Morgunblaðið - 27.03.1988, Page 22

Morgunblaðið - 27.03.1988, Page 22
22 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27.MARZ 1988 í TILEFNI ALÞJ Ó Ð A L E I K HÚSDAGSINS Leikminjar eftirSvein Einarsson í ritgjörð, sem Lárus Sigur- bjömsson ritaði í Skími 1949 og síðar birtist í bókinni Þáttur Sig- urðar málara (1945), segir svo: „Eftir er þá að líta á mjmdir og teikningar, sem Sigurður gerði fyrir leiksviðið í Reykjavík. Nokk- uð mikið er varðveitt af frum- myndum hans, og er það allt mik- ilsverður stofn að safni leikhús- minja, sem verður að komast á fót hið allra fyrsta, því að megn- asta hirðuleysi hefur ríkt um alla slíka hluti, og óbætanleg verð- mæti hafa farið forgörðum fyrir skilningsleysi eða illan aðbúnað. Þannig hafa aðeins varðveist tvö „baktjöld “ Sigurðar, bæði upp- haflega úr „Hellismönnum" Matt- híasar. Til skamms tíma var til forkunnar vel málað „baktjald" í tjaldageymslu Leikfélags Reykjavíkur í Þjóðleikhúsinu. Sýndi það götu í útlendri borg og var iðulega notað af skólapiltum, er þeir sýndu leikrit eftir Holberg á árunum 1922—30. Okkur var ávallt sagt, að Carl Lund hefði málað þetta tjald, en það var í minnsta lagi, og í föggum Sigurð- ar hef ég fundið blýantsupp- drætti, sem sýna nálega sömu hlutföll húsa og innsýn í götu og á „baktjaldi" Carls Lunds.„ Það er grunur minn, að enginn annar en Sigurður hafi málað þetta tjald, en því var síðast ekið á sorphauga bæjarins til þess að týma fyrir nýjum leiktjöldum Þjóðleikhúss- ins.“ Svo mörg voru þau orð, og rifj- uðust upp á nýafstöðnu 125-ára afinæli Þjóðminjasafnsins, sem minnst var á veglegan hátt, m.a. með skemmtilegri sögulegri sam- antekt í Háskólabíói, þar sem umrædd „baktjöld" Sigurðar voru harla viðeigandi umgjörð. Þá minntist ég þess, að þegar Leik- félag Reykjavíkur hélt upp á 75 ára afmæli sitt 1972, var efnt til leiksögulegrar sýningar í Bogasal Þjóðminjasafnsins og þar voru þessar frummyndir Sigurðar sýndar og taldar vera úr Útilegu- mönnunum eða Skugga-Sveini eftir séra Matthías, enda skráðar svo á spjöldum safnsins. Matthías Þórðarson velkist þar ekki í vafa um, að þessar leikmyndir eru frá Útilegumönnunum og segir þær að sinni ósk komnar f safnið frá forráðamönnum L.R. Kristján Eldjám bætir við f þessa skrá og telur, að þetta séu leiktjöld frá sýningum veturinn 1873 — og vitnar í því sambandi í Þjóðólf, en þá er vitað, að Sigurður gerði ný Íeiktjöld fyrir sýningu leikrits- ins. Sama vetur komu Hellismenn Indriða fyrst fram — þau leiktjöld voru eitt hið sfðasta, sem Sigurður málaði — og getur þar skýrt, að Lárus nefnir Hellismenn í þessu sambandi. Ég hef hér fjölyrt um þessi baktjöld, vegna þess að þau munu vera elstu leiksögulegar minjar, sem við íslendingar eigum, ef frá eru talin eldri leikritshandrit, leik- endaskrá ffá sýningum skólapilta á Hólavöllum á leikritum Sigurðar Péturssonar, uppskriftir af Skraparotspredikun og uppdrátt- ur skólapilts í Skálholti frá síðari hluta 18. aldar, þar sem leiksvið er merkt inn milli burstabæja biskupssetursins. Sfðan Lárus Sigurbjömsson skrifaði sína hvatningu, eru liðin tæp Qörutíu ár, og því miður verð- ur að segjast eins og er, að ekki er hirðan betri í dag en hún var þá, þegar hann samdi greinina, verri ef eitthvað er. Nýlega fóru til dæmis í bruna segulbandsspól- ur með upptökum af öllum sýning- um Leikfélags Reykjavíkur á tutt- ugu ára skeiði. Gróin heimili leik- ara af kynslóð frumheijanna hafa verið að leysast upp og sögulega merkilegir munir dreifst til ætt- ingja og annarra síður vanda- bundinna. NúLfmatækni mynd- banda er ekki notuð nema að tak- mörkuðu leyti við að varðveita sýningar okkar daga. Þannig mætti því miður lengi telja. Leiksögissöfn Við svo búið má ekki lengur standa. Allar menningarþjóðir vita, hvað til þeirra friðar heyrir í þessum efnum. Frændur okkar á Norðurlöndum eiga myndarleg leiksögusöfn; nýlega var opnað glæsilegt leiksögusafn f hjarta Lundúnaborgar í Covent Garden og er þegar Qölsótt af borgarbú- um og ferðamönnum. í París er ekki aðeins leiksögusafn, heldur og stórt sjálfstætt leikbókasafn. Dæmin eru mörg. En hér höfum við ekki staðið á verðinum. í þessu efni erum við raunverulega í sömu sporum og þeir Sigurður Guð- mundsson og Helgi Sigurðsson, þegar þeir hrintu forngripasafn- inu af stað. í rauninni þarf ekki að bytja svo stórt. Nægði, að eitt herbergi f hinu glæsilega nýja Borgarleikhúsi jrrði látið undir vfsi að slíku safni, þannig að menn vissu f hvaða stað sögulega verðmætar minjar ættu að fara. Jafnfram yrði svo að koma upp lítilli deild f Þjóðbókarhlöðunni fyrir leikbókmenntir, handrit og önnur verk um leiklist, fyrir segul- bandsupptökur og myndbands- snældur af sýningum. Meira þyrfti f rauninni ekki að gera í fyrstu lotu. Trú mín er sú, að við þetta átak mjmdu koma í leitimar ýms- ir munir, sem ella hefðu kannski farið forgörðum. Einhverja fjár- veitingu þjrfti að fá til að koma þessu á laggimar. En kannski mætti í spamaðarskyni fela leik- húsrítara Borgarleikhússins að hafa umsjón með safninu eða minningarherberginu fyrst um sinn; það jrrði til dæmis opið um helgar ákveðinn tíma. Sfðan mætti standa fyrir leiksögulegum sýningum, þar sem ákveðin efni yrðu tekin fyrir, til dæmis í Þjóð- leikhúsinu, Borgarleikhúsinu og í öðmm sýningarsölum. Myndbönd og handrit Öllu fjárfrekara er það verkefni að koma myndbandamálunum í sæmandi horf. Eins og nú er, taka leikhúsin sjálf af vanefnum upp sýningar sínar (og ekki öll, at- vinnuhópamir hafa fæstir nokkur tök á slíku); tekið er á eina vél, kyrrstæða, þannig að hvað lýs- ingu og áherslupunkta snertir, gefur sú upptaka afar ófullkomna hugmynd um sýninguna og áhrifamátt hennar. Kannski má segja, að ekki sé ástæða til að taka upp með fullkomnari vinnu- brögðum allan þann fjölda leik- sýninga, sem hér er á boðstólum árlega, en t.d. frumflutning á nýjum fslenskum leikverkum og þær erlendar sýningar, sem tíðindum þykja sæta um listræn vinnubrögð. Þá er og kunnara en frá þurfí að segja, að ekki komast öll þau leikrit, sem á fjölunum em flutt, á prent, og ræður oft tilviljun í þeim efnum. Jafnvel hafa verið hér sýningar, sem spunnar vom fram, þannig að í raun varð aldr- ei til skrifað handrit. Þama er auðvitað líka hætta, að heimildir fari forgörðum. Um þetta þarf að setja reglur, þannig að leikhús og leikhópar séu skyldaðir að skila frágengnu handriti t.d. í Þjóðar- bókhlöðuna, ef þar verður komið upp homi fyrir leiklistargeirann. Þeirri viðbám hefur verið hreyft, að þá komi allir mögulegir hags- munahópar og heimti sín sérsöfn. Slík viðbára er skiljanleg, en ekki marktæk. Hvemig í ósköpunum ella á að sinna slíkum verkefnum? Og skyldi ekki tölvuvæðing nú- tímans með öllum sínum væntan- legu gagnabönkum einmitt stuðla að slíkri þróun? Leíkhúsdagurínn í dag er alþjóða leikhúsdagur- inn og þessi skrif vom hugsuð sem hugvekja. I rauninni fínnst manni, að hugvekju ætti ekki að vera þörf, það mál, sem hér er ymprað á sé svo sjálfsagt, að enginn mað- ur mjmdi leggjast gegn því. Þjóð- in hefur það hugarfar, að hún telur menningarlega skyldu aé eiga sér stofnanir eins og Þjóð- minjasafn, beinlfnis Ijúfa skyldu og brýna nauðsyn. En sfðan koma aðrar stofnanir, önnur söfn og minjastofur, þar sem sinnt er sögu einstakra landshluta eða atvinnu- greina, eins og til dæmis i Sjó- minjasafninu. Listasöfnin em f sjálfu sér slíkir verðir afturábak og framávið, og því skyldi sú list- grein, sem hverfulust er kölluð, leiklistin, ekki reyna að halda í það af heimildum, sem henni er unnt. íslensk leiklistarsaga er smán- arlega lítið kunn, það verðum við, sem við leiklist fáumst, nánast daglega minnt á. Inn f Leiklistar- skóla íslands koma nemendur, sem aldrei hafa heyrt minnst á frú Stefaníu, Guðrúnu Indriða- dóttur eða Gunnþómnni Halldórs- dóttur. Við höfiim mætt blaða- mönnum, sem ekki vissu deili á Biynjólfi Jóhannessyni. Menn kynna með stærilæti höfunda, sem hér vom kannski leiknir fyrir tuttugu ámm, eins og nýleg dæmi sýna. Kvikmjmdahúsin hafa ekki fyrir því að kanna, hvort leikrit, sem síðar er snúið í bíómjmd, sem þeir sýna, hafi verið flutt hér og eignast íslenskt heiti, sem áhorf- endur kannast við, h'eldur skýra bara allt upp á nýtt og eigin hent- ugleikum (þegar þeir hafa fyrir því að þýða enska heitið). Sjón- varpstöðvar hafa gert sig sekar um slíkt hið sama. Meira að segja var annar kvikmjmdagagnrýnandi þessa blaðs nýlega að kynna myndbönd á markaðnum — og einhverra hluta vegna taldi hann sæmandi að notast eingöngu við ensk heiti mjmdanna — og þar gat hann um myndina Gothcha, án þess að hafa hugmynd um, að Leikfélag Reykjavíkur er búið að sýna umrætt leikrit, sem myndin er byggð á, lungann út vetri, und- ir heitinu Hremming. Svona mætti lengi telja, en það er leiðinlegt að þurfa að vera önugur. Við skulum því ekki vera önug á slíkum degi, heldur snúa okkur að verkefninu: Það vantar leik- sögusafn á íslandi. Við erum á síðasta snúningi með að bjarga margvíslegum verðmætum. Hér þarf átak, og það átak þolir enga bið. Tilkostnaður þarf ekki að vera svo ýkja mikill, en mikil verð- mæti, sem sum hver verða aldrei til fjár metin, eru í húfi. Það er kominn tími til að hegast handa. Höfundur er leikstjóri og rithöf• undur og formaður Leiklistar- sambands íslands. Líkan af Borgarleikhúsinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.