Morgunblaðið - 19.08.1988, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1988
7
Þykkvibær:
Nýir aðilar
teknir við
rekstri slát-
urhússins
EIGENDASKIPTI hafa orðið á
sláturhúsi Friðriks Friðrikssonar
hf í Þykkvabæ, og tóku nýir eig-
endur við rekstrinum 1. ágúst
siðastliðinn. Sláturhúsið hefur
verið rekið á undanþágu, en nú
standa yfir breytingar á því svo
það geti hlotið löggildingu.
Stofnað var hlutafélag sem heitir
Þríhymingur hf um rekstur slátur-
hússins, en að því félagi standa
Djúpárhreppur, Loðskinn hf á Sauð-
árkróki og Höfn á Selfossi, auk tíu
bænda í Rangárvallasýslu.
Að sögn Kolbeins I. Kristinssonar
framkvæmdastjóra hins nýja félags
hefur sláturhúsið í Þykkvabæ verið
rekið á undanþágu, en er eitt þeirra
húsa sem slaturhúsanefnd taldi
ástæðu til að yrði byggt upp, og
er nú lokið við uppbyggingu hluta
þess. Sagði Kolbeinn áætlað að
slátrun færi fram í húsinu nú í
haust að fullnægðum vissum for-
sendum dýralæknis.
„Tilgangurinn með þessum kaup-
um var fyrst og fremst að nýta
þetta hús og halda því áfram í
rekstri, en það skiptir verulegu
máli fyrir byggðalagið, og jafn-
framt er hugmyndin að efla alla
kjötvinnslu í tengslum við slátur-
húsið til mikilla muna," sagði Kol-
beinn.
Fundur um loðnu-
kvóta í nóvember
ÁKVEÐIÐ var á fundi sjávarút-
vegsráðherra íslands, Noregs og
Grænlands í Finnlandi á miðviku-
dag að að halda fund í nóvember
næstkomandi um skiptingu loðnu-
kvóta á milli íslendinga, Norð-
manna og Grænlendinga, að sögn
Halldórs Ásgrimssonar sjávarút-
vegsráðherra. „Norðmenn eru til-
búnir að halda áfram samn-
ingaumleitunum um skiptingu
loðnukvótans, enda þótt Danir
hafi ákveðið að vísa deilu þeirra
og Norðmanna um lögsögumörk
við Jan Mayen til AJþjóðadóm-
stólsins i Haag,“ sagði Halldór
Rfldssjónvarpið:
Ingímar á
frétta-
stofuna
INGIMAR Ingimarsson, að-
stoðarframkvæmdastjóri
Sjónvarpsins, mun hætta í því
starfi um mánaðamótin og
taka upp þráðinn á ný sem
fréttamaður. Ingimar tók við
þessu starfi í júní á síðasta
ári til eins árs og var honum
meðal annars falið að vinna
að endurskipulagningu og
hagræðingu innan Sjón-
varpsins. Talið er fullvíst að
hann fari til starfa á frétta-
stofu Sjónvarpsins, og Bogi
Ágústsson, fréttasljóri, sagði
í samtali við Morgunblaðið
að hann mundi fagna komu
Ingimars á fréttastofuna ef
af henni yrði.
„Ég tel mig vera búinn að
ljúka nokkuð góðu verki og að
þau verk, sem þurfti að vinna,
hafi verið unnin. Ég kemst því
ekkert lengra í þessu starfí og
ætla því aftur að snúa mér að
fréttamennsku," sagði Ingimar
í samtali við Morgunblaðið.
Ásgrímsson í samtali við Morgun-
blaðið.
Halldór Ásgrímsson lagði m.a.
fram gögn um hvalatalningu í Norð-
ur-Atlantshafí á fundi sjávarútvegs-
ráðherra Norðurlandanna í Finn-
landi. „Ég lagði áherslu á að Norður-
landaráð tæki þátt i að fjármagna
hvalatalninguna á næsta ári, en eins
og er hefur það ekki fjármagn til
þess,“ sagði Halldór.
„Á fundinum var lagt fram upp-
kast að stefnumörkun í umhverfis-
málum þar sem forsætisnefnd Norð-
urlandaráðs leggur til að það mál
verði afgreitt á aukaþingi Norður-
landaráðs í haust. í uppkastinu er
nánast ekki talað um nýtingu nátt-
úruauðlinda og við munum því leggja
til að það verði endurskoðað. Við
ræddum einnig um Norðurlöndin og
Evrópubandalagið og það sem stakk
mig mest er sú afstaða EB að fisk-
veiðiréttindi komi í stað tollfríðinda
en það get ég ekki sætt mig við,“
sagði Halldór Ásgrímsson.
Heyskap víðast hvar að ljúka
HEYSKAPUR hefur gengið
þokkalega víðast hvar á Iandinu
í sumar, én yfirleitt hefur þó
gengið illa á Áusturlandi vegna
mikilla óþurrka sem þar hafa
Alþjóðamótið við Djúp:
Helgi Ólafsson efstur
HELGI Ólafsson, stórmeistari,
er einn í efsta sæti á alþjóðaskák-
mótinu við Djúp með 3,5 vinninga
eftir fjórar umferðir. Fjórir
skákmenn eru í 2.-5. sæti með 3
vinninga, þeir Rantanen,
Popovych, Johannsson og
Schandorff.
Úrslit í ijórðu umferð urðu þau
að Helgi vann Magnús Pálma Öm-
ólfsson, Rantanen vann Flear,
Popovych vann Ægi Pál Friðberts-
son, Schandorff vann Helga Ólafs-
son eldri, Andri/ Áss Grétarsson
vann Guðmund Gíslason og Jo-
hannsson vann Guðmund Halldórs-
son. Frídagur var hjá keppendum
í gær, en fimmta. umferðin verður
tefld í kvöld. Þá tefla meðal ann-
arra saman Helgi Ólafsson stór-
meistari og Flear, en þeir eru tveir
stigahæstu menn mötsins, og Jo-
hannsson og Schandorff.
verið í langan tíma.
Nokkrir bændur á Austurlandi
eru þó búnir að heyja, og er þar
helst um að ræða þá sem heyja í
vothey, en á sumum bæjum er
ástand slæmt og hey léleg. Nokkuð
mikið kal var í túnum á Austur-
landi í vor og gréri seint.
I S-Þingeyjarsýslu er heyskap
að ljúka. Þeir sem fyrstir byijuðu
að slá náðu mjög góðum heyjum
en að magni til frekar í minna lagi.
Þeir sem seinna byijuðu hafa lent
í hrakningi með hey, því tíð hefur
verið rysjótt síðastliðinn mánuð, en
hey hjá þeim eru mikil að magní
en misjafnari að gæðum. í heildina
má því segja að hey á þessu svæði
séu næg en misgóð.
_ Almennt eru bændur að verða
búnir með fyrri slátt í Eyjafirði, og
margir eru langt komnir með seínni
slátt. Heyskapur hefur gengið
þokkalega, og gæði og magn er í
meðallagi.
A Vestijörðum er heyskapur
langt kominn og undanfarna daga
hefur gengið mjög vel. Þeir sem
heyja í vothey eru að verða búnir
og víðast hvar er heyskapur langt
kominn. í seinni hlutajúlí ogbyijun
ágúst gekk heyskapur seint, en þá
var lítill þurrkur. Gæði eru yfirleitt
lakari en í fyrra, en magnið víðast
hvar mun meira.
í Borgarfirði eru flestir að klára
heyskap og margir hafa þegar lok-
ið. Hey eru ágæt og magn í meðal-
lagi.
Á Suðurlandi er heyskapur víðast
hvar langt kominn eða búinn, en
hefur dreifst á óvenjulangt tímabil.
Þeir sem fyrstir gátu hafið slátt
voru jafnvel búnir snemma í júlí.
Spretta á Suðurlandi var hæg fram-
an af, en seinni hluta sumars hefur
sprottið vel og hey eru sæmileg að
magni og talin góð að gæðum.