Morgunblaðið - 03.07.1988, Page 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 1988
Frjálsíþrótta-
drottning ársins
NAFNIÐ Ingríd Kristiansen hljómar eflaust kunnuglega í eyrum flestra sem eitthvað
fylgjast með íþróttum. Hún hefur í mörg ár verið einn besti langhlaupari heims. Hennar
afrek eru hreint frábær og marka á vissan hátt þáttaskil í íþróttunum, því hún hefur
yfírstigið marga tálma og rutt úr vegi ýmsum hindrunum á sínum íþróttaferli. í þessu
sambandi má nefna að hún var fyrsta konan sem hljóp maraþon á betri tíma en 2.29.0
klukkustundum sem er betra en gildandi íslandsmet karla. Einnig var hún fyrsta konan
sem hljóp 10.000 m á skemmri tíma en 31.0 mín.
4 HM-gull
Á síðastliðnum mánuðum hefur
hún verið mikið í sviðsljósinu. Hún
varð meðal annars tvívegis heims-
meistari með viku millibili í mars
á þessu ári. Samtals státar hún
af 4 heimsmeistaiatitlum á 7
mánaða tímabili.
Hún vann til gullverðlauna í
10.000 metra hlaupi á heims-
meistaramótinu í Róm í september
á sfðasta ári. Hún sigraði með
miklum yfírburðum á heimsmeist-
aramótinu í götuhlaupi sem fram
fór í Mónakó 20. nóvember á
síðasta ári. Hún varð heimsmeist-
ari í víðavangshlaupi sem fram
fór á Nýja Sjálandi í mars á þessu
ári. Viku seinna sigraði hún enn
einu sinni á heimsmeistaramótinu
í götuhlaupi (1988). En þetta
hlaup fór fram í Ástralíu. Öll þessi
hlaup vann hún með miklum yfír-
burðum.
Ein sú besta
Af þessari upptalningu að
dæma má fullyrða að Ingrid sé
hreinlega ósigrandi og í raun á
engin kona í heiminum möguleika
á að ógna veldi hennar. Margir
eru þeirrar skoðunar að fáir
íþróttamenn séu eins hátt skrifað-
ir í heiminum f dag.
Á þessu sama tímabili hafa
frjálsíþróttastjömur á borð við
Carl Lewis, Ben Johnsons, Ed
Moses, eða SEB, COE yfír litlu
að státa þegar afrek hennar eru
dregin fram í dagsljósið.
Hver er Ingrid?
Hún er 32 ára gömul, fædd og
uppalin í Stavanger á vestur-
strönd Noregs. Hún er gift Ame
Kristiansen, en hann starfar sem
oiíuverkfræðingur. Árið 1983
eignuðust þau son, Gaute. Fjöl-
skyldan býr nú f Osló, í einu af
fínustu hverfum borgarinnar.
Ingrid metur fjölskyldu sína
mikils og nýtur þess að vera f
návist hennar. Hún hefur ætíð
eiginmann og son með sér á æf-
ingum og í keppnisferðum. Þeir
sem þekkja Ingrid eru flestir gátt-
aðir á afkastagetu hennar. Sam-
hliða móðurhlutverkinu og fjöl-
skyldulífínu æfír hún geysilega
stfft, en nær engu síður að sinna
þessum hlutverkum af kostgæfni.
Ingrid er einnig þekkt fyrir að
vera alþýðleg og þægileg í um-
gengni. Hún hefur ekki á neinn
hátt látið frægðina stíga sér til
höfuðs.
Ingrid Kristiansen hefur í mörg ár verið einn besti lang-
hlaupari heims.
fjg reyni eins og
hægt er að lifa eðlilegu
fjölskyldulííi
- segir Ingrid Kristiansen margfaldur heims-
meistari í langhlaupum
ÞEGAR blaðamaöur Mbl. kom
að máli við Ingrid og bað hana
um stutt viðtal var ekkert sjálf-
sagðara. Það lá beinast viö að
spyija fyrst hvort hún hafi
komið til íslands?
I: Já, ég kom til íslands fyrir
nokkrum ámm (1985) og keppti
í Evrópukeppni. Mér fannst það
mjög gaman. Landið er mjög
spennandi. Fólkið var opið og
frjálslegt. Einnig var góður andi
yfír mótinu, þótt hlaupabrautin
hafí verið hörð og léleg. í alla
staði skemmtileg upplifun.
Mbl.: Er gott fjölskyldulíf mikil-
vægt fyrir afreksmenn í íþróttum?
I: Já, geysilega mikilvægt eins og
raunar er fyrir aðra þjóðfélags-
þegna. Ég reyni eins og hægt er
að lifa eðlilegu fjölskyldulífi. Því
ég er á þeirri skoðun að hvort sem
þú ert góður í íþróttum eða ekki
er eðlilegt fjölskyldulíf æskilegt.
Ég reyni að skilja á milli íþrótt-
anna og heimilisins, tek ekki vinn-
una með heim. Á þennan hátt á
ég auðveldara með að gleyma
íþróttunum.
Margir vilja meina að flestir
íþróttamenn þurfí að fóma miklu
til að ná árangri. Ég er ekki sam-
mála, því við getum líka notið
lífsins og við eigum að gera það.
Maður má ekki gleyma því. Vissu-
lega eru ýmsar hömlur.
Mbl.: Hvemig hefur gengið að
sameina móðurhlutverkið og af-
reksíþróttir?
I: Það hefur gengið mjög vel.
Þetta var að vissu leyti frekar
erfítt í byijun. Bæði eiginmaður-
inn og Gaute eru afskaplega skiln-
ingsríkir. Við þurfum stundum að
skipuleggja hlutina langt fram í
tímann, en það gengur yfírleitt
vel. Annars hef ég ætíð haft
margt gott fólk í kringum mig
sem hefur verið reiðubúið að að-
stoða mig.
Þjálfarinn/afreksmenn
Mbl.: Á þjálfarinn mikinn hlut í
velgengni þinni?
I: Já, John hefur verið mér geysi-
lega mikils virði og án hans væri
ég ekki komin svona langt. Hann
hefur allt sem góður þjálfari
þarfnast. Hann kann sitt fag, er
skilningsríkur og beitir nauðsyn-
legum aga. Einnig hefur hann
mikla reynslu sem afreksmaður í
íþróttum og er því ætíð vel með
á nótunum.
Mbl: Hvaða atriði em mikilvæg-
ust að þtnu mati til að fá fram
afreksmenn í íþróttum.
Fjölskyldulifið er Ingrid mjög mikilvægt og fylgir fjölskyldan henni ávallt á mót. Hún er hér ásamt
eiginmanni sinum, Arke og syninum Gauta.