Morgunblaðið - 03.07.1988, Page 18

Morgunblaðið - 03.07.1988, Page 18
18 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 1988 I „Ég vildi að ég gæti hreyft mig- eins og Fred Astaire" segir Mike Tyson heimsmeistari i þungavigt í hnefaleikum karla. Mike Tyson er eins og mannýgt naut í hringnum. Nýlega varði hann heimsmeistaratitil sinn með því að rota Michael Spinks. MIKE TYSON Ljúfur bolabangsi Mike Tyson er heimsmeistari í þungavigt í hnefaleikum karla. Hann er sem mannýgt naut í hringnum og andstæðingar hans eru ekki öfundsverðir. Margir gætu haidið að Mike væri einnig eins og mannýgt naut í einkalífínu, a.m.k. er ekki erfítt fyrir fólk að ímynda sér það þeg- ar það hefur séð hann í hringnum. Ekki er sú tilgáta allskostar rétt. Mike giftist í marsmánuði á þessu ári. Hin nýbakaða eiginkona heitir Robin Givens og er leik- kona. Tyson bráðnaði gjörsam- lega í fyrsta skipti þegar þau hitt- ust og lét hana ekki í friði fyrr en hún samþykkti að giftast hon- um. Robin var ekkert sérlega hrifín þegar Mike bauð henni út í fyrsta skipti og tók móður sína, systur og tvo blaðamenn með sér á stefnumótið. Hún var hálf hrædd við Mike en ætlaði aldeilis ekki að láta hann komast upp með neitt múður. Móðir hennar var heldur ekkert hrifín af þessum bola og leist þá betur á Eddie Murphie sem Robin hafði áður farið á stefnumót með. Robin segir að Mike sé eins og ljúfur bolabangsi þegar þau eru saman. Hann er mjög hrifínn af dýrum og á fjöldann allan af bréf- dúfum sem hann eyðir miklum tíma í að sinna. Félagar Robin í framhaldsmyndaþáttunum „Head of the classmates" segja að Robin hafí hann alveg í vasanum. Þegar Mike kom nýlega í heimsókn í kvikmyndaverið, bað Robin hann að fara út í búð og ná í gotterí handa sér. Stuttu síðar kom Mike en hann hafði ekki keypt súkkul- aði heldur demantseymalokka og hálsfesti við. Um síðustu jól gaf hann Robin kampavínslitaðan BMW sem var umvafínn slaufum. Mike bjó í fátækrahverfi í Bro- oklyn frá því að hann var bam og þangað til honum fór að ganga vel í hnefaleikum: Áður en Mike fæddist hafði faðir hans yfirgefið móður hans og þijú eldri syst- kyni. Mike var þægur drengur og lítill eftir aldri. Uppi á þaki á heimili þeirra hafði hann dúfur og var oftast einn að sinna þeim. Þegar hann var 10 ára gamali var hann orðinn nokkuð góður í slags- málum og slunginn þjófur. Ári síðar var hann settur í heimavist- arskóla fyrir vandræðaunglinga og fljótlega eftir það tók einn leið- beinandinn á skólanum eftir hæfí- Tyson er þekktur fyrir mikinn höggþunga. leikum Mikes og kynnti hann fyr- ir þjálfaranum Cus D’Amato. Hann var talinn með bestu þjálf- uram í greininni og það var hann sem gerði Mike að þeim mikla keppnismanni sem hann er í dag. Robin Givens eiginkona Mikes segir hann vera ljúfan sem lamb þegar þau eru saman. Robin og Mike eru nýgift og ástfangin upp fyrir haus. fclk í fréttum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.