Morgunblaðið - 19.08.1988, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1988
ÁHRIFARÍKUR
BÍLÞVOTTUR Á
ÞVOTTASTÖÐINNI
LAUGAVEGI 180.
Á aðeins 6-8 mínútum sér
bílþvottastöðin Laugavegi
180 um að þvo, þurrka og
bóna bílinn þinn. Einnig er
hægt að láta háþrýstiþvo
undirvagninn. Þvottastöðin
er opin frá kl. 8:00-20:00
mánudaga til laugardaga
og frá kl. 10:00-20:00 á
sunnudögum.
Geysissvæðið gert ör-
uggara og aðgengilegra
Geysisnefnd hóf fyrir skömmu
framkvæmdir á hverasvæðinu í
Haukadal, Geysissvæðinu, til þess
að gera þennan fjölsótta ferða-
mannastað öruggari og aðgengi-
legri fyrir gesti og gangandi, en
um það bil 200 þúsund manns koma
árlega að Géysi og nærliggjandi
hverum. Auk fegrunar á umgjörð
þessarar einstæðu perlu í íslenskri
náttúru hyggst Geysisnefnd skapa
möguleika á að veita undirstöðu-
fræðslu um það hvað er að sjá og
hvers vegna á hverasvæðinu. Um-
ræður innan Geysisnefndar hafa
staðfest, að nefndarmenn telja að
leiðbeiningar og fræðsla á vel skipu-
lögðum og fallegum göngustígum
sem falla að umhverfínu, séu hald-
betri öryggisráðstafanir á svæðinu
til lengdar og fyrir fjöldann, heldur
en mannheldar girðingar og bann-
skilti. Aðalgirðingu Geysissvæðis-
ins þarf að endurnýja, en í fyrsta
áfanga verða lagðir 4 metra breiðir
göngustígar, alls 2500 fermetrar.
Þá verða gerðir stígar og göngu-
pallar úr tré þar sem það hentar
til þess að auðvelda ferðamönnum
skoðun svæðisins, en árlega hafa
orðið á milli 20 og 30 slys þar sem
menn hafa brennt sig á hveravatni.
Við göngustígana verður síðan
komið upp merkingum með nöfnum
hvera og ömefnum og á eins konar
torgi við aðalhlið Geysissvæðisins
verður einnig komið fyrir upplýs-
ingum sem varða svæðið.
Mörk svæðisins verða því óbreytt
og sömuleiðis aðalgönguleiðir milli
hvera, en þær verða afmarkaðar
mun snyrtilegar en áður með gerð
stíganna og kapp verður lagt á að
færa svæðið í þann búning sem
þessari náttúruperlu ber.
Göngustígakerfinu verður í aðalat-
riðum skipt í þrennt. Aðalstígurinn
verður 4 metra breiður og liggur á
milli aðalhliða í svipuðu fari og
gamli malarstigurinn. Frá honum
liggur „hverastígur", 2,5 metra
breiður upp fyrir Strokk, Fötu og
Blesa og niður aftur vestan Geysis
á aðalstíg. Þriðja gerð stíganna er
umhverfís smáhverasvæðið. Þar er
gert ráð fyrir malarstígum og tré-
brúm um 1,5 metra breiðum, en
aðalstígar eru hellulagðir tiltölulega
smáum hellum, 10x20 sm, steypt-
um í tveimur litum.
Við aðalinnganginn er myndað
torg eða útvíkkun á stígnum, þar
sem gert er ráð fyrir því að koma Ljósmynd/Snorri Snorrason
fynr jrfírlitskorti með nöfnum Geysir í Haukadal.
Metsölublað á hverjum degi!
Skortur á starfsfólki
á dagvistarstofnanir
Ekki víst að hægt verði að opna allar deildir í haust
Talsverður skortur er nú á
starfsfólki á dagheimili, skóla-
dagheimili og leikskóla og aug-
lýsa forstöðumenn þeirra stift
eftir fóstrum og ófaglærðu
starfsfólki. Að sögn Bergs Felix-
sonar, framkvæmdastjóra Dag-
vistar barna, eru um 200 af lið-
lega 600 stöðum lausar og geng-
ur misjafnlega að ráða í þær.
Ekki er enn Ijóst hversu margar
stöður verða ómannaðar í haust
en ekki er víst að hægt verði að
opna allar deildir strax í haust
vegna mannfæðar. Þeir sem
treystu á að fá pláss fyrir börn
sín í haust, geta því þurft að
sýna sýna biðlund.
„Biðlistinn eftir plássum styttist
ekki á meðan skortur er á starfs-
fólki, svo mikið er víst. Ástandið
nú virðist svipað og í fyrra. Það
hefur verið skortur á starfsfólki
undanfarin 3 ár,“ sagði Bergur.
Keflavík - eignaskipti
Til sölu nýlegt endaraðhús við Heiðarbraut í Keflavík,
150 fm ásamt 30 fm bílskúr (5 herb. ásamt eldhúsi á
tveimur hæðum). Góður staður. Skipti á 3ja eða 4ra
herb. íb. á Stór-Rvíkursvæðinu æskileg.
Nánari upplýsingar eru gefnar á Fasteignasölunni,
Hafnargötu 27, Keflavík, sími 92-11420.