Morgunblaðið - 11.11.1988, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1988
Hornaflokkur Kópavogs i Rostock í Austur-Þýskalandi 1985.
Einn, tveir, þrír, fjór ...
Hugleiðing um Hornaflokk Kópavogs
eftir Stemgrím St.
Th. Sigvrðsson
Tónamir úr homunum hækkuðu æ
meir eftir því sem innar dró í Kringl-
una.
Þessir hijómar úr blásturshljóð-
færunum gáfu kraft inn í umhverfið.
Fólk nam staðar og hlustaði.
Svei mér, ef það jaðraði ekki við,
að það yrði heimsborgaralegt í framan
eins og íbúar í London eða í New
York. I flestum borgum og stórborgum
heims tíðkast lúðrablástur í verzlunar-
miðstöðvum. Það skapar andrúmsloft.
Þama var á ferðinni Homaflokkur
Kópavogs og gaf svona áhrif á þessu
síðdegi hér á dögunum í Kringl-
unni... Verzlunarmiðstöðin sú er
orkustöð, þar sem lunginn úr þessari
víkingaþjóð, sem nefnast íslendingar,
kemur saman eins og í göngum og
réttum.
Fyrirmannleg hjón, heiðursmann-
eskjur, góðkunningjar þess, er þetta
ritar, stóðu þama álengdar. Það var
bjart yfir þeim. Gengið til þeirra og
þau spurð, hvemig þeim fyndist. Eig-
inmaður konunnar benti á einn i blás-
arasveitinni og sagði: „Strákurinn
okkar er að skemmta þama.“
Komungur maður, ljós yfirlitum —
það var sonurinn. Segja mætti manni,
að músíkgáfa hans væri í blóðinu —
í geninu — mann fram af manni, enda
„í svörtu skammdeginu
er slagkraftur lifandi
hornaflokks smitandi
og af hinu góða og ge f-
ur lífsgleði og minnir á
það, sem segir í ljóði:
„leggur loga bjarta frá
hjarta til hjarta um
himinhvelin víð.““
ættin söngvin og tónvis, afinn (í föður-
legg) hafði verið organisti í kirkjusókn
auscur í sveitum og virður vel.
Það var þögn líkt og í melódíu eða
f ljóði. Svo heyrðist í stjómandanum.
Hann segir eldsnöggt og ákveðið:
„EINN, TVEIR, ÞRÍR, FJÓR...“
Homasveitin spilaði Icebreaker
March eftir Kenneth W. Morgan.
Stemmningin í Kringlunni steig og
jókst. Hversdagsmennska bráðnaði
eins og þegar ís bráðnar og er brotinn
og fólk, sem hafði komið til að skoða
og verzla, varð eins og varmara í við-
móti. Slíkt klæddi það.
Stjómandinn Bjöm Á. Guðjónsson,
sem glöggur tónlistarmaður kvað
gæddan sjálfsvirðingu kröfuharðs
listamanns, töfraði fram innileik úr
blásarasveit sinni — einhveija sál, sem
magnaði andrúmsloftið þar í Kringl-
unni.
Einhvem veginn snertir mann sú
hugsun, að eitthvað sérstakt sé í sam-
vinnu spilaranna og stjómandans. Því
er erfitt að lýsa í orðum.
„Lffið er músfk og músík er lífið,"
sagði Louis Armstrong, sem blés f
trompet. Hann kom frá New Orleans,
vöggu dixielandsins og gamla jazzins,
sem spratt upp úr násöngvum negr-
anna, þá er sorginni var snúið upp í
gleðiákall.
Á sorglegum tímum, í þessari
óvissu, sem ríkir í samfélaginu, þegar
hrakfarir ofan á hrakfarir eru alls
staðar í kringum okkur, veitir ekki
af tónum eins og þeim, sem berast
úr hljóðfærum Homaflokks Kópavogs,
hvort heldur sem leikið er á homin í
Kringlunni, sem er slagæð Reykjavfk-
ur í dag, ellegar á torgum annars stað-
ar.
í svörtu skammdeginu er slagkraft-
ur lifandi homaflokks smitandi og af
hinu góða og gefur lífsgleði og minnir
á það, sem segir í ljóði: „leggur loga
bjarta frá hjarta til hjarta um himin-
hvelin víð.“
Að Hæðardragi.
Höfijndur er listmálari og rithöf-
uadiir.
Anna Ragnhildur
Viðarsdóttir — Kveðja
Fædd 23. janúar 1957
Dáin 4. nóvember 1988
Með þessum sálmi langar okkur
til þess að minnast elskulejgrar
frænku okkar og vinkonu, Önnu
Ragnhildar Viðarsdóttur, er andað-
ist 4. þ.m.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaður viðkvæm stund.
Vinimir kveðja,
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðasta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka,
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri trega-tárin strið.
Héðan skalt halda,
heimili sitt kveður
heimihs prýðin í hinzta sinn.
Síðasta sinni
sárt er að skilja,
en heimvon góð í himininn.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafði þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðar-hnoss þú hljóta skalt.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum,
þér síðar fylgja í friðarskaut.
(Vald. Briem)
Við vottum Viðari og öðrum að-
standendum samúð okkar.
Jóna, Lára og Berglind.
t
GUÐRÚN INGIBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR,
Víkurbraut 18,
Vfk í Mýrdal,
lóst á hjúkrunardeild Sjúkrahuss Suðurlands, Ljósheimum, Sel-
fossi, 9. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar.
Börn hinnar látnu.
Vetrarfagnaður
í Hlégarði
í samvinnu við SUS stendur FUS Mosfellsbæ fyrir stórdansleik
laugardaginn 12. nóvember i Hlégarði i Mosfellsbæ. Sætaferöir veröa
frá Valhöll kl. 21.00. Boðið verður upp á Ijúffengan málsverð og síðan
taka við frábær skemmtiatriði. Hin Isndsfræga eftirherma Jóhannes
Kristjánsson skemmtir gestum, Ámi Johnsen tekur lagið og margt
fleira. Hljómsveitin Kátir piltar leikur fyrir dansi. Aögöngumiði gildir
sem happdrættismiði og vinningar í formi utanlandsferða.
Verð aögöngumiða er kr. 1.500,-
Sláðu til, þvi ekki veitir af að lyfta sér aöeins upp á þessum síðustu
og verstu tímum vinstri stjórnar.
Alft sjálfstæöisfólk velkomið.
Miðasala og nánari upplýsingar í Valhöll, simi 82900.
Fjölmennum!
Fundur í bæjarmálaráði
Sjálfstæðisfélags
Egilsstaða
verður sunnudaginn
13. nóv. kl. 20.30.
1. Dagskrá bæjar-
stjórnarfundar
15. nóv.
2. Önnur mál.
Baejarfulltrúamir
Helgi HalkJórsson og
Siguröur Ananiasson
mæta á fundinn.
Sjálfstæðiskvennafélag
Borgarfjarðar
heldur aðalfund sinn þriðjudaginn 15. nóv
ember kl. 9.00 í Sjálfstæðishúsinu í Borgar
nesi.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Gestur fundarins verður Sturla Böðvars
son, bæjarstjóri í Stykkishólmi.
3. Vetrarstarfiö rætt.
Kaffiveitingar.
Félagskonur mætið vel og stundvíslega.
Stjómin.
Stjómin.
mSFundur um sjávar-
Pllútvegsmál
Verkefnisstjórn SUS um sjávarútvegsmál heldur
opinn fund í Valhöll föstudaginn 11. nóvember kl. 18.00. Verkefnis-
stjóri er Halldór Jónsson. Allir SUS-arar velkomnir.
Komdu og taktu þátt i mótun stefnunnar.
ísafjörður
Aðalfundur Sjálfstæðiskvennafélags isa-
fjarðar veröur haldinn þriðjudaglnn 15. nóv-
ember kl. 20.30 I Sjálfstæðishúsinu, 2.
hæð.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kaffiveitingar.
3. Önnur mál.
4. Gestur fundarins, Einar Kr. Guöfinns-
son, ræðir stjórnmálaviðhorfln.
1
Stjómin.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Pípulagningarvinna s: 675421.
National olíuofnar
Viðgerða- og varahlutaþjónusta.
Rafborg sf.,
Rauöarárstlg 1,8.11141.
Hugarþjálfun
Fræðslumiðstöðin ÆSIR stend-
ur fyrir kvöldnámskeiði í hugar-
þjálfun í kvöld 11. nóv. i Bolholti
4 kl. 19.00. Námskeiðið byggir
á nýjustu rannsóknum í dáleiöslu,
djúpslökun, tónlistarfækningum
og beitingu ímyndunaraflsins.
Leiðbeinandi er Garðar Garðars-
son. Skráning og nánari upplýs-
ingar fást hjá Gulu linunni i sima
623388.
félagslíf i
[ .i i *___JlAA—xJI-4—I
I.O.O.F. 12 = 17011118'/! =
Umr.
I.O.O.F. 1 = 17011118’/! =
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Dagsferð - sunnud. 13. nóv.
Kl. 13.00 - Kjalarnesfjörur.
Kjalarnes er framan undir Esju.
Ekið verður i áttina að Nesvík
og gangiö þaðan meö ströndinni
eins og timinn leyfir. Verð kr.
600.-
Brottför frá Umferöarmiöstöö-
inni, austanmegin. Farmiðar vlð
bil. Frltt fyrir börn og ungllnga
að 15 ára aldri.
Miðvikudaginn 23. nóv.
Kvöldvaka. Sýndar verða kvlk-
myndlr Guðmundar frá Mlðdal.
Aðventuferð til Þórsmerk-
ur 25.-27. nóv.
Fararstjóri: Kristján Sigurðsson.
Kvöldvaka. Jólaglögg.
Ferðafólag islands.
ungt fotk
:|8ia me<V hlutverk
tylíZ' VWAM - ísland
Biblíufræösla
Bibliufræðsla verður á morgun
laugardag kl. 10.00 i Grensás-
kirkju. Ólöf Daviðsdóttir talar um
efnið, Þjónusta i krafti heilags
anda (frh.). Bænastund á sama
stað kl. 11.15. Alllr velkomnlr.
Frá Guðspeki-
félaginu
Ingótfutrwti 22.
AskHftarslmi
Gtngltn sr
38673.
i kvöld kl. 21.00: Birgir Bjarna-
son, „Um ástina".
Á morgun kl. 15.30: Þróun og
andstæður (myndband).
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustrsti 2
í kvöld kl. 20.00: Bæn og lof-
gjörð. Frá kl. 23.00-02.00,
bænanótt.
Áskriftarsíminn er 83033