Morgunblaðið - 19.08.1988, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 19.08.1988, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR PÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1988 47 KNATTSPYRNA / VINÁTTULANDSLEIKUR Lítið fyrir augað í Laugardalnum: Óþarfa tap EKKI er beint hœgt að segja að leikur íslendinga og ólympíulandsliðs Svía í gœr hafi verið augnayndi. Færin voru ekki mörg í leiknum, en fleiri féllu í hlut íslendinga en Svía. Engu að síður voru það Svíarnir sem skoruðu eina mark leiksins og var Jan Hellström þar að verki á 74. mínútu. Fyrri hálfleikur var tíðindalítill. Láðin voru tiltölulega jafnmikið með boltann en þeim gekk illa að skapa sér færi upp við markið. Nokkuð bar á háloftaspyrnum en á milli komu einstaka spilkaflar. Nokkrir leikmenn íslenzka iiðsins áttu erfítt með að fínna sig í upphafí leiksins, einkum Viðar Þorkelsson, sem annars hefur leikið mjög vel í sumar. Gunnar Gíslason komst næst því að skora í fyrri hálfleik en hörkuskot hans rétt utan teigs smaug fram hjá samskeytunum. Seinni hálfleikurinn var fjörugri en sá fyrri og meira um samleikskafla, þótt leikurinn færi aðallega fram á miðjunni. íslendingar áttu ágæta sókn þegar Gunnar Gíslason vann boltann á miðjunni, brunaði fram og gaf á Amljót Davíðsson, sem kom inn á í hálfleik í sinn fyrsta landsleik. Amljótur ákvað að senda boltann aftur fyrir frekar en að' reyna sjálfur að halda áfram en Svíum tókst að komast fyrir sendinguna á síðustu stundu. Guðmundur Jóhannsson skrifar Heppnlsmark Svíamir áttu líka sín færi. Jan Hellström átti hörkuskot rétt utan vítateigs en Bjami Sigurðsson varði vei. Stuttu síðar munaði aðeins hársbreidd að ís- lendingum tækist að skora. Ragnar Mar- geirsson braust í gegnum vöm Svíanna af harðfylgi en markvörður þeirra náði knettinum af tánum á honum á síðustu stundu. Eftir þetta var eins og íslending- ar væru að hressast og komst Ólaf- ur Þórðarson í þokkalegt færi en skaut framhjá. En síðan kom höggið. Boltinn barst inn að vftateig Islendinga og upphófst þar mikill darraðardans. I baráttu um boltann tókst íslending- um ekki að hreinsa - einn Svíanna skaut að marki frá vítateig og virt- ist skotið ekki hættulegt. A leiðinni fór knötturinn í íslenzku vömina og fyrir fætur Jan Hellström sem var einn og óvaldaður fyrir opnu marki og átti ekki í erfiðleikum með að ýta knettinum í markið. Síðustu mínútur leiksins reyndu íslendingar ákaft að jafna. Atli átti til dæmis skalla sem hafnaði ofan á slánni. Aðeins tveimur mínútum fyrir leikslok kom miklu hættulegra færi. Þá vann Ólafur Þórðarson boltann úti á kanti og sendi á Am- ljót Davíðsson, sem gaf fyrir mark- ið. Þar var Ragnar Margeirsson í góðu færi en náði ekki skoti á markið og þar með voru úrslitin ráðin. Lftil samæflng Leikur íslenzka liðsins var eins og búast mátti við. Leikmenn era ekki í mikilli samæfíngu og byggð- ist því leikur þess mikið upp á bar- áttu. Ekki er hægt að segja að liðið í heild hafi staðið sig illa en það á þó að geta miklu betur. íslendingar nýttu ekki tækifæri sfn og eitt at- vik í leiknum réði úrslitum. Fýrir leikinn við Sovétmenn síðar f haust þarf að laga margt ef ekki á illa að fara. Meiri hugmyndaauðgi og samæfíngu þarf. Að vísu brá fyrir þokkalegum samleiksköflum einstaka sinnum hjá íslenzka liðinu en of sjaldan og leikurinn var of tilvilj anakenndur. Island - Svíþjóó 0 : 1 Vináttulandsleikur, Laugardalsvöllur, fímmtudaginn 17. ágúst 1988. Mark Svíþjóðar: Jan Hellström (74. mín.). Gult spjald: Ekkert. Áhorfendun 2.091. Dómari: W.N.M. Crombie frá Skotlandi. Línuverðir: Sveinn Sveinsson og Magnús Jónatansson. jJð íslands: Bjami Sigurðsson, Guðni Bergsson, Atli Eð- valdsson, Sœvar Jónsson, Ólafur Þórðarson, Gunnar Gísla- son, Viðar Þorkelsson, Pétur Ormslev (Pétur Amþórsson vm. 46. mín.), Ómar Torfason, Ragnar Margeirsson, Hall- dór Áskelsson (Amljótur Davíðsson vm. á 46. mín.). Vara- menn sem komu ekki inn á: Guðmundur Hreiðarsson, Þorsteinn Þorsteinsson og Þorvaldur Örlygsson. Lið Svíðþjóðar: Sven Andersson (Bengt Nilsson vm. á 46. mín.), Roger Ljung, Peter Lönn, Roland Nilsson, Sulo Vaattovaara, Leif Engqvist, Joakim Nilsson, Stefan Rehn, Jonas Them, Martin Dahlin, Jan Hellström. Varamenn sem ekki komu inn á: Göran Amberg, Ola Svensson, Anders Palmér og Jean-Paul Vonderburg. Morgunblaðið/Einar Falur Ingólfsson Qunnar Qíslason á hér í höggi við Jan Hellström, sem skoraði eina mark leiksins. Gunnar lék vel^ í gærkvöldi og var besti maður íslenska liðsins. Morgunblaðið/Einar Falur Hvað sögðu þeir eftir leikinn? Slagfried Held landsliösþJáH- ari íslands Svíamir nýttu tækifæri sín en við ekki. Við misstum stundum ein- beitinguna og sýndum þar með viss veikleikamerki, sem mega ekki eiga sér stað í landsleikjum. Islenzka lið- ið er ekki „Suður-Ameríkulið". Styrkur okkar liggur í því að beij- ast og veijast vel. Þrátt fyrir tapið álít ég að við séum á réttri leið og meiri stöðugleiki í liðinu en áður. Atli Eðvaldsson „Þetta var frekar rólegur leikur en svekkjandi að tapa honum. Okk- ur var refsað fyrir ein mistök en einmitt það undirstrikar muninn milli alþjóðabolta og íslenzkrar knattspymu. í landsleikjum má aldrei gefa eftir eitt augnablik. Mér fannst Amljótur standa sig vel en hann hefði mátt reyna meira sjálf- ur“, sagði Atli Eðvaldsson, lands- liðsfyrirliði, sem lék sinn 50. lands- leik í knattspyrnu í gær. Gunnar Gíslason Það var gaman að koma og spila þótt þetta hafi ekki verið neinn toppleikur. Markið var slys. Við megum satt að segja ekki fá á okk- ur mark í landsleik, ef við ætlum okkur eitthvað og siðan verðum við að nýta færin. Amljötur Davfðsson Mér fannst gaman að koma inn í landsliðið og get ekki sagt að ég hafi verið taugaóstyrkur þótt þetta hafi verið minn fyrsti landsleikur. Eiginlega bjóst ég við meiru af Svíunum. Þeir unnu heppnissigur. Banny Lennardson, þjálfari Svfa Þetta var erfiður leikur. Við getum leikið mun betur. Við létum íslenzka liðið ráða of mikið ferðinni í leiknum og voram ekki betri aðilinn í leikn- um þrátt fyrir sigurinn. Mér fannst Ragnar Margeirsson, Sævar Jóns- son og Guðni Bergsson leika vel. ■ BJARNI Sigurðssoa átti ágætan leik í markinu. Hann greip oft vel inn í leikinn og verður ekki sakaður um markið. ■ GUÐNI Bergsson fann sig mun betur í þessum leik en í lands- leiknum gegn Búlgörum. Hann var traustur í vöminni og geystist stundum upp völlinn og skapaði usla í vörn Svianna. ■ SÆVAR Jónsson var einnig traustur i vöminni að vanda og var sterkur í skallaeinvígjum. I ATLI Eðvaldsson byijaði ekki vel en sótti sig þegar leið á leikinnogvannþáöllskallaeinvígi. * ■ GUNNAR Gíslason var bezti maður íslenzka liðsins. Hann vann mjög vel og baráttukraftur hans er með eindæmum. ■ VIÐAR Þorkelsson átti dapr- an dag og náði varla komast inn í leikinn. Hann virtist ekki fínna sig í stöðu kanttengiliðs að þessu sinni og átti fjölda feilsendinga. ■ ÓLAFUR Þórðarson átti rispur öðra hvora en hefur oft leik- ið betur. Barátta hans var liðinu Kmikilvæg. ÓMAR Torfason hefur oft leikið betur. Hann stóð sig þokka- lega í vamarhlutverkinu en síður í sókninnj. 4 I PÉTUR Ormslev varð fyrir meiðslum síðla í fyrri hálfleik og varð að var af leikvelli í halfleik. Hann stóð fyrir sínu þann tíma sem hann var inná. ■ RAGNAR Margeirsson tók oft góða spretti og skapaði þá hættu. Hann hefur mikla knatt- tækni en hefði hins vegar stundum mátt vera fljótari að ákveða sig með boltann, gefa hann á samhetja eða ijúka upp völlinn sjálfur. ■ HALLDÓR Áskelsson sýndi nokkuð góð tilþrif í fyrri hálfleik og kom á óvart að hann skyldi vera tekinn útaf í hálfleik. ■ PÉTUR Arnþórsson kom inná í seinni hálfleik. Hann barðist vel að vanda. I ARNLJÓTUR Davíðsson kom í hálfleik inn á í sinn .fyrsta landsleik, stóð sig vel og bar enga virðingu fyrir mótheijunum. Hann hefði þó mátt reyna meira upp á eigin spýtur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.