Morgunblaðið - 07.08.1988, Síða 18
18 B
7T---CT-
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1988
yiUI , i gr» T"i .■.■> tl'fl A 'fni'í’ ■ T>f 'v'\
\
fclk í
fréttum
Janni Spies giftir
sig þann. 20. ágúst
•■''***
f
«=t
iStfe.
Fyrsti fundur þeirra Joan Collins og Antonio Zequila.
Joan Collins með helm-
ingi yngri mann í takinu
Dynasty stjarnan Joan Collins á
enn í ævintýrum. Nú er hún
komin með bráðmyndarlegan ung-
an ítala sem er helmingi yngri en
hún sjálf, eða 24 ára gamlan. Hann
er leikari, og sonur auðugs kaup-
sýslumanns. Segir rómurinn að hún
njóti hverrar einustu mínútu, og
sjálf segir hún: „Fólk má blaðra
eins og því sýnist um sambandið,
en hann er minn og ég er vitiaus
í hann. Mér finnst ég vera tvítug á
ný.“
Sambandið hefur' staðið í tvo
mánuði. Þau kynntust eitt kvöld í
samkvæmi, voru óaðskiljanleg allt
kvöldið, og næstu fundir voru óhjá-
kvæmiiegir. Antonio Zequila segir
svo um Joan: „Hún er frábærasta
konan sem ég hef kynnst. Hún er
eins og tvítug stúlka, er aldrei
þreytt og alveg ótrúlega róm-
antísk." Og Joan segir ennfremur:
„Ég hélt að svona samband væri
ekki til, ég er svo hamingjusöm að
ég gæti grátið." Collins hefur einn-
ig látið vita að hún óski þess að
samband þeirra vari að eilífu. Það
er auðvitað spuming hvað eilífðin
er löng.
Eftir fjögurra ára samband em Janni Spies
og Gunnar Hellström, sem er 34 áram eldri
en hún, skilin að skiptum. Þau hafa reyndar
ekki búið saman, hún hefur verið í Danmörku
og hann í Bandaríkjunum. Hún tilkynnti honum
að ætlunin væri að trúlofast öðram, Cristian
Kjær að nafni, aðeins þremur tímum áður en
hún tilkynnti blaðamönnum það sama. Þau
Gunnar og Janni höfðu átt góðar stundir sam-
an síðast í apríl og ákveðið sumarfrí saman.
En því fór sem fór. Janni og Christian, sem
er mun yngri en Gunnar og býr í Danmörku,
munu gifta sig þann 20. ágúst.
Þremur tímum áður en
Janni tilkynnti opinber-
lega trúlofun sína og Crist-
ians Kjær hringdi hún og
leyfði Gunnari líka að
heyra það.
Þrátt fyrir að Gunnar bæði
Janniar urðu þau ekki hjón
eins og flestir bjuggust
við.
Lisa Bonet verður mamma í
október
Lisa Bonet, eða „Denise
Huxtable“ sem leikur nú í
þáttunum „Vistaskipti" á von á
bami í október. Hún er gift tónlist-
armanninum Lenny Kravitz, en
þau skötuhjú hafa meðal annars
verið þekkt fyrir að lenda í útistöð-
um við fjölmiðla. En þau eiga ekki
sjö dagana sæla. Eftir að þau giftu
sig vora menn að ráðleggja Lisu
að láta mann sinn skrifa undir
kaupmála, séreignarsamning. En
maður hennar brást hinn versti
við og sagðist ekki hafa gifst henni
peninganna vegna. Hann rauk út
og sást í bænum með konu sem
líktist Lisu ekki hið minnsta.
Lisa hefur ekki aðeins leikið
saklausa skólastúlku eins og allir
vita, heldur einnig gefið áhuga-
sömum kost á að sjá myndir af
sér fáklæddri í ýmsum amerískum
vikublöðum, svo og í myndinni
„Angel Heart“ sem breytti ímynd
hennar allnokkuð út á við. Hún
er skapmikil ung kona og heyrst
hefur að hún hafi í reiðikasti lokað
sig inni í skáp meðan á töku á
þáttunum „Vistaskipti" stóð yfir,
og tafíð upptöku í fleiri klukku-
stundir. Erfíð samskipti milli
hennar og framleiðenda þáttanna
hafa orðið til þess að Bill Cosby
hefur æskt þess að hún taki .sig
nú almennilega á.
Lisa er dóttir hvítrar konu en
faðir hennar var blanda af indíána
og svertingja. Hann stakk af eftir
að hún fæddist, og Lisa var alla
tíð ákveðin að gifta sig aldrei,
minnug reynslu móður sinnar. En
hún breytti um skoðun og gifti sig
í slíku hasti að móðir hennar frétti
það í blöðunum.
En nú era framleiðendur á
þáttaröðinni og meðal annars Bill
Cosby á báðum áttum hvort gifta
eigi hana burt úr þáttunum, láta
hana vera ógifta móður, eða hvort
áhorfendur fái ekki sjá niður fyrir
mitti eins og gert var þegar
„mamma Huxtable" varð ófrísk.
Jafnvel gætu þeir fundið einhveija
aðra til þess að leika Denise.
Þessum þáttum vegnar vel í
Bandaríkjunum og nálgast óðum
„Fyrirmyndaföður“ í vinsældum.
En rómurinn er sá að Lisa Bonet
sé ekki neinn lukkunnar pamfíll í
bili, og stundar hún hugleiðslu sem
hjálpar henni að komast í gegnum
daglegt amstur og pressu.