Morgunblaðið - 11.11.1988, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.11.1988, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1988 Hátíðartónleikar Pólýfónkórsins Morgunblaðið/Sverrir Hátíðartónleikar Pólýfónkórsins fóru fram í Háskólabíói í °S verða þeir því endurteknir á morgnn, laugardag. Mynd- gærkvöldi. Þar flutti kórinn, ásamt Sinfóníuhljómsveit íslands ln var tekin við lok tónleikanna í gærkvöldi. Áheyrendur fogn- og sjö einsöngvurum undir stjórn Ingólfs Guðbrandssonar, u^u stjórnandanum, Ingólfi Guðbrandssyni, ákaft að tónleikun- verk sem spanna 400 ára tónlistarsögu. Uppselt var á tónleik- um loknum, svo og einsöngvurum, kór og hljómsveit. Mannvirkjasjóður NATO vill greiða íyrir uppbyggingu varaflugvallar: Eg er andvígnr gjald- töku fyrir vamarliðið - segir utanríkisráðherra „ Mannvirkjasjóður NATO vill kosta varaflugvöll hér á landi, senni- lega að öllu leyti. Flugvöllurinn yrði mannaður af islenskum aðilum undir íslenskri flugumsjón og stjóm. Hann yrði ekkert hernaðar- mannvirki. Eina sldlyrðið af hálfu NATO er að ef til styijaldar kemur, megi bandalagið taka völlinn yfir,“ sagði Jón Baldvin Hannib- alsson utanríkisráðherra á opnum fundi á Akureyri á miðvikudags- Afstöðu ís- lands breyttá þing-i SÞ ÍSLAND sat hjá við afgreiðslu tveggja tillagna um kjarnavopna- frystingu, á aUsheijarþingi Sam- einuðu þjóðanna f gær. ísland greiddi samskonar tiUögum at- kvæði á sfðasta ári, eins og hinar Norðurlandaþjóðimar, en hafði áður setið hjá við afgreiðslu svip- aðara tillagna. Hjörleifur Gutt- ormsson alþingismaður, sem hef- ur beðið um utandagskrárumræðu á Alþingi um máUð, segir að með því að breyta afstöðu f þessu máli sé utanríkisráðherra að storka samstar&flokkunum í ríkisstjóm, þar sem fyrir liggi að þeir séu þessu ekki sammála. Tillögumar eru annars vegar frá Indlandi og Rúmeníu, þar sem skorað er á þær þjóðir, sem hafa ig'ama- vopn, að samþykkja samtímis fryst- ingu á framleiðslu þeirra og fram- leiðslu á kjamakleyfum efnum til vopnaframleiðslu. Hins vegar er til- laga frá Svíþjóð, Mexico, Indónesíu, Pakistan, Perú og Rúmenfu, þar sem skorað er á Bandaríkin og Sovétríkin að lýsa þegar í stað yfir frystingu á framleiðslu lqamavopna, fyrst í stað í fimm ár. Samskonar tillögur hafa komið áður fram á allsheijarþinginu. ísland sat hjá við afgreiðslu þeirra í hitteðfyrra, í ráðherratíð Matthíasar Á. Mathiesen, en á síðasta þingi ák- vað Steingrímur Hermannsson þáver- andi utanríkisráðherra að ísland greiddi atkvæði með þeim, eins og meirihluti aðildarþjóða SÞ. Jón Bald- vin Hannibalsson núverandi utanrík- isráðherra ákvað hins vegar í gær að breyta aftur afstöðu íslands. Utanríkisráðherra gerði grein fyrir þessu á fundi utanríkismálanefndar í gærmorgun, en vildi ekki tjá sig um afstöðubreytinguna við frétta- menn í gær, heldur vísaði í utandag- skrámmræðu á Alþingi um málið, sem verður f dag að ósk Hjörleifs Guttormssonar alþingismanns Al- þýðubandalagsins. Hjörleifur sagði við Morgunblaðið að þessi afstaða utanríkisráðherrans væri auðvitað storkun við Alþýðu- bandalagið og Framsóknarflokkinn sem stæðu fyrir annari stefnu. „0g það kemur satt að segja á óvart, að Alþýðuflokkurinn skuli vera að spila á þessum ryðguðu nótum, miðað við þá afstöðu sem jafnaðarmannaflokk- ar, og meira að segja hægri flokkar á Norðurlöndum, hafa tekið," sagði Hjörleifur. Þegar hann var spurður hvort þetta mál gæti haft áhrif á stjómarsamstarfið, sagði hann að það þyldi velting, en ekki marga brotsjói. __ kvöld. Jón Baldvin sagði að yfirgnæf- andi líkur væru á að varaflugvelli yrði fundinn staður í nágrenni Húsavíkur ef um hann næðist sam- staða í ríkisstjóm. Ef ákvörðun um forkönnun liggur ekki fyrir innan tíðar verður flugvöllurinn byggður á Grænlandi. Jón Baldvin sagði að flugöryggi krefðist þess að hér yrði komið upp varaflugvelli. Deila stjómarliða stendur um hvort heim- ila eigi NATO að taka þátt f kostn- aði og hafa Steingrímur J. Sigfús- son samgönguráðherra og Páll Pét- ursson formaður þingflokks fram- sóknarmanna lýst því yfír að það megi aldrei verða að mannvirkja- sjóður NATO greiði hluta kostnaðar á þeim forsendum að verið sé að reisa hernaðarmannvirki. Varaflug- völlur kostar um 11 milljarða króna. „Ég er andvígur gjaldtöku fyrir vamarliðið. Það er hér vegna milliríkjasamnings íslands og Bandaríkjanna og afleiðing af skuldbindingum, sem við höfum tekið á okkur með því að vera í Atlantshafsbandalaginu. Ef til ófriðar kemur, þá er skuldbinding NATO-ríkjanna sú að árás á eitt bandalagsríki er árás á öll hin. Trygging okkar felst í að eiga aðild að vamargetu ríkja, sem leggja allt frá 3,5 til 13% af ríkisútgjöldum til að halda uppi vamarviðbúnaði er trYggf hefur frið í okkar heimshluta frá stríðslokum. Framlag okkar hefur verið það eitt að láta hluta af okkar landi í té svo hægt sé að fylgjast með flugvéla- og skipaferð- um á svæðinu. Ef við ætlum í þokkabót að gerast hóra á alþjóða- vettvangi og heimta greiðslur, þá er mér misboðið. Að svo miklu leyti sem hér þarf að koma upp t.d. mannvirkjum og samgöngukerfum til að gera landið veijanlegt á að kosta það úr mann- virkjasjóði NATO. Við eigum hins vegar ekki að láta okkur detta til hugar að selja landið," sagði ut- anríkisráðherra. Sjá bls. 20: „Grænlenska heima- stjórnin fer fram á undirbúnings- könnun". Vestfirðir: Vindhrað- inn í 90 hnúta FÁRVIÐRI gekk yfir Vest- firði í gær og að sögn Veð- urstofunnar var meðal vindhraðinn 10 — 11 vind- stig og vindstyrkurinn fór í 90 hnúta í verstu kviðum á ísafirði, en það jafngildir 167 km hraða á klukku- stund. Að sögn Guðmundar Haf- steinssonar, veðurfræðings, átti veðrið að fara að ganga niður í nótt, en þó má búast við 7 — 8 vindstigum og snjó- komu á Vestfjörðum í dag og einnig fer að hvessa um norð- anvert landið og við Faxaflóa. Guðmundur vildi ekki meina að þetta veður væri óvanalegt á þessum árstíma, sagði þetta hefðbundið íslenskt vetrarveð- ur. Sjá frásagnir bis. 19 Utanríkismálanefiid Alþingis: Samníngi Breta og Ira um landgrunnsréttindi mótmælt Reglur haft’éttarsáttmálans sniðgengnar, segir Eyjólfur Konráð Jónsson SAMÞYKKT var á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í gær að mótmæla samningi Breta og íra um skiptingu landgrunns milli land- anna, á þeim forsendum að hann myndi skerða rétt íslendinga á Hatton-Rockallsvæðinu, vestur af Bretlandseyjum. Danir hafa þegar mótmælt þessum samningi á sömu forsendum, en utanríkismála- nefnd ákvað að freista þess að samræma sjónarmið íslendinga og Dana um það hvernig eigi að ná fram viðræðum allra þessara þjóða um málið. Samningur Breta og íra byggir á svokallaðri jafnlengdarlínu, sem er dregin þar sem jafnlangt er að ströndum viðkomandi landa. Lengd þessarar línu er ótakmörkuð og því gæti hún náð þvert yfír Hatton- Rockallsvæðið, sem íslendingar og Danir auk Breta og íra hafa gert tilkall til, og skipt svæðinu þannig á milli þjóðanna tveggja. Eyjólfur Konráð Jónsson alþing- ismaður, sem situr í utanríkismála- nefnd, sagði við Morgunblaðið að Bretar hefðu lengi verið tregir til formlegra viðræðna við íslendinga og Dani um landsgrunnsrétt á Hatt- on-Rockallsvæði nu, og borið því við að Bretar og írar hefðu gert um það samkomulag að leggja sín land- grunnsmál undir gerðardóm fyrst. „Það hafa þeir nú ekki gert, held- ur samið sín á milli á furðulegum grundvelli, því að reglur hafréttar- sáttmálans um aðferðir við af- mörkun landgrunns ríkja eru í einu og öllu sniðgengnar. Kannski sagði utanríkisráðherra Breta það á blaðamannafundi sem segja þarf og ég leyfí mér að túlka þessar aðferðir allar á þann veg, að Bretar séu nú loksins að sætta sig við það, að annað sé útilokað en að þeir setjist að samningaborði með öðrum þeim sem kröfur gera á land- grunninu, því allt annað er í hróp- andi ósamræmi við hafréttarsátt- málann og alþjóðalög," sagði Ey- jólfur Konráð. Ummæli Sir Geoffrey Hove ut- anríkisráðherra Breta, sem Eyjólfur Konráð vísar til, viðhafði hann á blaðamannafundi í Dublín 7. nóv- ember sl, þegar samningur Breta og íra var kynntur og eru eftirfar- andi: „Þið getið dregið þær ályktan- ir af samningnum sem þið getið dregið af samningnum. Samningur- inn segir mjög skýrt hvað hefur verið ákveðið og hvað hefur ekki verið ákveðið. í honum er kveðið á um það sem átti að kveða á um í honum. Hann getur ekki haft áhrif á það sem hann fjallar ekki um. Hann fjallar um það sem hann fjall- ar um. Þess vegna fjallar hann til dæmis ekki um Rockall." Eyjólfur Konráð sagði að íslend- inga hefðu bent Bretum á, að hætta gæti verið á því að engin þjóð fengi nein réttindi á þessu svæði ef þjóð- imar fjórar brytu niður röksemda- færslu hverrar annarar. Hins vegar væri mjög auðvelt fyrir þjóðimar að setjast við samningaborð og við- urkenna að þær ættu allar einhver réttindi á svæðinu. Ef síðan væri ekki hægt að ná niðurstöðu um hlutfallslega skiptingu, þá væri hægt að vísa málinu í einhvem gerðardóm. Morgunblaðið: Dagssalan í 49.673 eintökum Morgunblaðið seldist f 49.673 eintökum á dag á tfmabilinu aprfl - september sl. og var það 4,05% aukning frá sömu mánuðum í fyrra, þegar dagssalan var 47.740 eintök. Þetta kemur fram í upplagstölum Verslunarráðs íslands. Þá kemur fram að dagssalan á tímabilinu október 1987 til mars 1988 var 49.661 eintak.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.