Morgunblaðið - 11.11.1988, Page 34

Morgunblaðið - 11.11.1988, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1988 t ÞÓRARINN B. NIELSEN fyrrv. bankafulltrúi andaðist á Hrafnistu miðvikudaginn 9. nóvember. Frœndsystkini hins látna. t Eiginmaður minn, faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, EMILÞ. JÓNSSON bifreiðastjóri, Skúlagötu 70, Reykjavík, andaðist miðvikudaginn 9. nóvember í Borgarspítalanum. Inga Edith Karlsdóttir, Werner Emilsson, Jón Bjarni Emilsson, Ragnheiður Emilsdóttir, Bryndis Emilsdóttir, Edwin Karl Benediktsson, Kristfn Pótursdóttir, Sigurður Pótursson Guörún Jónatansdóttir, Guðbjörn Kristmundsson, Sigursveinn Eggertsson, Dagbjört Hanna Sigdórsdóttir, Guðmundur Guðmundsson, og barnabörn. t Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR SKÚLI BERGMANN BJÖRNSSON, fyrrverandi starfsmaður Flugmálastjórnar rfkislns, Gnoðarvogi 28, Reykjavfk, verður jarðsunginn mánudaginn 14. nóvember kl. 13.30 frá Lang- holtskirkju. Fyrir hönd aðstandenda, Regfna Bergmann. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, AGNAR HARALDSSON LERVÍK, SmórahliTð, Hrunamannahreppi, verður jarösunginn frá Hrepphólakirkju laugardaginn 12. nóvember kl. 14.00. Áslaug Árnadóttir, Guðrún Agnarsdóttir, Benedikt Arnórsson og barnabörn. t Útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa, ÓLAFS NORÐFJÖRÐ KÁRDAL, Rauðagerði 12, fer fram frá Bústaðakirkju f dag, föstudaginn 11. nóvember, kl. 13.30. Helga Stefónsdóttir Kórdal, Jónfna Ó. Kórdal, Anna Marfa Kórdal, Sylvia May Peiluck, Anthony Peiluck og barnabörn. t Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, JENNÝJAR JÓNSDÓTTUR, Smóratúni 3, Seffossi, fer fram frá Selfosskirkju laúgardaginn 12. nóvember kl. 10.30. Jarðsett verður í Eyrarbakkakirkjugarði að athöfn lokinni. Sigríður Jónsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Baldur Karlsson og barnabörn. t Maöurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi HALLDÓR GfSLASON frá Langagerði, Kirkjuvegi 14, Selfossi, verður jarösunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 12. nóvember kl. 16.00. Guðbjörg Jónsdóttir, Eygló Kristófersdóttir, Björn Sigurðsson, Ester Halldórsdóttir, Steinar Karlsson, Hrefna Halldórsdóttir, Ágúst Morthens og barnabörn. Minning: Ólafar N. Kárdal Fæddur 25. ágúst 1910 Dáinn 3. nóvember 1988 Þó þú langförull legðir sérhvert land undir fót, bera hugur og hjarta samt þíns heimalands mót. í dag er til moldar borinn Ólafur Norðfjörð Kárdal. Ólafur fæddist á Blönduósi, næst yngstur níu systk- ina, sonur hjónanna Jóns Konráðs- sonar Kárdal og Guðfinnu Kristínar Þorsteinsdóttur. Bömin voru mörg og efnin lítil og sjö ára var Óla komið í fóstur á Undirfelli í Vatns- dal og var þar til 12 ára aldurs. Árið 1922 ákvað fjölskyldan að flytjast til Vesturheims. Ákveðið var, að Óli færi með eldri bróður sínum Þorsteini, sem þá var rúm- lega tvítugur á undan, en aðrir í Qölskyldunni komu árið eftir. Þeir bræður ferðuðust með skipi, fyrst til Noregs og þaðan til New York og loks með lest til Winnepeg í Kanada eftir 10 daga dvöl á hinni alræmdu innflytjendastöð á Ellice ísland. Þetta ferðalag mun hafa venð þeim bræðrum langt og erfítt. í Vesturheimi tók við erfíð og miskunnarlaus lífsbarátta fyrir hinn 12 ára dreng og átti hann ekki aft- urkvæmt til foreldra sinna til dvalar og um formlega skólagöngu var ekki að ræða. Óli mun fyrst hafa unnið við akuryrkjustörf á bónda- býlum á sléttum Manitoba en fór ungur að stunda fiskveiðar á Winnepegvatni og settist að í ís- lendinganýlendunni að Gimli. Líf fískimanna á Winnepegvatni var ekki heiglum hent og ekki dans á rósum. Vatnið líkist meira hafí en stöðuvatni í okkar skilningi og er viðsjárvert vegna krappra strauma og snöggra veðrabrigða. Fiskimennimir lágu við í litlum kofum meðfram vatninu og á eyjum langt norðan við Gimli og almanna- byggð. Á vetrum var fískað gegnum ís og eins og þeir einir vita, sem búið hafa á sléttum Norður- Ameríku, eru vetrarkuldar ótrúlegir á þessum slóðum. Óli mun hafa orðið yngstur for- maður á bát, aðeins 15 ára, á Winnepegvatni og alltaf sýnt af sér bæði dugnað og ósérhlífni, enda maðurinn stór og vörpulegur og hið mesta hraustmenni. Það var þó ekki líkamlegt þrek og glæsimennska, sem vakti at- hygli og aðdáun samferðamanna á þessum árum, heldur mikil og falleg söngrödd. Oft mun ómur íslenskra sönglaga þá hafa borist um vatnið og út á hinar óendanlega víðáttu- miklu sléttur Kanada. Olafur varð brátt eftirsóttur að skemmta með söng sínum og í blaðinu Heims- kringlu segir frá ungum manni, sem vakið hafi aðdáun og athygli á íslenskri sönglist og borið hróður ættlands síns með list sinni og prúðri og drengilegri framkomu. Ekki átti Ólafur kost á miklu söngnámi á þessum árum, en með aðstoð frænda síns, séra Valdimars J. Eylands, fékk hann til tilsögn um skeið hjá frú Hildi Lindgren Helgason í Blain í Washington-ríki. Það var ekki fyrr en Olafur var kominn um fertugt, að hann tók þátt í útvarpskeppni söngvara í Bandaríkjunum og vann þar til verðlauna og hóf upp úr því söng- nám við Maephali School of Music í Minneapolis árin 1950—52. Um það bil 10 árum áður kvænt- ist Ólafur fyrri konu sinni Sylviu Þorsteinsdóttur frá Gimli. Hún var tónlistarkennari að mennt og kenndi m.a. píanóleik. Árið 1952 fluttust þau frá Gimli í Kanada til tvíburaborganna Minneapolis-St. Paul í Minnesota- ríki í Bandaríkjunum, þar sem Ólaf- ur hóf störf, sem eftirlitsmaður við verkfræðifyrirtæki Vestur-íslend- ingsins Jóns B. Gíslasonar. Á þess- um árum ferðuðust hjónin oft um byggðir Vestur-íslendinga og héldu söngskemmtanir og Sylvia lék und- ir söng eiginmanns síns. En skyndi- lega dró ský fyrir sólu er Sylvia varð bráðkvödd, þegar hjónin voru að undirbúa ferð til íslands, sem var þvf aldrei farin og upp úr því dró Ólafur í land með að syngja opinberlega, þótt tónlist og góður söngur væru áfram hans mesta yndi í lífinu. Ólafur og Sylvia áttu eina dóttur, Sylviu May, sem er kennari að mennt og býr í Kanada. Ólafur kvæntist 1965 síðari konu sinni Helgu Stefánsdóttur frá Mýr- um í Miðfírði og þau bjuggu í St. Paul árin 1965—1976, er þau flutt- ust til íslands, þar sem Ólafur vildi eyða ævikvöldinu, þótt hann hefði yfírgefíð landið bam að aldri og ætti fíesta sína vini í Vesturheimi. Þau eignuðust tvær dætur, Jóninu og Önnu Maríu, sem báðar stunda nú framhaldsskóianám. Ég kynntist Ólafí Kárdal og helgu, þegar ég stundaði fram- haldsnám við Háskólasjúkrahúsið í Minneapolis árið 1968—76. Á þeim árum voru líffæraflutningar ný grein á tilraunastigi og baráttan á líffæraflutningadeildinni í Minnea- polis var háð á mörkum mannlegrar þekkingar og án fyrri reynslu og gekk á ýmsu um árangur. Vinnu- álag var gífurlegt. Það var því kærkomin hvfld og tilbreyting eftir langar og erfíðar vaktir að fara í kaffi til Helgu og Óla, sem bjuggu rétt hjá spítalanum. Þótt stutt væri á milli, var langur vegur milli þeirr- ar streitu sem fylgdi vinnunni og „rottu kapphlaupinu" á spítaianum og þeirrar rósemi og afslöppuðu vináttu og hjálpsemi, sem þau hjón- in sýndu mér og öðru námsfólki, sem á þessum árum dvöldust í tvíburaborgum Minneapolis-St. Paul. Ég held að segja megi, að þótt Valdimar Bjömsson væri óskipaður sendiherra íslands í augum okkar og hjálparhella þegar á reyndi í samskiptum við stjómvöld, þá var Ólafúr Kárdal sá, sem flestir leituðu til í daglegum vandræðum sínum. Þær em líka ótaldar kökumar og kaffíbollamir, sem Helga lét íslensku námsfólki í té á þessum ámm. Kárdalshjónin vom þannig mikilvægur kjami i hinni litlu, en síbreytilegu íslendinganýlendu, sem skapaðist í kring um Minne- sotaháskólann. Nú er hópur okkar dreifður og bæði Valdimar Bjömsson og Ólafur Kárdal horfnir á vit feðra sinna. Röddin, sem fyrst bergmálaði í norðlenskum fjalladölum og síðar ómaði á Winnepegvatni og víðáttu- miklum sléttum Norður-Ameríku er hljóðnuð. Ég trúi þó, að Ólafur haldi áfram að syngja þótt á óræð- um víddum verði, og sé hann til hinn eini, sanni, hreini tónn, held ég að Ólafur Kárdal hafí átt hann. Einlægari og heiðarlegri mann hef ég ekki fyrr hitt. Fjarst í eilífðar útsæ vakir eylendan þín: nóttlaus voraldar veröld þar sem víðsýnið skín. (Stephan G. Stephansson.) Auðólfúr Gunnarsson Hótel Saga Simi 12013 Kransa-og kistuskreytingar. Heimsendingarþjónusta. Sími 12013. Opið laugardaga til kl. 18.00. t ÁRNIHRAUNDAL frá Lækjarhvammi, Fffuaundi 1, Hvammstanga, verður jarðsunginn frá Hvammstangakirkju laugardaginn 12. nóv- ember kl. 15.00. Svanborg Guðmundsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar og tengdamóðir, amma og langamma, INGIGERÐUR GUÐNADÓTTIR, Álfaskeiði 34, Hafnarflrði, verður jarðsungin í Þjóðkirkjunni Hf. föstudaginn 11. nóvember kl. 13.30. Ásta Vilmundsdóttir, Guðmundur Guðmundsson, Guðni Vilmundsson, Svava Gfsladóttir, Kristján Vilmundsson, Erla Jósepsdóttir, Guðný Baldursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANNES GUÐBJ ARTSSON, Suðurvör 14, Grindavfk, áður Steinholti, Vestmannaeyjum, verður jarðsunginn laugardaginn 12. nóvember kl. 14.00 frá Grindavíkurkirkju. Frfða Jónsdóttir, Guörún H. Jóhannesdóttir, Guömundur Einarsson, Jón Ólafur Jóhannesson, Ólöf Andrósdóttir, Ebba Jakobsdóttir, Jónas Guðjónsson, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.