Morgunblaðið - 11.11.1988, Síða 37
4-
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1988
37
SPENNIÐ
SPENNIÐ
Miiming
Oddný Jónasdóttir
Fædd 20. ágúst 1949
Dáin 27. október 1988
í dag verður gerð útför Oddnýjar
Jónasdóttur en hún lést á Vífílsstöð-
um 27. október sl. eftir stutta legu.
Oddný fæddist 20. ágúst 1949.
yoru foreldrar hennar Guðrún
Ámadóttir, stöðvarstjóri Pósts og
síma, Hellu, og Jónas Helgason,
landpóstur. Eru þau bæði ættuð úr
Rangárþingi.
Fljótlega eftir fæðingu Oddnýjar
kom í ljós að hún var vanheil. Hófst
þá þegar mikil barátta við að koma
henni til heilsu en því miður blöstu
staðreyndir lífsins við og enginn
mannlegur máttur gat komið henni
til bjargar. Foreldrar hennar tóku
þá ákvörðun að hún skyldi njóta
skjóls og umönnunar í foreldrahús-
um. Eftir að systkini hennar Særún
og Helgi komust á legg sló öll fjöl-
skyldan skjaldborg um hana og
naut Oddný ástríkis og umhyggju
fjölskyldu sinnar alla sína ævi.
Vegna starfa minna hjá Póst og
símamálastofnuninni átti ég oft leið
um Hellu og kynntist fjölskyldunni
á símstöðinni vel. Dáðist ég að
umhyggju þeirra og ástúð sem þau
sýndu Oddnýju og þrátt fyrir sína
miklu fötlun geislaði andlit Oddnýj-
ar af gleði. Var auðséð að hún bjó
við öryggi og ástríki.
Nú að leiðarlokum kveð ég vin-
konu mína með söknuði. Þótt löngu
stríði sé lokið og hvíldin kærkomin
fylgir ætíð söknuður þegar ljúfir
samferðamenn kveðja.
Eg sendi ástvinum hennar og
allri fjölskyldunni innilegar samúð-
arkveðjur.
Jakob Tryggvason
Þú, Guð míns lífs, ég loka augum mínum
í líknarmildum fdðurörmum þínum
og hvíli sætt, þótt hverfi sólin bjarta,
ég halla mér að þínu fóðurhjarta.
Æ, tak nú, Drottinn, fóður og móður mína
í mildiríka náðarvemdan þína,
og ættlið mitt og ættjörð virztu geyma
og engu þínu minsta bami gleyma.
I vetrarkomu þegar blessuð
blómin okkar hneigðu höfuðin og
fölnuðu, þá kvaddi hún Odda okk-
ur. Hún var líkt og veikbyggt blóm
og gekk hér aldrei heil til skógar.
En hversu dýrðlegt verður þá ekki
að mæta henni heilli, handan við
gröf og dauða.
Hún var elskuleg stúlka og ein-
Minninff:
Safiiaðarfélag Fríkirkjunnar stofiiað
NÝTT Safnaðarfélag Fríkirkj-
unnar í Reykjavík verður stofnað
laugardaginn 12. nóvember kl.
15.00. Fundurinn verður haldinn
á Hótel Borg.
í frétt frá stuðningsmönnum sr.
Gunnars Bjömssonar segir: „Það
leikur ekki á tveim tungum, að
undirstaða alls félagsstarfs er þátt-
taka almennra félaga. Stuðnings-
menn sr. Gunnars Bjömssonar hafa
því ákveðið að stofna þetta félag
til þess að blása lífi í safnaðarstarf
Fríkirkjunnar í Reykjavík. Þetta
félag er hvorki hugsað sem kvenfé-
lag né bræðrafélag, heldur með
þátttöku allra áhugamanna.
*
Andrés Arnason
læg. Aldrei gleymi ég henni er hún
tók um hálsinn á mér og vildi með
því sýna þakklæti sitt. Það er mik-
ill missir fyrir foreldra hennar og
systkini nú þegar hún er öll og
þvílíka umönnun er þau sýndu henni
er vart hægt að hugsa sér betri.
Ég vil kveðja Oddu og þakka
fyrir samveruna. Ég er ríkari mann-
eskja fyrir það eitt að hafa kynnst
henni. Foreldrum hennar og systk-
inum bið ég guðs blessunar.
„Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.“
Jakobína Erlendsdóttir
Félagið er stofnað í kringum
kirkjuna og söfnuðinn; hvoru
tveggja til vemdar og stuðnings,
vamar og fulltingis.
Allt áhugafólk um framgang
Fríkirkjunnar í Reykjavík í framtíð-
inni er hvatt til þess að mæta og
vera með frá byrjun."
Fæddur 2. mars 1926
Dáinn 5. nóvember 1988
Andrés var trúaður maður og því
trúi ég, að vel hafi verið tekið á
móti honum fyrir handan.
Ég hafði kynnst Andrési sem
hæglátum manni þegar fjölskyldan
kom saman. Hann sagði aldrei
margt og því síður flíkaði hann til-
finningum sínum.
En þá kynntist ég því betur,
hvem mann hann hafði að geyma
sumarið 1982. Við hjónin vomm
þá búsett í Þýskalandi ásamt böm-
um okkar. Dag nokkurn hringdi
síminn og þá var það Andrés. Hann
sagðist hafa hug á að fara á bygg-
ingavörusýningu í Friedrichshafen
og spurði, hvort við værum reiðubú-
in til að fara þangað með honum.
Við vomm það og áttum þar ágæta
dvöl í fögm umhverfi Bodensee-
vatns. Síðasti dagurinn þar var
okkur öllum minnisstæður. Andrés
minntist oft á hann síðar. Við ókum
og skoðuðum markverða staði allan
daginn og Andrés tók fjölda mynda.
Hann hafði næmt auga fyrir nátt-
úmfegurð og var ákaflega hrifinn
af öllu sem fyrir augu bar. Minnis-
stæðast er mér þó, er við komum
inn í kaþólska kirkju í Sviss þar sem
messa stóð yfir. Þar gengu menn
til altaris og Andrés horfði hug-
fanginn á. Hann hvíslaði að okkur,
að hann hefði ætíð varðveitt sína
bamatrú og hvort við teldum við
hæfi að hann gengi til altaris með
fólki. Síðan meðtók hann heilagt
sakramenti þarna í ókunnu landi
þar sem framandi tunga var töluð
allt í kringum hann og auk þess
messað á latínu. Þegar hann kom
aftur til okkar, skein svo mikil ein-
læg gleði og friður úr svip hans,
að það snart mig djúpt. Því veit ég
nú, að hann hefur fengið góðar
móttökur, þar sem hann er nú.
Ég er glöð yfir, að Andrés leyfði
mér að skyggnast örlítið inn í hug-
skot sitt í þessari ferð. Við Brynjar
biðjum almættið um að styrkja alla
ástvini Andrésar.
Dagmar Koeppen .
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
GERIÐ GÆÐA
SAMANBURÐ
SEVEN
Seas
VÍTAMÍN
DAGLEGA
B-KOMPLEX
(^t orenco
HEILDSÖLUDREIFING
Laugavegi 16, sími 24057.
Nýja ULTRA LOTUS bleyjan er
með frönskum rennilás, sem gerir
hana einstaklega meðfærilega.
Þú getur fest hana og losað aftur
og aftur án nokkurra vandræða.
ULTRA LOTUS bleyjan er dún-
mjúk, þunn og fyrirferðarlítil,
með hámarks rakadrægni og að
sjálfsögðu ofnæmisprófuð.
ULTRA LOTUS - ný og fulikomin
bleyja - auðvitað frá LOTUS.
ULTRA LOTUSBABY
FRANSKUR
RENNILÁS
LOSIÐ