Morgunblaðið - 03.08.1988, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 03.08.1988, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988 41 Kaupfélagsstj óra- staðan ekki aug- lýst opinberlega STJÓRN Kaupfélags Eyfirðinga hyggst ráða nýjan kaupfélags- stjóra sem fyrst í stað Vals Arnþórssonar sem tekur við banka- stjórastöðu í Landsbanka íslands um áramót. Jóhannes Sigvalda- son stjórnarformaður KEA sagði í samtali við Morgunblaðið að stjórnin gerði sér vonir um að hægt yrði að ráða eftirmann Vals fyrir miðjan ágúst og eru því tvær vikur til stefnu. Jóhannes sagði stjómina hafa komið saman sl. miðvikudag til að ræða um hvemig standa bæri að ráðningu nýs kaupfélagsstjóra og hefðu menn verið sammála um að auglýsa stöðuna ekki, htldur yrði manns í stöðuna leitað með öðrum hætti. Jóhannes sagði heppilegast að nýr kaupfélags- stjóri gæti hafíð störf sem fyrst til að setja sig inn í málefni KEA áður en Valur hættir endanlega. Ekki vildi Jóhannes ræða um hvort viðræður stæðu yfír við hugsan- lega eftirmenn eða hvort valið stæði á milli margra. Á stjómarfundinum sl. miðviku- dag var jafnframt rekstrarstaða KEA rædd og sagði Jóhannes ljóst að róðurinn yrði mun erfðari í ár en í fyrra. Þess má geta að hagn- aður af rekstri KEA á síðasta ári nam rúmum 50 milljónum króna. Kaupfélag Eyfirðinga rekur frystihús í Hrísey og á Dalvík auk saltfísksöltunar í Grímsey. Jó- hannes kvað ástandið hvað verst í frystingunni, en það væri ekkert nýtt. Fjármagns- og launakostn- aður hefur hækkað mikið að und- anfömu, en gengið hefur ekki lækkað eins mikið og nauðsynlegt er til að jafna þetta. Frystihús alls staðar á landinu ættu í miklum erfíðleikum þessa dagana og KEA lyti sömu lögmálum og önnur fyr- irtæki í landinu. Reksturinn er mjög þungur þó engar tölur liggi fyrir um það enn sem komið er. Samdráttur hefur átt sér stað viða í þjóðfélaginu og höfum við sér- staklega orðið varir við það í versl- un hjá ókkur enda fer hans að gæta um leið og útflutningsat- vinnuvegirnir standa ekki undir sér. Morgunblaðið/Rúnar Þór Bjömsson Vinkonumar Helga Jónsdóttir og Eydís Þórarinsdóttir era á hestum á sumrin og á skíðum á veturaa. Morgunblaðið/Rúnar Þðr Björnsson Magga Lena, Sigrún og Heiða skemmtu sér konunglega i grillveisl- unni. og Eydís Þórarinsdóttir, báðar 12 ára, sögðust þrisvar sinnum hafa farið á hestanámskeið og væri hestamennskan þeirra líf og yndi á sumrin en skíðaiðkunin heillaði þær á vetuma. „Ef maður byijar einu sinni í hestamennskunni, hættir maður ekki auðveldlega. Maður fær gjörsamlega æði fyrir þessu." Helga vinnur í sveit í sum- ar að Kambi í Eyjafírði og ætlaði hún að fara að festa kaup á hesti handa sér. Eydís sagðist hinsvegar vera í bænum við bamapössun. AF ERLENDUM VETTVANGI Eftir PÉTUR PÉTURSSON Innflytjendur í Svíþjóð: Miðflokkurinn í vanda staddur vegna viðhorfs til inflytjenda ÞING Miðflokksins sænska er nýafstaðið og þar voru mörg mikil- væg mál rædd svo sem umhverfisverndarmál, fjölskyldumál og öryggismál þjóðarinnar en línurnar voru lagðar fyrir lokasprett kosningabaráttunnar og kraftar flokksmanna sameinaðir til átaka. Það sem mest hrærði þó upp í þingfulltrúunum var frumvarp um að takmarka aðgang útlendinga að landinu. Þetta frumvarp var í óþökk alls þingheims og nánast litið á það sem helgispjöll, enda var það fellt samhljóða af öllum fulltrúunum, fjögur hundruð að tölu. Kosið um búsetu f lótta- manna í Sjöbo Sven Olle Olsson, sem bar tillög- una fram, er orðinn lands- þekktur fyrir afstöðu sína til inn- flytjendastefnu stjómvalda. Hann og flokksbræður hans í Sjöbo, litlu bæjarfélagi á Skáni, komu því í gegn í bæjarstjóm að í næstu kosn- ingum, í september nk., sem bæði em þingkosningar og bæjar- og sveitarstjómarkosningar, verður í leiðinni lagt undir dóm kjósenda, hvort taka eigi við fleiri flótta- mönnum í bæjarfélagið. Þetta hef- ur vakið mikla athygli, en stjóm flokksins er alls ekki þakklát fyrir það. Sven Olle var ekki einn af reglu- legum fulltrúum á þingi Miðflokks- ins, en notaði rétt sinn sem flokks- maður til að leggja fram tillögu sína og skýra mál sitt fyrir þing- heimi. Þar sagði hann, eins og oft áður, að ótækt væri að hleypa um 20 þúsund manns inn í landið ár hvert, bæði með tilliti til Svía sjálfra og einnig innflytjendanna, sem oft koma sem flóttamenn og þurfa að bíða í upp undir tvö ár eftir ákvörðun stjómvalda um það hvort þeir fái heimild til að setjast að { landinu. En hann hefur þó mestar áhyggjur af sænskri menn- ingu og samfélagsháttum. Hann telur að hin framandi menningar- áhrif, sem þessir hópar komi með, hafí neikvæð áhrif og valdi félags- legum og menningarlegum vanda- málum af ýmsu tagi. Samfélagið þurfí oftast að halda þessu fólki uppi og stór hluti þess hneigist til afbrota. „Þetta getur ekki gengið til langframa," segir Sven Olle, sem gerði sér grein fyrir að tillaga hans mundi ekki ná fram að ganga á þessu flokksþingi. Að enginn full- trúanna fylgdi honum kom honum þó á óvart. „En það kemur að því,“ sagði hann, „að menn sjá að eitt- hvað verður að gera, ef ekki á illa að fara.“ Þingheimi var mjög létt þegar hinn lágvaxni og einþykki bóndi yfírgaf þingið degi fyrir lok þess og fátt var um kveðjur. Ekki lengur Ijós- hærðir og bláeygðir Afstaða hans og aðgerðir eru mikill þymir í augum leiðandi manna innan Miðflokksins, sem fínnst hann hafi komið óorði á flokkinn og kunni að skaða hann í þeim kosningum sem nú em á næsta leiti. Ummæli þessa „hróp- anda í eyðimörkinni" fyrr í vetur ollu miklum úlfaþyt innan flokks- ins. Hann sagði þá að með núver- andi stefnu væri hætta á að fáir I næstu kynslóð Svía yrðu ljós- hærðir og bláeygðir. Hann líkir núverandi stefnu við það að verið sé að gefa landið. „Félagsleg að- stoð við þetta aðflutta fólk er ekkert annað en að við borgum því jafnvel fyrir að taka landið frá okkur,“ hefur hann sagt. Formaðurinn reynir að ryðja flokkinn Formaður flokksins, Olof Jo- hansson, hefur sagt að þessi og önnur ummæli flokksbróðurins frá Sjöbo séu { ætt við kynþátta- fordóma og blási í glæður þess kynþáttahaturs sem þrífíst undir niðri í skúmaskotum samfélags- Olof Johansson formaður sænska Miðflokksins. ins. Formaðurinn hefur gert allt sem í hans valdi stendur til að gera hann brottrækan en mistek- ist vegna þess að héraðsstjóminni á Skáni fínnst það ekki forsvaran- leg vinnubrögð að reka mann þótt hann hafí aðra stefnu en for- ysta flokksins í þessum mála- flokki. Miðflokksmenn sem sæti eiga í sveitarstjóminni I Sjöbo styðja við bakið á Sven Olle sem hefur verið forseti bæjarstjómar þar í 12 ár og segja að verði hann látinn fara væri eðlilegast að vísa þeim einnig úr flokknum. Svo virðist einnig sem hann njóti tölu- verðs stuðnings fólks sem annars lætur ekki mikið á sér bera í opin- berri umræðu um stefnuna í inn- flytjendamálum og aðstoð við flóttamenn sem leita á náðir Svía. Flokksformaðurinn situr því uppi með Sven Olle og á greinilega erfítt með að kyngja því. Sterk staða í heimabyggð Það má segja að mikið hafí mætt á bónda þessum sem alls ekki virðist þrífast í sviðsljósinu. En hann hikar hvergi og það er eins og að stökkva vatni á gæs að saka hann um kynþáttahatur. Hann telur það fjarri sanni og vill fá umræðu um málið. Hann segist ekki hafa hugsað sér að segja skilið við stjómmálin í bráð og hefur sterka stöðu meðal mið- flokksmanna í Sjöbo. Heimsóknir háttsettra Varaformaður flokksins, Karin Söder, hefur heimsótt Sjöbo og flutt boðskap sinn um einhuga stuðning við flóttamenn og fjöl- skyldur þeirra sem leita til Svíþjóðar um hæli. Þá hefur kon- ungsijölskyldan, sem annars held- ur sér vandlega utan stjómmála, lagt sitt af mörkum til að hafa áhrif á almenningsálitið í Sjöbo. Prinsessan, systir konungsins, var þar á ferð og hélt fyrirlestur. Ungir prestar hafa beitt sér fyrir samræðum og auknum samskipt- um milli ólíkra kynþátta og tekið afstöðu með innflytjendum, en fengið andbyr og kaldar kveðjur frá safnaðarsú'óm. Kirkjan sem slík hefur þó tekið afstöðu með ungum prestum í Sjöbo og biskup- inn í Lundi er einn af þeim sem farið hafa þangað til að leggja orð í belg. Sven Olle Olsson. Lýðræði eða mannúð Sven Olle segir að ekki sé að marka hvemig flokksbræðumir bregðist við á flokksþinginu nú þegar fjölmiðlar vaki yfír hverri hreyfíngu. Hann segist ekki taka það of nærri sér þótt allir fulltrú- ar hafí greitt atkvæði gegn tillögu hans því að hann viti að sumir þeirra hugsi svipað og hann. „Það kemur fram í kosningunum hver vilji fólks er,“ segir hann. Hann segir að ekkert sé að marka skoð- anakannanir um þetta mál, því það sé aðeins í kjörklefanum, þar sem fólk greiðir atkvæði sitt ieyni- lega, sem raunveruleg afstaða þess kemur fram. Þess vegna hefur hann lagt svo mikla áherslu á að íbúar Sjöbo fái sjálfír að ákveða hvort þeir eigi að fá út- lendinga inn í samfélag sitt, en það sé ekki ákveðið af kerfí sem stjómist af öðrum hugmyndum og hvötum sem era venjulegu fólki framandi. Ekki era þó allir stjóm- málamenn í Sjöbo á því að tillag- an um sérstaka atkvæðagreiðslu íbúanna sé sigur fyrir lýðræðið. Raddir úr röðum annarra flokka, bæði Hægri flokksins og Jafnað- armannaflokksins, hafa sagt til- iöguna sjálfa skammarblett á bæjarfélaginu því það sé aldrei hægt að greiða atkvæði um það hvort hjálpa eigi bróður eða syst- ur í neyð. Pétur Pétursson er fréttaritarí Morgunblaðsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.