Morgunblaðið - 21.09.1988, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
215. tbl. 76. árg.
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sovétríkin:
Herinn grípur til
aðgerða í Armeníu
og Azerbajdzhan
FJOLDI Armena efiidi í gær til mótmæla í Jerevan, höfuðborg Arm-
eníu, eftir að komið hafði til átaka milli Armena og Azerbajdzhana
í héraðinu Nagorno-Karabakh í Azerbajdzhan, þar sem Armeni iést
af skotsárum og 24 særðust. Fréttastofan TASS greindi firá þvi i
gærkvöldi að her og lögregla hefðu gripið tii aðgerða til að binda
enda á þjóðaólguna í Armeníu og Azerbajdzhan.
Jerevanbúi sagði í samtali við
fréttaritara Reuters að nokkrum
fyrirtækjum hefði verið lokað og
strætisvagna- og sporvagnasam-
göngur hefðu legið að miklu leyti
niðri í borginni í gær. Gripið hefði
um sig almenn reiði meðal borg-
arbúa vegna átakanna í Khadz-
halíj, bæ skammt frá Stepanakert,
höfuðborg Nagomo-Karabakhs, á
sunnudag. „Þúsundir manna söfn-
uðust saman við höfuðstöðvar
Allsheijarþing SÞ:
Caputo Igör-
inn forseti
kommúnistaflokksins og Æðsta-
ráðs Armeníu," sagði Jerevanbúinn.
„Helsta krafa þeirra var að Az-
erbajdzhanar hætti að flýja frá
Armeníu til Nagorno-Karabakhs. “
Fréttastofan TASS skýrði frá því
að öryggissveitir hefðu gripið til
aðgerða til að koma á lögum og
reglu í Azerbajdzhan og Armeníu,
án þess að lýsa þeim nánar. Að
sögn fréttastofunnar hafði almenn-
ingur hvatt stjómvöld til þess að
grípa í taumana til að tryggja ör-
yggi íbúanna.
Ekkert símasamband hefur verið
milli Moskvu og Stepanakerts síðan
á mánudagskvöld.
/ J / / J M
j* *
Afram Island
Ijetur Sigurðsson
A myndinni hvetur hópur Islendinga íslenska landsliðið í handknattleik til dáða, en það sigraði
Bandaríkjamenn 22-15 á Ólympíuleikunum í Seoul I gærmorgun.
Sjá Olympíufréttir á bls. B1-B8 og 50-51.
Ekkert lát á átökunum í Búrma:
Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
DANTE Caputo, utanríkisráð-
herra Argentínu, var kjörinn for-
seti Allsheijarþings Sameinuðu
þjóðanna í gærkvöldi.
Caputo fékk 91 atkvæði og Dame
Nita Barrow frá Barbados 66 í
leyuilegri atkvæðagreiðslu. Forset-
inn er ólaunaður, en embættið er
þó talið það eftirsóknarverðasta
innan Sameinuðu þjóðanna fyrir
utan embætti aðalritara Sameinuðu
þjóðanna. í ár kom það í hlut Suð-
ur-Ameríkumanna og þjóðanna við
Karíbahaf, en þeim kom ekki saman
um hver ætti að gegna því.
Hátt í 500 manns hafa fall-
ið að sögn stjóraarerindreka
Rnntrlrnlr Ronter
Bangkok. Reuter.
BÚRMÍSKIR herforingjar, sem
tóku öll völd í sínar hendur á
sunnudag, tUkynntu i gær að
mynduð hefði verið ný stjórn i
landinu. Vestrænir stjórnarer-
Reuter
Beðið fyrir Japanskeisara
Japanskar konur biðja fyrir Hirohito Japanskeisara fyrir utan
keisarahöllina í Tókýó í gær. Keisarinn, sem er 87 ára gamall,
hafði fengið tvær blóðgjafir á einum degi eftir að hafá kastað
upp blóði. Hópur Japana safhaðist saman við keisarahöllina tU
að biðja fyrir keisaranum, sem var dýrkaður sem guð þar til
heimsstyijöldinni síðari lauk.
indrekar, sem segja að hátt í 500
manns hafi fallið í átökum her-
manna og mótmælenda undan-
farna daga, telja að stjórnin hafi
verið mynduð til að styrkja völd
hersins í landinu. Búddamunkar
og námsmenn héldu áfiram að
beijast með frumstæðum vopn-
um við hermenn sem reyndu að
bæla niður mótmæli í borgunum
Rangoon og Mandalay.
Átta af níu ráðherrum stjórnar-
innar eru herforingjar úr nefnd
þeirri sem sett var á fót á sunnu-
dag til að koma á lögum og reglu
í landinu. Saw Maung hershöfðingi
verður áfram vamarmálaráðherra
auk þess sem hann fer með utanrík-
ismál. Forsætisráðherra hefur ekki
verið útnefndur.
Útvarpið í Rangoon skýrði frá
því að 67 manns hefðu fallið í átök-
um á mánudag og í gær í borgunum
Rangoon, Mandalay og Tanggyi.
Samkvæmt opinbemm tölum hefur
121 fallið í átökunum síðan herinn
tók völdin. Meðal þeirra sem féllu
í gær voru ijórir mótmælendur sem
höfðu skotið beittum teinum úr reið-
hjólagjörðum á hermenn með
teygjubyssum, að sögn útvarpsins.
Búrmamenn og vestrænir stjóm-
arerindrekar segja að námsmenn
og munkar hafi ráðist inn í nokkrar
lögreglustöðvar til að ná byssum.
Útvarpið í Rangoon staðfesti að
ráðist hefði verið inn í fjórar stöðv-
ar og sjö lögreglumenn og fimm
mótmælendur hefðu fallið í átökum
þar.
Vestrænn sendiherra sagði að
hermenn hefðu hafið skothríð á hóp
13 til 14 ára skólastúlkna og nokkr-
ar þeirra hefðu látist. Búrmískur
fjármálamaður sagðist hafa orðið
vitni að bardaga milli námsmanna
og hermanna við aðalsímstöð höfuð-
borgarinnar á mánudagskvöld.
Námsmennimir hefðu beitt heima-
tilbúnum bensínsprengjum gegn
hermönnunum.
Talsmaður Tins OO, leiðtoga
stjómarandstæðinga, sagði að hann
og bandamenn hans, Aung San Suu
Kyi og Aung Gyi, hefðu óskað eftir
viðræðum við Saw Maung hers-
höfðingja. Leiðtogi samtaka náms-
manna í Búrma, sem hefur hingað
til beitt sér gegn ofbeldi, sagði hins
végar að tími friðsamlegra mót-
mæla væri liðinn.
Noregur:
Hótun um að myrða
Sonju krónprinsessu
Ósló. Frá Helge Serensen, fróttaritara Morgunblaðsins.
NORSKA lögreglan var með mikinn viðbúnað á mánudag eftir
að henni hafði borist bréf, ritað á sænsku, þar sem hótað var
að Soqja krónprinsessa yrði myrt meðan á heimsókn hennar í
Andenes á Vesturálseyjum stóð. Með bréfinu fylgdi skot úr sjálf-
hlaðandi byssu.
Lögreglunni í Andenes barst
bréfið á mánudagsmorgun,
skömmu áður en prinsessan kom
þangað með flugvél. Starfsmönn-
um pósthússins á staðnum hafði
þótt bréfíð grunsamlegt og hafði
samband við lögregluna. Hún leit-
aði þegar í stað aðstoðar öryggis-
lögreglunnar í Ósló.
Eftir að bréfíð barst var örygg-
isgæslan í grennd við prinsessuna
efld ' mjög. Hópur einkennis-
klæddra lögreglumanna fylgdi
henni hvert sem hún fór og vopn-
aðir lífverðir voru við öllu búnir
skammt frá drottningunni.
Lögregluyfírvöld hafa ekki vilj-
að opinbera innihald bréfsins
vegna rannsóknar málsins. Þau
hafa aðeins sagt að hótað hafí
verið að myrða krónprinsessuna
og því hafi fylgt byssuskot.
Prinsessan sneri til Óslóar
nokkrum klukkustundum síðar
eins og áætlað var eftir veislu á
eyjunum. Lögreglan leitar nú
þeirra sem sendu bréfið.