Morgunblaðið - 09.03.1988, Page 28

Morgunblaðið - 09.03.1988, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MARZ 1988 Italía: Waldheim kunnugt um fjöldamorð á ít- ölskum stríðsföngum - segir fyrrum ráðherra í grísku ríkisstjórninni Mílanó. Frá Benedikt Stefánssyní, fréttaritara Morgunblaðsins. GERASIMOS Apostolatos, fyrr- um ráðherra í grísku ríkisstjóru- inni, heldur því fram, að Kurt Waldheim, forseta Austurríkis, hafi verið kunnugt um morð á þúsundum ítalskra stríðsfanga á grísku eynni Kefalliníu haustið 1943. Þetta kemur fram í frétt ítalska dagblaðsins II Corriere della Sera síðastliðinn sunnudag. Að sögn Apostolatosar gaf Loher hershöfð- ingi, jrfírmaður Waldheims, út fyrir- skipun um, að ítölsku hermönnun- um skyldi ekki þyrmt. Stjórnin í Berlín óttaðist, að þeir kynnu að ganga Bandamönnum á hönd, ef Bretar og Bandaríkjamenn réðust inn í Grikkland. „Waldheim var einn af nánustu samstarfsmönnum Loher og þekkti allar gerðir yfírmanns síns,“ segir Apostolatos. „Hann var fulltrúi Lohers gagnvart ítölsku herdeildun- um; allar fyrirskipanir varðandi þær fóru um hans hendur.“ Kefallinía er ein af Jónaeyjunum og fæðingarstaður Apostolatosar, sem sat í ráðuneyti Karamanlis á árunum 1977-81. Eftir að vopnahlé var samið 8. september 1943, veitti ítalska herdeildin á Kefalliníu fyrr- um bandamönnum sínum mót- spymu. Kom til harðra bardaga, sem lyktaði með því, að 5000 ítalsk- ir hermenn og 325 yfirmenn voru teknir til fanga af Þjóðveijum og skotnir. Auk þess voru ótaldir eyjar- skeggjar teknir af lífi fyrir að veita ítölum lið. Apostolatos barðist í andspymuhreyfíngu Kefalliníubúa og var heiðraður stórriddarakrossi ítalska lýðveldisins fyrir hetjulega framgöngu sína. Apostolatos segist hafa undir höndum afrit af bréfi, sem Wald- heim skrifar árið 1944. Frumritið er geymt í New York vegna útgáfu bókar um gríska nútímasögu. í bréfinu segir Waldheim, að Þjóð- veijar hafi lokið við að hreinsa eyj- una af hópum glæpamanna, sem höfðust við í fjöllunum. Telur Apo- stolatos, að hér sé átt við gríska þjóðernissinna og ítalska hermenn, sem komist höfðu undan Þjóðveij- um. „Waldheim hafði það hlutverk með höndum að gefa herstjóminni á degi hvetjum skýrslu um ástand mála á svæðinu,“ segir Apostolatos. „Eg er þess fullviss, að fleiri slík bréf ættu að vera til í skjalasöfnum í New York og Belgrad. Waldheim var ekki í aftökusveitunum, en var fullkunnugt um það, sem gerðist á Kefalliníu; því verður ekki lengur neitað." Reuter Vestur-þýski kafbáturinn á leið tilhafnar Vestur-þýskur kafbátur, S-176, rakst á sunnudag á norskan olíuborpall á Norðursjó. Engin slys urðu á mönnum en eins og sjá má af myndinni, sem tekin var í gær er kafbáturinn var á leið til hafnar í Bergen í Noregi, urðu á honum miklar skemmdir við áreksturinn. Tíbet: 309 lögreglumenn sagðir hafa slasast í óeirðunum í Lhasa Peking, Reuter. FRÉTTASTOFAN Nýja Kína skýrði frá því í gær að rúmlega 300 lögreglumenn hefðu slasast í óeirðum í Lhasa, höfuðborg Tíbets, um síðustu helgi er íbúar borgarinnar og búdda munkar þustu út á götur borgarinnar til að mótmæla yfirráðum Kínverja. Vestrænir stjórnarer- indrekar sem voru í Lhasa er óeirðirnar brutust út sögðu níu manns hafa fallið í þeim en að sögn stjómvalda beið einn mað- ur bana. Fréttastofan Nýja Kína skýrði frá því í gær að samkvæmt nýj- ustu heimildum hefðu 309 lög- reglumenn slasast í götubardögun- Bretland: Ræðismaður Panama flæmd- ur úr embætti með valdi Lundúnum, Reuter. FJÓRIR menn úr sendiráði Pan- ama réðust inn í skrifstofu ræðis- manns Panama í London á mánu- dagskvöld. Þeir vom vopnaðir bareflum og tilgangur þeirra var að koma í veg fyrir að Eduardo Arango gegndi áfram embætti aðalræðismanns. Arango styður Eric Arturo Delvalle, sem bolað var úr embætti forseta Panama. Sjónarvottar segja að mennimir fjórir hefðu ekið Land Rover á gler- hurð við aðalinngang skrifstofunn- ar og tekið hana á sitt vald. Arango var ekki á skrifstofunni þegar at- burðurinn átti sér stað, og var meinaður aðgangur þegar hann kom á vettvang skömmu seinna. Hann sagði í samtali við fréttamann Reuter að hann ætli að ræða við breska utanríkisráðherrann um málið. Sendiherra Panama, Guilermo Vega, sagði að árás mannanna í skrifstofuna væri lögleg og gerð í samráði við hann. Hann hefði áður tilkynnt Arango að honum hefði verið vikið úr embætti. Breskir embættismenn sögðu að deilur hefðu risið um hver ætti að vera fulltrúi Panama í Lundúnum eftir að Panamaþing ákvað að víkja Delvalle úr forsetaembætti í febrú- ar. Arango lýsti því yfir fyrir viku að hann hefði aðstoðað Delvalle við Reuter Eduardo Arando, aðalræðismaður Panama í Lundúnum, ræðir við lögreglumenn fyrir utan skrifstofu ræðismannsins eftir að fjórir menn úr sendiráði Panama höfðu tekið skrifstofuna á sitt vald í fyrrakvöld. að flýja frá heimili sínu á öruggan felustað eftir brottvikninguna. Lögregluyfirvöld sögðu að eng- inn hefði slasast í árásinni og seinna sáust lögreglumenn flytja sjö menn í handjárnum til yfirheyrslu. Tals- maður lögreglunnar sagði að skrif- stofan væri nú í umsjá fulltrúa sendiherra Panama og öryggis- varða hans. Haft er eftir talsmanni breska utanríkisráðuneytisins að líklega muni Arango áfram njóta friðhelgi sem ræðismaður í Bret- landi. um þar af 28 alvarlega. Sagði enn- fremur að einn lögregluþjónn hefði beðið bana. Hins vegar var ekki skýrt frá því hversu margir borgar- ar hefðu slasast en að sögn heim- ildarmanna tóku þúsundir manna þátt í mótmælunum. Allt var með kyrrum kjörum í Lhasa í gær en sveitir lögreglu- manna hafa tekið Jokhang-hofið í miðborg Lhasa á sitt vald auk þess sem öflugur lögregluvörður heldur uppi gæslu við helsta torg borgar- innar þar sem ólætin hófust á laug- ardag. Miklar óeirðir brutust út í Lhasa í október á síðasta ári og hófust þær með hópgöngu munka umhverfis hofíð þar sem þeir kröfð- ust sjálfstæðis til handa Tíbet- búum. Vesturlandabúi einn í borginni sagði í viðtali við Reuters-frétta- stofuna í gær að lögreglumenn héldu einnig uppi gæslu við vegi í nágrenni borgarinnar og væri greinilegt að með þessu væri verið að vara menn við frékara andófí. Götuvígi og grjótkast í fyrri fréttum sínum af óeirðun- um í Lhasa hafði Nýja Kína skýrt frá því að þeim hefði lokið á laugar- dag. í gær sagði hins vegar í frétt- um hennar að þær hefðu haldið áfram á sunnudag og hefðu íbúar borgarinnar hlaðið götuvígi og grýtt lögreglumenn. Fréttastofan skýrði ítarlega frá því hvernig munkar hefðu ráðist að lögreglu- þjónum, embættismönnum og blaðamönnum er óeirðimar hófust á laugardag. „Munkar komu hrað- hlaupandi út úr Jokhang-hofí og bmtu kvikmyndatökuvélar og myndbandstæki. Myndbandsræm- ur blöktu í vindinum líkt og fiðr- ildavængir. Munkamir veltu tveim- ur bifreiðum og kveiktu í hinni þriðju. „Við munum eyðileggja allt það sem tilheyrir kommúnistum", hrópuðu þeir“. Ennfremur var frá því skýrt í gær að munkar hefðu komist inn í Jokhang-hofið og hefðu þeir laumað eitri í te, sem embættis- menn kommúnistaflokksins og blaðamenn, sem fylgdust með óeirðunum, hefðu neytt. Sagði í fréttinni að nokkrir hefðu verið fluttir í sjúkrahús sökum eitrunar- innar. Dalai Lama á móti ofbeldi Dalai Lama, hinn trúarlegi leið- togi Tíbetbúa, hvatti landsmenn til að beita ekki ofbeldi í viðskiptum sínum við Kínveija þó svo að þeir kynnu að grípa til hertra aðgerða til að bæla niður andóf lands- manna. I tilkynningu Dalai Lama, sem birt var í Nýju Ðelhí á Indl- andi í gær, sagði einnig að stjórn- völd í Kína beittu íbúa Tíbet kúg- unum vegna þess að þau skildu ekki vonir og langanir þjóðarinnar. Dalai Lama hefur dvalist í útlegð frá árinu 1959 er hann xlúði land eftir að hafa leitt misheppnaða uppreisn gegn yfirráðum Kínveija yfir Tíbet. Snarpur jarðskjáJftí í Alaska Anchorage S Alaska. Reuter. STERKUR jarðskjálfti varð á Alaska-flóa, um 550 kílómetra suð-austur af Anchorage á sunnudag. Engar skemmdir urðu á mannvirkjum og enginn slasaðist. Skjálftinn, sem fannst í Anc- horage og víðar, mældist 7,2 stig á Richter-kvarða að sögn jarð- fræðinga í bandarísku jarðfræði- rannsóknarstofnuninni í Golden í Colorado. Ekkert eignatjón varð en hlutir köstuðust til og skjálftan- um fylgdi smávægileg flóðbylgja. Jarðskjálfti mældist síðast á þess- um slóðum í nóvember á síðasta ári.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.