Morgunblaðið - 11.11.1988, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 11.11.1988, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1988 11 Æviþættir og minningabrot Magims Sveinsson frá Hvítsstöð- um: Á ÝMSUM LEIÐUM HEIMA OG ERLENDIS. 138 bls. Reykjavík 1988. Undirtitill þessarar bókar er: Æviþættir og um menn og mái- efni. Og í formála segir höfundur: »Þeir æviþættir og aðrar frásagnir, sem hér eru birtar, eru færðar í letur fyrir löngu. Það var ekki fyrr en á síðasta ári, að mér datt það í hug, að ef til vill hefði einhver áhuga á að gefa þessa þætti út í bókarformi.« Og nú eru þættimir komnir út á bók. Magnús hefur lifað langa ævi, Magnús Sveinsson frá Hvitsstöð- um. víða farið og hitt fjölda fólks. Hann er af þeirri kynslóð sem má muna tímana tvenna, eins og stundum er komist að orði; ólst upp í sveit á fyrstu áratugum aldarinnar en hvarf svo til starfa í þéttbýlinu eins og fleiri. Hann hefur líka auga fyr- ir hinu smákímilega í veröldinni. Hann mun ennfremur vera maður friðsamur og óáleitinn. Og lítt hefur hann sóst eftir metorðum. Alls þessa gætir í æviþáttum hans. Þar gustar ekki af átökum. Frásögnin er notaleg en ekki tilþrifamikil. Og þó svo að þættimir tengist hver öðmm er auðséð að hér er engin gagnger ævisaga á ferð. Þetta er svona sitt lítið af hveiju eins og höfundur gefur raunar til kynna í formálanum. Lífinu í sveitinni i kringum fyrra stríð hefur margur lýst og hefur Magnús fátt um það að segja fram- ar því sem áður hefur verið sagt. Magnús gekk í Hvítárbakkaskólann og síðar í Kennaraskólann og var í nokkur ár farkennari. Að minni hyggju hefði hann mátt greina nokkm gerr frá þeim kapítula ævi sinnar. Hingað til hafa fáir orðið til að minnast farkennslunnar, ef til vill sökum þess að mönnum hef- ur varla þótt sá þáttur skólasögunn- ar vera þess virði að um hann væri fjölyrt. í farskólanum nutu böm aðeins nokkurra vikna kennslu vet- ur hvem. Magnús telur að þau hafí eigi að síður skilað jafngóðum árangri á prófum og þéttbýlisböm sem sátu margfalt lengri tíma á skólabekk. Eftir nokkurra ára kennslu braust Magnús í því að koma sér til framhaldsnáms erlendis. Að því búnu gerðist hann kennari við gagnfræðaskóla og sinnti því starfi upp frá því svo lengi sem aldur leyfði. Magnús getur þess í formálanum að fyrir komi í bók sinni »nöfn margra manna og kvenna, sem ég hef kynnzt fyrr og síðar.« Einkum em það sýslungar, Mýramenn, sem hann minnist frá uppvaxtarárum. Sumir em nefndir á nafn og lítið meira. Frá öðmm er greint nokkm nánar. Magnús lýsir vel sérkennum fólks, stundum með fáum orðum. Þó má vera að varfæmi hái honum nokkuð, að hann gæti sagt fleira en hann segir. í síðari hluta bókarinnar em fá- einar ferðasögur. Magnús er maður ferðaglaður. Er það einkum hálendi landsins sem hefur dregið hann til sín. Ferðasögur Magnúsar em, eins og títt er um þvílík skrif, sambland af frásögum og leiðalýsingum. Er alla jafna farið nokkuð fljótt yfir sögu. Um bók þessa sem heild má í fáum orðum segja: látlaus og við- felldin, ekki sérlega kjamyrt en al- þýðleg og persónuleg. Nótnabók með 235 lögum FÉLAG tónskálda og textahöf- unda hefúr gefíð út nýja nótna- bók sem ber heitið „25 islensk dægurlög". Lögin í bókinni em þessi: Lóa Lóa Lóa, Jámkarlinn, Týnda kyn- slóðin, Tasco tostada, Lítill dreng- ur, Söknuður, Hægt og hljótt, Lífsdansinn, Popplag í G-dúr, Lífið er lag, Skyttan, Augun mín, Skapar fegurðin hamingjuna?, Við emm við, Þyrnirós, Norðurljós, Look me in the eye, Fröken Reykjavík, Bara ég og þú, Þórður, Tunglskinsdans- inn, Hagavagninn, Braggablús, Ut í kvöld og ísland. Bókauppboð Klaustur- hóla í Templarahöllimn 144. listmunauppboð Klaustur- hóla verður haldið I Templara- höllinni, Eiríksgötu 5, sunnu- daginn 13. nóvember kl. 14.00. Meðal bóka og tímarita, sem boðin verða upp, eru: Reiknings- list einkum handa leikmönnum eftir Jón Guðmundsson, Viðey 1841, Monumenta typographica Islandica Vol. I-VI, Ljóðmæli Jóns Ólafssonar 1892, Sabine Baring-Gould, Iceland its scenes and sagas, London 1863, Af- mælisrit Ólafs Lámssonar 1955, Bam náttúmnnar 1919, Hvítir hrafnar 1922, Grallarinn 18. út- gáfa, Hólum 1773, Blanda 1—9, 1918—1953, Kjósarmenn 1961, Ættir Austfirðinga 1—9 1953— 1968, Iðnsaga íslands I-H, Arn- firðingar 1901—1903, Almanak Þjóðvinafélagsins 1875—1959 (allt frumprent), Reykjavíkur- pósturinn 1.—3. árg. 1846—1849 og Lanztíðindi 1,—2. árg. 1849— 1851. Bækumar verða til sýnis á Barónstíg lla laugardaginn 12. nóvember 1988 kl. 14—18. (Fréttatilkynning) OFIN MYNDVERK Myndlist Bragi Ásgeirsson Tvær ungar listiðnaðarkonur, er útskrifuðust úr Myndlistá- og handíðaskólanum vorið 1985, sýna það sem þær nefna sjálfar ofin myndverk í FÍM-salnum, Garðastræti 6, fram til 13. nóvem- ber. Þær Sigríður Kristinsdóttir og Ólöf Einarsdóttir em og jafnöldr- ur, fæddar 1959, svo þær teljast til yngstu kynslóðar veflistar- kvenna og mun þetta vera þeirra stærsta framtak til þessa, en þær hafa þó áður tekið þátt í samsýn- ingum hér heima og í Danmörku. Eftir vefunum að dæma þá virðast þær búa yfir ágætri gmnd- vallarkunnáttu í handverkinu, en fara þó mjög ólíkar leiðir í út- færslu og efnismeðferð. Þannig er uppistaðan í vefum Sigríðar Kristinsdóttur vaðmáll og ull, svo og salons-vefnaður með ull, bóm- ull og silki í bland. Hún styðst við mjög einföld og klár form, sem gjaman eiga að tákna fiöll, en em um leið óhlutlæg í eðli sínu og nær frumforminu þríhymingur í endurtekningarleik. Litimir em mildir og traustir og bera vott um mikla rósemi, en einnig það, að gerandinn veigri sér við átök. En það er svo einmitt í þeim verkum, þar sem fram koma nokkur átök við liti, form og efnislega dýpt, að dæmið gengur helst upp svo sem í myndunum „Fjöll“ (3) og „Tólf“ (5). Vefir Ólafar Einarsdóttur em allt annars eðlis, þótt hún styðjist einnig við mjög einfalt formmál, sem er hringurinn í ýmsum til- brigðum. Efnismeðferðin er miklu léttari, enda gengur hún út frá spjald- vefnaði í hör, bómull og hross- hámm. Hér vekur ein mjmd strax mesta athygli, sem er „í lofti“ (10) og ber óvefengjanlega nafn með réttu, því að myndin er í hæsta máta loftkennd og sviflétt á að horfa, þrátt fyrir að hurðar- grind hennar sé styrkt með fjöru- steinum, sem hanga skipulega í röð líkt og pendúlar neðst í mynd- verkinu. í heild verður þetta að teljast mjög þokkafull frumraun hjá hin- um ungu veflistarkonum, en kannski full fáguð og varfæmis- leg. Þeim skal svo óskað alls góðs á listabrautinni í framtíðinni. . . Auglýsingar í atvinnu-, rað- og smáauglýsingablad, sem kemur út á sunnudögum, þurf a að berast fyrir kl. 16.00 á föstudögum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.