Morgunblaðið - 03.08.1988, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988
Fámennt á útihá-
tíðinni í Atlavík
EeUsstöðum.
LJOST er að Atlavíkurhátíðin varð ekki sú fjáröflun sem for-
ráðamenn Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands voru bún-
ir að gera sér vonir um heldur þvert á móti, þvi tap varð á sam-
komunni. Ekki er enn Ijóst hve tapið er mikið en það er töluvert.
Einungis 1.200 manns borguðu sig inn en um 2.000 manns voru
á svæðinu. Forráðamenn UÍA tejja að um 3.000 hefðu þurft að
borga sig inn til þess að endar næðu saman. Að sögn lögreglu fór
hátiðin vel fram og umgengni um skóginn var góð. UÍA var gert
að greiða kostnað af 25 lögreglumönnum og telja þeir það óréttl-
áta ákvörðun þegar Vestmanneyingar þurftu einungis að bera
kostnað af fjórum lögreglumönnum og hátíðin á Melgerðismelum
átta.
Morgunblaðið/Björn Sveinsson
Atlavíkurhátíðin var ekki eins vel sótt og vonir stóðu tíl og er tap af henni talsvert.
Forráðamenn Atlavíkurhátíðar
voru vonsviknir með þá litlu þátt-
töku sem var á samkomunni en
oft hefur þetta verið fjölmennasta
útisamkoma landsins um verslun-
Mikið um ö 1 vunarakstiir
um verslunarmannahelgi
UMFERÐIN gekk vel fyrir sig
um verslunarmannahelgina
þrátt fyrir mikla umferð alla
dagana, að sögn Ómars Smára
Armannssonar aðalvarðstjóra.
Lögreglan leit eftir útbúnaði
bUa og kannaði beltanotkun og
var útkoman afar góð, að sögn
Ómars Smára. Hafði áróður
undanfarna daga haft áhrif á
vegfarendur. Hins vegar varð
lögreglan að hafa afskipti af
ölvuðum ökumönnum og sagði
Ómar Smári að það væri sá
blettur á verslunarmannahelg-
inni sem erfitt væri að afmá.
Hins vegar var ökuhraði jafn
og lítið um of hraðan akstur.
Umferð var mest á Suðurlandi
þar sem veður var best og lá mesti
straumurinn að Laugarvatni og
Þingvölium. Lögreglan notaði
þyrlu Landhelgisgæslunnar við
eftirlit. Þannig náðist yfírlit yfír
umferðarþungann og beindi lög-
Akureyri:
Mikiðmagn
áfengis gert
upptækt
FRÁ fimmtudegi til mánudags
voru 25 ökumenn stöðvaðir á
Akureyri grunaðir um ölvunar-
akstur. Þá voru 20 ökumenn
kærðir fyrir of hraðan akstur
og 40 manns vistaðir fyrir ölvun.
Að sögn lögreglunnar á Akur-
eyri var óhemju mikið magn af
áfengi gert upptækt, nokkur
hundruð flöskur.
Umferðin gekk greiðlega á Akur-
eyri og í nágrenni, að sögn lögregl-
unnar þar, en þó urðu þar átta
umferðaróhöpp og tveir útafakstr-
ar. Harður árekstur varð á brúnni
yfír Skjóldalsá og rifbeinsbrotnaði
ökumaður annars bflsins. Bundið
slitlag er á þessum vegarkafla en
vegurinn er þröngur og lausamöl
til sitt hvorrar hliðar. Engir far-
þegar voru í bflunum en ökumenn-
imir voru báðir í bflbeltum og hefur
það eflaust afstýrt frekari meiðsl-
um. Bílamir eru taldir ónýtir.
reglan liðstyrk sínum að þeim
stöðum þar sem fjölmennast var.
Mikil umferð var um hálendið,
einkum um Kjalveg og þar var
þyrlan í eftirlitsflugi á sunnudag.
Á sunnudag var flogið yfír helstu
mótssvæði. Að sögn Ómars Smára
var greinilegt að fólk var farið að
tygja sig heim á leið þegar á
sunnudegi enda var veðurspá
mánudagsins ekki sem best. Mikil
umferð var á Suðurlandi á sunnu-
dag og greinilegt að margir lögðu
leið sína til Laugarvatns, Þingvalla
og Hveragerðis.
Óli H. Þórðarson hjá Umferðar-
ráði sagðist afar ánægður með hve
fá slys hefðu orðið um helgina.
Umferðarslys nú em mun færri
en á sama tíma í fyrra. Þá lýsti
hann yfír mikilli ánægju með öku-
ljósa- og bílbeltanotkun vegfar-
enda og líkti því við koilsteypu.
Sagði hann að hér væri um greini-
lega svörun að ræða við þeim
áróðri dunið hafí á fólki. Þá væri
einnig ánægjulegt að sjá að fólk
væri farið að spenna bömin í aftur-
sætinu í bílbelti. Hins vegar var
það skuggi á verslunarmannahelg-
inni hve margir voru teknir fyrir
ölvunarakstur, en þeir vom nú
hátt á annað hundrað. í fyrra vom
58 teknir fyrir akstur undir áhrif-
um áfengis.
Jöfn og mikil umferð var á Suðurlandi á sunnudag.
Morgunblaðið/Einar Falur
Milli 10 og 12 þúsund ferðalang-
ar fóru um Umferðarmiðstöðina
Fólksflutningar um helgina
gengu vel og stóráfallalaust fyr-
ir sig. Milli 10 og 12 þúsund fóru
um Umferðarmiðstöðina í
Reykjavík og Flugleiðir flugu
með 4700 manns innanlands.
Að sögn Einars Sigurðssonar,
blaðafulltrúa Flugleiða gekk flug á
þeirra vegum mjög vel og flestar
vélanna héldu áætlun. Oftast var
flogið til Vestmannaeyja, en félagið
flutti einnig ijölmarga til Akureyrar
og Egilsstaða.
Síðasta flug Flugleiða til Vest-
manneyja á mánudagskvöldið féll
niður vegna þoku. Þá stöðvuðust
líka ferðir Leiguflugs Sverris Þór-
oddssonar milli lands og Eyja, en á
vegum þess var haldið uppi reglu-
legum ferðum þangað meðan á
þjóðhátíðinni stóð.
armannahelgina. Að þessu sinni
var boðið upp á margar af vinsæl-
ustu hljómsveitum og skemmti-
kröftum landsins svo sem Stuð-
menn, Strax, Bubba Morthens,
Megas, Bjama Arason og Bjartm-
ar Guðlaugsson ásamt fleiri hljóm-
sveitum en það dugði ekki til.
Magnús Stefánsson hjá UÍA telur
að veðrið vikuna fyrir versluna
mannahelgina eigi mikinn þátt í
því hve samkoman var fámenn.
Ljóst er að sambandið tapar tölu-
verðu fé á samkomuhaldinu nú.
Það sama á við um þær hljómsveit-
ir sem komu fram á hátíðinni en
þær fá greitt eftir Qölda seldra
aðgöngumiða. Löggæsla er stór
kostnaðarliður í útihátfð sem þess-
ari og verður samkoman að bera
kostnað af þeim fjölda lögreglu-
manna sem lögreglustjóri ákveður
þegar leyfí fyrir samkomunni e^~
veitt. í þetta sinn var ákveðið að
þeir yrðu 25 og sagði einn for-
svarsmanna UÍA að honum virtist
sem útihátíðimar sætu ekki við
sama borð í þessum efnum. Lög-
reglustjórinn í Vestmannaeyjum
léti þjóðhátíð bera kostnað af fjór-
um lögreglumönnum og sýslumað-
ur Eyjafjarðarsýslu léti samko-
muna á Melgerðismelum borga
átta lögreglumönnum. Að auki
væri svo fíjöldi manna við gæslu
úr röðum félagsmanna íþróttafé-
laganna, hjálpar- og björgunar-
sveita. Að auki yrðu þessar sam-
komur að standa skil á söluskatti
f ríkissjóð en vilyrði fyrir niðurfell-_
ingu hans hefði ekki fengist hjá^
Qármálaráðherra nú. Þetta varð
til þess að UÍA hækkaði verð að-
göngumiða úr 4000 kr. í 5000 kr.
og kann hátt verð aðgöngumiða
að eiga sinn þátt í dræmri aðsókn
á margar útihátíðir nú.
Björn
Mikill fyöldi fór um Umferðarmið-
stöðina á leiðinni til Eyja. Alls
munu milli tíu og tólf þúsund manns
hafa farið um stöðina um helgina
og áttu engin teljandi vandræði sér
stað í þeim flutningum. Afar marg-
ir voru fluttir í Þórsmörk og til
Laugarvatns, en einnig fór nokkur
fjöldi til Þingvalla, Víkur í Mýrdal
og austur á Kirkjubæjarklaustur.
Kirkjubæjar-
klaustur:
Friðsælt
Klausturlíf
MILLI ellefu og tólf hundr-
uð manns sóttu hátíðina
Klausturlíf ’88, sem haldin
var á Kirkjubæjarklaustri
um Verslunarmannahelg-
ina. Veður var gott og gekk
hátíðin stórslysalaust fyrir
sig.
Félagsheimilið Kirkjuhvoll
og Ungmennafélagið Ármann
stóðu fyrir hátíðinni en Björg-
unarsveitin Kyndill aðstoðaði
við framkvæmdina. Ekki kom
til teljandi vandræða vegna
ölvunar og engin veruleg
óhöpp urðu í umferðinni. Stór
hluti gestanna var fjölskyldu-
fólk, enda var dagskráin mið-
uð við það.