Morgunblaðið - 11.11.1988, Page 4

Morgunblaðið - 11.11.1988, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1988 Hilmar Helgason, skipstjóri á Gnúpur GK í höfii í Grindavík. Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Gnúpi GK, i brú skipsins. Gnúpur GK fékk á sig tvo brotsjói GNÚPUR GK, skip Þorbjöms hf. í Grindavík, fékk á sig tvo brotsjói í fárviðri í Víkurál norðvestur af Bjargtöngum á Vestflörðum í gærmorgun. Oll siglingstæki í brú skipsins, sem eru ný, em talin ónýt. „Þegar Gnúpur fékk á sig brotsjóina dældaðist stýrishús skipsins, fimm rúður og hurð bak- borðsmegin á stýrishúsinu brotn- uðu og öldubijótur framan við það rifnaði upp. Siglingatæki í brú skemmdust mikið. Hins vegar slasaðist enginn um borð svo ég viti til,“ sagði Einar Valsson, stýrimaður á varðskipinu Tý. Týr kom að Gnúpi um 60 mílur norðvestur af Snæfellsjökli klukk- an 17.40 í gær en Heiðrún ÍS hafði fylgt skipinu þangað. Týr lóðsaði skipið til Reykjavíkur og reiknað var með að skipin yrðu komin þangað eftir hádegi í dag. VEÐURHORFURíDAG, 11. NÓVEMBER YFIRLIT í GÆR: Við Reykjanes er 952 mb lægð, sem þokast norð- ur og síðar austur, en yfir Norðausturlandi er vaxandi 960 mb lægð, sem hreyfist norður. Yfir Norður-Grænlandi er 1.014 mb hæð. Veður fer kólnandi. SPÁ: Norðaustanátt allhvöss og él vestan- og norðvestanlands, en hægviðri og að mestu úrkomulaust annars staðar. I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á LAUGARDAG: Norðvestlæg og síðan vestlæg átt, él við norðausturströndina en að mestu þurrt i öðrum landshlutum. Undir kvöld fer að rigna með vaxandi suðaustanátt á Suðvestur- landi. Hiti nálægt frostmarki. HORFUR Á SUNNUDAG: Lítur út fyrir hvassa suðlæga átt og rign- ingu víöa um land og hlýnandi veður. VEÐUR VÍÐA UMHEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavik hlti 3 B veftur rigning skýjaö Björgvin 11 rigning Helainki 3 skýjað Kaupmannah. 4 þokumóða Narssarssuaq +12 heiðskírt Nuuk +9 heiðskfrt Ósló 2 rigning Stokkhólmur 3 skýjað Þórshöfn 10 rigning Algarve 20 rigning Amsterdam 13 þokumóða Barcelona 20 hílfskýjað Chlcago 7 rignlng Feneyjar 10 þokumóða Frankfurt 8 mistur Glasgow 12 rigning Hamborg S rigning Las Palmas vantar London 15 skýjað Los Angeles 13 iéttskýjað Luxemborg 8 þoka Madnd 13 skýjað Malaga 20 alskýjað Mallorca 21 akýjað Montreal 5 alskýjað New York 8 léttskýjað París 14 skýjað Róm 15 þokumóða San Diego 13 þokumóða Winnipeg +3 alskýjað Nordsee hættir að kaupa íslenzkan freðfísk: Afar slæm tíðindi - segja fulltrúar SH og SÍS ÞÝZKA fyrirtækið Nordsee í Hamborg hefúr árlega keypt að minnsta kosti 400 til 500 tonn af frystum fiski af SH og SÍS fyrir tugi millj- óna króna. Hvorki SH né Sjávarafúrðadeild Sambandsins hafði í gær borizt tilkynning um þessa ákvörðun, en fúlltrúar beggja töldu þetta afar slæm tíðindi. Talið er mögulegt að fleiri fyrirtæki í eigu Unile- ver auðhringsins fylgi í kjölfarið. Fyrirtækið hyggst halda áfram að kaupa ferskan fisk, einkum karfa, héðan. Hvort því standi hann til boða áfram, er ekki vitað, en engin ákvörðun hefúr enn að minnsta kosti verið tekin um að flytja ekki ferskan fisk til Þýzka- lands. Sigurður Markússon, fram- kvæmdastjóri Sjávarafurðadeildar, sagði í samtali við Morgunblaðið, að heildarsala deildarinnar á fryst- um fiski til Þyzkalands væri að loknum 10 mánuðum orðin 2.640 tonn að verðmæti um 363 milljónir króna. Hver hlutur Nordsee væri, sagði hann að lægi ekki fyllilega fyrir. „Þetta er vissulega slæmt þó ekki sé verið að tala um neinar stór- kostlegar upphæðir hjá okkur. Það er slæmt að missa kaupendur út. í fyrra varð ormafárið svokallaða til þess að draga úr neyzlu á öllum fiski innan Vestur-Þýzkalands. Nú voru menn hins vegar sammála um að markaðurinn væri að ná sér á ný og við höfum talið að í framtíð- inni gæti Vestur-Þýzkaland orðið mjög mikilvægur markaður. Nú er komið alvarlegt bakslag í hlutina. Við höfum sagt, að okkur sýnist eina leiðin út úr þessu sú, að ljúka rannsóknaráætluninni án þess að drepa fleiri hvali, og sú afstaða hefur ekki breytzt," sagði Sigurður. Benedikt Guðmundsson, ifram- kvæmdastjóri söluskrifstofu SH í Hamborg, sagðist ekki hafa heyrt af þessari ákvörðun. Hins vegar hefði þessi hætta lengi vofað yfir. Árleg sala til Nordsee væri um 35 milljónir króna, en alls seldi SH um 7.000 tonn árlega í öllu landinu og væri hlutur Nordee nokkuð innan við 10% af því. „Allt þetta hvala- mál er slæmt. Það er slæmt að tapa viðskiptum og hvað fylgir í kjölfar- ið vitum við ekki," sagði Benedikt. Nordsee hyggst aðeins hætta að Vél Osbornes kyrrsett vegna bilunar FLUGVÉL Osbornes, þess sama sem lenti í árekstri í sumar vest- ur af landinu, var kyrrsett vegna bilunar á miðvikudag. Gert hefúr verið við vélina og bíður Osborne nú veðurs til að komast £rá landinu. Þegar hann lenti hér á þriðjudag var það í þriðja sinn á árinu sem hann þurfti á aðstoð að halda í feijuflugi sínu. „Við stoppuðum hann á miðviku- dag. Hann kom hingað á þriðjudag og var þá rafmagnslaus, án ljósa og fjarskipta, það var vegna bilun- ar,“ sagði Skúli Jón Sigurðarson hjá Loftferðaeftirlitinu. „Til að tryggja það að allt væri í lagi þeg- ar hann fer héðan og vegna fyrri reynslu af þessum manni, þá var vélin kyrrsett. Það var gert til að hafa allt á hreinu hvað okkur varð- ar þegar hann heldur áfram. Hann er nú fijáls að fara ferða sinna og við viljum sem minnst af honutn vita,“ sagði Skúli Jón. Þetta er í þriðja sinn sem Os- bome þarf á aðstoð að halda. Um hvítasunnuna var hann villtur vest- ur af landinu ogþurfti flugvél Flug- málastjómar að finna hann og leið- beina honum að landi. í sumar íenti hann í árekstri við aðra flugvél, sem var í samfloti með honum. Hin flug- vélin fórst og spurðist aldrei til flug- manns hennar eftir það. Nú síðast bilaði hjá honum rafkerfíð og þurfti hann á aðstoð að halda til að ná lendingu. Skúli sagði það algengt að vélar væru stoppaðar hér vegna bilana og fengju ekki brottfararleyfí fyrr en flugvirki hefur gert við og gefið vottorð um að þær séu í lagi. kaupa frystan físk af íslendingum, en halda áfram að kaupa ferskan karfa. í samtali við Morgunblaðið sagði Kristján Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ, að honum fynd- ist einkennilegt að þeir gerðu grein- armun á ferskum og frystum físki. Sér væri kunnugt um fyrirhuguð mótmæli Grænfriðunga í næstu viku vegna ferskfisksölunnar í Bremerhaven og Cuxhaven. Fyrst um sinn yrði áfram haldið að selja þama ferskan físk, en rétt væri að leggja áherzlu á, að það væri jafn- gilt sjónarmið að þeir segðust ekki vilja fískinn okkar og að við segð- umst ekki vilja .selja þeim hann. „Ákvörðun Nordsee kem- ur mér á óvart“ -segir sjávarút- vegsráðherra „Mér kemur þessi ákvörðun Nordsee mjög á óvart. Við höfúm reyndar engar upplýsingar feng- ið um að fyrirtækið ætli að hætta að kaupa frystan fisk frá ís- landi,“ sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra í samtali við Morgunblaðið. Hallldór sagði að fiskvinnslufyr- irtækin í Bremerhaven og Kux- haven væru mjög háð ferska fiskin- um frá íslandi. Samskipti þeirra og íslendinga hefðu verið mjög vin- samleg, en sú ákvörðun Nordsee, ef rétt reyndist, að hætta að kaupa frystan físk en halda áfran að kaupa hann ferskan hlyti að hafa áhrif á þessi samskipti. „SIS kemur að litlu leyti við sögfu“ MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi frá Ólafi G Einarssyni, alþingismanni:. „Athygli mín hefur verið vakin á því að ég hafí ranglega látið hafa það eftir mér að SIS sé eigandi fyrirtækjanna á Sauðárkróki sem nú em að kaupa togarana tvo frá Keflavík. Þetta leiðréttist hér með með þvf að upplýsa eftir- farandi: Lán Byggðastofnunar fer til Fiskiðjunnar á Sauðár- króki. Það fyrirtæki er alfarið í eigu Kaupfélags Skagfírð- inga. Þangað fer togarinn Bergvík. Útgerðarfélag Skag- fírðinga er að 30% í eigu Fisk- iðjunnar og Kaupfélags Skag- fírðinga. Þangað fer togarinn Aðalvík og þaðan fer togarinn Drangey til Hraðfrystihúss Keflavíkur sem er að 60% í eigu SÍS. Af þessu má sjá að SÍS kem- ur ekki nema að litlu leyti við sögu nema þá menn séu að gera því skóna að tengsl séu milli SÍS og þessara fyrirtækja á Sauðárkróki en svo er auðvit- að ekki. 10. nóvember 1988 Ólafúr G. Einarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.