Morgunblaðið - 19.08.1988, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1988
Vopnaðir bankaræningjar yfirbugaðir í Vestur-Þýskalandi:
Einn gíslanna lét lífið
er lögregla hóf skothríð
Höfðu óbreytta borgara á valdi sínu í 52 klukkustundir
Bonn. Reuter.
VESTUR-ÞTSKU lögreglunni
tókst í gær að hafa hendur í
hári mannanna tveggja sem brut-
ust inni banka í Gladbeck í Vest-
ur-Þýskalandi á þriðjudag. Lög-
reglumenn, í þyrlum og bílum,
umkringdu ræningjana, sem báð-
ir eru dæmdir sakamenn, á hrað-
braut á milli Kölnar og Frank-
furt. Höfðu mennirnir þá haldið
Flokksþing repúblikana:
Tilnefning Bush
formlega staðfest
New Orleans. Reuter.
GEORGE Bush, varaforseti
Bandarikjanna, var á aðfaranótt
fimmtudags formlega útnefndur
forsetaframbjóðandi Repúblik-
anaflokksins í kosningunum í
Bandarikjunum i haust. Bush
flutti í nótt sjónavarpsræðii, sem
talin var sérlega mikilvæg en
samkvæmt skoðanakönnunum
nýtur Michael Dukakis, fram-
bjóðandi demókrata, meira fylgis
meðal bandarisku þjóðarinnar en
varaforsetinn.
Phil Gramm, öldungadeildar-
þingmaður frá Texas, bar fram
formlega tillögu þess efnis að Bush
yrði tilnefndur sem forsetaefni
flokksins. Lofaði hann mjög
frammistöðu Bush í embætti vara-
forseta og vöktu ummæli hans mik-
inn fögnuð meðal fulltrúa á flokks-
þingi repúblikana sem fram fer
þessa dagana í New Orleans. „Ron-
ald Reagan og George Bush unnu
markvisst að því að efla varnir
landsins en Michael Dukakis hefur
lagst gegn sérhveiju nýju vopna-
kerfi sem sett hefur verið upp,“
sagði Gramm og sagði ljóst vera
að það yrði ógnun við öryggi þjóðar-
innar ef Dukakis yrði næsti forseti
Bandaríkjanna.
George Bush sagði í gær að hann
væri fullur bjartsýni og tilbúinn í
slaginn. Aðspurður um inntak ræðu
Mandela senn
laus úr haldi?
Durban, Suður-Afríku. Reuter.
FORSETI Suður-Afríku, P.W.
Botha, sagði í gær að hann væri
vongóður um að samkomulag
væri á næsta leiti um lausn
blökkumannaleiðtogans Nelsons
Mandelas úr haldi. Komið hefur
í ljós að Mandela er með berkla
í öðru lunganu og dvelst hann
nú á sjúkrahúsi.
„Sjálfur tel ég að með tilliti til
aldurs og heilsu Mandelas þá væri
ekki skynsamlegt af honum að fara
aftur í fangelsið og ég vona að
hann geri mér kleift að bregðast
við á mannúðlegan hátt svo að frið-
ur haldist í Suður-Afríku," sagði
Botha á fundi með flokksfélögum
sínum. Mandela hefur setið í fang-
elsi í 26 ár sakaður um undirróður
gegn ríkinu.
„Verði Mandela jafn samvinnu-
fús og hann hefur reynst að undan-
fömu tel ég að árangur náist," sagði
Botha. Hann útskýrði mál sitt ekki
nánar en minnti fólk á að hann
hefði áður boðið Mandela frelsi
gegn því að hann afneitaði öllu of-
beldi. Áheyrendur fengu á tilfínn-
inguna að þetta væri ekki lengur
óhjákvæmilegt skilyrði fyrir frelsi
blökkumannaleiðtogans.
Þrýstingur hefur aukist á stjóm-
völd að undanfömu um að láta
Mandela lausan og í gær tók dag-
blaðið Beeld, sem styður ríkisstjóm-
ina, undir þær kröfur.
sinnar, sem hann flutti í nótt, kvaðst
Bush ætla að gefa bandarísku þjóð-
inni „hlutlæga mynd af stefnu og
sjónarmiðum" andstæðings síns.
Samkvæmt skoðanakönnun banda-
rísku sjónvarpsstöðvarinnar ABC
og dagblaðsins The Washington
Post, sem birt var í gær, hefur
Michael Dukakis þriggja prósenta
forskot á George Bush.
fjölda óbreyttra borgara í
gíslingu í samtals 52 klukku-
stundir.
Mennimir höfðu tvær konur í
haldi þegar þeir náðust. Önnur kon-
an lét lífíð er lögregla hóf skothríð
á BMW-bifreið ræningjanna á hrað-
braut, sem lokað hafði verið af og
Iiggur yfir Rínar-fljót milli Kölnar
og Frankfurt, en hin særðist alvar-
lega. Bankaræningjamir hlutu báð-
ir skotsár sem og kona ein sem sleg-
ist hafði í för með þeim. Lögreglu-
mennimir slupþu allir ósárir.
Mennimir, vopnaðir vélbyssum,
réðust á þriðjudag inn í bankaútibú
í bænum Gladbeck. Þeir tóku tvo
starfsmenn bankans sem gísla og
hótuðu að myrða þá yrði ekki farið
að kröfum þeirra og þeim afhent
reiðufé og bifreið. Eftir að lögregla
hafði setið um bankann í 14 tíma
var farið að kröfum mannanna sem
flúðu með gíslana tvo, karl og konu.
Lögregla reyndi að veita mönnun-
um eftirför aðfaranótt miðviku-
dagsins en það reyndist erfítt því
Reuter
Annar bankaræningjanna, Hans JUrgen Rösner, beinir byssu að
blaðamönnum í miðbæ Kölnar í gær.
þeir skiptu á bílum a.m.k. tvisvar
um nóttina. Um nóttina óku þeir
til Oldenzaal í Hollandi þar sem
þeir létu bankastarfsmennina lausa.
Ræningjamir stefndu norður og
komu til Bremen í gær. í Bremen
lögðu mennimir hald á langferða-
bifreið með 25 farþegum. Þeir skip-
uðu bílstjóranum að keyra að
bensínstöð þar sem þeir myrtu einn
farþegann, ungan ítala, og vörpuðu
líkinu út úr bflnum. Einn lögreglu-
maður lést og nokkrir slösuðust er
þeir misstu stjóm á bifreið sem
þeir óku á eftir langferðabifreiðinni.
Síðar létu mennimir flesta far-
þegana lausa og skiptu á rútunni
og grárri BMW bifreið sem þeir óku
er þeir náðust. í för með ræningjun-
’ um var unnusta annars þeirra sem
slóst í hópinn á miðvikudag. Hún
slasaðist á fæti þegar mennimir
skutu á eftir tveimur farþegum
langferðabifreiðarinnar sem reyndu
að flýja.
Talið er að mennimir hafí verið
undir áhrifum vímuefna. Að sögn
sjónarvotta nejrttu þeir einnig
áfengis sem þeir höfðu komist yfír
á bensínstöð í Bremen.Á meðan á
flóttanum stóð vildu þeir ólmir tala
við blaðamenn og veittu viðtöl bæði
í Köln og Bremen þar sem þeir
beindu byssu að blaðamönnum og
lýstu yfír því að þeir mætu líf sitt
einskis.
ZIA-UL-HAQ, FORSETI PAKISTANS, TÝNIR LÍFI í FLUGSLYSI
Óvissa um hvað við tekur:
Valdabarátta irnian hers-
ins gæti siglt í kjölfarið
FULLSNEMMT er að spá nokkru um, hvað taki við í Pakistan eftir
fráfall Zia ul-Haq forseta i fyrradag. f flugslysinu létust einnig
nokkrir þeir áhrifamenn innan hersins, sem Zia sjálfur hefði án efa
talið æskilegra að tækju við af sér en Ishaq Khan, forseti þingsins,
sem er nú forseti samkvæmt stjórnarskránni. Eins og einræðisherra
er háttur hafði Zia Iáðst að leiða hugann að því að hann yrði ekki
eilífur og því er nú enginn sjálfsagður arftaki innan seilingar. Ishaq
hefur gefið þá yfirlýsingu eina að kosningar verði eins og áformað
var. Zia hafði ákveðið að flokkar fengju ekki að bjóða fram og
vandséð hvort Ishaq megnar að halda þeirri stefnu til streitu. Sú
tilgáta sérfróðra að fráfall Zia gæti orðið Benazir Bhutto til ávinn-
ings er að svo stöddu nánast út í bláinn, að mínum dómi; erfitt að
sjá fyrir sér að annað gerist en herinn haldi völdum. Það gæti svo
verið áhorfsmál hvaða maður reyndist þar sterkastur. Valdabaráttu
innan hersins er þvi ekki unnt að útiloka.
Zia ul-Haq fæddist í bænum Jul-
lundar 12. ágúst árið 1924. Hann
gegndi herþjónustu í breska hem-
um í Búrma, Malaja og Indónesíu
í seinni heimsstyijöldinni og að
henni lokinni komst hann smátt og
smátt til metorða innan hersins,
þótt ekki væri framinn jafn skjótur
og hann hefði kosið.
Sfðar hækkaði Ali Bhutto hann
í tign og tók hann fram yfír sex
foringja og gerði hann að yfirmanni
herafla landsins. Nokkrum árum
síðar stýrði Zia valdaráni gegn
Bhutto.
Stjómartíð Bhuttos hafði ein-
kennst af óróa og pólitískri spill-
ingu. Zia sakaði Bhutto um að hafa
látið myrða ýmsa keppinauta.
Bhutto var leiddur fyrir rétt og
dæmdur til hengingar. Zia ákvað
að dómnum yrði fullnægt.
Um allan heim var aftakan for-
dæmd. En eftir að Sovétmenn réð-
ust inn f Afganistan gerðist Zia
einn skeleggasti gagnrýnandi Kab-
úlstjómarinnar og innrásarliðsins,
þótt flestir áttuðu sig á að sú af-
staða mótaðist ívið meira af hags-
munastöðu Pakistans. Hann ávann
sér með þessu hylli Vesturlanda,
einkum Bandaríkjanna, sem studdu
Pakistan með mikilli hemaðar- og
fjárhagsaðstoð eftir að Zia hafði
nánast opnað landið fyrir flóttafólki
frá Afganistan.
Þegar Zia rændi völdum sagðist
hann ætla að sitja í þijá mánuði
og efna síðan til kosninga og stuðla
að því að lýðræði kæmist á. Hann
ríkti í ellefu ár og var jafn afhuga
að láta af völdum þegar hann féll
frá og þegar hann komst til áhrifa.
Engum blandast hugur um að
styrkur hans lá í þvf að sjá leiki
andstæðinganna fyrír jafnvel áður
en þeir virtust vita þá sjálfír. Óbil-
andi trú á eigin hæfni og óskeikula
dómgreind gerði honum auðvelt að
réttlæta harðýðgislega innanlands-
stjóm.
Zia viðurkenndi aldrei að hann
sæktist eftir völdum valdanna
vegna. Hann virðist hafa trúað því
í einlægni að hann væri einn fær
um að stjóma. En af mörgu varð
þó ráðið að sætleiki þess var honum
ekki jafn leiður og hann lét. Hann
þótti sterkur persónuleiki, brosandi
og landsfoðuriegur. Honum tókst
með klókindum og lagni að afla sér
álits á alþjóðavettvangi, en vinsæld-
ir hans heima fyrir voru blendnar.
Hann hikaði framan af ekki við
að losa sig við andstæðinga sína,
og var ekki vandur að meðulum.
Hann lagði sig í líma að sýna lönd-
um sínum hversu alþýðlegur hann
Zia ul-Haq
var, ferðaðist um á hjóli á tfmabili
til að benda mönnum á að skilja
bflinn eftir heima og spara þannig
orku. Þar sem fáir bflar eru í einka-
eign, náði þetta framtak ekki tilætl-
uðum áhrifum.
Öðru dæmi um manngæsku hans
var hampað er hann lét bílstjóra
sinn nema staðar þar sem hafði
orðið umferðarslys og skipaði hon-
um að taka hinn særða upp í og
fara tafarlaust með hann á sjúkra-
hús. Daginn eftir fór Zia með ljós-
myndaraskara að vitja mannsins á
sjúkrabeði. Læknir einn missti út
úr sér, að það hefði getað kostað
slasaða manninn lífið að hann var
ekki meðhöndlaður rétt eftir slysið.
Lét læknirinn að því liggja að það
hefði verið með herkjum að tókst
að bjarga lífí hans. Sfðan hefur
ekki til læknis þessa spurst.
Zia sagðist vera dyggur múslimi
og hann vildi efla veg islam. Stefna
Zia hvað þetta varðaði mæltist mis-
jafnlega fyrir, sumir töldu að ekki
væri nóg að gert, aðrir vildu fara
hægar í sakimar.
Benazir Bhutto
Almennt hafa framfarir í Pakist-
an á stjómartímabili Zia ul-Haq
verið tregar og hagur þjóðarinnar
hefur lítið skánað. Sú stefna Zia
að vingast við Bandaríkjamenn
stafar ekki aðeins af andúð hans á
kommúnistum, heldur veldur þar
og úlfúðin milli Indveija og Pakist-
ana. Um árabil hafa Bandaríkja-
menn litið homauga hvað Indveijar
hafa verið hallir undir Sovétmenn
og var Bandarfkjamönnum vemleg
nauðsyn að verða sér úti um banda-
mann í þessum heimshluta, ekki
síst eftir að íran hafði sagt skilið
við þá.
Hvaða skoðun sem menn hafa á
stjómarfari Zia ul-Haq er augljóst
að um kænsku hans verður ekki
deilt. En hvað hann skildi eftir sig
og hvað tekur við í Pakistan er
auðvitað gáta, þótt öll merki séú
um að herinn haldi þar áfram völd-
um. Hvort sem kosningunum í nóv-
ember verður haldið til streitu eða
ekki.
Samantekt: Jóhanna Kristjónsdóttir