Morgunblaðið - 19.08.1988, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1988
Stjörnu
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
gréin 797, fostudag 19.
ágúst
„Kæri stjörnuspekingur! Ég
e;- fædd þann 29.09. 1973
kl. 9.42 (á Akureyri). Ég vil
gjaman fá að vita eitthvað
um sjálfa mig, svo sem hæfi-
leika, kosti og galla ... Kær-
ar þakkir. Vog.“
Svar:
Þú hefur Sól/Plútó saman í
Vog í 12. húsi, Merkúr/Úr-
anus saman Rísandi einnig í
Vog, Tungli og Venus í
Sporðdreka, Mars í Nauti og
Ljón á Miðhimni. Plánetum-
ar Satúmus, Úranus og
Plútó eru allar sterkar í korti
þínu.
FélagsfrceÖingur
Það að vera Vog og Sporð-
dreki táknar að þú hefur
hæfíleika á félagslegum og
sálrænum sviðum. Það ætti
t.d. að geta hentað þér að
vinna með fólki á dýpri svið-
um, þ.e.a.s. ekki í yfirborðs-
legum saraskiptum, heldur á
sálrænum og mannlegum
sviðum sem snerta það sem
skiptir máli.
Kennari
Merkúr á Rísingu táknar að
þér getur fallið vel að vinna
við kennslu eða upplýsinga-
miðlun og þá á framan-
greindum félagssviðum. Úr-
anus á Merkúr táknar að þú
hefur frumlega og sjálfstæða
hugsun og Rísandi táknar
hann að þú þarft að fást við
spennandi og óvænt verkefni
sem kalla á sjálfstæð vinnu-
brögð.
Sterkar tilfmningar
Tungl og Venus í Sporðdreka
táknar að þú hefur sterkar
tilfínningar og ert næm og
skapstór. Þessi þáttur getur
dregið eitthvað úr félags-
lyndi Vogarinnar, eða a.m.k.
gert það að verkum að þér
fellur ekkí að vinna með
hveijum sem er. Það getur
því myndast einhver tog-
streita á milli hinnar opnu
og félagslyndu Vogar og
hins varkára og dula Sporð-
dreka.
Of miklar kröfur
Ég tel að helsti veikleiki þinn
sé fólginn í því að gera of
miklar kröfur til sjálfrar þín.
Þú þarft einnig að varast að
vera neikvæð í eigin garð og
varast að rífa sjálfa þig niður
þó þú sjáir galla þína. Sterk-
ur Plútó táknar að þú ert
fædd til að þroska sjálfa þig
og losa þig við neikvæða eig-
inleika. Það þarf hins vegar
að gerast á markvissan hátt,
t.d. með sálfræðiaðstoð. Þú
þarft einnig að varast að
vera of alvörugefin og taka
smáatriði of nærri þér.
Ábyrgð ogstjórnun
Hvað varðar starf tel ég að
þér ætti að falla vel að vinna
við stjómun og skipulags-
mál, og þá á félagslegum
sviðum. Mér sýnist þú vera
fallin til að vinna við heil-
brigðismál, eða félagsmál
sem taka á sálrænum þátt-
um, t.d. í sálfræði, félagsráð-
gjöf eða kennslu. Þú hefur
einnig hæfíleika til að axla
ábyrgð og völd (Sól-Plútó-
Satúmus).
Listir
Margar plánetur í Vog og
Sól í afstöðu við Neptúnus
gefa einnig til kynna hæfí-
leika á listrænum og menn-
ingarlegum sviðum. Þú ættir
a.m.k. að hafa áhuga á slfku.
Tónlist t.d. ætti að geta gef-
ið þér mikið og m.a. hjálpað
þér að slaka á. Vog-Neptún-
us ásamt Satúmusi sem gef-
ur gott formskyn og hið jarð-
bundna Naut gerir að þú
ættir einnig að vera fallin til
þess að vinna við listræn
skipulagsmál, eins og t.d.
arkitektúr eða hönnun.
GARPUR
UÓSKA
FERDINAND
Jæja, reynum annað Hvað eru 2Ú2X2V2? Nei, það eru 6V4.
dæmi . . . Tíu milljónir! Ég er nálægt því . . .
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Þijár leiðir koma til greina í
fímm tíglum suðurs hér að neð-
an.
Vestur gefur; NS á hættu.
Norður
♦ AD2
VA103
♦ 10953
♦ 874
Vestur
♦ G107643
♦ D832
♦ -
♦ K103
Austur
♦ K9
♦ 974
♦ DG
♦ ADG652
Suður
♦ 85
♦ KG6
♦ AK87642
♦ 9
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass 1 lauf 2 tíglar
2 spaðar 4 tíglar Pass 5 tiglar
Pass Pass Pass
Utspil: laufþristur.
Austur fær fyrsta slaginn á
laufás og spilar drottningunni
um hæl, sem suður trompar.
Einfaldasta spilamennskan er
að svína bæði í spaða og hjarta.
Spaðasvíningin misheppnast og
svo er það bara spuming um
tilfínningu á hvom veginn svínað
er í hjartanu. Eitthvað betra
hlýtur að vera til.
Skárri kostur er að trompa
þriðja laufíð, toppa hjartað og
spila þriðja hjartanu þegar
drottningin kemur ekki niður.
Hugmyndin er þessi: Ef austur
lendir inni verður hann að spila
út í tvöfalda eyðu eða upp í
spaðagaffalinn. Þessu til við-
bótar vinnst spilið ef vestur á
hjartadrottninguna aðra. Þessi
spilamennska leiðir ekki til vinn-
ings.
Þriðji möguleikinn byggir á
rökréttri spilarýni. Vestur hefði
varla sagt tvo spaða á gosann
fimmta. Eigi hann því ekki
kónginn, er hann sennilega með
sexlit. Að þessu athuguðu er
besta leiðin að leggja niður
spaðaás, hreinsa út laufið og
spila spaða. á drottningu.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á OHRA-mótinu í Amsterdam,
sem nú stendur yfír, kom þessi
staða upp í viðureign hinna kunnu
stórmeistara John Nunn, sem
hafði hvítt og átti leik, og John
Van der Wiel.
38. Bxg6! - Hxg3 39. Bxh7+ -
Kxh7 40. Kxg3 — Hc3+ (svarta
kóngsstaðan hefur galopnast við
mannsfómina og það er aðeins
tímaspursmál hve lengi mátinu
verður slegið á frest). 41. f3 —
Kg8 42. Dh4 - Hc4 43. Dh5 og
svartur gafst upp. Þegar tefldar
höfðu verið átta umferðir af tiu
var Viktor Kortsjnoj efstur með
fímm vinninga og biðskák. Nunn
hafði einnig fimm vinninga og
stóð baráttan um efsta sætið á
milii þeirra tveggia.