Morgunblaðið - 03.08.1988, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988
3
Vextir af viðskiptavíxlum:
Fyrirtækin eru að
sligast undan þessu
- segir Víglundur Þorsteinsson
framkvæmdasljóri BM Vallá
VÍGLUNDUR Þorsteinsson fram-
kvæmdasljóri BM Vallá segir að
hinir háu vextir sem nú eru á við-
skiptavíxlum séu að sliga fyrir-
tækin í útflutnings- og samkeppn-
isgreinum. Eina lausnin sé að
þessi fyrirtæki fái að komast út
úr hinu íslenska peningakerfi eins
og Félag íslenskra iðnrekenda
hafi lagt til fyrir nokkru.
„Hið dýra peningakerfi hér á landi
er að ganga af þessum fyrirtækjum
dauðum," segir Víglundur og bendir
á að tekjur þessara fyrirtækja séu
bundnar beint eða óbeint við gengis-
skráningu erlendra mynta. Því sé
eðlilegt að þau fái að afla sér rekstr-
arfjár á erlendum fjármagnsmörkuð-
um. „Ef gengisskráning hér á að
vera eðlileg verða fyrirtækin að geta
leitað út úr hinu dýra íslenska pen-
ingakerfi. Slíkt myndi skapa þann
stöðugleika sem rætt er um að þurfi
í gengismálum hérlendis," segir
Víglundur.
Eins og kunnugt er af fréttum
Morgunblaðsins fyrir helgina eru
vextir á viðskiptavíxlum hjá bönkum
og sparisjóðum í sumum tilvikum
hærri en vanskilavextir. Sem dæmi
má nefna að í Landsbankanum er
ársávöxtun á viðskiptavíxli sem velt
er áfram með 30 daga millibili nú
rúmlega 55%. Hinsvegar eru van-
skilavextir nú 52,8% á ársgrundvelli.
Aðspurður um hvort hugmyndir
Félags íslenskra iðnrekenda hafí
fengið einhvern hljómgrunn segir
Víglundur svo ekki vera. En vonandi
vitkist menn er fram í sækir.
Vextir af viðskiptavíxlum:
Þetta eru einkenni
um peningakreppu
— segir PállBragason varaformaður
Félags íslenskra stórkaupmanna
PÁLL Bragason varaformaður
Félags íslenskra stórkaupmanna
segir að það séu augljós merki
um peningakreppu er ársvextir
af 30 daga viðskiptavíxlum eru
orðnir hærri en vanskilavextir.
„Við aðstæður eins og þær eru
nú í þjóðfélaginu er það tilhneig-
ing stjórnvalda að halda þeim
vöxtum niðri sem þau hafa stjórn
á eins og vanskilavöxtum. Er
bankamir aftur á móti kaupa
víxil af þér frá þriðja aðila en
ekki beint er það svipað og um
kaup á verðbréfi sé að ræða með
afföllum og því taka bankarnir
hærri vexti af slíkum pappírum
en ef þeir væru að kaupa víxilinn
beint af þér,“ segir Páll.
skilavextir nú hinir sömu og raun-
vextir, það er peningar þeirra sem
fá vanskilavexti brenna ekki upp.“
Forsætisráðherra:
Morgunblaðið/Kristján Þ. Jónsson
Eins og sjá má á þessari mynd, sem tekin var þegar flestir gestir á tjaldstæðunum við Laugar-
vatn höfðu haldið til síns heima, var engu líkara en um sorphauga væri að ræða.
Laugarvatn:
Tjaldstæðin eins og sorphaugar
GÍFURLEGT rusl var á tjald-
stæðunum við Laugarvatn að
lokinni verslunarmannahelg-
inni og var umhverfið víða
einna likast sorphaugum.
Að sögn Jónu Gestsdóttur, sem
rekur tjaldmiðstöðina á Laugár-
vatni, var engu líkara en ekið
hafi verið yfír allar ruslatunnur á
svæðinu eða hoppað á þeim og
ruslinu úr þeim síðan dreift út um
allt.
Mikill mannfjöldi var saman-
kominn á Laugarvatni um.helg-
ina, en þar var þó ekkert skipu-
lagt samkomuhald.
Tuttugu manna hópur vann við
að þrífa eftir tjaldgestina og lauk
því verki seint á mánudagskvöldi.
Ráðgjafarnefnd skipuð sem geri
tillögur um aðstoð við fyrirtæki
Páll segir að það sé hið versta
mál þegar vanskilavextir verði
lægri en vextir af almennum við-
skiptavíxlum þótt þetta sé ekki í
fyrsta sinn sem slíkt gerist. „Það
hafa áður komið upp aðstæður þar
sem vanskilavextir voru með hag-
stæðustu kjörum á markaðinum.
Munurinn á því sem er að gerast
nú og þá er að sennilega eru van-
Á ríkisstjómarfundi í gær til-
kynnti Þorsteinn Pálsson, for-
sætisráðherra, að hann hefði
ákveðið að skipa ráðgefandi
nefnd skipaða fulltrúum at-
vinnulífsins og stjórnarflokk-
anna. Nefndinni er ætlað að
gefa ríkisstjórninni álit annars
vegar um ráðstafanir til að
bæta rekstrarskilyrði útflutn-
ings og samkeppnisgreina, og
hins vegar ráðstafanir til að
treysta eiginfjárstöðu íslenskra
atvinnufyrirtækja. Ætlast er til
að tillögur nefndarinnar taki
mið af stefnu ríkisstjórnarinnar
um jafnvægi í verðlagsmálum
og á fjármagnsmarkaði.
Að sögn Þorsteins Pálssonar var
ákvörðun um skipan þessarar
Innlend fjármögnun ríkissjóðs:
Samband viðskiptabanka
undirbýr tillögur í dag
STJÓRN Sambands islenskra
viðskiptabanka heldur í dag
fund um viðræður þær sem
bankar og sparisjóðir hafa átt
við fjármálaráðuneytið um fjár-
mögnun ríkissjóðs. Stefán Páls-
son formaður sambandsins býst
við að á fundinum verði reynt
að sammælast um ákveðna leið
í samningum við rikissjóð um
sölu ríkisskuldabréfa. Bankar
hafa boðist til að ábyrgjast sölu
ríkisskuldabréfa fyrir allt að
3,6 milljarða króna en á móti
komi m.a. að bindiskylda ban-
kanna hjá Seðlabanka verði
lækkuð en fjármálaráðuneytið
hefur ekki viljað fallast á það.
í lánsfjáráætlun var gert ráð
fyrir að bankar keyptu ríkis-
skuldabréf fyrir 1,3 milljarða og
auk þess var gert ráð fyrir sölu
spariskírteina og ríkisvíxla á al-
mennum markaði, alls fyrir um
2,4 milljarða króna. Um mitt árið
höfðu bankar ekki keypt nein
ríkisskuldabréf og í kjölfar þess
að Seðlabankinn fékk heimild fyr-
ir hækkun bindiskyldu banka úr
13% í 15% fóru af stað óformlegar
viðræður milli lánastofnana og
fjármálaráðuneytis um fjármögn-
un ríkissjóðs.
Stefán Pálsson sagði við Morg-
unblaðið að í viðræðunum hefðu
komið fram ýmsar tillögur, m.a.
buðust bankarnir til að ábyrgjast
sölu ríkisskuldabréfa fyrir allt að
3,6 milljarða króna sem myndi þá
uppfylla innlenda lánsfjárþörf
ríkissjóðs samkvæmt lánsfjáráætl-
un og einnig brúa fyrirsjánlegan
halla ríkissjóðs, um 700 milljónir,
og lánveitingu vegna útflutnings-
bóta, um 500 milljónir. Á móti því
kæmi að bindiskylda banka hjá
Seðlabanka yrði lækkuð og spa-
riskírteini, sem bankar hefðu
ábyrgst en ekki tekist að selja
innan ákveðins tíma, yrðu talin
með eignum innan lausafjárhlut-
falls.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins telur fjármálaráðuney-
tið þetta tilboð bankanna ekki
aðgengilegt, aðallega vegna hug-
mynda um lækkun bindiskyldu.
Verið er að skoða leiðir til að ná
samkomulagi og er talið hugsan-
legt að fjármálaráðuneytið komi
með ákveðið tilboð til bankanna.
nefndar tekin í framhaldi af því
undirbúningsstarfi sem unnið hef-
ur verið að undanförnu í þeim til-
gangi að undirbúa þjóðhagsáætlun
og ráðstafanir til að bæta stöðu
útflutningsfyrirtækja, og jafn-
framt í framhaldi af heimsóknum
forsætisráðherra í atvinnufyrir-
tæki út um land ásamt viðræðum
hans við forystumenn atvinnulífs-
ins.
„Ákveðið var að setja á fót ráð-
gjafanefnd fulltrúa atvinnulífsins
og stjómarflokkanna, sem hefur
þetta tvíþætta höfuðverkefni að
koma með álit til ríkisstjómarinnar
um bætt rekstrarskilyrði, og jafn-
framt álit um ráðstafanir til að
auka eigið fé í atvinnufyrirtækj-
um. Allt þetta þarf að tengjast
þeim höfuðmarkmiðum að vinna
að hjöðnun verðbólgu og betra
jafnvægi á fjármagnsmarkaði.
Bæði stjómvöldum og forystu-
mönnum er ljóst að mjög þarf að
hraða allri vinnu á þessu sviði, og
treysta þarf samráð og samvinnu
stjómvalda og atvinnulífsins, því
hér er mikill vandi á höndum, og
þessi nefndarskipun er liður í því,
en þó hefur ekki verið ákveðin
nein dagsetning varðandi það hve-
nær nefndin á að ljúka störfum,"
sagði Þorsteinn Pálsson, forsætis-
ráðherra.
INNLENT
r.uUtðl.J nu/liúd i bu ÓXívj.é •u.v iniitib.ral Á' .nui
.TU:*11.131 DI /gö liJ inÍ!M[ li Ó.JÍ.T! ilf.
Nefndina skipa þeir Ágúst Ein-
arsson frá Sambandi fiskvinnslu-
stöðva, Guðjón B. Ólafsson frá
Sambandi íslenskra samvinnufé-
laga, Víglundur Þorsteinsson frá
Félagi íslenskra iðnrekenda, Jón
Sigurðarson frá Framsóknar-
flokki, Einar Oddur Kristjánsson
frá Sjálfstæðisflokki, en hann er
formaður nefndarinnar, og frá
Alþýðuflokki er að vænta tilnefn-
ingar fulltrúa í nefndina í dag.
Viðskjptaráðherra:
Boðar fund
um verð-
tryggingu
Viðskiptaráðherra hefur
boðað fulltrúa lánastofnana,
verðbréfasjóða og viðkom-
andi ráðuneyta á fund um
fjármagnsmarkaðinn föstu-
daginn 12. ágúst. Aðal um-
ræðuefnið verður skýrsla sú
sem verðtryggingarnefnd
skilaði nýlega um verðtrygg-
ingu fjárskuldbindinga og
hugsanlegar breytingar á
henni.
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra kynnti þennan fund á
ríkisstjórnarfundi í gær. Fund-
arboð hefur verið sent til stjórn-
ar Sambands íslenskra við-
skiptabanka, stjórnar Sambands
sparisjóðanna, lífeyrissjóða,
fjárfestingarlánasjóða og stjórn-
ar Verðbréfaþings Islands.