Morgunblaðið - 27.03.1988, Síða 8

Morgunblaðið - 27.03.1988, Síða 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27.MARZ 1988 ■ÓTRÚLEGT EN SATT| Kristnir munu fagnaum gervöll Sovétríkin Rússneskir kirkjuleiðtogar leggja um þessar mundir síðustu hönd á undirbúning hátíða- halda til að minnast þess, að þús- und ár eru liðin frá því að kristni að hætti rétttrúnaðarsiðar var tekin upp í Rússlandi. Munu hátíðahöldin ná hámarki í júní, en þá eru þúsund ár liðin frá því að Valdjmar prins sneri þegnum sínum í Ukraínu til kristinnar trúar með fjöldaskírn í ánni Dnjepr. En þó að vagga kristninnar í Sovét hafi staðið í Kænugarði, verð- ur afmælisins einkum minnzt í Moskvu. Hótelin þar búa sig undir að taka á móti tugþúsundum gesta og þar á meðal allt að þúsund blaða- mönnum. Viðgerðir á mörgum voldugum klaustrum í höfuðborginni er ljós- asti vottur þess, að sem framundan er. Sum þessara klaustra eru nú söfn, en i öðrum eru kirkjur, og voru þau reist með einskonar virkis- veggjum svo að þau gæti staðizt árásir mongóla fyrr á öldum. Það elzta heitir Danilov-klaustur og er 700 ára, en sovézka stjórnin skilaði kirkjunni því aftur árið 1983. Endurbótum á því verður brátt lok- ið og þar verður allt klappað og klárt fyrir hátíðahöldin í júní. Þá munu afmælisgestir væntan- lega fjölmenna að Novedevichy- klaustri við Moskvu-fljót, en þaðan voru mongólar endanlega hraktir á brott með fallbyssukúlum. Þetta er klaustrið þar sem Pétur mikli fang- elsaði Soffíu systur sína. Sagt er að Napóleon hafði lagt svo fyrir að það skyldi sprengt í loft upp þegar hann komst til Moskvu með herlið sitt árið 1812, en sagan hermir að ung nunna, Sara að nafni, hafi aftengt sprengi- þræðina. Verkamenn vinna einnig að end- urbótum á þeim þremur tumum, sem eftir eru á Símonov-klaustrinu, en það var lagt í rúst í sprengingu árið 1934 að skipan Stalíns. Mikið vatn er nú runnið til sjávar síðan ungir og ákafír athafnamenn á tímum Stalíns rifu niður kirkjur og ofsóttu presta á þriðja áratug aldarinnar, og síðan Nikíta Khrústsjov endurvakti ofsóknimar gegn kristnum Sovétmönnum á sjötta áratugnum. Engin opinber trúarbrögð eru viðurkennd í Sovétrílqunum en yfír- völd leggja sig nú allt um það í framkróka að sýna umburðarlyndi í trúmálum. Og þótt stjómarherrun- um sé ekki sérlega sýnt um trúmál líta þeir þannig á, að þúsund ára afmæli kristninnar geti ekki ein- ungis eflt þjóðarvitund Rússa og áhuga þeirra á sameiginlegri menn- ingararfleifð heldur líka laðað að erlenda ferðamenn og þar með orð- ið hin ákjósanlegasta gjaldeyrisupp- spretta. Áköfum guðleysingjum er lítt um þetta tiltæki gefíð, þótt þeir hafi ekki hátt. Á hinn bóginn ráðgera ýmsir trúarhópar aðgerðir í mót- IÍSRAEL mælaskjmi við kirkjuleiðtogana, sem þeir saka um þýlyndi gagnvart stjómvöldum. Fyrir skömmu skýrðu sovézkir andófsmenn, þar á meðal Alexander Ogorodnikov, sem setið hefur í fangelsi vegna stjómmálaskoðana sinna, frá sérstökum hátíðahöldum, er þeir hyggjast efna til vegna þús- und ára afmælisins. Þeir óttast að sovézk stjómvöld og forustulið rétt- trúnaðarkirkjunnar muni standa fyrir „skrautsýningu" og draga fjöður yfír raunveruleg vandamál trúaðs fólks á þessum slóðum. Þeir stefna því að því að bjóða erlendum kirkjunnar mönnum, sem sækja Moskvu heim í tilefni afmælisins, til sérstakrar námsstefnu þar sem fjallað verður um stöðu kristninnar undir stjóm sovézkra kommúnista. - ANDREW WILSON Fréttamenn fáá baukinn Ævareiðir, ísraelskir landnem- ar réðust fyrr í mánuðinum á tvo erlenda fréttamenn í Hebron en þá hafði 16 ára gamall náms- maður orðið fyrir árás Palestínu- manns inni í verslun og verið stung- inn nokkmm sinum, „Komið ykkur í burt,“ hrópaði kona nokkur. „Það er ykkur að kenna hvemig ástandið er.“ Myndavélar og linsur vom skemmdar og báðir ljósmyndaram- ir, Jim Hollander frá Reuters- fréttastofunni og Rina Castelnuovo frá Time, meiddust. Rína var reynd- ar rotuð. Fréttamenn og ljósmynd- arar sem taka þá áhættu að fylgj- ast með átökum eins og þeim í Isra- el, hafa orðið að skotspæni jafnt gyðinga sem araba í þá þtjá mán- uði, sem hálfgert uppreisnarástand hefur ríkt á Vesturbakkanum á Gazasvæðinu. Hvað ísraelana varðar hefur and- úð þeirra á fréttamönnum vaxið eftir því sem hemum hefur gengið verr að kveða niður mótmælin og Palestínumenn hafa nokkum vara á sér eftir að Yitzhak Rabin varnar- . málaráðherra viðurkenndi, að yfír- völdin skoðuðu nákvæmlega erlend- ar sjónvarpsmyndir til að geta betur borið kennsl á mótmælendur og handtekið þá. Robert Slater, formaður í sam- tökum fréttamanna, sem starfa ut- an síns eigin lands, hefur borist um 70 kvartanir síðasta mánuðinn. „Fréttamenn og starfsmenn sjón- varpsstöðva hafa samband við mig næstum daglega," segir hann. „ísraelsku hermennimir sýna þeim fjandskap og beita þá stundum Á TÖK — ísraelskur hermaður andspænis arabískum konum. Erlendu fréttamennirnir, sem eru augv okkar og eyru á átakasvæðunum, verða sífellt varir við það h vernig þeir eru á milli steins og sleggju. IGJÖREYÐING Herskálamir, sem hýstu aðal- stöðvar þýska hersins meðan á hemáminu stóð, eru nú notaðir sem skjalasafn Le Havre. Sést það- an yfír mestalla borgina, þessa þriðju stærstu hafnarborg í Evrópu. Að kvöldi dags þann 5. septem- ber árið 1944 var hvergi betra að vera en í herskálunum til að fylgj- ast með einum mestu loftárásum breska hersins í síðari heimsstyij- öld. 348 Lancaster-flugvélar lögðu þá gamla bæinn, 400 ára gamlar byggingar, í eyði, sprengdu hann upp þar til ekki stóð steinn yfír steini. Þegar atlögunni var lokið lágu 2.000 franskir borgarar í valn- um en aðalstöðvamar þýsku, óvarð- ar uppi á hæðinni, voru óskemmdar með öllu. Einhvers staðar ekki allfjarri var William Douglas Home, höfuðsmað- ur, leikritahöfundur og bróðir verð- andi forsætisráðherra, og fylgdist með þessum skelfílegu árásum. Home, sem stjómaði skriðdreka í breskri hersveit, hafði þá fyrir skemmstu þvemeitað að taka þátt í árás á borgina sem líka leiddi til stórkostlegs mannfalls meðal óbreyttra borgara. „Eg hef enga löngun til að taka ' þátt í gjöreyðingarstríði" hafði hann sagt og neitað að nota skriðdrekann í lokasókn gegn borginni vegna þess, að Bretar höfðu bannað brott- flutning óbreyttra franskra borgara úr henni þrátt fyrir beiðni yfír- Blóðbað sem erfitt er að „réttlæta“ manns þýska herliðsins. Vegna þessarar ákvörðunar, sem Douglas Home kynnti í bresku blaði, var hann sviptur öllum tignarmerkjum og fangelsaður. Nýlega fór hann fram á, að dómi herréttarins yrði hnekkt og málið tekið fyrir aftur. Sgja má, að nú hafí ný og mjög afgerandi sönnun komið fram mál- stað Douglas Homes til framdráttar og er þá átt við heimildarmyndina „Hreint borð" sem nýlega var sýnd í franska sjónvarpinu. Höfundur hennar er Le Havre- búi, Christian Zarifían að nafni, en hann vildi ekki una vandræðalegri þögninni í Frakklandi og í Bret- landi um atburði, sem við aðrar kringumstæður hefðu verið kallaðir stríðsglæpir. Beiðni sína um endur- upptöku málsins rökstyður Douglas * /k SVIÐINJÖRЗBresku sprengjuflugvélarnar „byrgðu fyrir sólu“. Home hins vegar með Waldheim- málinu. Douglas Home kemur ekki fram í heimildarmyndinni og í Le Havre hafa fæstir heyrt hans getið. Sagn- fræðingar líta hins vegar á ákvörð- un hans á sínum tíma sem sönnun þess, að breska yfírherstjómin hafi vitað, að óbreyttir, franskir borgar- ar yrðu fyrir barðinu á árásunum. „Þrátt fyrir kröfur um opinbera rannsókn í Frakklandi er enn mörg- um spumingum ósvarað," segir Zarifian og bendir á, að loftárásin hafí til dæmis verið gerð eftir að bandamenn höfðu náð á sitt vald mestöllu Normandí og París og þrátt fyrir, að þýska setuliðið,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.