Morgunblaðið - 03.07.1988, Page 8

Morgunblaðið - 03.07.1988, Page 8
8 B MÖkÖÚttBLAÐÍÖ,' SÚÍÍÍÍÚÖAÖÚ^ á.”j&ö*lí$8 Spjallað við Klaus Schmieder bruggmeistara Drykkjusiðir íslending'a hafa ekki þótt til fyrirmyndar. Um nokkuð árbil var landsmönnum bannað að neyta áfengra drykkja. — Og þeim var ekki treystandi til að drekka bjór. Á næsta ári mun þetta breytast; framleiðsla og neysla á bjór verður Ieyfileg. Gera verður ráð fyrir því að löghlýðnir íslendingar og ekki sigldir, séu fákunnandi um þennan forboðna drykk. Hjá Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni starfar Þjóðverjinn og bruggmeistarinn Klaus Schmieder. Þess var farið á leit að hann fræddi lesendur nokkuð um bjórframleiðslu. Fjölskyldufag Klaus Schmieder fæddist árið 1941 í Mark-Brandenburg, á því svæði sem nú tilheyrir Þýska al- þýðulýðveldinu. Áhugi á bjór og bruggun hefur löngum verið land- lægur í Þýskalandi og ekki hvað síst í fjölskyldu Schmiders. Fjöl- skyldan átti þrjú smá ölgerðarfyrir- tæki. Afi Schmieders og frændur voru bruggarar. Klaus Schmieder fannst það liggja beint við að leggja fjölskyldu- iðnina fyrir sig. Á þrettánda aldurs- ári tók hann þá ákvörðun að brugg- ari skyldi hann verða. Tveimur árum seinna drakk hann sinn fyrsta bjór. Aðspurður sagði hann að það hefði tekið sig nokkum tíma að venjast bragðinu en fljótlega urðu hans kjörorð „Bier úber alles“ (Bjór ofar öllu). Schmieder nam bruggun í Þýska alþýðulýðaveldinu og starf- aði síðan við sitt fag. 1960 fluttist hann búferlum vestur fyrir tjald. í vesturhluta Berlínarborgar gafst honum tækifæri til að nema frekar þau fræði sem fjölskylduiðninni tengdust. Schmieder fékk inngöngu í Versuchs- und Lehrbrauerei in Berlin. í þeirri menntastofnun eru kennd þau fræði sem góðum bruggara mega gagnast í starfi s.s: Líffræði, örverufræði, efnafræði, vélfræði, verslunarfræði og síðast en ekki síst, bruggfræði sem fjallar t.a.m. um víxlverkanir vatns, malts, humla og gers. Schmieder bruggmeistari var inntur eftir því hvemig íslenska vatnið hentaði til bmggunar. Hann kvað það vera mjög gott en ívíð of „veikt“, þ.e.a.s. það væri fulllítið kalk í því en hægt væri að bæta ofurlitlu af steinefnum í vatnið. ísland og Líbía Að námi loknu 1965, starfaði Schmieder í Trier en síðan lá leiðin út í heim, því þeir em fáir staðimir og þjóðimar sem forsmá bjór og þýska ölgerðarmeistara. Schmieder vann m.a. í Marokkó, Líbíu, Niger, Togó, Nígeríu, Vestur- Samóaeyj- um og að lokum á íslandi. — Líbía, nú gefa þær fregnir sem við höfum af því landi ekki tilefni til að ætla að ráðmenn þar séu hrifnir af áfengum bjór? „Rétt, en ég var þar áður en Gadafí tók við. Hann bannaði bjór." — En til íslands? „Síðast vomm við á Samóaeyjum en til íslands komum við í febrúar 1987 því nú vill eiginkonan búa í Evrópu." — Nú em og hafa verið ákveðnar hömlur á athafnafrelsi ölgerðar- manna hér á landi, var það ekki erfíð ákvörðun að starfa hér á landi? „Þér eigið væntanlega við 2.25 prósent áfengismagn miðað við rúmmál eða 1,7 miðað við þyngd, eins og við ölgerðarmenn emm van- ir að nota. Nei, alls ekki.“ - Ekki? „Það sem skiptir máli er að um- gangast fólk og léttur bjór er líka bjór.“ Hvað g’erir góðan bjór? „í góðan bjór þarf vatn, bygg, humla og ger. Svo hljóðar hið þýska hreinleiksboðorð (Reinheitsgebot) frá 1516.“ — Bygg, þið notið ekkert annað kom? „Nei, við notum einungis besta Morgunblaðið/Ámi Sæberg Bjór þroskast í lageringu. hráefni, spírað bygg frá Belgíu með rakastig frá 4 til 6 prósentum. Bygg er mjög fjölbreytilegt. Það er til bæði vetrarbygg og sumar- bygg til að velja úr og þessar teg- undir em breytilegar frá ári til árs t.d. hvað varðar innihald eggja- hvítuefna (prótína)." — Eggjahvítuefnin, hvað gera þau fyrir veigarnar? Em þau ekki yfírleitt talin vera frekar holl? „Eggjahvítuefnin, gefa bjómum góða froðu en of mikið af þeim styttir geymsluþolið.“ — Þið fáið sem sagt spírað bygg en hvemig gerið þið bjór úr því? „Fyrst er það malað og svo bland- að með vatni í blöndunar- og hita- katli. Það er mismunandi eftir öl- tegundum og ástandi byggsins hvað lögurinn er hitaður í hátt hitastig. Oftast í tvær til þtjár klukkustund- ir.“ — Hitaketill, hvemig? „Hér áður fyrr tíðkuðust helst koparkatlar eins og við höfum hjá Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni. En nútíminn hefur komið með ryðfrítt stál. Það þykir einfaldara að þvo það. Af sögulegum og fagur- fræðilegum ástæðum er mér kopar geðfelldari. En koparinn er dýrari svo flestar nýjar ölgerðir nota ryðfrítt stál. Eftir að lögurinn hefur verið hit- aður og maltsykurinn í býgginu þar með leystur upp, er honum hellt yfír í suðuketilinn sem er úr kopar eða riðfríu stáli. Á leiðinni fer hann í gegnum síur úr messing. í kopar- katlinum hjá okkur er lögurinn soð- inn í eina til eina og hálfa klukku- stund og humlunum bætt út í.“ Humlar gefa bragð og ilm — Humlarnir, hvað hlutverki gegna þeir? „Humlamir em það mikilvæg- asta sem sett er í bjórinn. Þeir gefa bjómum bragð og ilm. Þeir auka líka geymsluþolið. Við notum humalkom frá Haller- tau og Spalt í Bæjaralandi, Tettn- ang nálægt Bodensee og frá Saaz í Bæheimi. Sumir humlar gefa ilm og bragð en aðrir gefa frekar bragð. Margir sem em óvanir bjór kvarta yfír því að bjór sé rammur á bragðið. En þannig á hann að Morgunblaðið/Árni Sæberg Byggið er malað í gamalli kvörn sem stendur enn fyrir sínu. Fylgjast verður með gerinu. Morgunblaðið/Emilía

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.