Morgunblaðið - 14.02.1989, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1989
Islendingar eignast verk-
smiðjutogara í Seattle
Allt hægt ef vilji er fyrir hendi, segir Jón Grímsson
Seattle, frá fréttaritara Morgunblaðsins, Valgerði P. Hafstað.
„ÞAJÐ er allt hægt ef vilji er fyrir hendi,“ sagði Jón Grímsson þeg-
ar fréttaritara Morgunblaðsins bar að garði á dögunum. Jón og
félagi hans, Guðjón Guðmundsson, sem báðir eru búsettir í Seattle,
festu fyrir ári síðan kaup á fiskirannsóknarskipi, sem þeir hafa nú
breytt í verksmiðjutogara.
Hyggjast þeir nota hann til botn-
fiskveiða, einkum þorskveiða á Al-
askaflóa, nálægt Kodiak-eyju. Ver-
ið er að leggja síðustu hönd á inn-
réttingar í togaranum, en ráðgert
er að fara í fyrstu veiðiferðina um
miðjan mars.
Skipið var 6 ára gamalt þegar
Jón og Guðjón keyptu það fyrir
hálfa milljón Bandaríkjadala, en það
hafði áður verið notað til veiða á
„humar á Hawaii og hörpudisk í
Alaska," eins og Jón komst að orði.
Kostnaðurinn við breytingamar
nemur tveimur og hálfri milljón
bandaríkjadala. Togarinn er 140 fet
að lengd (um 43 metrar) og rúmar
200 tonn af frystum fiski.
Guðjón var önnum kafinn úti í
bæ þegar fréttaritari kom á skrif-
stofu Sea Master Inc., en svo heitir
hið fjögurra ára gamla fyrirtæki
þeirra félaga. Jón tók hins vegar á
móti blaðamanni glaður I bragði.
Hann kvaðst hafa gefið togaranum
nafnið Continuity, eða Áframhald,
því „maður verður að halda áfram,
það þýðir ekkert að gefast upp“.
Jón tjáði blaðamanni að á skipinu
yrði 22ja til 24ra manna áhöfn og
að eigendumir yrðu báðir í þeim
hópi. Auk þeirra tveggja yrðu í
áhöfiiinni j)rír japanskir matsmenn,
nokkrir Islendingar, Bandaríkja-
menn og ef til vill menn frá öðrum
heimshomum. Skipstjóri verk-
smiðjutogarans verður Grétar, son-
«r Guðjóns Guðmundssonar, en Jón
vinnur nú að því að afla sér skip-
stjómarréttinda.
Aðspurður um markaðshorfur
kvað Jón þá félagana hafa gert 5
ára samning við Japani, sem eiga
25% hlut í togaranum. Hann sagði
að Japanir ættu meirihluta í fisk-
veiðiflotanum frá Seattle. „Samn-
ingaviðræðumar við Japani stöðv-
uðust í 7 mánuði af því þeir vildu
eiga 51% í togaranum," bætti hann
við, en Jón og Guðjón létu sig ekki
og Japanir féllust á 25% eignarað-
ild.
Nú stunda, að sögn Jóns, 40 til
50 verksmiðjuskip veiðar á Alaska-
miðum og eru þau flest gerð út frá
Seattle. Jón reiknar með að slík
skip muni ekki verða fleiri en 60,
því útlit er fyrir að reglugerðir
gangi í gildi á næstunni sem komi
í veg fyrir frekari fjárfestingu í
þeim.
Jón sagði nýjar aflaspár gefa til
kynna að á tímabilinu apríl til júlí
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 14. FEBRÚAR
YFIRLIT f GÆR: Vestlæg átt á landinu, allhvöss norðanlands og
vestan, en hægari annars staðar. Léttskýjað var á Suður- og Aust-
urlandi en él í öðrum landshlutum. Frost var um altt land, mest 9
stig á Hveravöllum.
SPÁ:Hæg breytileg eða vestlæg átt víðast hvar á landinu og él.
Frost 2-8 stig.
I DAG kl. 12.00:
Heimifd: Veöurslofa Islands
(Syggt é veóurspá W. 16.15 i gær)
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyri
Reykjavik
hiti veður
+3.1 snjó'el
1 snjóél
Bergen
Helsinki
Kaupmannah.
Narssarssuaq
Nuuk
Osló
Stokkhólmur
Pórshöfn
S skýjað
2 l'ettskýjað
7 Pettsk’yjað
+14 l’ettskýjaó
+17 snj'okoma
4 sk'yjað
4 heiðsk'yrt
4 rigning
Algarve 16 l'ettsk’yjað
Amsterdam 7 úrkoma
grennd
Barcelona 14 mistur
Berlín 6 skýjað
Chicago 2 snjókoma
Feneyjar 9 þokumóða
Frankfurt 6 hálfskýjað
Glasgow 9 súld
Hamborg 6 hálfskýjað
Las Palmas 18 þokumóða
London 9 rigning
Los Angeles 7 heiðskirt
Liixemborg 1 iéttskýjað
Madríd 9 léttskýjað
Malaga 17 féttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Montreal +15 heiðskirt
New York +3 léttskýjað
Orlando 13 léttskýjað
Parfs vantar
Róm 13 þokumóða
San Diego 8 heiskírt
Vín 6 skúr
Washington +1 alskýjað
Winnipea +6 skýjað
TAKN:
Heiðskírt
A
Léttskýjað
A
•» Hálfskýjað
A
Skýjað
Alskýjað
/ Norðan, 4 vindstkj:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og flaðrimar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■J0° Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V E'
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
_J- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG:Á miðvikudag: Norð
anátt um allt land. Él nprðaniands en léttskýjað syðra. Kólnandi
veður, frost 6-13 stig. Á fimmtudag: Hæg norðan- eða breytileg
átt. Smáél við norður- og austurströndina, annars bjart veður. Frost
6-13 stig.
♦ Reuter
Jón við verksmiðjutogarann. Meðeigandinn, Guðjón Guðmundsson,
var önnum kafinn þegar fréttaritara bar að garði.
í ár verði aflaverðmæti á Alaska--
miðum hæst, eða 600.000 Banda-
ríkjadalir fyrir 200 tonn af fiski.
Jón reiknar með að togarinn geti
verið 10 til 12 daga í hverri veiði-
ferð.
Jón hefur verið búsettur í Banda-
ríkjunum í átta ár, en Guðjón í um
15 ár. Jón var áður sjómaður á
ísafirði. „Hvað kanntu best að meta
í Bandaríkjunum," spurði fréttarit-
ari. Jón hugsaði sig um og svaraði,
„Tækifærin . . . en ekki er allt
dans á rósum f Ameríku."
Milljónir af vöðusel
í Norður-Atlantshafi
Selunnn gengur suður um vegna
ofQölgunar og fæðuskorts
AUKIN gengd vöðusels og blöðrusels hér við land stafar að öllum
likindum af vaxandi stofiistærð og hugsanlega ætisskorti á hefð-
bundum slóðum selsins langt norður af landinu að sögn Erlings
Haukssonar, sjávarlíffræðings hjá Hafrannsóknastofnun. Talið er
að stofii vöðusels við Norður-Atlantshaf skipti milljónum dýra og
þar af sé um hálf milljón norður af Jan Mayen. Ástæða Qölgunar
er friðun og síminnkandi veiði Norðmanna, sem á árum áður veiddu
tugi þúsunda sela í isnum fyrir norðan Jan Mayen.
Islendingar hafa ekkert veitt af
þessum tegundum um langt skeið.
Við veiðum aðeins landsel og útsel,
en báðar tegundimar kæpa hér við
land. Að meðaltali hefur veiði okkar
á þessum tegundum verið um 5.000
dýr, en þó mun minna á síðasta
ári. Nú fást 25 krónur fyrir hvert
kíló af selnum og er hann nýttur í
loðdýrafóður.
Erlingur Hauksson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið, að áður hefðu
Norðmenn tekið tugi þúsunda sela
í ísnum norðan við Jan Mayen. Nú
hefðu aðeins fimm skútur farið
norður. Vegna þess að ekki mætti
lengur skilja skrokkana eftir eins
og áður, þyrftu skipin að eyða miklu
plássi í meltutanka um borð og tak-
markaði það burðargetu á skinnum
og veiði. Skipin hefði verið á styrk
frá norska ríkinu þar sem skinnin
væru nánast verðlaus.
„Bæði vöðusels- og blöðrusels-
stofninn voru vaxandi, áður en
botninn datt úr veiðunum, vegna
samtaka Kanadamanna, Sovét-
manna og Norðmanna um að tak-
marka veiðar frá því, sem fyrr var
á öldinni. Vöðuselir í Norður-At-
lantshafi skipta nú milljónum.
Flestir eru við Kanada og í Barents-
hafi, en um hálf milljón í ísnum
norður af Jan Mayen,“ sagði Erling-
ur. „Stofn landsels og útsels hér
við land telur aðeins nokkra tugi
þúsunda svo þar er mikill munur á.“
Erlingur sagði, að selagöngumar
við Noreg kæmu bæði úr Barents-
hafinu og frá Jan Mayen og stöfuðu
af offjölgun og fæðuskorti í kjölfar-
ið. Sókn þeirra hingað væri líklega
af sömu orsökum. Hefðbundin
gangur mála væri sá að selurinn
kæpti á ísnum norður frá. Fengitími
hæfist skömmu síðar og færi kópur-
inn þá, nokkurra vikna gamall, suð-
ur og vestur með ísröndinni uns
ísinn leysti að áliðnu sumri. Þá
héldi hann til baka. Einn og einn
kópur flæktist venjulega hingað, en
nú væru óvenjumikið um hann.
Áður fyrr hefði það ekki þótt tíðind-
um sæta þó þessar tegundir kæmu
í net út af Sléttu, en nýlunda væri
að svo gerðist við Grímsey og Höfn
í Hornafirði eins og nú væri.
Bflar hækka um 0,7 tfl 3%
GENGISLÆKKUN krónunnar
um 2,5%, hefur mismikil áhrif á
verð nýrra bifreiða vegna mis-
vægis milli gjaldmiðla og er
hækkunin á bilinu 1,5 til 3%.
„Það má segja að prósentuhækk-
unin komi svo til beint ofan á gjald-
skrána sem var í gildi í janúar,"
sagði Þorbergur Guðnason sölustjóri
hjá Sveini Egilssyni. „Meðal fólks-
bifreið frá Vestur- Þýskalandi kost-
aði fyrir gengislækkun milli 650 til
700 þúsund en hækkar nú um um
3%. Ford Bronco til dæmis hækkar
um 2% og er það vegna misvægis
milli gjaldmiðla og má nefna sem
dæmi að kanadadollar hefur hækkað
frá því 11. janúar um 5,9% en jap-
anska jenið á sama tímabili um 1,8%.
Japanskir bílar hækka um 3% við
gengisfellinguna.
Hjá Heklu hf. fengust þær upplýs-
ingar að japanskir bílar hækka um
2%, breskir bílar um 1,5%, og vestur
þýskir um 0,7% og er þá miðað við
tollagengi við gengisfellingu. Þannig
hækkar Lancer 1500 GLX með afl-
stýri úr 759 þúsund krónum í 774
þúsund og Pajero jeppi, dísel, sjálf-
skiptur, sem kostaði 2.059 þúsund
krónur kostar nú 2.100 þúsund.
Kaupmannahöfii:
Málverk á
V2 milljón
Kaupmannahöfn.
MÁLVERK eftir Þorvald Skúla-
son, Komposition, var selt á upp-
boði í Kaupmannahöfii á 476.000
íslenskar krónur eða 68.000 dkr.
Verkið var selt á málverkaupp-
boði hjá Kunsthallen í Köbma-
gergade í lok síðustu viku.
Komposition ber ártalið 1960 og
er 130x97 sm að stærð. Matsverð
þess í sýningarskrá var 50.000 dkr.
Þrír aðilar buðu í verkið sem loks
var slegið hæstbjóðenda á 68.000
dkr.