Morgunblaðið - 14.02.1989, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1989
19
'■ ’þ''
Lengi býr að fyrstu gerð
Gerber barnamatur, grunnur að hollum neysluvenjum.
FIRST fOOUS*
PEACHES
/
First Foods - Avextir og grænmeti.
First Foods barnamaturinn frá Gerber er
100% náttúrufæða, sérstaklega fíngerður og
mjúkur. Hentar einstaklega vel þegar verið er
að byrja að venja börn við fasta fæðu.
Gerber
f yfir 50 ár hafa böm verið okkar
hjartans mál.
Gott úrval af hollum og næringarríkum
ávöxtum og grænmeti. Litlir skammtar
henta vel í byrjun. í hverri krukku er
einungis ein tegund ávaxta eda grænmetis,
72% markaðshlutdeild í U.S.A.
segir meira en mörg orð...
engum aukaefnum er bætt í, aðeins C-vítamíni.
100% náttúrulegur barnamatur, sérstaklega
fíngerður í litlum krukkum. First Foods aðeins
frá GERBER.
Einkaumboð.
íslensxfiÍÍH
Ameriska
Tunguháls II. Sími 82ZOO.
Lagning varaflugvallar á íslandi:
Engar kröfiir
gerðar um afiiot
á friðartímum
- segir Jón Baldvin Hannibalsson
VON er á formlegri, skriflegri staðfestingu frá Manfred Wörner,
framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, þess efnis að bandalag-
ið muni ekki gera kröfur um nein hernaðarleg not af varaflugvelli
hér á landi á friðartímum verði hann lagður fyrir fé frá Mann-
virkjasjóði bandalagsins. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð-
herra sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að orðsending þessa
efiiis væri væntanleg „fljótlega" en kvaðst ekki vilja láta uppi hve-
nær málið yrði lagt fyrir ríkisstjómina. Steingrímur J. Sigfiísson
samgönguráðherra sagði í gær að slík staðfesting breytti engu.
Augljóst væri að stefiit væri að frekari hemaðarappbyggingu hér
á landi auk þess sem það væri ótækt með öllu að erlendir aðilar
kostuðu lagningu flugvallar á Islandi.
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í Leifsstöð á
laugardag að „æskilegt" væri að
varaflugvöllur yrði lagður hér á
landi. Ljóst væri að ekki yrðu sett-
ar fram kröfur um hernaðarleg
aðstöðu á slíkum flugvelli á frið-
artímum færi svo að hann yrði kost-
aður af Mannvirkjasjóði Atlants-
hafsbandalagsins.
Jón Baldvin Hannibalsson sagði
í gær að von væri á formlegri stað-
festingu þessa efnis frá Manfred
Hlíf Svavarsdóttir og ís-
Ienski dansflokkurinn sýna í
óperuhúsum Norðurlanda.
Wömer, framkvæmdastjóra Atl-
antshafsbandalagsins. í staðfest-
ingunni yrði kveðið á um að engar
kvaðir yrðu gerðar um hernaðarleg
not af slíkum flugvelli á friðartím-
um og að tæknilegar skilgreiningar
yrðu í engu frábrugðnar þeim sem
giltu um venjulega flugvelli. Þannig
væri gert ráð fyrir því að öll stjórn
hugsanlegs varaflugvallar yrði í
íslenskum höndum.
Steingrímur J. Sigfússon sam-
gönguráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að slíkar stað-
festingar breyttu engu um afstöðu
hans til lagningar varaflugvallar
hér á landi. Atlantshafsbandalagið
legði ekki fram fjármagn til slíkra
framkvæmda í góðgerðarskyni auk
sem það væri gmndvallaratriði að
íslendingar kostuðu sjálfir lagningu
flugvalla hér landi. Kvaðst sam-
gönguráðherra andvígur frekari
hernaðamppbyggingu á Islandi en
greinilegt væri að áform um lagn-
ingu varaflugvallar væm liður í
áætlunum í þá veru-.
Hlíf og dans-
flokkurinn í
óperuhúsum
Norðurlanda
Staðfesting hefiir borist til
Hlífar Svavarsdóttur um sýn-
ingar íslenska dansflokksins
á verkum hennar í íjóruni
óperuhúsum Norðurlanda í
haust. Boðið kemur í kjölfar
sigurs Hlífar í keppni ungra
danshöfunda í Ósló á síðasta
ári, en þar vann hún fyrst til
fyrstu verðlauna fyrir ballett
sinn „Af mönnum" við tónlist
Þorkels Sigurbjömssonar.
íslenski dansflokkurinn
verður með heilskvöldssýningu
á listdönsum eftir Hlíf í
Svenska teatern í Helsinki 9.
og 10. ágúst, Stora teatern í
Gautaborg 12. og 13. ágúst,
Södra teatern í Stokkhólmi 16.
og 17. ágúst og Konunglega
leikhúsinu í Kaupmannahöfn í
var gjalddagí húsnæðíslána.
Það er í þínum höndum hvað
verður um penínga heimílísíns.
Þegar kemur að afborgunum
lána, er því undír þér komið að
borga á réttum tíma.
Þar með sparar þú óþarfa útgjöld
vegna dráttarvaxta, svo ekki sé
talað um innheimtukostnað.
í.
febrúar
septémber.
A verkefnaskránni verða:
„Af rnönnum". Tónlist: Þorkell
Sigurbjörnsson. Búningar:
Sigrún Úlfarsdóttir. Lýsing:
Grétar Sveinbjörnsson. „Inn-
sýn“. Frumflutt á Akureyri sl.
haust. Tónlist: Erik Satie. Lýs-
ing: Sveinn Benediktsson. „On-
efnt nýtt verk“. Tónlist: Hjálm-
ar H. Ragnarsson. Leikmynd
og búningar: Sigutjón Jóhanns-
son. Lýsing: Sveinn Benedikts-
son. „Duende“.
(Fréttatilkynning)
16. íebrúar íeggjast dráttarvextir á lán með lánskjáravísitölu.
1. mars leggjast dráttarvextir á lán með byggingarvísitölu.
Greiðsluseðlar fyrir 1. febrúar hafa verið sendir gjaldendum og greiðslur má inna af hendi í oiium bönkum og sparisjóðum landsins.
Sparaðu þér óþarfa útgjöld af dráttarvöxtum.
cSd húsnædisstofnun ríkisins
U LAUGAVEGI 77 101 REYKJAVÍK S; 69 69 00
SAMEINAÐA/SÍA