Morgunblaðið - 03.08.1988, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988
41
Kaupfélagsstj óra-
staðan ekki aug-
lýst opinberlega
STJÓRN Kaupfélags Eyfirðinga hyggst ráða nýjan kaupfélags-
stjóra sem fyrst í stað Vals Arnþórssonar sem tekur við banka-
stjórastöðu í Landsbanka íslands um áramót. Jóhannes Sigvalda-
son stjórnarformaður KEA sagði í samtali við Morgunblaðið að
stjórnin gerði sér vonir um að hægt yrði að ráða eftirmann Vals
fyrir miðjan ágúst og eru því tvær vikur til stefnu.
Jóhannes sagði stjómina hafa
komið saman sl. miðvikudag til
að ræða um hvemig standa bæri
að ráðningu nýs kaupfélagsstjóra
og hefðu menn verið sammála um
að auglýsa stöðuna ekki, htldur
yrði manns í stöðuna leitað með
öðrum hætti. Jóhannes sagði
heppilegast að nýr kaupfélags-
stjóri gæti hafíð störf sem fyrst
til að setja sig inn í málefni KEA
áður en Valur hættir endanlega.
Ekki vildi Jóhannes ræða um hvort
viðræður stæðu yfír við hugsan-
lega eftirmenn eða hvort valið
stæði á milli margra.
Á stjómarfundinum sl. miðviku-
dag var jafnframt rekstrarstaða
KEA rædd og sagði Jóhannes ljóst
að róðurinn yrði mun erfðari í ár
en í fyrra. Þess má geta að hagn-
aður af rekstri KEA á síðasta ári
nam rúmum 50 milljónum króna.
Kaupfélag Eyfirðinga rekur
frystihús í Hrísey og á Dalvík auk
saltfísksöltunar í Grímsey. Jó-
hannes kvað ástandið hvað verst
í frystingunni, en það væri ekkert
nýtt. Fjármagns- og launakostn-
aður hefur hækkað mikið að und-
anfömu, en gengið hefur ekki
lækkað eins mikið og nauðsynlegt
er til að jafna þetta. Frystihús
alls staðar á landinu ættu í miklum
erfíðleikum þessa dagana og KEA
lyti sömu lögmálum og önnur fyr-
irtæki í landinu. Reksturinn er
mjög þungur þó engar tölur liggi
fyrir um það enn sem komið er.
Samdráttur hefur átt sér stað viða
í þjóðfélaginu og höfum við sér-
staklega orðið varir við það í versl-
un hjá ókkur enda fer hans að
gæta um leið og útflutningsat-
vinnuvegirnir standa ekki undir
sér.
Morgunblaðið/Rúnar Þór Bjömsson
Vinkonumar Helga Jónsdóttir og Eydís Þórarinsdóttir era á hestum
á sumrin og á skíðum á veturaa.
Morgunblaðið/Rúnar Þðr Björnsson
Magga Lena, Sigrún og Heiða skemmtu sér konunglega i grillveisl-
unni.
og Eydís Þórarinsdóttir, báðar 12
ára, sögðust þrisvar sinnum hafa
farið á hestanámskeið og væri
hestamennskan þeirra líf og yndi
á sumrin en skíðaiðkunin heillaði
þær á vetuma. „Ef maður byijar
einu sinni í hestamennskunni,
hættir maður ekki auðveldlega.
Maður fær gjörsamlega æði fyrir
þessu." Helga vinnur í sveit í sum-
ar að Kambi í Eyjafírði og ætlaði
hún að fara að festa kaup á hesti
handa sér. Eydís sagðist hinsvegar
vera í bænum við bamapössun.
AF ERLENDUM VETTVANGI
Eftir PÉTUR PÉTURSSON
Innflytjendur í Svíþjóð:
Miðflokkurinn í vanda staddur
vegna viðhorfs til inflytjenda
ÞING Miðflokksins sænska er nýafstaðið og þar voru mörg mikil-
væg mál rædd svo sem umhverfisverndarmál, fjölskyldumál og
öryggismál þjóðarinnar en línurnar voru lagðar fyrir lokasprett
kosningabaráttunnar og kraftar flokksmanna sameinaðir til átaka.
Það sem mest hrærði þó upp í þingfulltrúunum var frumvarp um
að takmarka aðgang útlendinga að landinu. Þetta frumvarp var í
óþökk alls þingheims og nánast litið á það sem helgispjöll, enda
var það fellt samhljóða af öllum fulltrúunum, fjögur hundruð að tölu.
Kosið um búsetu f lótta-
manna í Sjöbo
Sven Olle Olsson, sem bar tillög-
una fram, er orðinn lands-
þekktur fyrir afstöðu sína til inn-
flytjendastefnu stjómvalda. Hann
og flokksbræður hans í Sjöbo, litlu
bæjarfélagi á Skáni, komu því í
gegn í bæjarstjóm að í næstu kosn-
ingum, í september nk., sem bæði
em þingkosningar og bæjar- og
sveitarstjómarkosningar, verður í
leiðinni lagt undir dóm kjósenda,
hvort taka eigi við fleiri flótta-
mönnum í bæjarfélagið. Þetta hef-
ur vakið mikla athygli, en stjóm
flokksins er alls ekki þakklát fyrir
það.
Sven Olle var ekki einn af reglu-
legum fulltrúum á þingi Miðflokks-
ins, en notaði rétt sinn sem flokks-
maður til að leggja fram tillögu
sína og skýra mál sitt fyrir þing-
heimi. Þar sagði hann, eins og oft
áður, að ótækt væri að hleypa um
20 þúsund manns inn í landið ár
hvert, bæði með tilliti til Svía
sjálfra og einnig innflytjendanna,
sem oft koma sem flóttamenn og
þurfa að bíða í upp undir tvö ár
eftir ákvörðun stjómvalda um það
hvort þeir fái heimild til að setjast
að { landinu. En hann hefur þó
mestar áhyggjur af sænskri menn-
ingu og samfélagsháttum. Hann
telur að hin framandi menningar-
áhrif, sem þessir hópar komi með,
hafí neikvæð áhrif og valdi félags-
legum og menningarlegum vanda-
málum af ýmsu tagi. Samfélagið
þurfí oftast að halda þessu fólki
uppi og stór hluti þess hneigist til
afbrota. „Þetta getur ekki gengið
til langframa," segir Sven Olle, sem
gerði sér grein fyrir að tillaga hans
mundi ekki ná fram að ganga á
þessu flokksþingi. Að enginn full-
trúanna fylgdi honum kom honum
þó á óvart. „En það kemur að því,“
sagði hann, „að menn sjá að eitt-
hvað verður að gera, ef ekki á illa
að fara.“ Þingheimi var mjög létt
þegar hinn lágvaxni og einþykki
bóndi yfírgaf þingið degi fyrir lok
þess og fátt var um kveðjur.
Ekki lengur Ijós-
hærðir og bláeygðir
Afstaða hans og aðgerðir eru
mikill þymir í augum leiðandi
manna innan Miðflokksins, sem
fínnst hann hafi komið óorði á
flokkinn og kunni að skaða hann
í þeim kosningum sem nú em á
næsta leiti. Ummæli þessa „hróp-
anda í eyðimörkinni" fyrr í vetur
ollu miklum úlfaþyt innan flokks-
ins. Hann sagði þá að með núver-
andi stefnu væri hætta á að fáir
I næstu kynslóð Svía yrðu ljós-
hærðir og bláeygðir. Hann líkir
núverandi stefnu við það að verið
sé að gefa landið. „Félagsleg að-
stoð við þetta aðflutta fólk er
ekkert annað en að við borgum
því jafnvel fyrir að taka landið frá
okkur,“ hefur hann sagt.
Formaðurinn reynir
að ryðja flokkinn
Formaður flokksins, Olof Jo-
hansson, hefur sagt að þessi og
önnur ummæli flokksbróðurins
frá Sjöbo séu { ætt við kynþátta-
fordóma og blási í glæður þess
kynþáttahaturs sem þrífíst undir
niðri í skúmaskotum samfélags-
Olof Johansson formaður
sænska Miðflokksins.
ins. Formaðurinn hefur gert allt
sem í hans valdi stendur til að
gera hann brottrækan en mistek-
ist vegna þess að héraðsstjóminni
á Skáni fínnst það ekki forsvaran-
leg vinnubrögð að reka mann
þótt hann hafí aðra stefnu en for-
ysta flokksins í þessum mála-
flokki. Miðflokksmenn sem sæti
eiga í sveitarstjóminni I Sjöbo
styðja við bakið á Sven Olle sem
hefur verið forseti bæjarstjómar
þar í 12 ár og segja að verði hann
látinn fara væri eðlilegast að vísa
þeim einnig úr flokknum. Svo
virðist einnig sem hann njóti tölu-
verðs stuðnings fólks sem annars
lætur ekki mikið á sér bera í opin-
berri umræðu um stefnuna í inn-
flytjendamálum og aðstoð við
flóttamenn sem leita á náðir Svía.
Flokksformaðurinn situr því uppi
með Sven Olle og á greinilega
erfítt með að kyngja því.
Sterk staða
í heimabyggð
Það má segja að mikið hafí
mætt á bónda þessum sem alls
ekki virðist þrífast í sviðsljósinu.
En hann hikar hvergi og það er
eins og að stökkva vatni á gæs
að saka hann um kynþáttahatur.
Hann telur það fjarri sanni og
vill fá umræðu um málið. Hann
segist ekki hafa hugsað sér að
segja skilið við stjómmálin í bráð
og hefur sterka stöðu meðal mið-
flokksmanna í Sjöbo.
Heimsóknir háttsettra
Varaformaður flokksins, Karin
Söder, hefur heimsótt Sjöbo og
flutt boðskap sinn um einhuga
stuðning við flóttamenn og fjöl-
skyldur þeirra sem leita til
Svíþjóðar um hæli. Þá hefur kon-
ungsijölskyldan, sem annars held-
ur sér vandlega utan stjómmála,
lagt sitt af mörkum til að hafa
áhrif á almenningsálitið í Sjöbo.
Prinsessan, systir konungsins, var
þar á ferð og hélt fyrirlestur.
Ungir prestar hafa beitt sér fyrir
samræðum og auknum samskipt-
um milli ólíkra kynþátta og tekið
afstöðu með innflytjendum, en
fengið andbyr og kaldar kveðjur
frá safnaðarsú'óm. Kirkjan sem
slík hefur þó tekið afstöðu með
ungum prestum í Sjöbo og biskup-
inn í Lundi er einn af þeim sem
farið hafa þangað til að leggja
orð í belg.
Sven Olle Olsson.
Lýðræði eða mannúð
Sven Olle segir að ekki sé að
marka hvemig flokksbræðumir
bregðist við á flokksþinginu nú
þegar fjölmiðlar vaki yfír hverri
hreyfíngu. Hann segist ekki taka
það of nærri sér þótt allir fulltrú-
ar hafí greitt atkvæði gegn tillögu
hans því að hann viti að sumir
þeirra hugsi svipað og hann. „Það
kemur fram í kosningunum hver
vilji fólks er,“ segir hann. Hann
segir að ekkert sé að marka skoð-
anakannanir um þetta mál, því
það sé aðeins í kjörklefanum, þar
sem fólk greiðir atkvæði sitt ieyni-
lega, sem raunveruleg afstaða
þess kemur fram. Þess vegna
hefur hann lagt svo mikla áherslu
á að íbúar Sjöbo fái sjálfír að
ákveða hvort þeir eigi að fá út-
lendinga inn í samfélag sitt, en
það sé ekki ákveðið af kerfí sem
stjómist af öðrum hugmyndum
og hvötum sem era venjulegu fólki
framandi. Ekki era þó allir stjóm-
málamenn í Sjöbo á því að tillag-
an um sérstaka atkvæðagreiðslu
íbúanna sé sigur fyrir lýðræðið.
Raddir úr röðum annarra flokka,
bæði Hægri flokksins og Jafnað-
armannaflokksins, hafa sagt til-
iöguna sjálfa skammarblett á
bæjarfélaginu því það sé aldrei
hægt að greiða atkvæði um það
hvort hjálpa eigi bróður eða syst-
ur í neyð.
Pétur Pétursson er fréttaritarí
Morgunblaðsins.