Morgunblaðið - 14.02.1989, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1989
7
Alþjóðlegt skák-
mót hefst á
Loftleiðum í dag
FJARKAMÓTIÐ, alþjóðlegt
skákmót sem Skáksamband Is-
lands stendur fyrir, hefet á Hótel
Loftleiðum í dag. Sex stórmeist-
arar og sex aJþjóðlegir meistarar
eru meðal þátttakenda á mótinu
sem er í 9. styrkleikaflokki.
tefli. Speelman, sem keppti hér á
Heimsbikarmótinu sl. haust, er nú
einn þeirra fjögurra skákmanna
sem eftir eru í áskorendaeinvígun-
um. Bæði Tisdall og Watson hafa
aðstoðað Speelman í einvígunum.
Bjórinn inn í land-
iðfyrir l.mars
„VIÐ HÖFUM í 30 ár fengið að taka til okkar áfengi jafnóðum og
það kemur til landsins," segir Höskuldur Jónsson forstjóri ÁTVR.
Hann var spurður 'hvort verið gæti að óljóst orðalag í áfengislögum
bæri að túlka svo, að bjór megi ekki koma inn í landið fyrr en 1. mars.
„Við getum hins vegar ekki toll- verður með innlendu framleiðend-
afgreitt né selt bjór fyrr en 1. uma, en við tökum við ölinu frá
mars.“ Höskuldur kvaðst ekki líta þeim þann 1. mars.“ Framleiðend-
svo á að vandræði ættu að verða um hefur verið gefinn kostur á að
með að koma ölinu í verslanir ÁTVR afhenda bjórinn til ÁTVR frá og
tímanlega til að selja það l.mars. með 17. þessa mánaðár.
„Ég veit hins vegar ekki hvemig
í mótinu taka þátt stórmeistar-
amir V. Eingorn og J. Balasjof frá
Sovétríkjunum, J. Hogdson frá
Bretlandi, Helgi Ólafsson, Jón L.
Árnason og Margeir Pétursson frá
íslandi. Alþjóðlegir meistarar em
Jonathan Tisdall frá Noregi, Will-
iam Watson frá Bretlandi og Hann-
es Hlífar Stefánsson, Karl Þor-
steins, Sævar Bjarnason og Þröstur
Þórhallsson frá íslandi. Einnig
keppa Björgvin Jónsson og Sigurð-
ur Daði Sigfússon á mótinu.
Meðalskákstig keppenda eru
2470, sem þýðir að mótið er í 9.
styrkleikaflokki. Þarf 5V2 vinning
til að ná áfanga að alþjóðlegum
meistaratitli og 8 vinninga til að
ná stórmeistaraáfanga.
Von er á breska stórmeistaranum
Jonathan Speelman til landsins
síðar í mánuðinum, og mun hann
skýra skákir á mótinu og tefla fjöl-
Bannað að
auglýsa
„ókeyp-
is“ filmur
VERÐLAGSRÁÐ hefur bannað
fyrirtækinu Myndsýn hf. notkun
og auglýsingu orðins ókeypis
þegar viðskiptavinuni eru af-
hentar fílmur án sérstaks endur-
gjalds. Nokkrir samkeppnisaðil-
ar tetfa þetta óheiðarlega við-
skiptahætti og kærðu til Verð-
lagsstofhunar.
Gísli ísleifsson lögfræðingur
Verðlagsstofnunar sagði að það að
nota orðið ókeypis við afhendingu
á filmum þegar Myndsýn framkall-
aði og stækkaði fýrir viðskiptavini
væri talið óheiðarlegt gagnvart öðr-
um framköllunarfyrirtækjum og
villandi gagnvart neytendum. Ekki
væri hægt að líta á að filman væri
ókeypis, hún væri innifalin í fram-
köllunarverðinu.
Skipað í
refanefhd
MAGNÚS B. Jónsson búvísinda-
kennari á Hvanneyri hefúr verið
skipaður formaður neftidar til
að vinna að Qárhagslegri endur-
skipulagningu loðdýrabúa, í sam-
ræmi við samþykkt ríkissljórnar-
innar um aðstoð við loðdýra-
bændur.
Samkvæmt samþykkt ríkis-
stjómarinnar á Framleiðnisjóður
landbúnaðarins að taka 60 milljóna
króna lán og veija til endurskipu-
lagningarinnar. Aðrir í nefndinni
eru Jón G. Guðbjörnsson fram-
kvæmdastjóri Framleiðnisjóðs land-
búnaðarins og Leifur Kr. Jóhannes-
son framkvæmdastjóri Stofnlána-
deildar landbúnaðarins. Nefndinni
til aðstoðar verður Gunnlaugur Jú-
líusson hagfræðingur Stéttarsam-
bands bænda.
victron varaaflgjafinn
>
SC
CT>
9
u
rafmagnið
þegar það fer!
Varaaflgjafinn er trygging þín fyrir því að þú
missir ekki út upplýsingar við spennufall eða
rafmagnsleysi. Hann er ætlaður tölvum, allt frá
einkatölvum til stórra tölvukerfa. Varaaflgjafinn
hentar einnig fyrir t.d. telefaxtæki og skiptiborð.
Við rafmagnstruflun ver varaaflgjafinn tölvur
og gefur þér áfram fulla rafmagnsþörf. Við
algjört rafmagnsleysi veitir hann þér orku og
nauðsynlegt svigrúm til að gera viðeigandi
ráðstafanir.
Láttu okkur meta þörfina hjá þér, við sjáum
um uppsetningu og veitum alla sérfræðiþjónustu.
Hafðu samband við sölumenn okkar.
Láttu ekki
fara með þig -
ITÆKNIVAL
GRENSÁSVEGI 7, SÍMI 68 16 65