Morgunblaðið - 03.08.1988, Blaðsíða 57
komið hafa til umfjöllunar í seinni
tíð, sem minna að sínu leyti á hve
tímabært er orðið að breyta verk-
takaakkorðinu í heilbrigðisþjón-
ustunni.
Tryggingastofnun viðurkenndi
eiginlega að samninganefnd henn-
ar hefði samið af sér sumarið 1985
þegar nýir sérfræðingataxtar tóku
gildi. A.m.k. blöskraði sjúkratrygg-
ingadeildinni svo reikningarnir að
það var hætt við að borga — og
eitthvað krukkað í gjaldskrána áð-
ur en opnað var fyrir sérfræðinga-
kranann á ný. Síðan sækir í sama
farið. Eins og menn muna kannski
var ríkisendurskoðandi greinilega
miður sín í fjölmiðlaviðtölum í jan-
úar í vetur. Bæði af því að það var
lokað á starfsmenn hans í nafni
þagnarskyldu þegar þeir ætluðu að
athuga hvað var á bak við reikn-
inga heilsugæslulæknis. En ekki
síður vegna þess hve háir reikning-
ar bárust mánaðarlega frá þeim
sem eru í akkorðinu, eða á bilinu
300—900 þúsund. Upphæð sem ber
að skoða í ljósi þess að meirihluti
sérfræðinganna, sem senda þessa
reikninga, er á föstum launum við
einhvem spítala, þetta er bara
ríkishluti aukavinnunnar og sjúkl-
ingahlutinn ótalinn.
Hvað sem líður hæpnum reikn-
ingum frá heilsugæslustöðvum þá
virðist enn meiri ástæða til að at-
huga með gagnrýni einkarekstur á
kostnað ríkisins í Landakotsspítala.
Hvers vegna fær yfírlæknir sem
rekur rannsóknastofu fyrir eiginn
reikning föst laun frá ríkinu þar á
ofan? Hvers vegna rekur ríkið ekki
stofuna í stað þess að ausa milljón-
um í þennan millilið? Hvers vegna
ráða hagsmunir lækna með einka-
rekstur á kostnað ríkisins hús-
næðiskaupum og leigukjörum
spítalans? Og hvers vegna fá þeir
vildarkjör hjá lyfjabúri hans?
Allt sannar þetta ógöngur sem
úrelt og óréttlátt kerfi leiðir fólk
í. Það gerir stétt, sem þarf öðrum
fremur á því að halda að njóta
trausts, tortryggilega í augum al-
mennings. Vekur gremju hinna lág-
launuðu í heilbrigðiskerfinu. Og nú
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988
8S
57
er fjácmálaráðherra líka nóg boðið
eftir að hafa skoðað dæmið frá eina
spítalanum sem fær að nota ákvæð-
isvinnukerfíð. Það er ekki nema
von. Kerfið er óréttlætanlegt. M.a.
má skoða það í ljósi upplýsinga frá
Davíð Á. Gunnarssyni, fram-
kvæmdastjóra ríkisspítala, sem
Tíminn birti 22. þ.m.: „Davíð sagði
að ríkisspítalar hafí farið innan við
1% fram úr fjárlögum á síðasta ári
en talað væri um að Landakot hafi
farið 15% fram úr áætlun."
Að lokum vil ég ítreka þetta:
Það er fráleit skipan að kaupa
læknisþjónustu innan opinbers heil-
brigðiskerfís eins og verið væri að
kaupa vinnu af verktaka eða vinnu
samkvæmt gjaldskrá á markaði.
Meginástæðan fyrir því að það
gengur ekki er sú að þá ræður
kaupandi læknisþjónustunnar,
ríkissjóður fyrir okkar hönd, í raun-
inni ekki hve mikið hann kaupir.
Sá sem selur þjónustuna ræður
meira um það. Frá því að sjúkling-
ur eða forráðamaður barns kemur
til læknis ræður hann öllu um hvað
gert er. Fjölda rannsókna, aðgerða
og hversu margar endurkomurnar
verða. Ég þykist hafa fært hér
sterk rök fyrir því að af þeim sök-
um og mörgum öðrum sé ekki rétt-
lætanlegt að láta lækna vinna eins
og hveija aðra vertaka. Það er
löngu tímabært að fara að brölta
upp úr feninu sem þetta hefur leitt
okkur í. Þannig að stefnt verði að
því að allir læknar taki föst laun
eins og aðrar heilbrigðisstéttir.
Ég veit að fjármálaráðherra skil-
ur þetta og reynir að láta ekki plata
sig. En enn er eins og heilbrigðis-
ráðherra sé að hugsa sig um. Von-
andi áttar hann sig á því að það
þarf meira til að tryggja framtíð
góðrar heilbrigðisþjónustu en harða
skattheimtu. Það þarf líka að loka
fyrir sjálfvirkt rennsli úr sjóðnum
sem á að standa undir henni og
tryggja heilbrigðisstéttum jafn-
rétti. Einkarekstur á kostnað ríkis-
ins á ekki rétt á sér.
Höfundur er fræðalufulltrúi.
Hefur fjöldinn afstöðu?
Erlendar bækur
Björn S. Stefánsson
Jon Elster og Aanund Hylland
(ritst.): Foundations of social
choice theory. Cambridge Uni-
versity Press og Universitets-
forlaget 1986.
Bók þessi er annað bindi í ritröð-
inni „Studies in rationality and
social change" sem Norðmennirnir
Jon Elster og Gudmund Hernes
ritstýra, og um leið fjórða bindi í
norskri ritröð, „Demokrati og sam-
funnsstyring".
Fjallað er um það, hvort rök séu
til að telja að hópur manna eða
heilt þjóðfélag hafí óskir eða vilji
eitt frekar en annað, eða hvort
slíkt eigi einungis heima í huga
einstaklinga. Forsenda lýðræðis
er að fólk sem heild hafi afstöðu
til mála í forgangsröð, en það er
bundið miklum vandkvæðum að
skilgreina slíka röð. Vandkvæðin
við það komu skýrt fram árið
1950, þegar Kenneth Arrow, síðar
Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði,
setti fram fræga kenningu um það
sem væri ómögulegt í þessu sam-
bandi og orðað hefur verið svo
fyrirvaralaust, að lýðræði sé
óframkvæmanlegt.
Greinar bókarinnar fjalla um
rök Arrows og síðari rit um málið.
Meðal annarra efna sem rædd eru
er hvort rök séu til að bera saman
nytsemi máls fyrir tvo eða fleiri
einstaklinga. Nokkrir höfundanna
ræða hvort hugsa megi út for-
gangsröðun sem byggist á allt
öðru en gert er ráð fyrir í ómögu-
leikakenningu Arrows. Höfund-
arnir eru norskir, enskir og banda-
rískir, lærðir í heimspeki, hag-
fræði og stjórnmálafræði.
ÁTAKILANDGRÆÐSLU
LAUGAVEG1120,105 REYKJAVlK
SiMI: (91)29711
Hlaupareikningur 251200
Búnaðarbankinn Hellu
m «o
«1 ftj
E I5
# -2
k. co
O
MERKI UM GOBAN UTBUNAB
NÍÐSTERK
ÞUNGAVIGTARLÍNA
Fœst í nœstu sportvöruverslun.
HAGSTÆÐASTA VERÐIÐ
Óvenju rúmgóöur og ótrúlega vel búinn fjölskyldubíll sem hentar svo sannarlega vel
fyrir íslenskar aöstæöur.
Þú getur valið um fimm mismunandi útgáfur af Monza, allt frá Monza SL/E
með 1,8 lítra vél, beinskiptingu og vökvastýri
til lúxusbílsins Monza Classic S/E með 2 lítra vél
og sjálfskiptingu, auk alls lúxusbúnaðar og meira að segja
fullkomnu þjófavarnarkerfi,
Chevrolet Monza SL/E 1,8 lítra vél beinskiptur/sjálfskiptur
Chevrolet Monza SL/E 2,0 lítra vél sjálfskiptur__________________
Chevrolet Monza Classic 2,0 lítra vél beinskiptur/sjálfskiþtur
Öll hugsanleg greiðslukjör t.d.:
25% út - afgangur á 30 mán. 50% út - afgangur á 24 mán. 75% út - afgangur á 6-8 mán.
Sumarkjör okkar á Chevrolet Monza þýða - þrátt fyrir gylliboö annarra -
hagstæöasta veröið á markaðnum í dag
VERÐ FRÁ KR. 614.000-GERIÐVERÐSAMANBURÐ