Morgunblaðið - 03.08.1988, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 03.08.1988, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGUST 1988 nýtt... ÞÓRSCÁIFÉ Próteinbætti Manex hárvökvinn samanstendur af 22 amínósýrum sem inni- halda nægilega lítil mólikúl til að komast inn í hárslíðrið og næra hárrótina með hreint undraverðum árangri. Virkni próteinbætta hárvökvans er ótvíræð: / / Hárvökvinn stöðvar hárlos í allt að 100% tilvika. Flasa hverfur í 100% tilvika. ' I 73% tilvika hefur Manex hárvökvinn endurheimt hár í hársverði þar sem lífsmark er enn með hárrótinni. Með því að bæta hár- vökvanum í permanent festi, næst langvarandi ending permanents í þunnu hári. Próteinbætti Manex hár- vökvinn dregur úr exemi í hársverði. Hárvökvinn lífgar og styrkir hár sem er þurrt og slitið eftir efnameðferð. Manex hárlxkninga- vörumar samanstanda af sjampó, hárnxringu, vítamín- töflum og próteinbxttum hárvökva og fást á flestum rakara- og hársnyrtistofum um land allt. HEILDSÖLUBIRGÐIR rosia am UMBOnS- OG HEILDVERSLUN SÍMI 680630 Einnig læknaaðstöðu á Borgarf irði Magnús Einarsson stjórnarfor- maður Heilsugæslustöðvarinnar og Dvalarheimilisins bauð í upp- hafi gesti velkomna og gerði grein fyrir því samstarfi sem ríkir meðal Héraðsbúa og Borgfirðinga í heil- sugæslu- og öldrunarmálum. Taldi hann miður að fjórðungssjúkrahúsi fyrir Austurland skyldi ekki valinn staður á Egilsstöðum sem sam- göngulega séð væri miðstöð Aust- urlands. Magnús benti á að miðað við þær fjárveitingar sem stofnun- in fengi eftir að hún komst á föst fjárlög yrði ekki komist hjá að skera niður þá þjónustu sem þarna væri veitt nema breyting yrði á fjárveitingum. Nú er heimild fyrir þremur læknum við stofnunina en þeir þyrftu að vera 4 svo viðun- andi geti talist. Magnús Einarsson taldi Heilsugæslustöðina á Egils- stöðum vel fallna til verklegrar kennslu í heimilislækningum þegar slík kennsla verður tekin upp við læknadeild Háskóla íslands. Guðmundur Bjarnason heil- brigðisráðherra kvað það stefnu stjómvalda í öldrunarmálum að leggja aukna áherslu á þjónustu- og umönnunarþáttinn. Nauðsyn- legt væri að aldraðir gætu sem lengst verið virkir þjóðfélagsþegn- ar og gæfist kostur á að búa sem lengst á heimaslóðum. Einnig ræddi Guðmundur verkaskiptingu ríkis og bæja í heilbrigðis- og tryggingamálum en í þessa mála- flokka fara um 40% af þjóðartekj- um. Sagði Guðmundur það skoðun sína að öll heilbrigðisþjónustan ætti að vera í höndum ríkisins. Nú er skiptingin þannig að sjúkra- hús eru kostuð af ríkinu en heilsu- gæslustöðvar af sveitarfélögunum. Við vígslu þessa nýja húss rakti Einar Rafn Haraldsson fram- kvæmdastjóri Dvalarheimilisins hvernig staðið hefði verið að upp- byggingu þessarar stofnunar en Einar er jafnframt framkvæmda- stjóri Sjúkrahússins og Heilsu- gæslustöðvarinnar en þessar stofnanir eru reknar undir sameig- inlegri yfirstjórn. Hið nýja húsnæði heilsugæslustöðvarinnar á Borgarfirði. Morgunblaðið/Bjöm Sveinsson Þráinn Jónsson oddviti Fellahrepps, Jón Kristjánsson alþingismaður, Magnús Einarsson stjórnar- formaður Heilsugæslustöðvarinnar á Egilsstöðum, Magnús Þorsteinsson oddviti, Borgarfirði, og Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra. Árið 1966 komu fram hugmynd- ir um að öll sveitarfélög í Múlasýsl- um báðum sameinuðust um bygg- ingu og rekstur dvalar- og hjúkr- unarheimilis aldraðra á Austúr- landi og skyldi það reist á Egils- stöðum. Ekki náðist samstaða um m* ■ ' Einar Rafn Haraldsson með samning um kostnaðarskiptinu við byggingu dvalarheimilisins. þetta en öll 10 sveitarfélögin á Héraði ásamt Borgarfjarðarhreppi gerðu með sér samkomulag um byggingu 7 húsa raðhúss ásamt þjónustuhúsi sem byggð voru á árunum 1971 til 1980. Fyrir sex árum var svo undirritaður samn- ingur milli heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytisins, fjármála- ráðuneytisins og heimamanna um þessa byggingu sem nú var verið að vígja. Þar er kveðið á um hve stór hluti eignarinnar tilheyri hverri stofnun og hvað hvor skuli greiða, ríki og heimamenn. Einar gat þess að sumum þætti 6 ár lang- ur framkvæmdatími á þessari byggingu en hér gilti að sníða sér stakk eftir vexti. „Ég held að fram- kvæmdahraðinn hafi varla mátt vera meiri svo að ekki ofbyði greiðslugetu sveitarfélaganna. Hvor aðili um sig, ríki og sveitarfé- lög, hafa staðið í skilum og hér á ekki við það sem gjarnan er tíðkað að skamma ríkið fyrir seinagang," sagði Einar Rafn. Þetta nýja hús er teiknað af Manfreð Vilhjálmssyni arkitekt og er um 200 fm. Baldur og Óskar hf., byggingaverktakar í Fellabæ, sáu um uppsteypu á húsinu og að gera það fokhelt en Birkitré og Húsiðjan sáu um innréttingar. Sveinn Guðmundsson og Unnar Heimir Sigursteinsson voru raf- verktakar en J.V. Jóhannsson sá um smíði loftræstikerfa. Eftirlits- verkfræðingur af hálfu verkkaupa var Óli Metusalemsson frá Verk- fræðistofu Austurlands. Matsverð hússins nú er um 93 milljónir króna eða um 31 þúsi kr. á hvert rnanns- barn í læknisumdæminu. Ólokið er málningu utanhúss og frágangi lóðar. Eftir er að setja upp lyftu í húsið og búa það húsgögnum og tækjum en talið er að það muni kosta um 18 milljónir á núgildandi verðlagi að ljúka þessu. Læknar frá Heilsugæslustöðinni á Egilsstöðum fara til Borgarfjarð- ar vikulega og sagði Ólafur Stef- ánsson heilsugæslulæknir að hann áliti það hafa víðtæka þýðingu fyrir íbúana að læknir kæmi þang- að reglulega. Hið nýja húsnæði bætir úr mjög brýnni þörf því gamla aðstaðan var mjög þröng og ófullnægjandi. Kostnaður við það er einungis um 3,5 milljónir króna en íbúar Borgarfjarðar eru ríflega 200. - Björn Egilsstöðum. NÝTT dvalar- og húkrunarheimili fyrir aldraða hefur verið tekið í notkun á Egilsstöðum. Það er um 200 fm og eru í því 8 einstaklings- og hjónaíbúðir og 25 rúma sjúkradeild ásamt aðstöðu fyrir sjúkraþjálfara, þvottahús og skrifstofur fyrir stofnunina og Heilsugæslustöðina og fleiru sem slíkri starf- semi tilheyrir. Það var Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráð- herra sem vígði húsið. Jafnframt vígði hann nýja aðstöðu fyrir lækna á Borgarfirði eystra en 10 sveitarfélög á Héraði og Borgarfjarðarhreppur standa saman að rekstri heilsu- gæslustöðvar ásamt dvalar- og hjúkrunarheimili aldraðra. Nýja húsnæðið á Borgarfirði er rúmir 100 fermetrar og bæt- ir úr brýnni þörf því áður höfðu læknar aðstöðu í einu her- bergi sem gegndi hlutverki skoðunarherbergis, lyfjageymslu og skrifstofu en biðstofan var í forstofunni. Það ríkti því fögnuður meðal Héraðsbúa og Borgfirðinga með þennan glæsilega og merka áfanga I heilbrigðismálum þeirra 2.900 íbúa sem saman mynda Læknishérað Fljótsdalshéraðs og Borgarfjarðar. Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra vígði dvalarheimili aldraðra á Egilsstöðum og nýja læknaaðstöðu á Borgarfirði. MANEX HÁR- VÖRURNAR HAFA SÉRSTÖÐU Heilbrigðisráðherra vígir dvalar- heimili aldraðra á Egilsstöðum i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.