Morgunblaðið - 11.11.1988, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1988
17
Frá blaðamannafundi sem íslandsdeild Norðurlandaráðs hélt i tilefni af aukaþingi Norðurlandaráðs i
Helsingor í Danmörku 16. nóvember næstkomandi. Talið frá vinstri: Friðjón Þórðarson, Valgerður
Sverrisdóttir, Ólafur G. Einarsson, Páli Pétursson og Eiður Guðnason.
Norðurlandaráð:
Aukaþing um umhverfisvernd og
aðgerðir gegn mengun sjávar
HALDIÐ verður aukaþing Norð-
urlandaráðs í Helsingar í Dan-
mörku 16. nóvember næstkom-
andi þar sem ijallað verður um
tiUögur ráðherranefndar Norð-
urlanda um umhverfisvernd og
aðgerðir gegn mengun sjávar.
Mengun sjávar við Norðurlönd
þykir vera orðin það mikið
vandamál að fljótlega þurfi að
gripa til sameiginlegra norr-
ænna aðgerða. Þvi sé ekki afsak-
anlegt að biða með að ræða til-
lögur ráðherranefndarinnar þar
til á næsta reglulega þingi Norð-
urlandaráðs sem haldið verður í
Stokkhólmi 27. febrúar til 3.
mars næstkomandi. Þetta kom
fram á fréttamannafundi sem
íslandsdeild Norðurlandaráðs.
Aukaþingið tekur einnig afstöðu
til flárlaga ráðherranefndarinnar
fyrir árið 1989 en fjárlagatillögum-
ar eru samanlagt að upphæð 611
milljónir danskra króna [um 4,13
milljarðar íslenskra króna], eða 3%
hærri að raunvirði en fjárlög ársins
1988.
Samstarf Norðurlandanna á sviði
umhverfismála hefur byggst á 5
ára áætlunum, þeirri síðustu frá
árinu 1983. Félags- og umhverfis-
málanefnd Norðurlandaráðs leggur
til að ráðherranefndin dragi til baka
tillögu sína um samstarfsáætlun
gegn mengun sjávar og leggi fram
nýja tillögu fyrir næsta reglulega
Norðurlandaráðsþing. Þá verði tek-
ið tillit til þeirra sjónarmiða sem
félags- og umhverfismálanefndin
setur fram í sínu áliti.
íslandsdeild Norðurlandaráðs
fékk það inn ( álit félags- og um-
hverfísmálanefndarinnar að fastara
verði að orði kveðið í áætlun ráð-
herranefndarinnar um aðgerðir til
að koma í veg fyrir mengunarslys
vegna til dæmis flutnings geisla-
virkra efna með skipum um Norður-
höf. Brennsla mengunarvaldandi
efna á rúmsjó verði alfarið bönnuð
eigi síðar en 1990 og gert verði að
skilyrði fyrir starfsleyfi nýrra at-
vinnufyrirtækja að þau losi ekki
lífræn efiii í sjó. Einnig telur ís-
landsdeildin afar mikilvægt að sem
flestar þjóðir staðfesti Hafréttar-
sáttmála Sameinuðu þjóðanna sem
fyrst. Friðrjón Þórðarson situr í fé-
lags- __ og umhverfismálanefndinni
fyrir íslands hönd.
A aukaþingi Norðurlandaráðs
mun íslandsdeild ráðsins einnig
leggja áherslu á að hvergi verði
slakað á þvi að hamla gegn notkun
ósoneyðandi efna, hætt verði að
losa umhverfismengandi úrgang í
sjó, áburðamotkun í landbúnaði á
Norðurlöndum verði takmörkuð og
fiskeldi verði takmarkað á þeim
stöðum þar sem mengunarhætta
af völdum næringarsalta er mikil.
íslandsdeildin leggur einnig áherslu
á að ráðherranefnd Norðurlandar-
áðs leggi samstarfsáætlun um
vemdun dýra- og jurtalífs hið fyrsta
fram og að unnið verði sameigin-
lega að því að aukinn straumur
ferðamanna um viðkvæm svæði
valdi sem minnstum skaða.
Amerískur plöntusjúkdómur til landsins:
Garðyrkjubændur vilja hert
eftirlit með innflutningi
HAUSTFUNDUR Sambands
garðyrkjubænda sem nýlega var
haldinn lagði áherslu á að hert
yrði eftirlit með innflutningi
blóma og grænmetis, þannig að
helst yrðu allar sendingar skoð-
aðar, vegna hættu á að hingað
berist ýmsir plöntusjúkdómar. Á
fundinum gerði Sigurgeir Ólafs-
son plöntusjúkdómafræðingur
grein fyrir aðgerðum til að hefta
útbreiðslu sjúkdóms sem nýlega
hefúr borist til landsins og
nefhdur er amerískt blómatrips.
Ameríska blómatripsið hefur
komið upp í 4-5 garðyrkjustöðvum
sem rækta blóm en með aðgerðum
virðist hafa tekist að stöðva út-
breiðslu þess og jafnvei útiýma úr
sumum stöðvanna. Talið er að sjúk-
dómurinn hafí borist hingað til
lands með innflutningi frá Hol-
landi. Bjami Helgason formaður
Sambands garðyrkjubænda segir
að eftir að þessi sjúkdómur barst
hingað hafí dregið úr innflutningi
frá Hollandi en hann aukist frá
Danmörku þar sem reglur um með-
ferð svona sjúkdóma séu strangari.
Á fundinum kynnti formaður
samþykktir síðasta aðalfundar
Stéttarsambands bænda, sérstak-
lega varðandi breytingar á sjóða-
gjöldum og tryggingum. Telur hann
að þróunin stefni í rétta átt, meðal
annars með minni flutningi peninga
á milli búgreina. Nú hafí hver bú-
grein meira val um sín mál.
Kjartan Ólafsson ráðunautur
skýrði frá vinnu sem fram hefur
farið á vegum samtakanna um raf-
magnsmál. Eftir að samþykkt var
á alþingi þingsályktunartillaga frá
Margréti Frímannsdóttur þar sem
skorað er á ríkisstjómina að útvega
ódýrt rafmagn til lýsingar í gróður-
húsum hófust viðræður við Raf-
magnsveitur ríkisins um fram-
kvæmd málsins. Fram kom að lítill
árangur hefur náðst. Með lýsingu
eykst markaður innlendrar ylrækt-
ar og betri nýting fæst á gróður-
húsin.
Fundurinn var fjölmennur, að
sögn Bjama, sóttu hann um 50
garðyrkjubændur. Auk aðalmála
fundarins var mikið rætt um sölu-
skatt á grænmeti sem Bjami sagði
að markaðurinn hefði ekki tekið við
og væri söluskatturinn því að
stærstum hluta greiddur af launum
garðyrkjubænda en ekki neytend-
um eins og til hefði verið ætlast
af stjómvöldum.
í
REYfKMVlK
ERIKA
ÞAÐ MÁ STÓLA
Á ÞÁ ÞESSA
k OPIÐ r ^
LAUGARDAC
FRÁKL. 9-16
Sterkur, einfaldur
og sígildur stóll
sem passar allsstaðar.
Hann fæst bæði í
áklæði og leðri.
Verð:
Áklæði:
kr 11.820,-
Leðurkr. 15.170,-
Verð: kr. 8.990,-
APPOLLO
Þægilegur, ódýrog ein-
faldur. RIE stóllinn fæst
í 4 litum og erklæddur
með bómullarefni.
Formbeygð beikigrind.
Hægindastóll í hæsta
gæðaflokki. Klæddur
með úrvals leðri á slit-
flötum. 4 litir í boði.
Verðið erótrúlegt:
Kr 35.980,-
m/skammeli.