Morgunblaðið - 09.03.1988, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MARZ 1988
51
Reykjavíkurskákmótið:
Jón tefldi leik-
andi létt allt mótið
Skák
Bragi Kristjánsson
Þrettánda Reykjavíkurskákmót-
inu lauk sl. sunnudag. Mótið var
mjög skemmtilegt fyrir þá íjöl-
mörgu skákáhugamenn, sem lögðu
leið sína á Hótel Loftleiðir síðustu
tvær vikur. Sigurvegari varð Jón
L. Arnason með 8V2 vinning í ell-
efu skákum. Jón tefldi leikandi
létt allt mótið og sigurinn virtist
fyrirhafnarlítill. Hann tapaði að-
eins einni skák fyrir Grikkjanum
Kotronias, en þá hafði Jón náð
góðri forystu í mótinu. Sigurinn
tryggði Jón svo með tveim örugg-
um jafnteflum við sovésku stór-
meistarana, Gurevitsj og Dol-
matov. Jón sýndi með góðri tafl-
mennsku á mótinu, að hann er að
ná sér eftir þá lægð, sem hann
hefur verið í undanfarið.
í öðru sæti varð gríski alþjóða-
meistarinn, Vasilios Kortonias,
með 8 vinninga. Hann kom mjög
á óvart með öryggri taflmennsku
og náði áfanga að stórmeistarat-
itli. Grikkland hefur hingað til ekki
alið mikla skákmeistara, en verð-
skuldaður árangur Kortoniasar á
þessu móti sýnir, að þetta er að
breytast.
I 3.-6. sæti komu þeir Gure-
vitsj, Dolmatov, Dizdar, alþjóðleg-
ur meistari frá Júgóslavíu, og
Margeir Pétursson með 7V2 vinn-
ing hver. Sovétmennirnir eru varla
ánægðir með útkomuna, en þeir
náðu sér aldrei á strik á mótinu.
Júgóslavinn er ungur maður á
uppleið, sem á framtíðina fyrir
sér. Margeir komst aldrei í gang
í þessu móti. í byijun lenti hann
í miklum vandræðum með ungu
mennina, Guðmund Gíslason og
Hannes Hlífar Stefánsson, en slapp
með jafntefli í báðum skákunum.
Það var aðeins í síðustu umferð,
sem þekkja mátti taflmennsku
Margeirs, en þá yfirspilaði hann
Norðmanninn, Einar Gausel, eftir
öllum listarinnar reglum.
í 7.—10. sæti komu Helgi Ólafs-
son, Walter Browne, stórmeistari
frá Bandaríkjunum, Zsuzsa Polg-
ar, skákdrottning frá Ungveijal-
andi, og landi hennar, stórmeistar-
inn Andras Adoijan, öll með . 7
vinninga. Helgi var með daufasta
móti að þessu sinni. Hann tapaði
illa fýrir „kollegum" sínum, Jóni
L. og Margeiri, í miðju móti, og
gat ekki unnið það upp. Zsuzsa
Polgar sannaði enn einu sinni, að
hún hefur náð stórmeistarastyrk-
leika í skák á karlamælikvarða,
en hún ber titil stórmeistara
kvenna. Landi hennar, Adoijan,
er mjög sterkur stórmeistari, sem
hefur mikla kunnáttu og gótt hug-
myndaflug. Hann nær þó mjög
sjaldan að sýna getu sína, því taug-
amar þola ekki harða keppni.
Plestar skákir hans verða því stutt
og viðburðasnauðjafntefli. Browne
tefldi vel, en vantaði herslumuninn
til að komast í efstu sætin. í
11.—17. sæti komu Einar Gausel
(Noregi), Þröstur Þórhallsson, Lev
Polugajevskíj, Halldór Grétar Ein-
arsson, Karl Þorsteins og systurn-
ar Zsofia og Judit Polgar, öll með
6V2 vinning.
Norðmaðurinn, Einar Gausel,
reyndist sterkari skákmaður en
búist var við. Þröstur tefldi af
miklum krafti í von um áfanga að
stórmeistaratitli. Hann tefldi mjög
vel á köflum, vann m.a. báða
bandarísku stórmeistarana, Brow-
ne og Christiansen. Þröstur eyði-
lagði möguleika sína með óþörfum
töpum í skákum við Gurevitsj og
Kortonias. Hann getur þó vel við
unað. Hann sýndi getu sína, þótt
öryggið vanti enn. Hann er aðeins
18 ára gamall og á framtíðina fyr-
ir sér. Polugajevskíj má muna sinn
fífil fegri. Hann hefur verið einn
sterkasti stórmeistari heims í tæp
fjörutíu ár, en aldurinn er farinn
að segja til sín og taugarnar að
gefa sig. Halldór Grétar kom
skemmtilega á óvart og var aðeins
hálfum vinningi frá fyrsta áfanga
að alþjóðlegum titli. Reyndar mun-
ar svo litlu, að sjálfsagt er fyrir
Skáksamband íslands að óska eftir
viðurkenningu hjá Alþjóðaskák-
sambandinu á áfanga fyrir Halld-
ór. Karl tefldi ekki eins hann best
getur á þessu móti og komst aldr-
ei í snertingu við toppinn.
Ekki verður svo fjallað um þetta
mót, að ekki sé getið frammistöðu
Polgar-systra. Sú elsta, Zsuzsa,
hafnaði í 7,—10. sæti, og Zsofia
(13 ára!) og Judit (11 ára!!) náðu
6V2 vinningi í ellefu skákum. Það
er hreint ótrúlegur árangur, ekki
síst fyrir þá sök, að þær tefldu af
öryggi og voru vel að vinningum
sínum komnar. Þær hafa þegar
unnið sér inn mikið af alþjóðlegum
skákstigum og líklega hefur marg-
ur haldið, þegar mótið hófst, að
þær hefðu of mörg stig. Þær sýndu
þó svo ekki var um villst, að þær
tefla í samræmi við stigafjöldann.
Kórónan á glæsilega frammistöðu
var sigur Judit á skákmeistara
Noregs, Jonathan Tisdall, í síðustu
umferð. Vonandi verður frammi-
staða þeirra íslenskum skákkonum
hvatning til meiri afreka.
Um aðra keppendur er það helst
að segja, að bandaríski stórmeist-
arinn, Larry Christiansen, átti sitt
versta mót í mörg ár. Daninn,
Carsten Höi kom á óvart með góðri
taflmennsku. Hann var allan
tímann í toppbaráttunni, en töp í
tveim síðustu skákunum gerðu
vonir hans um stórmeistaraáfanga
að engu. Hannes Hlífar Stefánsson
náði áfanga að alþjóðlegum meist-
aratitli, og vantar hann nú aðeins
einn til að hljóta titilinn. Hannes
tefldi af miklu öryggi í mótinu og
tefldi við sex af tíu stigahæstu
mönnum mótsins. Hann tapaði
aðeins einni skák, fyrir Gausel.
Frammistaða Hannesar sýndi ljós-
lega, að hann er í stöðugri framför
og stefnir hátt. Jón Garðar Viðars-
son, ungur Akureyringur, náði
mjög athyglisverðum árangri á
mótinu. Hann tefldi við mjög
sterka andstæðinga og var nálægt
áfanga að alþjóðlegum titli. Hann
er mikið skákmannsefni, sem hefur
alla burði til að komast í fremstu
röð.
Að lokum skulum við sjá þijár
skákir frá mótinu. I þeirri fyrstu
vinnur Zsofia Polgar snyrtilega
sigur á Apol frá Færeyjum. í ann-
arri skákinni sjáum við sigurvegar-
ann, Jón L. Ámason, í miklum
ham, og í þeirri þriðju vinnur Jud-
it Polgar frægan sigur á Noregs-
meistaranum, Tisdall.
1. umferð:
Hvítt: Zsofia Polgar (Ungverja-
landi)
Svart: Luitjen Apol (Færeyjum)
Sikileyjar-vörn
1. e4 - c5, 2. Rf3 - d6, 3. d4 -
cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 —
a6, 6. Bc4 —
Sú stutta bregður fyrir sig uppá-
haldsafbrigði Fischers, en það hef-
ur ekki átt miklum vinsældum að
fagna undanfarin ár.
6. - e6, 7. Bb3 -
Fischer tefldi alltaf á þennan
hátt, en hvítur getur einnig leikið
hér 7. a3 eða jafnvel 7. a4. Dæmi
um síðarnefnda leikinn er skákin
Kudrin-Chandler, Hastings
1986—’87: 7. - Rc6, 8. 0-0 -
Be7, 9. Khl - 0-0, 10. Be3 -
Dc7, 11. De2 - Bd7, 12. f4 -
Hac8, 13. Ba2 — Ra5, 14. Hadl
— Rc4, 15. Bcl - Hf38, 16. Hd3
— Bf8, 17. Bxc4 — Dxc4, 18. e5
— Rd5, 19. Re4 með mun betra
tafli fyrir hvít.
7. - Be7
Svartur teflir byijunin of rólega.
Best er að hefjast handa á drottn-
ingararmi með 7. — b5, t.d. 8. 0-0
— Be7, 9. f4 - Bb7, 10. Be3 -
b4, 11. Rd5!? - exd5, 12. e5 -
dxe5, 13. fxe5 — 0-0! með flókinni
stöðu (deFirmian — Helgi Ólafs-
son, New York 1987).
8. 0-0 - Dc7, 9. Be3 - Rc6, 10.
f4 - Bd7, 11. Df3 - Hc8
Svartur hefði betur komið kóngi
sínum á öruggan stað með 11. —
0-0.
12. f5 - Rxd4
Eða 12. - Re5, 13. De2 - 0-0,
14. g4 - Rc4, 15. g5 - Re8, 16.
g6 og svarta staðan hrynur.
13. Bxd4 - e5
Nú nær hvítur yfirráðum yfir
d5-reitnum og þar með varanleg-
um stöðuyfirburðum. Svartur hefði
getað reynt 13. — exf5, 14. exf5
— Bc6, 15. Dg3 - 0-0, 16. Hael
— Hfe8 og svartur hefur vamar-
möguleika, þótt staðan sé ekki góð.
14. Be3 - Bc6
Svartur gat reynt að flækja tafl-
ið með 14. - 0-0, 15. g4 - d5!?,
. 16. exd5 — e4!?, 17. Rxe4 — Rxe4,
18. Dxe4 — Hfe8 og hann hefur
nokkrar bætur fyrir peðin tvö.
15. Dg3 - Hg8
Ljótur leikur, en svartur tapar
skiptamun bótalaust eftir 15. —
0-0, 16. Bh6 - g6, (16. Re8 17.
f6 - Bxf6, 18. Hxf6 - Kh8, (18.
— g6, 19. Hxg6+ — hxg6, 20.
Dxg6n— Kh8, 21. Dh5 með vinn-
andi sókn), 19. Hafl og svartur
er varnarlaus), 17. Bxf8 o.s.frv.
16. Bg5 - b5
Eða 16. — Rxe4, 17. Rxe4 —
Bxe4, 18. Bxe7 — Dxe7, (18. —
Kxe7, 19. Dh4+ ásamt 20. Dxe4)
19. f6 - Dc7, (19. - Df8, 20.
Dg4) 20. fxg7 — d5, 21. Hael
með yfirburðastöðu fyrir hvít (hót-
ar m.a. 21. Hxe4).
17. Bxf6 - Bxf6,18. Bd5 - Bd8?
Svartur varð í lengstu lög að
koma í veg fyrir að hvíti riddarinn
leggi undir sig d5-reitinn. Hann
hefði þvi átt að reyna 18. — Bd7.
19. f6 — g6, 20. Bxc6 — Dxc6,
21. a3 - Dd7, 22. Dd3 - De6,
23. Rd5 - Hc4, 24. c3 - Kd7,
125. a4! — Bc7, 26. axb5 — axb5,
RÍKISÚTVARPIÐ hefur sent
Reyni Hjartarsyni bónda á Brá-
völlum í Eyjafirði bréf þar sem
það átelur að hann skyldi misnota
þáttinn Um daginn og veginn 22.
febrúar síðastliðinn.
í bréfinu kemur fram að þar hafí
Reynir gert að umtalsefni ágreining
meðal félaga í Landssambandi hesta-
manna með þeim hætti að ekki sam-
rýmist þeim ramma sem Ríkisútvarp-
ið setur.
Þá segir:„Að sjálfsögðu er mönn-
um heimilt að láta í ljós skoðun sína
á umdeildum málum í þessum þætti.
En umfjöllun um innanfélagsdeilur á
27. Ha7 - Hb8
Hvítur hótaði 28. Rb6+.
28. h3! -
Hvítur undirbýr fallega drottn-
ingarfórn.
28. - li5
Eða 28. - De8, 29. Hfal -
Dd8, 30. Hla6 og svartur er algjör-
lega vamarlaus.
29. Dxc4! — bxc4, 30. Rx7 og
svartur gafst upp, því hann tapar
а. m.k. manni. Sannarlega fag-
mannlega að verki staðið hjá 13
ára stúlku.
4. umferð:
Hvítt: Jón L. Ámason
Svart: Ralf Ákeson (Svíþjóð)
Sikileyjar-vörn
I. e4 - c5, 2. Rf3 - e6, 3. d4 -
cxd4,4. Rxd4 — a6, 5. Bd3 — g6
Mjög vandteflt afbrigði, sem
Friðrik Ólafsson tefldi oft fyrir tíu
árum.
б. Rc3 - Bg7, 7. Be3 - Rc6, 8.
Rxc6 —
Venjulega er leikið hér 8. Rb3
— d5, 9. exd5 — exd5, 10. Bc5 —
b6, 11. Ba3 - Rge7, 12. 0-0 -
0-0, 13. Hel — Ha7 með betra
tafli fyrir hvít.
8. - bxc6, 9. Ra4 - Hb8, 10. 0-0
- d6, 11. Dd2 - Re7, 12. Hadl
- 0-0, 13. Be2 - d5, 14. Ba7! -
Hb7, 15. Bc5 - Hb8, 16. De3 -
He8, 17. c4 - Bb7, 18. Dg3 -
Da5
Síðustu tíu leikir hafa allir verið
nokkuð eðlilegir og samt er svartur
kominn með tapað tafl. Ætli þetta
afbrigði sé teflandi fyrir svart?
Hvítur hefur notfært sér vel góð
tök á svörtu reitunum, eftir að
svartur lét biskup sinn af skáklín-
unni f8 — a3 (5. — g6,6. — bg7).
19. b3 - Bf8,
Hvítur hótaði 20. Bxe7 — Hxe7,
21. Dxb8+ o.s.frv.
20. Bb6! - Db4, 21. Bd4 - c5
Hvítur hótaði 22. De5 og ekki
gengur 21. — Bg7, 22. Bc5 —
Da5, 23. Bxe7 - Hxe7, 24. Dxb8+
o.s.frv.
22. Bc3 - Da3, 23. Bb2 - Db4,
24. a3
og svartur gafst upp, því hann
er glataður eftir 24. — Da5, 25.
De5 — d4, 26. Bxd4 o.s.frv. (26.
— cxd4, 27. Dxa5).
II. umferð:-
Hvítt: Jonathan Tisdall (Noregi)
Svart: Judit Polgar (Ungverja-
landi)
Sikileyjar-vörn (breytt leikja-
röð)
1. Rf3 - c5, 2. e4 - e6, 3. d4 -
cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 —
d6, 6. g4 — Keres-afbrigðið,
sem leiðir til flókinnar baráttu.
ekki heima þar. Síst af öllu er til-
hlýðilegt að veitast með stóryrðum
að einstökum mönnum eins og þama
var gert þar sem formaður Lands-
sambandsins var sakaður um svik-
samlegt athæfí og ósannindi".
Ríkisútvarpið hefur einnig sent
Leifí Kr. Jóhannessyni formanni
Landssabmands hestamanna bréf
þar sem það harmar þetta atvik. Þar
segir: „Teljum við að Reynir hafi
misnotað aðstöðu sína í þættinum
með árásum sínum og svigurmælum
þar sem hann veittist meðal annars
að þér sem formanni Landssambands
hestamanna."
6. — h6, 7. g5 — hxg5, 8. Bxg5
- Rc6, 9. h4 - a6, 10. Dd2 -
Db6, 11. Rb3 - Bd7, 12. 0-0-0 -
0-0-0 13, f4 - Kb8, 14. Be2 -
Hc8, 15. Kbl - Rh5!
Hótar bæði 16. — f6 og 16. —
Rg3.
16. f5 - Rg3,17. fxe6 - Bxe6!?
Líklega hefðu margir komið í
veg fyrir Rc3 — d5 í framhaldinu
með 17. — fxe6.
18. Hhgl — Rxe2, 19. Dxe2 —
Re5, 20. Rd5 -
Erfiðleikar hvíts geta líklega
skrifast á þennan leik. Hann hefði
betur leikið 20. Be3 — Dc7, 21.
Bf2 (með hótuninni De2 — e3),
og síðan Rc3 — d5 við tækifæri.
20. - Bxd5, 21. exd5 -
Ekki 21. Hxd5 — Dxgl+.
21. - Dc7, 22. Hd4 -
Tisdall er kominn í vandræði,
því hann getur ekki leikið 22. h5
vegna Dc4!, 23. Dxc4 — Hxc4, 24.
h6 — g6 og svartur stendur mun
betur.
22. - Be7, 23. Hb4 - Bxg5, 24.
hxg5 — Kh8
Hvítur hótaði 25. Dxa6. Svartur
stendur nú mun betur, því h-línan
er unnin og hvíta peðið á g5 er
veikt.
25. a4 -
Hvað skal gera?
25. - Hh3, 26. He4 - Hch8, 27.
a5 - Hh2, 28. Hg2 -
Hvítur varð að leika 28. Ddl
og vona það besta!
28. - Hhl+, 29. Ka2 - Dd7!,
30. Rd2 - H8h4!, 31. Rf3 -
Skárst var 31. Hxh4 — Hxh4,
32. b3 þótti svartur hafí yfírburða-
stöðu í því tilviki. Tisdall er kominn
í mikið tímahrak og yfírsést snotur
mátflétta.
31. - Rxf3, 32. Dxf3 -
Ekki 32. He8+ - Ka7, 33, De3+
— Rd4, 34. c3? — Da4 mát.
32. - Hlh3!, 33. De2 -
Ekki 33. Hg3 - Hxg3, 34.
Dxg3 — Hxe4 o.s.frv.
33. - Da4+!
og hvítur gafst upp, því hann
verður mát eftir 34. Hxa4 --
Hxa4+, 35. Kbl — Hhl+ o.s.frv.
Glaesilegur sigur 11 ára stúlku á
reyndum alþjóðlegum meistara.
Pldstkassar
ogskúffur
Fyrir skrúfur, rær og aöra
smáhluti. Einnig vagnar og
verkfærastatíf. Hentugt á
verkstæðum og vörugeymslum.
Ávaltt fyrirliggjandi.
Leitið upplýsinga.
UMBOÐS OG HEtLDVERSLUN
BILDSHÖFDA 16 SIMI 6724 44
Átalið að þátturinn
Um daginn og veginn
hafi verið misnotaður