Morgunblaðið - 19.08.1988, Qupperneq 48
NYTT
SÍMANÚMER
^ 606600
FOSTUDAGUR 19. AGUST 1988
VERÐ I LAUSASOLU 70 KR.
Uffe Ellemann-Jensen:
Kolbeinseyj ardeil-
an gæti farið til Al-
þj óðadómstólsins
UFFE Ellemann-Jensen utanríkisráðherra Danmerkur segir í samtali
við Morgnnblaðið að ef ekki náist samningar í deilunni um Kolbeinsey
geti Danir þurft að visa málinu til Alþjóðadómstólsins í Haag. Uffe
Elllemann segir að þeir hafi í allt sumar beðið um viðræður við íslend-
inga um Kolbeinsey en þeir geti ekki sætt sig við eyjuna sem viðmiðun-
arpúnkt í landhelgi íslendinga
„Óskum okkar um viðræður um
Kolbeinsey hefur verið fálega tekið
af íslendingum. Ef samningar um
Kolbeinsey takast ekki gæti reynst
nauðsynlegt fyrir okkur að vísa mál-
inu til Alþjóðadómstólsins í Haag,“
segir Uffe Elleman Jensen. „Að mínu
mati væri okkur skylt að gera slíkt
y til að vemda hagsmuni okkar."
Aðspurður um hvort hann setti
einhver tímamörk á niðurstöður af
samningum um Kolbeinsey sagði
Uffe Elleman svo ekki vera en bætti
því við að þolinmæði þeirra væri
ekki endalaus.
„Ég vil taka það fram að ég er
ekki sammála þeim röddum sem
segja að það að málum á borð við
Jan Mayen málið og Kolbeinseyjar-
málið sé vísað til Alþjóðadómstólsins
skaði vináttu Norðurlandaþjóðanna.
Þvert á móti, þetta er sú leið sem
y* siðaðar þjóðir fara í að leysa deilu-
mál sín,“ segir Uffe Elleman.
Hvað Jan Mayen málið varðar
segir Uffe Elleman Jensen að hann
sé hissa á yfirlýsingum Eyjólfs Kon-
ráðs Jónssonar formanns Utanríkis-
málanefndar í því. Hér sé um að
ræða deilu milli Dana og Norðmanna
sem komi íslendingum hreint ekki
við. Aðspurður um af hveiju Danir
hefðu ákveðið að vísa málinu til Al-
þjóðadómstólsins en reyna ekki að
semja um það við Norðmenn sagði
hann að slíkar samningaviðræður
hafi staðið yfir í átta ár án árang-
urs. „Þar að auki buðum við Norð-
mönnum að setja deiluna í gerðar-
dóm en því var hafnað," segir hann.
. „Við verðum að gæta hagsmuna
Grænlendinga í þessu máli. Fiskveið-
ar eru þeim jafnmikilvægar og þær
eru íslendingum. Eg vil einnig geta
þess að við höfum sagt Norðmönnum
að við viljum ná samkomulagi við
þá um málið og getum þessvegna
hvenær sem er fallið frá málsókn
okkar fyrir Alþjóðadómstólnum,"
segir Uffe Elleman Jensen.
Morgunblaðið hafði í gærkvöldi
samband við Eyjólf Konráð Jónsson,
formann utanríkismálanefndar Al-
þingis, vegna framangreindra um-
mæla. „Ef það er rétt eftir danska
utanríkisráðherranum haft, að Jan
Mayen málið „komi íslendingum
hreint ekki við“, þá annað hvort
þekkir hann ekki forsögu málsins,
og lausn þess með merkum samning-
um 1980 og 1982, eða vill ekki viður-
kenna staðreyndir," sagði Eyjólfur
Konráð. „Ef hann er hissa á ummæl-
um mínum um málið, er ég stein-
hissa á ummælum hans.“
„Mér sýnist, þegar betur er að
gáð, að ráðherrann sé varkárari í
ummælum um Kolbeinseyjarsvæðið
og vil ekkert um það segja fyrr en
þau liggja skýrar fyrir og raunar líka
bíða með frekari athugasemdir varð-
andi Jan Mayen málið í von um að
einhvers misskilnings gæti, sem leið-
réttur verði,“ sagði Eyjólfur Konráð
Jónsson.
Morgunblaðið/Þorkell
Gjafir til Viðeyjarkirkju skoðaðar
Viðeyjarkirkju, næstelstu
kirkju landsins, bárust margar
góðar gjafir á opnunarhátíð
kirkjunnar og Viðeyjarstofu í
gær. Davíð Oddsson borgar-
stjóri, kona hans Ástríður
Thorarensen, Sólveig Ásgeirs-
dóttir biskupsfrú og Vigdís
Finnbogadóttir, forseti íslands
virða hér fyrir sér munina.
Böm Skafta Þorlákssonar og
Önnu K. Jónsdóttur, þau Geirlaug,
Svava og Þorlákur gáfu kirkjunni
handofinn altarisdúk úr damaski
eftir Sigríði Jóhannsdóttur og
Leif Breiðfjörð. Leifur smíðaði
einnig kertastjaka til minningar
um Ólaf Stephensen stiftamt-
mann og Sigríði Magnúsdóttur,
konu hans, sem nokkrir afkom-
endur þeirra hjóna gáfu. Dóm-
kirkjan gaf Viðeyjarkirkju altaris-
bækur, biblíur, helgisiðabækur og
sálmabækur. Sjá bls. 18—19.
Endurskipulagning fyrirtækja:
Erlendu lánin fara í
greiðslu bankaskulda
Fyrirtækin þurfa að greiða um 110 milljónir króna í lántökukostnað
MILLJARÐUR sá sem ákveðið var
að mætti taka að Iáni erlendis til
fjárhagslegrar endurskipulagn-
ingar fyrirtækja fer í greiðslu
bankaskulda þeirra.
Af þessum milljarði króna á að
veita um 80-90% til fyrirtækja í sjáv-
arútvegi. Þeir sem sækja um þessi
lán þurfa að greiða 6% fjárfestingar-
skatt auk annars kostnaðar, sem
samtals nemur 5% og því greiða fyr-
irtækin um 110 milljónir króna i lán-
tökugjald. Bankamir eru byijaðir að
afgreiða þessi lán en forráðamenn
sjávarútvegsfyrirtækja vilja fá fjár-
festingarskattinn felldan niður. Þeim
óskum hafa stjómvöld ekki svarað
enn. Samband fiskvinnslustöðva mun
halda stjómarfund á Akranesi í dag
þar sem þetta mál verður rætt auk
annarra.
Ágúst Elíasson framkvæmdastjóri
Sambands fiskvinnslustöðva segir að
þeim sem sóttu um lánin hafi verið
Ráðgjafanefnd ríkisstjórnarinnar:
Hlutafé verði ekki skatt-
lagt umfram annað sparifé
Skattfrjáls sveiflujöfnunarsjóður fyrir útflutninginn
RÁÐGJAFANEFND rikisstjómarinnar í efnahagsmálum lauk í gær
gerð tillagna um aukningu eigin fjár fyrirtækja. Tillögur nefndar-
innar fela meðal annars í sér að hlutafé verði boðið út í auknum
mæli og að hlutabréf í fyrirtækjum verði ekki skattlögð umfram
annað sparifé. Þá leggur nefndin til að í stað Verðjöfnunarsjóðs
sjávarútvegsins verði stofnaður sveiflujöfnunarsjóður.
„Það þarf að gera það á allan
hátt gimilegra en það er í dag fyr-
ir einstaklinga og fyrirtæki að
leggja fé í áhætturekstur. Til dæm-
is þarf að skattleggja hlutafé í fyr-
irtækjum eins og annað sparifé,
en þannig er málum alls ekki hátt-
að í dag,“ sagði Einar Oddur. Hann
sagði að margar af tillögum nefnd-
arinnar væru ekki nýjar, en unnið
væri að því að setja saman tillögu-
pakka, sem forsætisráðherra verð-
ur svo afhentur um helgina.
„Sveiflujöfnunarsjóðurinn er
hugsaður þannig að Verðjöfnunar-
sjóður hætti störfum og í stað hans
yrði útflutningsfyrirtækjum heimil-
að að frysta hluta tekna sinna í
góðæri ef þau gætu og þeir pening-
ar yrðu ekki skattlagðir fyrr en þá
að þeir yrðu teknir í notkun er
verr áraði,“ sagði Einar Oddur.
Hann sagði að nefndin hefði ekki
lagt til nákvæmlega hvemig menn
fengju að geyma þetta fé, hvort
það yrði á gjaldeyrisreikningum
eða á þann hátt annan, sem menn
teldu henta best.
Einar Oddur sagði að það væri
sama til hvaða efnahagsráðstafana
yrði gripið, þeim myndi óhjákvæmi-
lega fylgja töluverð lífskjaraskerð-
ing. „Mesta lífskjaraskerðingin yrði
auðvitað ef engar efnahagsaðgerð-
ir yrðu gerðar," sagði hann. „Það
blasir við að viðskiptakjör íslend-
inga hafa verið að skerðast stór-
kostlega. Útflutningsframleiðslan
á í vök að veijast vegna þess hvað
raungengið er orðið ofboðslega
hátt og er hreinlega við það að
stöðvast. Það væri náttúrlega hin
versta lífskjaraskerðing sem hægt
væri að hugsa sér ef það gengi
eftir. Við erum að reyna að gera
tillögur, sem koma í veg fyrir að
svo fari.“
Sjá Af innlendum vettvangi
á miðopnu.
sent bréf þar sem þeir voru beðnir
um að segja af eða á hvort þeir
tækju lánin á fyrrgreindum kjömm
og átti að svara þeim fyrir 15. ágúst.
Ágúst vissi ekki um neinn sem hefði
hafnað láni. Hann nefnir sem dæmi
aðila sem fékk 18 milljóna króna
lán. Af því var strax tekin 1,7 millj-
ón í kostnað. Kostnaðurinn skiptist
þannig að auk 6% skattsins eru tek-
in 3,5% í þinglýsingar og banka-
kostnað og síðan taka bankamir
1,5% í vaxtamun.
Skákþing íslands:
Hannes Hlíf-
ar efstur
HANNES Hlífar Stefánsson er
efstur að loknurn 4. umferðum á
Skákþingi íslands, sem fram fer
í Hafnarborg, með 3,5 vinninga.
Margeir Pétursson er í 2. sæti með
3 vinninga og biðskák og Jón L.
Arnason er í 3 sæti með 3 vinn-
inga.
I fjórðu umferð vann Jóhannes
Ágústsson Þröst Þórhallsson, Róbert
Harðarson vann Benedikt Jónasson,
Karl Þorsteins vann Þráin Vigfússon,
Ágúst Karlsson vann Ásgeir Þór
Ámason, Jón L. Ámason og Hannes
Hlífar Stefánsson gerðu jafntefli og
skák Margeirs Péturssonar og
Davíðs Ólafssonar fór í bið.
Fimmta umferð hefst kl. 18 í dag.