Morgunblaðið - 14.02.1989, Page 13

Morgunblaðið - 14.02.1989, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1989 13 Hvað með togstreitu tilfinninganna? Sviðsmynd, talið frá vinstri: Herdís Þorvaldsdóttir, Pálmi Gestsson, Lifo'a Þórisdóttir og Helga Jónsdóttir ________Leiklist Jóhanna Kristjónsdóttir Þjóðleikhúsið frumsýndi Háska- leg kynni eftir Christopher Hampton, byggt á skáldsögunni Les Liaisons Dangereuses eftir Choderlos de Laclos. Lýsing: Sveinn Benediktsson Leikmynd og búningar: Karl Aspelund. Þýðing: Karl Guðmundsson og Þórdís Bachmann. Leikstjórn: Benedikt Árnason. Spillingarlíf fransks aðalsfólks í lok átjándu aldar, brögð og klækir sem einkum snúast um að illa inn- rætt hertogafrú og fyrrverándi við- hald hennar og kvennabósi með vísigreifatitil koma sér saman um að greifinn fleki nokkrar stúlkur til viðbótar. Sér til skemmtunar vænt- anlega og hertogafrúnni til hugsvöl- unar, ef vera kynni hún gæti náð sér niður á væntanlegum eða fyrr- verandi elskhugum sínum. Flókið? Varla svo mjög því að höfundur er nærgætinn við áhorfendur og sér til þess að vísigreifínn og „fóm- arlömb" hans eru svo lengi að koma sér að efninu, að þetta hefst allt saman. Þetta leikrit skrifaði höfundur upp úr djarfri og frægri sögu sem skrifuð var á sögutíma verksins. Sagt er að hún hafí valdið hneyksl- un á sínum tíma og ekki ósenni- legt. Sama verður ekki sagt um leikritið, það er ákaflega erfítt að skynja nánd þessa verks nú og þess sem það hefur að segja. Og þó er þetta margverðlaunað verk. Samt er auðvitað hægt að íhuga togstreitu tilfínnininganna, eða öllu heldur afneitun þeirra, það gæti borið í sér næga dramatík til að vekja áhuga á „siðfágaðri úrkynjun yfírstéttarinnar", ef úrkynjunin á að birtast í þessum leik þeirra vísi- greifans og hertogafrúarinnar, sem er að vísu dálítið erfítt að festa hugann við og það sem er öllu verra; mér var engin leið að hafa samúð með þessu fólki, þó að skynja megi snautlegt líf þess og tómt. Sýning Þjóðleikhússins varð ekki til hjálpar þessu leikverki. Fyrst leyfi ég mér að nefna að leikmynd- in var rýr og mögur. Nokkrir Lúðvíksstólar færðir til og frá um sviðið milli atriða, tjöld við glugga og dyr ósköp fjarri að vera glæsi- leg, virkuðu hálflufsuleg og krump- uð. Fatnaður leikara var í litlausara lagi, og er þá kurteislega til orða tekið. Leikstjóri hefur ekki á hreinu — eða það skilaði sér ekki á frum- sýningunni að mínum dómi — hvers konar sjónleik er verið að færa upp. Er þetta hádramatískur sjón- leikur, með ívafí kímni og ádeilu? Eða fáránleikur einn saman? Eða eitthvað annað? Sum atriðin, sem voru samkvæmt texta langt frá því að vera fyndin, vöktu hlátur og/eða vandræðalegt fliss. Atriði þar sem ádeilan var hvað nístingslegust náðu ekki tilgangi sínum, því að allt í einu var farið að leika í allt annarri tónjegund. Staðsetningar báru ekki vott um hugmyndaauðgi og er það furðulegt, því að Bene- dikt Árnason hefur oft verið öðrum flínkari hvað þær varðar. Þá eru leikarar látnir vera alltof innarlega á sviðinu, án þess séð verði, hvaða meiningu það hefur. Ragnheiður Steindórsdóttir er markgreifafrú Merteuil, það mikla flagð. Ragnheiður leikur af reisn og áhuga. Hún hefur lítillar hjálpar notið í mótun hlutverksins og erfitt að trúa á takmarkalausa illsku hennar. Gervi hennar og þó einkum andlitsförðun er út í hött. Pálmi Gestsson fer með hlutverk þess slóttuga vísigreifa sem verður fyrir þeirri reynslu að upplifa sannar til- fínningar í garð konu, en áttar sig ekki á því fyrr en eftir æðistund og nokkrar aðrar flekanir. Pálmi sýndi athyglisverðan leik í mörgum atriðum, honum tókst ekki frekar en Ragnheiði með hertogafrúna að ná fram nógu sannfærandi úr- þvætti úr vísigreifanum. Aftur á móti hafði hann ágæta sviðsfram- göngu og sýndi viðkunnanlega ein- lægni þegar tilfínningatogstreitan ætlar að gera út af við hann. Helga Jónsdóttir hafði hvað þokkalegast gervi, var skýrmælt og óþvinguð, en lítið meira. Lilja Þóris- dóttir var í gervi Madame de Tour- vel, sem er konan sem breytir vísi- greifanum. Hún var ágætlega prúð og siðsöm í framkomu, lék á lægri nótunum, sem mér fannst rétt. Á hinn bóginn fór meira en lítið úr- skeiðis þegar geðshræringamar gagntaka hana. Herdís Þorvalds- dóttir var gamla frúin og gerði hana snyrtilega úr garði og María Ellingsen var stúlkan 'Cecile og átti_ góða spretti, en ekki sérlega sann- færandi í einfeldningsskapnum, en kannski rétt túlkun, vísast að Cec- ile sé ekki öll þar sem hún er séð. Halldór Bjömsson var af leikstjóra gerður alltof bjálfalegur, Randver Þorláksson verður að gæta sín á tilgerðarlegri framsögn. Sólveig Pálsdóttir fór af lipurð og hæfílegri stílfærslu með hlutverk Emilie gleðikonu. Auk þeirra var svo hópur þjónustuliðs sem gekk öðm hveiju inn og út og átti sameiginlegt að vanda sig og vera í fádæma kauða- legum búningum. Baráttan við tilfínningamar, af- neitun þeirra ellegar misþyrming ætti að hafa sína skírskotun. Jafn- vel hjá frönsku yfirstéttarfólki á átjándu öld. En þá verður að vekja áhuga, þá verður að hafa einhvem púnkt að leggja upp frá og helst vita að hvaða púnkti á að stefna. Opnunartími: Föstudaga.kl. 13-19 • Laugardaga.kl. 10-16 • Aðra daga...kl. 13-18 Fjöldi fyrirtækja - gífurlegt vöruúrval HUMMEL SAMBANDIÐ RADÍÓBÆR ELFUR HERRABÚÐIN ADAM MÍLANO BLÓMALIST NAFNLAUSA BÚDIN THEÓDÓRA v STEINAR— HUÓMPLÖTUR- KASSETTUR - BOGART — GARBÓ — TÍSKUFATNAÐUR SPORTVÖRUR ALLS KONAR FATNAÐUR Á ALLA FJÖLSKYLDUNA - HUÓMTÆKI O.M.FL. P.H BARNAFATNAÐUR HERRAFATNAÐUR -SKÓFATNAÐUR 1 - BLÓM OG GJAFAVÖRUR 1 - EFNI ALLS KONAR - KVENTÍSKUFATNAÐUR - SNYRTIVÖRUR - SKARTGRIPIR TÍZKUVÖRUR O.M.FL. FYRIRTÆKI ÓtrúleO* verd

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.