Morgunblaðið - 07.08.1988, Side 8

Morgunblaðið - 07.08.1988, Side 8
 8 B f( Bremen: Sjómönnum gefnir smokkar Bremen. Reuter. Erlendum sjómönnum sem koma til hafnar í Bremen munu fram- vegis fá gefna smokka til að stemma stigu við útbreiðslu al- næmis. Mathias Gruhl, yfirlæknir Brem- en-hafnar, kynnti fyrstur manna þessa hugmynd og taldi þetta fyrir- komúlag geta komið í veg fyrir útbreiðslu sjúkdómsins ógnvæn- lega. Er sjómenn koma til hafnar fá þeir afhentan bækling sem ber yfirskriftina „Alnæmi-Taktu enga áhættu". Með fylgir ókeypis smokk- ur. Fyrirhugað er að þýða bækling- inn yfir á rússnesku, spænsku og frönsku en enska útgáfan er þegar tilbúin. Að sögn Mathias Gruhls er brýnt að rússneska útgáfan verði tilbúin sem fyrst en sovéskir sjó- menn eru tíðir gestir í Bremen enda er borgin stundum nefnd „Litla Leníngrad" af þeim sökum. frá EGO-tölvum Blaser laserprentari Hagkvæmasta ogódýrasta lausnin í dag - Samhæfður við HP Laser Jet II, Epson FX og Diablo 630. - Prentar á A4, glærur, fólíó, umslögoe límmiða. - Prentar 8 blaðsíður á mínútu. - Meðaltalskostnaður pr. bls. kr. 0,99. - Grafísk upplausn á A4 300x300 pt. pr. tommu. - Leturgerðir (fontar): 7 gerðir inn- byggðar og möguleiki á allt að 128 leturgerðum. Möguleiki á leturhylki. - Blaðamötun: Sjálfvirk og handmötuð. - Fullkomið stjórnborð (snertitaíkkar) til vinnslustýringa og kerfisvals. - 16 stafa (LCD) valskjár í stjórnborði. - Minni 1 Mb stækkanlegt í 5 Mb. - Tengimöguleikar: Centronics sam- síðatengi, RS232C raðtengi og RS422 raðtengi. - 32 bita MC68000 örgjörvi. - Með prentaranum fylgir vinnslusett fyrir 3000 blaðsíður. - Eins árs'ábyrgð. - Einfaldur. þægilegur og hljóðlátur í notkun. - Valkosturinn í dag. Allar nánari upplýsingar veita sölumenn okkar Einkasöíuaðili á íslandi: EGO-tölvur, Garðatorgi 5, 210 Garðabæ, símar söludeildar 91 -656530 og91 -656510. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson, Vestmannaeyjum Steindepilskarl með góða máltíð í nefinu. í 8. riti Landverndar um fugla segir að almenn rök fyrir fuglafriðun um 1880 hvað spörfugla áhrærði væri „...að það þætti fullsannað að þeir gjörðu hið mesta gagn með því að eyða ormum og öðrum smákvikind- um“ (Alþt. 1877, 11:550) Steindepill: Stygg- steinklappa STEINDEPILLINN er af spör- fuglaættum. Karlfuglinn er fagurlega skreyttur á sumrin, með svartar vanga- og væng- fjaðrir og hvítur á enni og bringu. Kvenfuglinn er ekki eins litskrúðugur, brúnleitur á baki og vængjum. Steindepillinn er skordýraæta eins og kemur glögglega fram á mynd- unum. Bækistöðvar hans eru aðal- lega í holtum og neðarlega í skriðurunnum fjallshlíðum en hann verpir þó lítið fyrir ofan 400 metra hæð. Hann býr sér til hreið- ur milli steina og ef hann verpir við mannabústaði er hreiðrið gjarnan í hlöðnum steinveggjum eða öðru upphlöðnu grjóti. Hann verpir fremur seint miðað við aðra spörfugla, ekki fyrr en um mánað- armót maí-júní, um svipað leyti og maríuerlan. Steindepill er styggur mjög og Steinklappan gægist út um hreiðurop í grjóthleðslu, skreyttu blöðum ljónslappans. Hún horfir vökulum augum yfir næsta nágrenni og spyr ef til vill sjálfan sig: „Er óhætt að fára lengra?“ Kvenkyns steindepill með bús- tið og matarlegt fiðrildi, tilefni til veislu ungunum til handa. verði hann var mannaferða hneig- ir hann sig og skvettir stélinu ótt og títt. Jafnframt gefur hann frá sér hvellt hljóð, ekki ólíkt því að klappað sé á stein. Þaðan dregur hann nafnið steinklappa. Hann er alger farfugl eins og maríuerlan og ferðast reyndar til sömu svæða og hún, þ.e. til ofan- verðrar vesturstrandar Afríku. Steindeplar halda héðan í önd- verðum ágústmánuði fram í miðj- an septembermánuð. Slæðingur sést þó fram eftir október. Stein- deplar eiga ættir að rekja til eyði- marka Afríku og eru því vanir í aldanna rás að þreyta langflug. Þeir eru mun harðgerri en maríu- erlan og afföll steindepilsins á þessari löngu leið eru miklu minni. Gamlar þjóðsögur halda því fram að steindepillinn geti brugð- ið sér í tilberalíki, sogið mjólkur- kýr og valdið júgurbólgu. Þegar maður skoðar hinar skemmtilegu myndir Sigurgeirs Jónassonar í Vestmannaeyjum hlýtur maður að vísa slíkri hjátrú á bug. Metsölublað á hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.