Morgunblaðið - 22.04.1989, Page 15

Morgunblaðið - 22.04.1989, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1989 15 KENNARASTARF- IÐ OG LAUNAKJÖR efíir Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur Ég er ein af þessum venjulegu grunnskólakennurum. En starf mitt er á engan hátt venjulegt. Það er ekki venjulegt í tvennum skilningi. Starfið á sér fáar hliðstæður á hinum almenna vinnumarkaði og er í sjálfu sér fjölbreytt. En kennarastarfið er ekki einungis fjölbreytt, það er mjög merkilegt starf. Ég tek mig sem dæmi, endá handhægast. Ég kenni 89 nemendum í vetur. Samkvæmt námsskrá á ég að gera þau hæf í að skilja og tjá sig á tveim- ur tungumálum. Reyndar eiga þeir nemendur sem ég kenni dönsku, að geta lesið texta á öllum Norðurlanda- málum. Starfið felst ekki einungis í fræðslu heldur á ég að gera ungling- ana mína að nýtum þjóðfélagsþegn- um, auka siðferðis- og réttlætiskennd þeirra, stuðla að jafnrétti og sjá til þess að hver og einn af þessum 89 nemendum mínum fái námsefni og kennslu við sitt hæfi. Ég er með umsjón yfir 21 nemanda. Þeirra á ég að gæta sem væru þau næstum því mín eigin böm, fylgjast með að engum sé strítt, að allir fái að njóta sín, að allir mæti á réttum tíma í allar kennslustundir, hafa samband við foreldra og ekki aðeins þegar eitthvað bjátar á. Nú, við kennarar erum kallaðir til sem sérfræðingar í forvamarstarfi í áfengis-, tóbaks- og annari vímu- efnaneyslu. Sérfræðingar í kynferð- ismálum, vitum að sjálfsögðu allt um alnæmi og hvenær sem einhverjum félagasamtökum dettur í hug, efnum við til samkeppni í ritgerðasmíð, myndlist, slagorðagerð o.s.frv. Nemendur eiga sem sagt rétt á námsefni við hæfi hvers og eins. Sú bók er að sjálfsögðu enn ekki til sem hefur þann eiginleika. Þá er bara að semja námsefni. Stór hluti undirbún- ingstímans fer í að semja/búa til verkefni. Kennarastarfið er því ekki ólíkt hlutverki rithöfunda og annarra listamanna. Kannski er þar komin skýringin á lágum launum kennara, hver kannast ekki við misskilda lista- manninn? Það er heldur ekki undar- legt að svo margar konur veljist í kennarastéttina, því okkar eðli er jú að vernda og ala upp. Við getum verið afskaplega stolt af okkar starfi. En hvað er þá að? Af hvetju erum við ekki ánægð með kjör okkar? Er ekki stórfurðulegt að t.d. ég skuli vera að kvarta yfir lágum launum? Ekki svelta dætur mínar, þær hafa föt að klæðast, leikföng að leika með og tækifæri til að mennta sig. En það er ekki mínum laununt að þakka. Ég er nefnilega gift. „Og er þá ekki allt í lagi,“ kynni einhver að spytja. Nei, mér finnst niðurlægjandi að geta ekki horft framan í fólk og sagt: „Ég er fjárhagslega sjálfstæð." Held- ur verð ég að segja: „Launin mín geta ekki framfleytt mér og dætrum rnínurn." Þess vegna er það svo að einstæð móðir sem kennir með mér hefur ekki tekið sumarfrí í 10 ár. Með mér kennir lika ungt fólk um 40 kennslustundir á viku og því líður ekki vel að lokinni vinnuviku. Oft er ég spurð hvers vegna ég hætti ekki bara að kenna og ég verð alltaf jafn móðguð og reið í hvert skipti. Ég er kennari og ég vil kenna. Þess vegna fór ég í Kennaraháskól- ann og ég á fullan rétt á að sinna því starfí sem ég hef menntað mig í og hef réttindi til að gegna. Við sem erum í þessu starfi ætlum ekki að hætta, heldur viljum við beijast fyrir mannsæmandi launum. Af hveiju eru kennaralaunin svona lág? Hveijum er um að kenna? Eigum við e.t.v. sjálf sökina? Stærsti hlutinn af okkur eru konur og flestar með Qölskyldu og margar með lítil börn. Deginum er púslað saman og ekki má hreyfa eitt púslið án þess að myndin riðlist. Við eigum erfitt með að hlaupa á fundi eða vinna fram eftir, nema heima, að sjálfsögðu. Við konur erum svo vanar að vinna illa- og ólaunuð störf, að það þarf „Það skyldi þó aldrei vera að ráðamenn þjóð- arinnar eigi sök á lág- um launum kennara, skorti á námsefiii, ómarkvissri stefiiu í menntamálum, ósam- ræmi milii skólastiga og ofit ófullnægjandi aðstöðu fyrir nemend- ur og kennara.“ að hnippa í okkur öðm hvoru til þess að við tökum við okkur. Að auki er kennarastarfíð frekar ein- angrað starf, á vinnustað erum við mikið ein inni í í stofu ásamt nemend- unum okkar. Og þegar við hittumst, skipa kjaramálin ekki alltaf 1. sætið á umræðulistanum, heldur fagið og nemendumir. Þó við séum ekki alltaf nógu virk í kjarabaráttunni, eigum við sem betur fer duglegt fólk sem leggur mikið á sig til að bæta hag okkar og forystan í Kennarasam- bandinu hefur unnið mikið og vel. En það nær engri átt að kennarar skuli ekki vera í sama stéttarfélagi. Og það sést best núna þegar við getum ekki verið samstíga í aðgerð- um. Aðgerðirnar verða helmingi máttlausari. Við megum ekki gefast upp heldur gera allt sem í okkar valdi stendur til að verkfall HÍK verði sem áhrifamest. Því við munum væntanlega njóta góðs af og sanna um leið að sameining félaganna er nauðsynleg. Almenningsálitið? Vilja ekki allir góða kennara? Jú, bara ekki borga þeirh góð laun. Ég veit að starf okk- ar skilar góðum og oft miklum ár- angri. Við getum bara ekki sýnt hann í krónum og prósentustigum, eða með línuritum og súlum. Stjómmálamennimir? Ekki skyldu þeir vera sekir? Síðasta ríkisstjóm setti bráðabirgðalög sem fólu í sér mannréttindabrot. Ný ríkisstjóm tók við í haust, stjórn vinstri flokka sem kenna sig við félagshyggju og jafn- rétti. Nú skyldi vera sérstakt sam- starf milli hennar og samtaka launa- fólks. En hvað gerðist svo? Ég ætti e.t.v. að rita minningargrein í minn- ingu þeirra hugsjóna sem jarðaðar voru þegar sumir settust í ráðherra- stóla. Það skyldi þó aldrei vera að ráðamenn þjóðarinnar eigi sök á lág- um launum kennara, skorti á náms- efni, ómarkvissri stefnu í mennta- málum, ósamræmi milli skólastiga og oft ófullnægjandi aðstöðu fyrir nemendur og kennara. Ég á svo erfitt með að skilja af hveiju menn vilja ekki búa vel að þeirri kynslóð sem tekur við af okk- ur. Eiga ráðherrar og aðrir alþingis- menn engin börn? Jú, en þeir eru svo heppnir að til er fólk sem lætur sér annt um yngstu þegna þessa lands. Við reynum að bæta aðstöðuna, semja námsefni og Kennarasam- bandið sendi frá sér fyrir einu og hálfu ári mjög heilsteypta og ná- kvæma skólastefnu. Við viljum því fá laun miðað við vinnu. Já, hvað viljum við? Hækkun dag- launa. Við hljótum að krefjast þess að grunnlaun nægi til framfærslu vísitölufjölskyldu. Við krefjumst að sjálfsögðu að kaupmáttur sé tryggð- ur. Vextir þurfa að lækka. Koma þarf á verðstöðvun og skattleysis- mörk þurfa að hækka. Við viljum að kennsluskylda lækki til samræmis við kennsluskyldu á öðrum Norðurl- öndum. Starfsaldurshækkanir þurfa að koma fyrr. Og ég má til með að bæta við ósk margra nemenda um færri nemendur í hverri bekkjardeild. Það eru til tvær leiðir að þessum kröfum okkar. Önnur er á allan hátt skynsamlegri, en hún er samnings- leiðin. Við grátbáðum um samninga- fundi með ríkisstjórninni áður en samningur urðu lausir, biðum róleg þar til bráðabirgðalögum var aflétt og skiljum ekki af hveiju ekki er hægt að semja við okkur núna. Hin leiðin eru harðar aðgerðir. Menn geta deilt um réttmæti þess að ekki var boðað til verkfalls. En ekki er öil nótt úti enn. Ég held, að eins og málin standa í dag sé samstaða sterkasta vopnið. Við verðum að standa saman og treysta forystu KÍ um að velja réttu aðgerðirnar. Við erum mjög einangruð í starfí og það er erfítt að ná til allra. Því verður hver og einn að taka afstöðu, við þurfum að tala saman og styrkja hvert annað í baráttunni fyrir bætt- um lífskjörum. Guðrún Ebba Ólafsdóttir Stundum er sagt að kennarastarf- ið sé kvennastarf og þess vegna séum við ekki launuð sem skyldi. Ég lít ekki á það sem niðrandi að tilheyra kvennastétt. En það er eitt sem ger- ir mig enn reiðari en þegar ég er spurð af hveiju ég hætti ekki bara að kenna. Það er sú hugmynd að borga mér fyrir að hætta að kenna og vera heima í staðinn. Kannski er ég bara svona vanþakklát en aldrei yrði ungi maðurinn á uppleið spurður að slíku. Hann myndi líta á það sem allsheijar niðurlægingu eða jafnvel brottrekstur. Og þannig hlýt ég að taka því líka og öll stéttin. Til að ná fram jafnrétti þarf oft að stíga stór skref, stundum of stór. Til að ná fram viðeigandi kjörum, þarf að auka virðingu á starfinu. Og það hlýtur að teljast okkar hlutverk. Höfundur er grunnskólakennari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.