt verði að taka í notkun strax næsta haust. Hafa sjónir manna einkum beinst að hús- næði við Glerárgötu 26. Hús- næðið er nú í fokhelt, en þar er hægt að innrétta stúdentaí- búðir fyrir 30-35 manns. Tölu- vert undirbúningsstarf hefur verið unnið vegna þessa, hvað varðar fjármögnun og skipu- lagningu. Undanfamar vikur hefur starfað á Akureyri átta manna hópur áhugafólks um málefni Háskólans á Akureyri. Starfsemi þessa hóps hefur einkum beinst að húsnæðis- málum stúdenta við háskólann og þá ekki síst byggingu stúdenta- garða.' Stofnað hefur verið félag áhugafólks um málefni háskólans og nefnist það Skjöldur. Fyrsta verkefni félagsins er að vinna að frekari undirbúningi og byggingu stúdentagarða við skólann. Tómas Ingi Olrich er einn þeirra er starfað hefur að undirbúningi þessa máls og sagði hann í sam- tali við Morgunblaðið að hægt yrði að gera húsnæðið fbúðarhæft fyrir nk. haust ef hlutimir gerðust hratt. „Við höfum fengið mjög góðar undirtektir í stjóm Húsnæðisstofn- unar og reiknum fastlega með já- kvæðu svari þaðan. Lög um félags- legar íbúðir kveða á um lán frá stofnuninni sem nemur allt að 85% kostnaðarins. Lán þessi bera að- eins 1% vexti, sem hlýtur að telj- ast hagstætt hverju fyrirtæki sem er. Gert er ráð fyrir að fyrirtækið verði einskonar sjálfseignarstofn- un í líkingu við Félagsstofnun stúd- enta og yrði sú stofnun að fjár- magna 15% kostnaðarins á eigin spýtur. Reynt verður að fá það fjár- magn frá sveitarfélögum og fyrir- tækjum. Þegar hefur verið rætt óformlega við forráðamenn nok- kurra sveitarfélaga og fyrirtækja og lofa undirtektir góðu.“ í viðræðum við eiganda hússins, Áma Ámason, hefur ýmist verið rætt um kaup á tveimur eða þrem- ur hæðum, og þvi' hefur endanlegt verð ekki verið nefnt ennþá. Tómas Ingi sagði að staðsetning hússins væri ekki heppileg fyrir stúdenta- garða háskólans enda væri hús- næðið aðeins hugsað til bráða- birgða nú á fyrstu árum háskól- ans. „Móta þarf skýrar hugmyndir um endanlega staðsetningu skól- ans auk þess sem á sama stað þarf að gera ráð fyrir framtíðar- stúdentagörðum. Til greina hafa komið tvær lóðir í bænum, annars vegar hefur verið rætt um lóðina þar sem gamli Iðnskólinn stendur nú og markast af Þingvallastræti að norðanverðu og Hrafnagils- stræti að sunnanverðu. Hinsvegar er um að ræða lóð nálægt Verk- menntaskólanum á Eyrarlands- holti, lóð sem er við Þórunnar- stræti sunnanvert. Ljóst er að Iðn- skólahúsið í núverandi mynd næg- ir háskólanum ekki nema til ör- fárra ára. Hinsvegar gæti það ver- ið hluti af byggingum háskólans í framtíðinni, færi svo að háskólan- um yrði valinn þar staður. Til þess að menn geti gert sér grein fyrir húsnæðisþörf háskólans þurfa skýrar upplýsingar að liggja fyrir um hvert hlutverk hans verður auk þess sem athugun verður að fara fram á þessum lóðum,“ sagði Tóm- as Ingi. Hann sagði að búið væri að gera frumdrög að rekstrar- og greiðsluáætiun vegna stúdenta- garða við Glerárgötu 26. „Drögin benda til þess að hér sé á ferðinni mjög áhugaverður kostur. Dæmið virðist vera svo hagstætt að okkur finnst full ástæða til að reyna þetta til þrautar." Haraldur Bessason háskólarekt- or sagði í samtali við Morgun- Sljarnan komin tilAkureyrar STJARNAN hóf útsendingar á Akureyri í gær á tíðni FM 104 og þar með bættist sjötta út- varpsstöðin við hér norðanlands. Fyrir eru Rás 1 og 2, Hljóð- ^þylgjan, Bylgjan og útvarp Verk- menntaskólans þessa vikuna, en þessa dagana standa þar yfir þemadagar og er útvarp VMA í tengslum við þá. Forráðamenn Stjörnunnar hafa allt frá því i haust staðið I viðræðum við eig- endur Hljóðbylgunnar um sam- starf, en eftir að Ijóst var að Oddur Thorarensen hugðist kaupa Hljóðbylgjuna í byijun febrúar, hafa Stjörnumenn unnið að uppsetningu sendis á Akur- eyri. Stjarnan hóf starfsemi þann 4. júni sl. * Sendir Stjömunnar er á þaki Bamaskóla Akureyrar eins og send- ir Bylgjunnar og em sendamir báð- ir jafnsterkir, um 100 wött hver. Bein lína norður kostar Stjömuna um eina milljón á ári auk þess sem kostnaður við uppsetningu og leigu á sendinum fyrsta árið kostar fyrir- tækið um hálfa milljón króna. Með "tilkomu Stjömunnar á Akureyri, ná sendingar hennar til um 80% lands- manna, Suðvesturhomsins, Suður- lands og til Akureyrar, að sögn Ólafs Haukssonar útvarpsstjóra og Gunnlaugs Helgasonar dagskrár- gerðarmanns, en þeir félagar komu norður í gær og kynntu áætlanir útvarpsstöðvarinnar fyrir norðan. Í bígerð er að koma næst upp sendum á Isafírði og á Egilsstöðum. Ólafur sagði að meiningin væri að setja upp upptökuver Stjömunn- ar á Akureyri og ráða þar einn frétta- og dagskrárgerðarmann. „Við ætlum okkur ekki að leita sér- staklega eftir auglýsingum hér norðanlands, heldur lítum við á þetta sem aukna þjónustu við við- skiptaaðila okkar sunnanlands. Þá er í ráði að útvarpa beint frá Akur- eyri einu sinni í viku. Gert er ráð fyrir morgunþætti að norðan á hálfsmánaðar fresti og þess á milli síðdegisþætti frá kl. 16 til 18 sem ber nafnið „Mannlegi þátturinn“. Fyrsta beina útsending Stjömunnar verður frá fegurðarsamkeppninni, sem fram fer í Sjallanum annað kvöld er kosin verður Ungfrú Norð- Mí« vill kaupa allt dreifikerfí Rásar 2 og bindum við miklar vonir við þá nefnd, sem nú er að endurskoða útvarpslögin. Rás 2 hefur farið mjög svo halloka í samkeppninni og mikil Qarstæða og stefnuleysi er af RUV að ætla sér að halda áfram rekstrinum," sagði Ólafur. blaðið að sjávarútvegsfræðin kæmi til með að verða þungamiðja skól- ans og vonir væm bundnar við að það nám gæti hafíst haustið 1989. Auk sjávarútvegsfræðinnar verða hjúkmnar- og iðnrekstrarbrautim- ar efldar enn frekar, auk þess sem nám hefst væntanlega i viðskipta- fræðum og hugsanlega í matvæla- fræðum á komandi hausti. Haraldur sagði að mikil eftir- spum væm nú eftir háskólanámi á Akureyri. Nemendafjöldi nú væri milli 40 og 50 manns, en á næsta ári stefndi sá fjöldi talsvert á ann- að hundrað ef marka má allar þær fyrirspumir sem skólanum hafa borist. Skrifstofa háskólans er nú í gamla Iðnskólahúsinu og kennsla fer að mestu fram í íþróttahúsinu og á fjórðungssjúkrahúsinu. Stjörnumennirnir, þeir Gunnlaugur Helgason og Ólafur Hauksson á Akureyri í gær þar sem þeir kynntu áform Stjörnunnar fyrir frétta- mönnum. urland 1988. Morguninn eftir út- varpar Jón Axel Ólafsson morgun- þætti sínum beint frá Akureyri. Ólafur sagðist vilja að Rás 2 yrði lögð niður enda væri tap mikið og það hefði sýnt sig að-einkaaðilar gætu staðið mun betur að slíkum rekstri heldur en ríkið. „Stjaman NY SÓSUÞRENNA kórónu kórónu Wmw kórónu i í * Dreifingaraðili: Heildverslun Valdimars Baldvinssonar h/f, Akureyri. Sími 96-21344. Fást í öllum betri matvöruverslunum. fikákfélag Akureyrar: Færri komast að en vilja á alþjóð- lega skákmótið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.