Morgunblaðið - 19.08.1988, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.08.1988, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1988 Fjármálaráðuneytið: Hert innheimta söluskattsskulda Fjármálaráðuneytið er um þessar mundir með í gangi átak i inn- heimtu söluskatts og hafa nokkrir skuldarar fengið stuttan frest til þess að gera upp skuldir sínar áður en Iokunaraðgerðum verður beitt. Að sögn Stefáns Friðfinnssonar, aðstoðarmanns fjármálaráð- herra, hafa skil ekki verið nógu góð og háar upphæðir eru útistand- andi. Enginn eðlismunur væri þó á þeim aðgerðum sem nú væru í gangi, miðað við þær sem áður hafi tíðkast, heldur stigsmunur. Þetta væri liður í auknu söluskattseftirliti og stæði til að herða á þvi enn frekar. Stefán Friðfínnsson sagði að lögð hefði verið meiri áhersla á inn- heimtu söluskatts síðustu daga en áður og nokkrir skuldarar fengið stutta fresti til þess að gera upp skuldir sínar, annars mættu þeir eiga von á lokunaraðgerðum. Eins og alltaf væru stórar tölur útistand- andi þó ekki væri hægt að segja til um hversu háar upphæðir væri um að ræða. í mörgum tilvikum væru þetta áætlaðar skuldir og einnig kæmu inn í dæmið bókhalds- atriði eins og það að skuldir gjald- þrota fyrirtækja afskrifast ekki fyrr en gjaldþroti er lokið. Nokkrir stór- ir aðilar væru nú í gjaldþrotaskipt- um og væri eftir að sjá hvað kæmi út úr þeim. Hin venjulegi gangur mála er sá að fyrirtæki eru rukkuð um sölu- skatt og ef þau greiða hann ekki innan tilskilins tíma er fyrirtækinu lokað. Stefán sagði að fjölmörg fyr- irtæki væru að komast á lokunar- stig en reynslan væri sú að flestir greiddu áður en að því kæmi. „Það er mjög eindregin skoðun fjármála- ráðuneytisins að þeir sém ekki borga þennan skatt hafí verri mál- stað en aðrir skuldarar. Þeir eru ekki að borga söluskattinn heldur einungis innheimta hann fyrir ríkið og eiga því aldrei peningana á nokkru stigi málsins. Afsakanir manna fyrir að borga ekki sölu- skatt eru ekki teknar mjög hátíð- lega í ráðuneytinu og við erum sér- staklega grimmir í söluskattsinn- heimtu," sagði Stefán. Hann sagði það átak sem nú væri í gangi vera lið í auknu sölu- skattseftirliti. Verulegar aðgerðir væru einnig í gangi eða undirbún- ingi til þess að tryggja það að þeir sem ættu að borga söluskatt tækju hann ekki undan. Það væru allt of mikil brögð að því að menn væru teknir fyrir að fara of frjálslega með söluskattinn. „Menn skyldu gera sér grein fyrir því að það verð- ur ekki slakað á eftirlitinu heldur hert. Við ætlum að beita öllum til- tækum ráðum til að uppræta sölu- skattsmisferli," sagði Stefán að lok- um. Morgunblaðið/Kr.Ben. Séð yfir athafnasvæði Atlantslax hf. þar sem fyrsti áfangi stöðvarinnar á að rísa, þangað verða fyrstu seiðin flutt eftir þijár vikur. Fremst á myndinni er verið að bora eftir sjó en fjær er verið að steypa undir fráfailsleiðslu stöðvarinnar. Lengst til hægri er raforkuhúsið. Atlantslax hf. Fyrstu seiðin eftir þrjár vikur Grindavík. FRAMKVÆMDIR við laxeldis- stöð Atlantslax hf. á Reykjanesi eru komnar í fullan gang og verða fyrstu seiðin flutt í stöðina úr seiðastöðinni í Sandgerði eftir þijár vikur þegar fyrstu kerin verða tilbúin. Fyrirtækið á nú þijá árganga af fiski og verður þeim fyrsta slátrað í næstu viku en hinir tveir verða að komast sem fyrst út á Reykjanes í stærri ker svo ný seiði komist á legg. í fyrsta útboði sem á að ljúka í október eru 6 ker 11 metra í þver- mál þar af verða seiðin sett í þau fyrstu og svo koll af kolli eftir því sem uppbyggingunni miðar. Fyrsta áfanga stöðvarinnar á að ljúka á næsta ári og verður þá 19 þúsund rúmmetra rými í keijum sem verða 11 metra, 18 metra og 25 metra í þvermál. Þegar framkvæmdum við fyrsta áfanga lýkur verður byrjað á öðrum áfanga lýkur verður byijað á öðrum áfanga og að honum loknum verður áætluð ársframleiðsla 600 tonn. Að sögn Ársæls Sigurþórssonar stöðvarstjóra hjá Atlantslax hf. er verið að athuga kaup á súrefnis- kerfi sem eykur á þéttleika físks í keijunum svo mögulegt verður að framleiða allt að þúsund tonn án þess að auka rúmmetrafjöldan og skapar það mikla hagræðingu í rekstri KrJBen. Samþykkt að veita lán til 18 7 kaupleigníbúða 44 íbúðum í verkamannabústöðum breytt í kaupleiguíbúðir Umsóknaraðili Úthlutun Vilhjálmur Ingvarsson. Vilhjálmur Ingvarsson látinn í GÆRKVÖLDI Iést Vilhjálmur Ingvarsson, framkvæmdastjóri, 48 ára að aldri. Hann kom veikur úr ferðaiagi að utan um síðustu mánaðarmót, var þá fluttur á Landakotsspítala en átti þaðan ekki afturkvæmt. Vilhjálmur fæddist í Reykjavík, 27. apríl 1940, sonur hjónanna Ing- vars Vilhjálmssonar, útgerðar- manns, og Áslaugar Jónsdóttur. Hann varð stúdent frá V.í. 1961, og starfaði síðan við fyrirtæki föður síns, ísbjöminn hf., allt þar til það var sameinað BÚR í Granda hf., 1986. Hann var framkvæmdastjóri sildarbræðslunnar Hafsíldar hf. á Seyðisfirði til dauðadags. Vilhjáimur sat um ævina í stjóm ýmissa fyrirtækja og stofnana, með- al annars i framkvæmdaráði Verzl- unarráðs ísiands og í stjóm LÍÚ. Hann lætur eftir sig eiginkonu, Önnu FVíðu Ottósdóttur frá Seyðis- firði, og þijú böm þeirra. Faðir Vil- hjálms lifír son sinn i hárri elli, á Hrafnistu í Hafnarfirði. Á FUNDI húsnæðismálastjórnar í gær, var samþykkt að veita lán til byggingar eða kaupa á 187 kaupleiguíbúðum, en til þeirra var veitt 273 millj. króna á núgild- andi fjárlögum. Auk þess sam- þykkti stjómin að 44 íbúðir, sem heimilað var hinn 29. febrúar sl. að byggja i verkamannabústöð- um, með lánveitingum úr Bygg- ingarsjóði verkamanna, skuli f staðinn byggðar sem kaupleigu- ibúðir, að ósk hlutaðeigandi sveit- arfélaga. Samtals var samþykkt 231 kaup- leiguíbúð, sem skiptast í 183 al- mennar kaupleiguíbúðir og 48 fé- lagslegar kaupleiguíbúðir. Þess má geta, að þar á meðal er nokkur fjöldi öldmnaríbúða. Skilyrði fyrir fram- kvæmdaheimild er, að hlutaðeigandi sveitarfélag eða framkvæmdaaðili sé í skilum með önnur lán frá Hús- næðisstofnun ríkisins. Fram- kvæmdatími er áætlaður 15-18 mán- uðir. Útborgun framkvæmdalán- anna mun heflast jafnskjótt og fram- kvæmdir heflast. Á fundinum samþykkti stjómin einnig, vegna umsókna Samtaka aldraðra og Félags eldri borgara í Reykjavík um kaupleiguíbúðir, að hljóti þessi aðilar staðfestingu fé- lagsmálaráðuneytisins sem hæfír lántakendur, telji hún að svigrúm sé fyrir hendi til að koma til móts við þessa aðila með kaupleiguíbúðir, að hluta til. Hafa umsóknir um fram- kvæmdalán til byggingar öldrunar- íbúða verið til umfjöllunar hjá Hús- næðisstofnuninni undanfarið. Jafn- framt samþykkti stjómin á þessum fundi sínum veitingu framkvæmda- lána til byggingar verulegs fjölda öldmnaríbúða um land allt, á gmnd- velli nýútgefínnar reglugerðar frá félagsmálaráðuneytinu þar að lút- andi. Hafnarfjörður 7 Grindavík 8 Sandgerði 3 Akranes 4 Skilmannahreppur 1 Stafholtstungnahr. 1 Borganes 4 Stykkishólmsbær 5 5 Laxárdalshreppur 1 ísaijörður 23 Bolungarvík 14 Tálknafjörður 2 Bíldudalur 2 Þingeyri 3 Hólmavík 6 SigluQörður 6 Sauðárkrókur 8 Hvammstangahr. 4 Blönduós 4 Varmahlíð Seyluhr. 1 Lýtingsstaðarhr. 1 Hólahreppur 2 Akureyri 10 5 Ólafsfjörður 5 Dalvík 10 Árskógstrandarhr. 4 Grenivík 2 Presthólahr. 2 Raufarhöfn 1 Þórshöfn 2 Eskifjörður 4 Skeggjastaðahr. 1 Fellahreppur 2 Egilsstaðir 5 Reyðarfjörður 3 Reyðarfj. Verðandi hf. 5 Stöðvarhreppur 3 Nesjahreppur 2 Höfn, Homafirði 10 4 Vestmannaeyjar 10 Eyrarbakki 4 Selfoss 4 Hmnamannahr. 1 1 Biskupstungnahr. 4 Hveragerðisbær 2 2 Þorlákshöfn 4 4 Viðurkenningar fyrir fagurt umh verfi Viðurkenningar Umhverfísráðs Reykjavíkur fyrir fallegt umhverfí vom afhentar í gær. Fegursta gata borgarinnar var valin meðal annars, en myndin sýnir hús aldraðra við Dalbraut, sem fékk viðurkenningu fyrir glæsilega byggingu og snyrtilega lóð, sem miðast við þarfir aldraðra. Sjá bls. 27.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.