Morgunblaðið - 19.08.1988, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.08.1988, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1988 -4 Morgunblaðið/Ámi Sæberg Islenski fáninn blakti við hún á opnunarhátíðinni í Viðey. Um 200 gestir voru samankomnir í eynni í tilefni hennar. Biskup íslands, herra Pétur Sig- urgeirsson, blessar framkvæmd- irnar í Viðey við messu í Viðey- jarkirkju. Anægjulegt að geta notið afmæl- is Reykjavíkurborgar í Viðey - sagði Davíð Oddsson borgarstjóri í ávarpi sínu á opnunarhátíð í Viðey í gær „Viðey með Sundum hefur á ný verið reist til þess vegs, sem föðurleifð Reykjavíkur ber.“ Svo fórust Sverri Hermannssyni, fyrrverandi menntamálaráð- herra, orð á opnunarhátíð Við- eyjarkirkju og Viðeyjarstofu í gær. Um 200 boðsgestir sóttu Viðey heim af þessu tilefni, þeirra á meðal forseti íslands, borgarfulltrúar, ráðherrar, þeir sem yfirumsjón höfðu með fram- kvæmdum í eynni og hjónin Stephan og Ingibjörg Stephen- sen, sem gáfu þjóðkirkjunni Við- eyjarkirkju að gjöf 1983. ís- lenska ríkisstjórnin gaf Reykavíkurborg Viðeyjarkirkju, Viðeyjarstofu og það land sem byggingunum fylgdi, á 200 ára afmæli borgarinnar, 18. ágúst 1986. Hátíðin, sem var haldin í gær, á 202 ára afmæli Reykajvíkurborgar, hófst með því að um 60 boðsgestir gengu til messu í Viðeyjarkirkju og lék Lúðrasveit Reykjavíkur ættjarð- arlög fyrir messu. Hún hófst kl. 14 með því að biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson, lagði blessun sína yfír framkvæmdimar í eynni og vígði nýtt fjögurra radda pípu- orgel. Séra Þórir Stepensen, staðar- haldari í Viðey, predikaði og annað- ist altarisþjónustu ásamt dóm- kirkjuprestunum séra Hjalta Guð- mundssyni og Lárusi Halldórssyni. Davíð Oddsson flutti ritningarorð. Dómkórinn söng undir stjóm Mar- teins H. Friðrikssonar dómorgan- ista. Meðhjálpari var séra Andrés Ólafsson. Að messu lokinni var opnunar- hátíð Viðeyjarstofu haldin á hlaði Stofunnar. Fjöldi gesta bættist í hópinn og voru um 200 manns í eynni er Hjörleifur B. Kvaran, form- aður Viðeyjamefndar, afhenti borg- arstjóra mannvirkin. Hjörleifur tók við formennsku af Bimi Friðfínns- ^ Kristján Magnússon Séra Hjalti Guðmundson og Þórir Stephensen þjóna fyrir altari í fyrstu messunni sem er haldin í nýupp- gerðri Viðeyjarkirlgu. Til hliðar sést í Vigdísi Finnbogadóttur en hún situr stól er gerður var fyrir Skúla fógeta Magnússon. syni en auk Hjörleifs áttu sæti í nefndinni þeir Þórður Þ. Þorbjam- arson og Guðmundur Pálmi Krist- insson. Borgarstjóri tók við lyklum að mannvirkjunum og þakkaði fyr- ir. Óskaði hann viðstöddum til ham- ingju með afmæli borgarinnar og sagði það gott að geta notið af- mælisins í Viðey um leið og hin sögufrægu mannvirki væru heimt úr helju vanrækslu og niðumíðslu. Rakti hann gang framkvæmdanna og lagði áherslu á að nægu fé yrði varið til Þjóðminjasafns. Þannig gæti það sinnt verkefnum sínum og sögulegar minjar yrðu varðar gegn tímans tönn. Þakkaði borgar- stjóri fyrrverandi menntamálaráð- herra og öllum þeim sem að viðgerð- um í Viðey stóðu. Einnig öllum þeim sem færðu kirkjunni gjafir. Morgunblaðið/Þorkell Minntist hann Skúla fógeta Magn- ússonar en Viðeyjarstofa var byggð sem emættisbústaður hans. „Stund- um hefur verið sagt að nefna megi þrjá menn sem feður Reykjavíkur, Ingólf Amarson, Skúla Magnússon og Jón Sigurðsson. Nú er hugur okkar ekki síst hjá Skúla, þessum eljumanni, sem lét ekki niðurlæg- ingu, eymd og örbirgð sem þá var, buga sig.“ Óskaði borgarstjóri Reykvíkingum þvínæst til hamingju með að „þessi helgidómur, þessi stássstofa þjóðarinnar, elsta hús landsins, sem varðveitt er í uppr- unalegri mynd ásamt næstelstu kirkju landsins, skuli á ný vera sá sómi sem henni ber.“ Þá talaði Sverrir Hermannssonj fyrrverandi menntamálaráðherra. I ávarpi sínu drap hann á hina gömlu málvenju að tala um að Reykjavík og nágrannabyggðir liggi „með Sundum". Lýsti hann þá ánægju sinni með hversu vel Reykjavíkur- borg hefði farist verkið úr hendi og sagði hann það hafa verið sitt ánægjulegasta verk, að afhenda Reylq'avíkurborg byggingarnar að gjöf. Herdís Þorvaldsdóttir leikkona, flutti ljóð Matthíasar Johannessens, „Viðey“. Það hefst svo; „Siglir tíminn með Sundum leggst við akkeri krefjandi stundar slær fugl stórum vængjum viðhaf " Menntamálaráðherra, Birgir Isleifur Gunnarsson flutti einnig kveðju ríkisstjómarinnar { ávarpi og rakti sögu Viðeyjar stuttlega. Sagðist hann telja að þær fram- kvæmdir og lagfæringar sem ráðist hefði verið í, væru til marks um Biskup íslands, herra Pétur Sig- urgeirsson og dómkirkjuprest- arnir Þórir Stephensen, Hjalti Guðmundsson og Lárus Hall- dórsson, ganga frá Viðeyjar- kirkju að messu lokinni. 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.